Morgunblaðið - 13.03.1997, Side 16

Morgunblaðið - 13.03.1997, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Morgunblaðið/Páll Ketilsson UNNIÐ að slökkvistarfi í Sandgerði. Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar Áætlaðar skatttekjur 301 milljón króna BÆJARSTJÓRN Snæfellsbæjar hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 1997. Áætlaðar skatt- tekjur eru 301 millj. og tekjur af rekstri málaflokka eru áætlaðar 84 millj. Rekstur málaflokka er áætlaður 322 millj. Með rekstrar- og fjármagnskostnaði er áætlaður greiðsluafgangur 42 millj. og er gert ráð fyrir að veija 30 millj. til framkvæmda og 12 millj. til niður- greiðslu á skuldum. Gatnagerð og vatnsveita Samkvæmt fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að veija 40% af rekstrargjöldum til fræðslumála, 9% til yfirstjórnar bæjarins en það er 3% lækkun frá fyrra ári og 8% til félagsþjónustu. Helstu fram- kvæmdir eru vegna gatnagerðar 30 milljónir til framkvæmda og er áætlað að veija til þeirra 7 millj. og einnig til vatnsveitu fyr- ir sömu upphæð. Til endurbóta á skólum bæjarins er áætlað að veija 4 millj. Nýtt íþróttahús í ijárhagsáætluninni er heimild- arákvæði til handa bæjarráði að hefja smíði íþróttahúss á árinu takist að losa fjármagn, sem bær- inn er með bundið í atvinnulífinu, segir í frétt frá bæjarstjóra. Skip- aður hefur verið fjögurra manna starfshópur til að undirbúa smíði hússins og á hann að skila tillögum að staðsetningu og tegund húss fyrir 10. maí næstkomandi. Fram kemur að í heild miði fjár- hagsáætlunin að því að búa yngri kynslóðinni betri bæ með betur búnum skólum, endurnýjun leik- tækja á leikvöllum og fullkominni íþróttaaðstöðu. Þrír grasvellir eru í bænum en þar búa um 1.800 manns. Einnig er stefnt að fjöl- breyttara sumarstarfí fyrir börn og unglinga með starfrækslu skólagarða og smíðavalla en vinnuskóli bæjarins flokkast nú undir fræðslumál. Aðrar helstu breytingar, sem stefnt er að er að draga verulega úr rekstri vél- amiðstöðvar með sölu á flestum tækjum hennar og kaupum á þjón- ustu af einkaaðilum. Góður árangur Jarðborana hf. í Þykkvabæ 90 gráða heitt vatn finnst á 1.250 metra dýpi Skemmdir á blásara í loðnuverk- smiðju í Sandgerði Eldtungur stóðu langt upp í loft ELDUR kom upp í loðnubræðslunni Nirði hf. í Sandgerði við Garðveg um miðjan dag á þriðjudag. Að sögn Reynis Sveinssonar, varaslökkviliðs- stjóra í Sandgerði, stóðu eldtungur nokkra metra upp í loftið í gegnum tvo reykháfa verksmiðjunnar þegar að var komið. Eldurinn kom upp í þurrkara í bræðslunni og má rekja eldsupptökin til bilunar í blásara sem á að kæla þurrkarann. Blásarinn stöðvaðist og þegar far- ið var að vinna á ný kom upp mikill eldur í þurrkaranum. Eldurinn var í skorsteinshúsinu sem er stálhús inni í bræðslunni. Skemmdir urðu ekki á húsinu utanverðu. Langan tíma tók að kæla skor- steinshúsið niður. Reynir segir að þetta hafí gerst áður í verksmiðjunni fyrir nokkrum árum. Einhveijar skemmdir urðu á blás- aranum en að öðru leyti er ekki talið að um mikið tjón sé að ræða. Hins vegar er Ijóst að loðnubræðsla