Morgunblaðið - 13.03.1997, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 49
f
1
I
J
5
i
I
.1
I
i
I
1
5
I
:
<
:
i
i
i
I
<
(
i
i
(
Fræðslu-
erindi um
fjölskyldu
og heimili
ÞRIÐJA fræðsluerindi af fjórum á
vegum Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra, þar sem fluttir eru fyrirlestr-
ar um heimilið og fjölskylduna verð-
ur í kvöld, fimmtudaginn 13. mars
kl. 20.30 í Breiðholtskirkju í Mjódd.
Að þessu sinni fjailar sr. Irma Sjöfn
Oskarsdóttir, presturvið Seljakirkju,
um efnið: Vinnan og heimilið.
Fræðslufundundunum lýkur síðan
fimmtudaginn 20. mars með því að
sr. Gunnar Siguijónsson, sóknar-
prestur í Digranesprestakalli fjallar
um efnið: Ijölskyldan og frístundirn-
Að fyrirlestrunum loknum gefst
fólki tækifæri til að beina fyrirspurn-
um til fyrirlesaranna og taka þátt í
umræðum um umfjöllunarefni
þeirra. Þátttaka í þessum fræðslu-
stundum er ókeypis og ekki þarf að
skrá sig sérstaklega.
---------------
Rætt um bók-
menntir í há-
skólafyrirlestri
FRANSKI rithöfundurinn og há-
skólakennarinn Daniéle Sallenave
heldur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands í
stofu 101 í Lögbergi í dag, fimmtu-
daginn 13. mars kl. 17.15. Fyrirlest-
urinn verður fiuttur á frönsku en
ágripi á íslensku verður dreift til
áheyrenda sem þess óska.
Fyrirlesturinn nefnist Le don des
morts eða Gjafir hinna látnu og ijall-
ar um nauðsyn og vanda þess að
miðla þekkingu á bókmenntum og
ánægju af lestri þeirra til nýrra kyn-
slóða.
-----♦ ♦ ♦-----
Listasmiðja
sunnudagaskól-
ans í Hvaleyrar-
skóla
í ALLAN vetur hefur verið starfandi
sunnudagaskóli á vegum Hafn-
arfjarðarkirkju í Hvaleyrarskóla.
Hefur starfið gengið vel og verið vel
sótt. Eftir jól hefur verið unnið með
ýmis þemu sem krakkar, foreldrar
og leiðbeinendur hafa útsett saman.
Eitt þemað var tónlistarsköpun.
Bjuggu börnin þá til hljóðfæri og
stofnuðu hljómsveit. Annað þema
sem unnið hefur verið undanfarna
sunnudaga er listsköpun.
Næstkomandi sunnudag, 16.
mars kl. 11, munu börnin sýna af-
rakstur listastarfsins. Öllum sem
áhuga hafa er boðið að koma og sjá
hvað börnin hafa skapað. Á eftir er
boðið upp á kaffi, safa og smákök-
ur. Leiðbeinendur eru sr. Þórhallur
Heimisson, Bára Friðriksdóttir og
Ingunn Hildur Hauksdóttir.
-----♦_♦_♦-----
Borgarafundur
um umferðarmál
BORGARAFUNDUR um umferð-
armál í Kópavogi verður haldinn í
dag, fimmtudaginn 13. mars, kl.
20.30 í íþróttahúsinu Smáranum.
Þar gefst Kópavogsbúum og öðru
áhugafólki tækifæri til þess að fylgj-
ast með starfí umferðarnefndar,
skipulagi umferðarmannvirkja,
þ.á m. lagningu göngu- og hjólreiða-
stíga og umferðaraðstæðum skóla-
bama.
Einnig verður rætt um umferðar-
löggæslu framtíðarinnar í bænum
og loks verða pallborðsumræður þar
sem fólki gefst gott tækifæri til fyr-
irspurna, en forystumenn Kópavogs-
bæjar og umferðarmála verða fyrir
svörum.
FRÉTTIR
Snjóbrettamót í
Bláfjöllum
SNJÓBRETTAMÓT Týnda
hlekksins og KRÍM verður hald-
ið í Bláfjöllum laugardaginn 15.
mars. Keppt verður í svokölluð-
um „Big Jump“ en þá stökkva
keppendur af stórum stökkpalli
og framkvæma ýmsar kúnstir í
loftinu áður en lent er aftur.
Að venju verður keppt í þremur
flokkum, stráka 15 ára og yngri,
stráka 16 ára og eldri og svo í
stúlknaflokki. Ef veður og að-
stæður leyfa verður einnig
keppt í „boardercrossi", en þá
fara nokkrir keppendur í einu í
þrautum lagða tímabraut, og er
keppni þá með útsláttarfyrir-
komulagi. Skráning keppenda
fer fram í snjóbrettaverslunun-
um Týnda hlekknum, Hafnar-
stræti 16, og í KRÍM, Laugavegi
12.
Kaupir land fyr-
ir indversk börn
GÖTUBÖRN í Kalkútta á Indlandi.
