Morgunblaðið - 13.03.1997, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
§1 W£> E&JAI nruc&K> ) FÓLKjL/iN/V I | AFHVeRJÖ SEMOR) n* | j| ö&OJfl BKJCL ? 1 | ]
fíf| iHí
Ferdinand
Smáfólk
O 1996 United Feature Syndtcate. Inc.
Nú eiga rík-
isstj órnarflokk-
amir leik
Frá Hafsteini Þorvaldssyni:
AÐ GEFNU tilefni er vert að vekja
athygli stjórnvalda á því, að félags-
menn í félögum eldri borgara vítt
og breitt um land, fylgjast nú af
meiri athygli en oft áður með fram-
vindu í yfirstandandi kjarasamn-
ingaviðræðum hinna svokölluðu
aðila vinnumarkaðarins.
Ástæðan er einkum tvíþætt, ann-
ars vegar að stéttarfélögin hafa á
mjög þakkarverðan hátt lagt fram
í sinni kröfugerð mikilsverð atriði
sem varða réttinda- og kjaramál
aldraðra, í öðru lagi beinist athygl-
in ekki síður að því að sjá með
hvaða hætti núverandi stjórnar-
flokkar ætla að koma til móts við
umræddar kröfur sem í höfuðdrátt-
um varða þátttökuhlutdeild ríkisins
í þeirri samningagerð sem nú stend-
ur yfir.
Verði þessi atriði, sem við höfum
margsinnis gert grein fyrir í blöðum
og varða helst lífeyris- og trygg-
ingamál svo og heilbrigðisþjón-
ustuna, ekki leiðrétt mun skapast
hér þverpólitísk samstaða eidri
borgara til róttækra aðgerða. Að-
gerða sem hugsanlega gætu haft
afdrifaríkar afleiðingar á útkomuna
í næstu alþingiskosningum. Þetta
er ekki hótun, en undirtónn óánægj-
unnar sem verður sífellt þyngri.
Baráttan hjá okkur snýst um þá
félaga okkar sem eiga að draga
fram lífið af lífeyristryggingunum
einum saman. Með iítt ígrundaðri
tekjutengingu er búið að rústa þetta
kerfi gjörsamlega.
Núverandi stjórnarflokkar verða
að gera sér grein fyrir því hvað
hinir margumtöluðu jaðarskattar
hafa ieikið sumt af þessu fólki okk-
ar grátt og beinlínis gert því ómögu-
legt að komast af.
Við erum ekki að biðjast undan
því að bera eðlilegan hluta af skatt-
byrði þegnanna, en margsköttun
og refsiákvæði tekjutengingarinnar
verður að leiðrétta.
Ekki kemur það okkur eldri borg-
urum á óvart þótt stjórnarflokkarn-
ir komi ekki beinlínis vel út úr skoð-
anakönnunum um þessar mundir.
Það er raunar óeðlilegt hvað
Sjálfstæðisflokkurinn kemur vel út,
miðað við dæmalausa framkomu
fjármálaráðherrans í garð eldri
borgara.
í stað þess að taka undir leiðrétt-
ingu okkar mála, kemur hann fram
fyrir alþjóð og talar um að sam-
ræma þurfi skerðinguna áunnum
kjörum og réttindum eldra fólks.
Eg hélt að flokkurinn berðist fyrir
lækkun skatta og þá jafnt fyrir alla
aldurshópa.
Framsóknarflokkurinn fær skell-
inn, og takist honum ekki að sann-
færa samstarfsflokkinn um nauð-
syn þess að ná fram leiðréttingu á
þessum málaflokki verður skellur-
inn enn tilfinnanlegri en nú er að
koma í ljós. Aldraðir gera sér full-
komlega ljóst að stjórnvöld hafa að
mörgu að hyggja í tengslum við
rekstur þjóðarbúsins. En það getur
tæpast þjónað hagsmunum heildar-
innar að sauma svo að öldruðum
fjárhagslega, að þeir verði í stórum
stíi að segja sig til sveitar.
Ég held það væri þjóðráð að
stjórnvöld og forráðamenn Reykja-
víkurborgar og annarra sveitarfé-
laga í landinu ásamt fulitrúum frá
félagshreyfingu eldri borgara og
fulltrúum frá verkalýðsforustunni
kæmu saman og settust yfir þessi
mál og ræddum þau ofan í kjölinn
og freistuðu þess að koma í veg
fyrir handahófskenndan niðurskurð
og aðför að þessum aldurshópi eins
og verið hefur nú hin síðari ár. Ég
nefni verkalýðshreyfinguna vegna
þess að hún hafði frumkvæði að
stofnun félaga eldri borgara á sín-
um tíma. Hugmyndin að slíkum
viðræðum er raunar komin frá Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur, borgar-
stjóra Reykjavíkur og kom fram á
ráðstefnu um fjármál eldri borgara
sem haldin var á sl. ári.
HAFSTEINN ÞORVALDSSON,
Engjavegi 28, Selfossi.
Hótel Örk - lykill að
sælu eða hryllingi?
Frá Gerði Sæmundsdóttur:
FÖSTUDAGINN 7. febrúar sl. fór-
um við nokkrir vinnufélagar á Hót-
el Örk til að njóta þess sem aug-
lýst var konukvöid.
Eftir þessa næturgistingu erum
við sammála um að mæla ekki með
Hótel Örk við nokkurn mann.
„Þjónarnir" höfðu að okkar mati
ekki mikla þekkingu á sínum störf-
um. Þeir áttu erfítt með að fylgjast
með hvort reikningar voru greiddir
eða ekki og taka niður pantanir.
Ennfremur var settur kostnaður á
herbergin sem enginn kannaðist
við. Þar að auki vorum við nánast
í „yfirheyrslu" fyrir framan aðra
hótelgesti vegna vankunnáttu
„þjóna“. Ekki var haft fyrir því að
biðjast afsökunar.
Það er alveg furðulegt að þekkt
hótel sem telur sig hafa upp á
margt að bjóða, telji sig geta kom-
ist upp með að bjóða fólki upp á
annan eins skort á fagmennsku og
klúðri.
Þeir sem voru að störfum var
mjög ungt fólk, „skólafólk", þessi
svokallaði ódýri vinnukraftur,
kannski „svartur" líka?
Að okkar mati endaði þetta í
hryllingi.
GERÐUR SÆMUNDSDÓTTIR,
Hraunbæ 22.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.