Morgunblaðið - 13.03.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.03.1997, Blaðsíða 36
.36 FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Urðhurðhurðauga ►URÐHURÐHURÐAUGA leikur einhverskonar rokk. Hana skipa Karl Óttar Geirsson trommuleikari, Guð- mundur Freyr Vigfússon bassaleikari og Sigurður Halldór Guðmundsson gítarleikari og söngvari. Lady Umbrella ►Lady Umbrella skipa Vigfús Snær Vigfússon gítar- leikari og söngvari, Júlús Arnar Birgisson bassaleik- ari, Fjalar Hauksson trommuleikari og Þorbjörn Sig- urðsson gítarleikari. Þeir segjast leika Seattlerokk. Hljómsveitakeppni Tónabæjar Músíktilraunir Tónabæjar Hljómsveitakeppni Tónabæjar, sem kall- ast Músíktilraunir, stendur nú yfir. Arni Matthíasson spáði í hljómsveitirn- ar sem keppa í kvöld. MÚSÍKTILRAUNIR hófust í síðustu viku og kepptu þá sjö hljómsveitir um sæti í úrslitum sem verða annan föstu- dag. Öllu fleiri sveitir keppa í kvöld og reyndar annað kvöld líka því vegna aðsóknar hefur tilraunakvöldunum Qölgað; eru fjögur í stað þriggja. Músíktilraunirnar 1997 eru þær fimmtándu í röðinni, Stórbruni ► STÓRBRUNI er úr Reykjavík og leikur rokktónlist. Liðsmenn eru Jóhannes Jóhannesson gítarleikari og söngvari, Hannes Berg Þórarinsson bassaleikari, Jón Gunnar Krisljánsson trommuleikari og Þór Óskar Fitz- gerald gítarleikari. Meðalaldur þeirra er sautján ár. Gaur ►GAUR heitir hljómsveit úr Garðabæ og leikur einfald- lega tónlist. Hana skipa Agnar E.K. Hansen gítarleikari og söngvari, Ragnar F. Magnússon bassaleikari og Frosti Runólfsson trommuleikari, allir ríflega sextán. sem þýðir að vel á fimmta hundrað sveita hefur stigið á svið í Tónabæ síðan fyrstu tilraunirnar voru haldnar. Verðlaun Músíktilrauna eru hljóðverstímar. í fyrstu verð- laun eru 25 tímar í Sýrlandi, fullkomnasta hljóveri lands- ins, sem Skífan gefur. Önnur verðlaun eru 25 tímar í Gijót- námunni frá Spori hf. og þriðju verðlaun eru 20 tímar í Stúdíó Hljóðhamri, sem hljóðverið gefur. Til viðbótar eru svo 20 hljóðverstímar í Stúdíói Hellinum, sem hljóðverið gefur, en þeir eru ætlaðir athyglisverðustu hljómsveitinni að mati dómnefndar. Aukaverðlaun eru svo gítar frá Hljóð- færabúð Steina sem besti gítarleikarinn hlýtur, besti söngv- arinn fær hljóðnema frá Tónabúðinni, besti bassaleikarinn úttekt frá hljóðfærahúsi Reykjavíkur og besti trymbillinn úttekt frá Samspili. Aðrir styrktaraðilar tilraunanna eru Hard Rock Café, Flugleiðir, Japís og Domino’s Pizza. Þess má geta að í sveitinni sem treður upp sem gesta- sveit í kvöld, Quarashi, eru tveir sem voru í sigursveit síð- ustu tiltrauna, Stjörnukisa, og einn sem komst í þriðja sæti með hljómsveitinni Wool sælla minninga. Triumphant Warrior ►TRIUMPHANT Warrior, sem rekur ættir síðan til umhverfis Hafnarfjarðar, leikur þungarokk. Hana skipa Bemhard Ragnarsson tommuleikari, Sindri Guðjónsson bassaleikari og Símon Hjaltason gítarleikari og söngv- ari. Meðalaldur þeirra er rúm sextán ár. Andhéri ► ANDHÉRI heitir Reykjavíkursveit sem liðsmenn henn- ar leika gleðilegt vonleysispopp. Þeir heita Örvar Þór- eyjarson Smárason sem leikur á gítar og syngur, Eyþór Ingi Eyþórsson sem leikur einnig á gítar, Gunnar Tynes bassaleikari og Númi Þorkell Thomasson trommuleik- ari. Meðalaldur Andhéra er rúm átján ár. Anus ►HLJÓMSVEITIN Anus leikur hávaðapönk. Anus-lið- ar eru Eyþór Jóhannesson gítarleikari, Hallgrímur Hallgrímsson trommuleikari og Arnar Ingi Hreiðars- son bassaleikari. Meðalaldur þeirra er 22 ár. Animosity ►HLJÓMSVEITINA Animosity skipa Jakob Þór Guð- mundsson sem leikur á gítar og syngur, Guðmundur Gunnlaugsson faðir hans leikur á bassa, Albert Ás- valdsson leikur á gítar og Snæbjörn Eyjólfsson leikur á trommur. Jakob og Albert eru fimmtán ára og Snæ- björn sautján, en Guðmundur er kominn á fimmtugs- aldurinn. Animosity leikur þungarokk. Fungus ►Fungus heitir hljómsveit úr Kópavogi skipuð Frið- geiri Eiríkssyni söngvara og gítarleikara, Sigurði H. Helgasyni gítarleikara, Óla Geir Höskuldssyni bassaleik- ara og Sverri Árnasyni trommuleikara. Þeir eru allir á nítjánda árinu og leika kæruleysislegt rokk. Drákon ►DRÁKON úr Keflavík leikur kengúruþungarokk. Hana skipa Ingi Þór Ingibergsson gítarleikari, Arnar Már Frímansson bassaleikari, Eyjólfur Kristinsson söngvari og Jóhann Daði Albertsson trommuleikari, allir á sextánda árinu. RYMINCARSALA ALDARINNAR dagar eftir Nýtt kortatímabil hafið Skór kr. 1.490 Gallar kr. 1.990 o.fl. o.fl. »hummél é SPORTBÚÐIN Nóatúni 17, sími 511 3555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.