Morgunblaðið - 13.03.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 23
URVERINU
„ÞVÍ hefur m.a. verið velt
upp hvort sjómenn væru að
draga einhverja atferlisgalla
með sér í land sem gerði það
að verkum að þeir væru
hættulegri í umferðinni en
aðrir, en skv. könnun, sem
gerð var hjá Vinnueftirliti
ríkisins fyrir nokkrum árum
á dánarorsökum sjómanna,
kom í ljós að næst á eftir sjó-
slysum, létust sjómenn í bíl-
slysum á tilteknu árabili.
lega sinn vinnustað út frá þessum
forsendum."
Einhvers staðar er
brestur í kerfinu
„Mér fínnst skorta mjög á
áhuga þeirra aðila, fyrir öryggis-
málum sem eiga að bera ábyrgð,
skipstjórnar- og útgerðarmanna.
Það skynja ég í gegnum mína
nemendur þó töluverður munur sé
á yfirmönnum og undirmönnum í
þessu sambandi. Undirmennirnir
lýsa ástandinu yfírleitt mun verr
en skipstjórnarmenn vilja vera
láta, enda kannski ekki óeðlilegt
þar sem að þeim finnst vegið að
sér. Og það eru eflaust ekki marg-
ir útgerðarmenn, sem taka á móti
skipum sínum við heimkomu og
spyrja fyrst hvort einhver óhöpp
hafi orðið í túrnum.
Slysatölurnar tala aftur á móti
sínu máli og sýna glögglega að
einhvers staðar er brestur í kerf-
inu. Það er ekki alltaf hægt að
skella skuldinni á þá, sem verða
fyrir slysunum, því stjórnunar-
vandinn vegur oftast miklu
þyngra. Það vantar umræðu um
hvað megi betur fara út frá áhafn-
arheild. En því miður er skipstjór-
inn oft einráður og illa móttæki-
legur fyrir hugmyndum undir-
manna sinna að nýjungum og
breytingum um borð þótt þær
kunni að vera til batnaðar auk
þess sem víða ber á hræðslu við
karlinn í brúnni ef menn ætla að
fara að amast út í aðbúnað,“ seg-
ir Hilmar.
Ófullnægjandi
tilkynningaskylda
Algengustu slysin, skv. skýrsl-
um Rannsóknanefndar sjóslysa,
tengjast vinnu við spil. í því sam-
bandi eru villandi merkjagjafir í
flestum tilfellum orsakavaldurinn,
sem að sögn Hilmars, er ekkert
annað en skortur á verkstjórn og
agaleysi. Oft væru margir að arga
á spilmanninn í einu sem fæn eft-
ir þeim sem argaði hæst. „Þetta
^ímiaxitaíuMÍð
Fermingagjafir, glæsilegt úrval
‘fnikært vcró
Morgunblaðið/Ásdís
er eins og á fótboltavellinum. Ef
menn vinna ekki saman, v.erða
engin mörk skoruð.“ í öðru lagi
slasast menn vegna þess að þeir
standa í skotstöðu víra og tóga.
Hilmar segir slík slys geta verið
mjög alvarlegs eðlis og bætir við
að engin krafa sé gerð um þjálfun
nýrra manna til að stjórna krana
um borð þótt enginn megi hífa
með krana í landi nema hafa til
þess próf. Sömuleiðis er algengt
að menn renni og detti um borð
og verði fyrir skurðum og stungum
við vinnu sína.
Mikill misbrestur er á að til-
kynningar um sjóslys séu full-
nægjandi. Mikilvægt er að tilkynn-
ingarnar berist sem fyrst enda því
lengri tími, sem líður frá slysi til
rannsóknar, því minni líkur eru á
að réttar upplýsingar fáist um
atvik og orsakir. Skipstjóra er
skylt að tilkynna til lögreglu um
slys, sem verða um borð í skipi
hans. Lögregluyfirvöld eiga síðan
að tilkynna Siglingastofnun og
Rannsóknarnefnd sjóslysa um öll
sjóprófsskyld slys.
Hlutverkaskiptingin
þarf að vera ljós
Þótt engar haldbærar kannanir
liggi fyrir um raunverulega fækkun
slysa frá stofnun Slysavamaskóla
sjómanna, er ljóst að þeim slysum,
sem tilkynnt eru Tryggingastofnun
ríkisins, hefur heldur farið fækk-
andi. Sem dæmi um það má nefna
að árið 1990 voru 620 slys á sjó-
mönnum tilkynnt Tryggingastofn-
un, en 434 slys árið 1996.
„Ég ætla rétt að vona að sú
fræðsla, sem við veitum, veki sjó-
menn til umhugsunar. Ef ástandið
væri gott, værum við ekki að tala
um tíu slys á viku. Það þarf að
koma á betri verkstjórn og það
þarf að vera ljóst hvaða hlutverki
menn eiga að gegna um borð. Það
þurfa ekki allir að gefa krana-
manninum merki, heldur er alveg
nóg að einn sjái um það. Mörg
skip eru til fyrirmyndar, en hjá
öðrum er margt í ólagi. Skip-
stjóri, sem lendir í því að þurfa
að sigla mörgum sinnum á ári í
land með slasaða sjómenn, eins
og dæmi eru um, hlýtur að þurfa
að skoða það mjög gaumgæfilega
hvað er að gerast á vinnustaðn-
um,“ segir Hilmar Snorrason.
osa
Falleg og skemmtileg
vegg- og loftljós.
Fást í 3 litum.
vowww 1.990 kr.
iimu
n£frsjofjn
Kyraituþér
oii kveiklu *í
erúrvalið
og kveiKtu a perurau,
Ódýr og góð ljós íytir lieiniilið
og í fen nii igatpakkat m.
1.298 kr.
Frábær Equa borðlampi
í fermingarpakkann.
\.-i-o iiður
'<•1*1 mi (>.500 kr.
Loftljós, 3 litir. 1.995 kr.
Global útiljós
2.290 kr.
UX
Húsasmiðjan er opin:
Verslun Skútuvogi 16 • Simi 525 3000 Verslun og timbursala Helluhrauni 16, Hafnarfirði
Opið mán. - fös. 8-18 Sími 565 0100
Lau. 10-16 Opið mán. - fös. 8-18
Sun. 12-16 Lau. 9- 13
Timbursala Súðarvogi 3 -5 • Simi 525 3000 Verslun og timbursala Smiðjuvöllum 5, Keflavík
Opið mán. - fös. 8 - 12 og 13 - 18 Sími 421 6500
Lau. 10-14 Opið mán. - fös. 8-18 Lau. 9- 13
DEMANTAHUSIÐ
Nýju Kringlunni, simi 588 9944
Grænt númer Húsasmiðjunnar 800 6688
HUSASMIÐJAN