stöðv- ast í nokkra daga í Sandgerði. Hellu - Starfsmenn Jarðborana hf. hafa síðan í janúar si. borað eftir heitu vatni í Þykkvabæ. Bor- að var með jarðbornum Narfa nið- ur á 1.250 metra dýpi þar sem heitavatnsæð fannst með 90 gráða heitu vatni. Að sögn Heimis Haf- steinssonar, oddvita í Djúpár- hreppi, skiptir þetta heita vatn miklu máli fyrir framtíð byggðar- lagsins. Þór Gíslason, tæknifræðingur hjá Jarðborunum hf., sagði í sam- tali við fréttaritara Morgunblaðs- ins að ekki yrði farið á meira dýpi með borinn. „Holan er mjög góð á 1.100 metra dýpi, en næsta skref verður að fóðra holuna, þ.e. loka fyrir kaldavatnsæðar sem liggja að henni. Nauðsynlegt er að fóðra niður á um 470 metra dýpi og fyrirsjáanlegt er að við munum þá koma til með að fá upp 75-80 gráða heitt vatn. Það er ánægju- legt að sjá þennan góða árangur hér í dag, en áður fyrr var nú oft hlegið að mönnum sem datt í hug að nefna heitt vatn hér á þessum slóðum. Það er áreiðanlegt að víða um Suðurland er að finna jarðhita og jafnvel þar sem menn eiga síst von á.“ Meiri hiti en gert var ráð fyrir Heimir Hafsteinsson, oddviti Djúpárhrepps, segir heita vatnið skipta sköpum fyrir framtíðar- byggð á svæðinu. „En það er best að vera hóflega bjartsýnn um framhaldið, þó að þessar tölur gefi til kynna að hitinn dugi til hitaveitu í Þykkvabæ. Vatnið er meira að segja 10-15 gráðum heitara en spáð hafði verið, þann- ig að við erum nokkuð vongóð um góða útkomu. Endanleg niður- staða fæst að fóðrun lokinni þegar holan verður mæld aftur,“ sagði Heimir. Ekta teppi á lægra verði en gervimottur! S. 8975523 Vorútsaia okkar hefst í dag kl. 13 á Grand Hótei Reykjavík í Sigtúni A.m.k 30% afsláttur af öllu (miöaða við stgr. 25% ef greitt er með greiðslukorti) Afgönsk Balutch frá kr. 8.100 Mörg stór teppi - margir renningar Opið fimmtudag 13-18 ■ föstudag 13-19 ■ laugardag 11-17 Morgunblaðið/Atii Vigfússon FRÁ námskeiði um mjólkurgæði og júgurheilbrigði að Ydölum í Aðaldal. Góð aðsókn að nám- skeiðum hjá Búnaðarsam- bandi S-Þingeyinga Laxamýri - Mjólkurgæði og júg- urheilbrigði var yfirskrift tveggja daga námskeiðs sem haldið var að Ydölum fyrir helgina og var velsótt. Áhugi hefur verið á því að færa námskeiðshald meira heim í hérað þannig að bændafólk þurfi ekki að fara landshluta á milli til þess að stunda símenntun í þeim bú- greinum sem það stundar. Á nám- skeiði þessu kenndu Auður Lilja Arnþórsdóttir, dýralæknir júgur- sjúkdóma á Hvanneyri, Sigtrygg- ur Björnsson, verknámskennari, Maria Svanþrúður Jónsdóttir ráðunautur og Kristín Halldórs- dóttir frá rannsóknastofu Mjólk- ursamlags Kaupfélags Þing- eyinga. Efnisþættir voru einkum júgur- sjúkdómar, mjaltir- og mjalta- tækni, áhrif umhverfis á mjólkur- gæði og júgur sem og fjósbygging- ar. Verklegi þátturinn fór fram í Grímshúsum í Aðaldal þar sem kennsla fór fram í mjöltum og starfsemi mjaltavéla. Þá skal geta þess að fleiri nám- skeið eru í gangi og til stendur að halda bókhaldsnámskeið, rafs- uðunámskeið og fleira auk þess sem sauðfjárnámskeið stendur yfir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.