ABC hjálparstarf leit-
ar nú eftir stuðningi
landsmanna við björg-
un kornabarna á Ind-
landi en tilgangur
hjálparstarfsins er að
gefa þeim börnum líf
sem annars væru borin
út og deydd en það eru
fyrst og fremst stúlku-
börn sem hljóta þau
örlög. Samstarfsaðilar
ABC á Indlandi hafa
fengið flöldann allan
af beiðnum um að taka
við nýfæddum börnum
sem hafa verið yfirgef-
in.
ABC hjálparstarf er
um þessar mundir að
kaupa land fyrir nauð-
stödd börn 44 km utan
við Madras á austur-
strönd Indlands en auk
kornabarnastarfsins
mun einnig barna-
heimili sem samtökin
reka í Madras með 60
börnum flytjast á
þetta nýja land. Það
hefur hingað til verið í þröngu leigu-
húsnæði sem þarf að rýma í vor og
mun því strax verða hafist handa
við byggingarframkvæmdir á land-
inu bæði fyrir barnaheimilið og fyrir
kornabörn ef fjármagn gefst.
Þetta er í annað skiptið á rúmu
ári að ABC hjálparstarf kaupir land
á Indlandi fyrir nauðstödd börn. í
september 1995 var keypt land fyrir
Heimili litlu ljósanna þar sem rúm-
lega 600 böm dvelja. Landið fékk
nafnið ísland og er þar nú verið að
byggja skóla með tuttugu skólastof-
um og hreinlætisaðstöðu fyrir heim-
iiið.
Auk þess að byggja upp aðstöðu
til að hýsa nauðstödd börn sér ABC
hjálparstarf nú fyrir 2000 börnum
með hjálp íslenskra stuðningsaðila.
Það vantar nú stuðningsaðila fyrir
rúmlega hundrað börn á Heimili litlu
ljósanna en það kostar ekki nema
1450 kr. á mánuði að sjá fyrir hverju
barni, segir í fréttatilkynningu.
ABC hjálparstarf er eingöngu
unnið í sjálfboðavinnu og fer hver
króna sem gefin er til starfsins
óskert til hjálpar nauðstöddum börn-
um. Söfnunarreikningur hjálp-
arstarfsins er í íslandsbanka 537-
26-151, en einnig er tekið við fram-
lögum á skrifstofu starfsins að Sól-
túni 3.
-------»' ♦'■♦------
■ FÉLAGARNIR Jón Gnarr og
Sigurjón Kjartansson halda Tvi-
höfðakvöld í Rósenberg-kjallaran-
um í kvöld, fímmtudagskvöldið 13.
mars. Munu þeir fara með gaman-
mál fyrir gesti.
Húsið verður opnað klukkan
21.30.
ÚTI fyrir ströndum Patagoníu.
Póstkorta-
röð og
veggspjald
LAXAKORT hf. hafa gefið út syrpu
átta póstkorta með myndum af ham-
förunum í Vatnajökli í fyrra. Á kort-
unum er rakin saga eldgossins, allt
frá því að sigkatlar mynduðust yfir
gossprungunni undir jöklinum og
þar til að Skeiðarárhlaupið mikla var
hjaðnað. Kortin eru sérstaklega
merkt og númeruð og með skýring-
um á ensku og íslensku á bakhlið.
Einnig hafa Laxakort hf. gefið út
veggspjald með myndum frá gosinu
í Vatnajökli og Skeiðarárhlaupinu.
Myndirnar á kortunum og vegg-
sjíjaldinu tóku Ragnar Axelsson,
Árni Sæberg og Þorkell Þorkelsson.
Kortin og veggspjaldið eru að öllu
leyti unnin hér innanlands. Litgrein-
ing og filmuvinna var í höndum Lit-
mynda og Offsetmyndir sf. önnuðust
prentun.
Myndasýning
í Mörkinni 6
„HANDAN við sjóndeildarhring-
inn“ er heiti á myndasýningu sem
haldin verður í Mörkinni 6 (Ferð-
afélagssalnum), fimmtudaginn 13.
mars klukkan 20.30.
Sigríður Ragna Sverrisdóttir
sýnir þar myndir frá leiðangri
(Sea, Ice, Mountain) sem hún tók
þátt í. Leiðangurinn stóð í fimmt-
án mánuði en siglt var eftir endi-
löngu Kyrrahafi og upp Atlants-
hafið. Komið var við á m.a.
Hawaii, Polynesíu, Páskaeyju,
Eldlandi, Úrúgvæ og Azoreyjum
svo eitthvað sé nefnt.
Markmið leiðangursins var að
kanna óþekkt svæði í Patagóníu
en þar aðstoðuðu þau chileska sjó-
herinn við kortagerð.
Siglt var á 18 metra löngu segl-
skipi (kútter) sem byggt var árið
1931 og ber nafnið Dagmar Aaen.
EITT kortanna í Vatnajökulsröðinni.