Morgunblaðið - 13.03.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 29
LISTIR
^KIíFkfélag^SI
BfREYKJAVÍKURjg
1897-1997
TÓNLISTARFLUTNINGUR, sem nær því að kallast megi fullkom-
inn, segir í umsögn um tónleika þeirra Birgit Erichson, Gerrit
Zitterbart og Ulrich Beetz.
Öll regnbogans litróf
TONLIST
Listasafni Kópavogs
ABEGG TRÍÓ
Flytjendur, Ulrich Beetz, fiðla, Birg-
it Erichson, selló, Gerrit Zitterbart,
píanó. 11. mars kl. 20.30
SVO SKRÍTIÐ sem það nú er,
er maður settur í nokkurn vanda
með því að eiga að skrifa gagn-
rýni um tónlistarflutning, sem nær
því að kallast megi fullkominn, þar
sem hvergi finnst feilspor, hvergi
ónákvæmni í samleik, hvergi dauð-
ur punktur. En sem betur fer telst
gagnrýni ekki sú ein sem telur
óheppnu hliðarnar, heldur og það
sem öðrum mætti til fyrirmyndar
verða.
Hljóðfæraleikarar Abegg tríós-
ins eru allir þýskir, koma hingað
á vegum Göethe-stofnunarinnar ,
sem ásamt Kópavogsbæ stendur
að tónleikunum í Gerðarsafni, tón-
leikum sem munu vera síðastir á
tónleikaferð tríósins um Norður-
lönd. Fyrsta verk tónleikanna var
c-moll Tríó op. 101 eftir
J. Brahms. Strax í fyrsta takti
tríósins greip leikur þess mann og
ljóst var að um var að ræða hóp
í fremstu röð kammermúsíkhópa.
Hvert þeirra hafði þó sinn per-
sónulega leikstíl og voru alls ekki
sem steypt í sama mót. Fiðluleik-
arinn með afar öruggan tón og
virtist eiga það magn til í tóninn
sem til þurfti hveiju sinni. Píanó-
leikarinn með óvenju mjúkan
áslátt og tækni sem virtist leika í
höndunum á honum og var ekki
erfitt að ímynda sér að Brahms
sjálfur sæti við píanóið. Sellóleik-
arinn með hljóðfæri sem hljómaði
óvenju mikið á neðri strengjunum,
spilaði af hárfínni nákvæmni og
ef eitthvað væri hægt að leita
uppi, væri kannski það, að undir-
rituðum fannst að tónhendingarn-
ar hefði mátt hugsa í stærri bog-
um. Svo samgróinn var leikur
þeirra að smá misfella í öndun
hefði orðið hávaðasamur feill, og
oft hafði maður á tilfinningunni
að tónninn kæmi annaðhvort neð-
an úr jörðinni eða ofan úr skýjun-
um. Skaphitinn var og á sínum
stað og svo ólgandi að lítill salur
Gerðarsafns hefði þolað aðeins
minni átök og þó engu glatað.
Tríóið í d-moll op. 49 eftir F.
Mendelssohn-Bartholdy spiluðu
þau feiknavel. Þó fannst mér, sér-
staklega í fyrsta þættinum, að
ennþá væru þau að spila Brahms,
að eitthvað vantaði á hina norrænu
heiðríkju Mendelssohns. Schubert
tríóið í B-dúr, og eina tríóið á tón-
leikunum í dúr, var kannske fal-
legast og sannast flutt, hér voru
himneskar lengdir Schuberts sem
smyrsl á sár. Reyndar gæti maður
velt fyrir sér hvað vivace merkir,
sbr. síðasta þáttinn, og einhveijum
hefði vafalaust þótt hann mega
vera örlítið hraðari, en rondo er
kaflinn og orðið vivace getur velt
upp vandamálum, ef menn vilja.
Hér var öllum þrem tónskáldun-
um, sem afmæli eiga í ár, gerð
glæsileg skil og óhætt er að full-
yrða, að tæplega hafa jafnfáir
heyrt fullkomnari tríóleik á ísland-
smiðum, en heyrðist á þriðjudags-
kvöldið í Gerðarsafni Kópavogs.
Með auka -,,laginu“, sem var hæg-
ur þáttur úr tríói eftir Brahms,
sýndu þau áheyrendum á meist-
aralegan hátt dýpt tónlistar þessa
skáldjöfurs. Þetta verða, að ég
held, ógleymanlegir tónleikar þeim
sem heyrðu.
Ragnar Björnsson
YDLUNDARHUS
eftir Sigurð Pálsson ;
Leikendur:
Ari Matthíasson, Björn Ingi Hihnarsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Kristján Franklín Magnús, Pétur Einarsson, Sigurður Karlsson,
Valgerður Dan, Þórhallur Gunnarsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Hljóð: Baldur Már Arngrímsson. Lýsing: Lárus Björnsson. Búningar: Þórunn Jónsdóttir.
Sviðsmynd: Steinþór Sigurðsson. Leikstjórn: Þórliildur Þorleifsdóttir.
Frumsýning á Stóra sviðinu föstudaginn 14. mars kl. 20.00. Uppselt.
2. sýning sunnudaginn 16. mars. Örfá sæti laus.
3. sýning miðvikudaginn 19. mars. Örfá sæti laus.
IC GLU
Buxur
verð áður
4.990, -
verð nú
3.990,-
Skyrta
m/rennilás
verð áður
3.990, -
verð nú
2.490,-
Skór
verð áður
6.990, -
verð nú
3.990,-
Buxur
verð áður
5.990, -
verð nú
4.790,-
Skyrta
verð áður
3.990, -
verð nú
2.490,-
Skór
verð áður
6.990, -
verð nú
3.990,-
Peysa
100% ull
verð áður
5.790,-
verð nú
3.990,-
Buxur
verð áður
5.990, -
verð nú
4.790,-
Skór
verð áður
6.990, -
verð nú
3.990
Peysa
100% ull
verð áður
5.790,-
verð nú
3.990,-
Vesti
verð áður
4.490, -
verð nú
2.490,-
Lee Cooper
cjallabuxur
verð áður
5.490, -
verð nú 4.490,-
Peysa 100% ull
verð áður 5.790,-
verð nú 3.990,-
Peysa m/rennilás
100% ull
verð áður 6.790,-
verð nú 4.490,-
Cars gallabuxur
verð áður 4.990,-
verð nú 3.790,-
Einriig mörg önnur spennandi tilboð t.d.
herrajakkar verð áður 6.990,- verð nú 4
Gildir einnig í Kjallaranum, Laugavegi 67 KjStoww
Kringlunni
slmi 568 9995