Morgunblaðið - 13.03.1997, Blaðsíða 27
Raflagnaefní
frá
ticino
KVARTETT Agnars Más
Magnússonar.
Kvartett
Agnars Más
á Múlanum
DJASSTÓNLEIKAR verða á
vegum djassklúbbsins Múlans á
Jómfrúnni, Lækjargötu 4, föstu-
daginn 14. mars kl. 21. Þá stíg-
ur á svið Kvartett Agnars Más
Magnússonar.
Með Agnari Má leika tenór-
saxófónleikarinn Jóel Pálsson,
Bjarna Sveinbjörnsson kontra-
bassaleikari og Matthías M.D.
Hemstock trommuleikari.
í kynningu segir m.a.,
að þeir félagarnir muni leika
lagrænan nútímadjass og bebop
að hætti Herbie Hancock, Chick
Corea, Keith Jarrett og fleiri.
Aðgangseyrir er kr. 1.000,
nema fyrir ellilífeyrisþega kr.
500.
Kabarett í
Kópavogi
MENNTASKÓLINN að Laugar-
vatni sýnir söngleikinn Kabarett
tvisvar í Félagsheimili Kópavogs
föstudaginn 14. mars kl. 20 og kl.
22.45. Um 50 nemendur úr
Menntaskólanum taka þátt í sýn-
ingunni á einn eða annan hátt enda
er hún mjög umfangsmikil og mik-
ið í hana lagt. Leikstjóri er Ingunn
Jensdóttir en tónlistarstjórn er í
höndum Hreiðars Inga Þorsteins-
sonar, Hilmars Arnar Agnarssonar
og Hjartar Hjartarsonar.
í kynningu segir. „Söngleikurinn
gerist í Berlín um það leyti þegar
nasistar eru að ná völdum. Við
sjáum hvernig valdataka nas-
istanna breytir lífi sögupersónanna
eftir því sem líður á verkið. í Kit
Kat klúbbnum gengur hins vegar
allt sinn vanagang, þar sem siða-
meistarinn og kabarettstelpurnar
troða upp með glæsilegum
skemmtiatriðum.“
Lokasýningin er í Vík í Mýrdal
laugardainn 15. mars kl. 21.
Njörður og
Hjörtur lesa í
Gerðarsafni
NJÖRÐUR P. Njarðvík og Hjörtur
Pálsson verða gestir vikunnar á
upplestri Ritlistarhóps Kópavogs í
Gerðarsafni í dag, fimmtudaginn
13. mars. Lesa þeir úr frumsömdum
ljóðum sínum og ljóðaþýðingum.
Njörður P. Njarðvík hefur sent
frá sér frumsamdar skáldsögur og
ljóð, barnabækur, fræðirit og
kennslubækur, auk þýðinga. Hann
valdi og kynnti ljóð dagsins í ríkisút-
varpinu á síðasta ári.
Hjörtur Pálsson hefur sent frá
sér ljóðabækur og þýðingar, auk
þess sem verk hans hafa víða birst.
Hann starfaði um árabil við útvarp-
ið, og hefur flutt þar ótal þætti
bæði fyrr og síðar.
Dagskráin verður í kaffistofu
Gerðarsafns og stendur milli kl. 17
og 18.
Tónleikar í
Hvoli og Stóra-
dalskirkju
SAMEIGINLEGIR tónleikar Sam-
kórs Rangæinga og kórs Grafar-
vogskirkju verða haldnir í félags-
heimilinu Hvoli föstudaginn 14.
mars ki. 21. Dagskráin hefst með
söng kóranna og þar á eftir verður
boðið upp á ýmislegt annað
skemmtilegt.
Samkór Rangæinga mun síðan
sunnudaginn 16. mars syngja á
dvalarheimilum aldraðra á Heilu og
á Hvolsvelli og um kvöldið kl. 21
heldur kórinn tónleika í Stóradals-
kirkju.
Aðgangseyrir er kr. 800, en fyrir
hjón kostar kr. 1.200.
|eð auknum erlendum fjárfestingum
fæst meira áhættufé í íslenskt alvinnulíf
í stað þess að erlendar skuldir auldst.
Tækniþekking flyst til landsins og
aðgangur að erlendum mörkuðum
opnast. Með þessu styrkisl sam-
keppnishæfnin og vöruþróunar- og
markaðsstarf verður öflugra.
íslendingar hafa verið óragir við
að taka lán í útlöndum til að fjár-
festa í atvinnulífi sínu. Erlendir
aðilar hafa sýnt íslensku atvinnulífi vaxandi áhuga
þrátt í'yrir að umhverfið liaFi verið þeim framandi
og jafnvel andsnúið. Umfang erlendrar ljárfestingar
á íslandi er afar lítið en liefur farið vaxandi.
Rýmka þarf heimildir til
erlendrar fjárfestingar.
Fleiri iðnfyrirtœki þarf að
skrá á hlutabréfamarkaði.
Stunda þarf öfluga kynningu
á fjárfestingarkostum.
Fyrirtœki þurfa að efla erlent
samstarf.
Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að vöxtur þessi
sé aukinn með því að afnema hindranir og gera Ijár-
festingarkosti, sem hér bjóðast,
aðgengilega og fýsilega enda ljóst
að erlent áhættufé hefur marga
kosti umfram erlent lánsfé.
SAMTOK
IÐNAÐARINS
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 27
LISTIR
Góð hönnun
Þægmdi
c
Öryggí
C ~G»ðí
LIVING
INTERNATIONAL
er fyrin allar genðir af
dósum, bæði hringlaga
og kantaðar og fæst
í 22 litum.
S.Guðjónsson ehf.
Auðbrekka 9-11« 200 Kópavogi
Sími: 554 2433