Morgunblaðið - 26.04.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.04.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Michael Jón Clarke næsti bæj arlistamaður MICHAEL Jón Clarke tónlistarmaður hefur hlotið starfslaun bæjarlista- manns Akureyrar 1997-’98. „Það er mat menningarmálanefndar að Mich- ael Jón Clarke sé mjög vel að titlinum Bæjarlistamaður Akureyrar kominn og viljum við þakka honum hans störf,“ sagði Alfreð Gíslason, formað- ur nefndarinnar, í hófi sem haldið var á Fiðlaranum á sumardaginn fyrsta. Þar voru jafnframt veittar viðurkenn- ingar fyrir störf að menningarmálum og úthlutað úr Húsfriðunarsjóði. Michael Jón Clarke er fæddur í Nottingham í Englandi en flutti til Akureyrar að loknu námi og hefur upp frá því verið áberandi í tónlistar- lífi bæjarins. „Auk þess að vera fram- úrskarandi tónlistarmaður hefur hann einnig unnið frábært starf á vegum Tónlistarskólans á Akureyri undanfarin 25 ár. Hann hefur ávallt unnið af krafti og metnaði að sínum störfum. Michael hefur gegnt stjórn- unarstörfum af áhuga og dugnaði og ávallt skilað miklum árangri," sagði Alfreð ennfremur. Michael sagðist ætla að nota tím- ann vel og væru nægar hugmyndir sem vinna þyrfti betur að. Hann sagði mikla uppbyggingu hafa orðið á sviði menningarmála í bænum á síðustu árum, enn vantaði þó tónlist- arhús og vildi hann ekki bíða í önnur 25 ár eftir að slíkt hús risi á Akureyri. Farsæl störf að menningarmálum Jóhann Ingimarsson, Nói í Val- björk, Jón Kristinsson og Þórgunnur Ingimundardóttir hlutu viðurkenn- ingu fyrir störf sín að menningarmál- um. Jóhann hefur starfað að högg- myndalist og eru höggmyndir og skúlptúrar eftir hann víða um bæinn, Jón var ein aðaldrifijöðrin í starfsemi umaiiistaskóíinn á Fyrir 10 til 16 ára [fjöllistj - Fyrir fullorðna [myndlist) 29. júní til 13. júlí er timabil unga fólksins. Aðalkennarar: Auður Bjarnadóttir dansari og leikstjóri, og Örn Ingi. Mörg fjölbreytileg verkefni verða í boði á sviði myndlistar, danslistar og kvikmyndagerðar. [Unnið úti og inni). Skemmtiiegt sérverkefni er að mála stóra veggmynd í Hrísey. Undanfarin ár hafa nemendur komið frá öllum landshlutum og hafa oft orðið til varanleg vináttubönd sem leitt hafa til gagnkvæmra heimsókna. 31. júlí til 10. ágúst verður fjölbreytt myndlistardekur fyrir fullorðna Aðalkennari: Örn Ingi. Frábær vinnuaðstaða - gisting og fæði....unnið úti og inni. Farin verður skemmtileg ævintýraferð á torsóttar slóðir í leit að einstöku myndefni. Þátttakendur geta fengið tilsögn í hvaða tækniaðferðum sem er. Fyrirhugað er að gera heimildarkvikmynd um sköpunarferli myndverkanna og lífsgleði þátttakenda. Sérverkefni: Listaverk fyrir Skinnaiðnað hf. á Gleráreyrum. Upplýsingar og skráning í síma 462 2644 (sama verð og í fyrra). Með sumarkveðju - Örn Ingi. t Gefum sjLiiíríii-Jússögu -> örlacjsisöyu -> Á3C dcj urbcoi -> ÁsCíirsöcju -> söcju fnáriaðsiriris ^áJjorar emum óveniu\e9»r We\t\örauðs0 Maðuránfort» FramuðarsSin Mitnl í nrettu Qz ásútgáfan Glerárgötu 28 - Simi 462 4966 AKUREYRI Morgunblaðið/Margrét Þóra MICHAEL Jón Clarke verður næsti bæjarlistamaður á Akureyri, við hlið hans eru þau Jóhann Ingimarsson, Þórgunnur Ingimundardóttir og Jón Kristinsson sem hlutu viðurkenningu menningar- málanefndar fyrir störf að menningarmálum á Akureyri og þá koma hjónin Sigmundur R. Einars- son og Guðbjörg Inga Jósefsdóttir sem hlutu viðurkenningu Húsfriðunarsjóðs. Leikfélags Akureyrar, lék yfir 40 hlutverk hjá félaginu og var helsti hvatamaður þess að atvinnuleikhús var stofnað í bænum árið 1973. Þórg- unnur er píanóleikari og kennari, hóf fyrst kennslu við Tónlistarskólann á Akureyri árið 1946 og kenndi með hléum næstu árin, en frá 1974 óslit- ið til 1995. Hjónin Sigmundur R. Einarsson og Guðbjörg Inga Jósefsdóttir hlutu viðurkenningu Húsfriðunarsjóðs fyr- ir framlag þeirra til húsverndar á Akureyri. „Þau hafa af dugnaði og smekkvísi endurbætt íbúðarhúsin Hrafnagilsstræti 2 og Laugagötu 2 auk þess að hafa nú á skömmum tíma fært til fyrra horfs og endur- bætt hluta 1. hæðar Hafnarstrætis 96 þar sem þau reka blómabúð sem áður var í Hafnarstræti 88, en þar áttu þau einnig hlut að máli sem eigendur við endurbætur hússins,” segir í umsögn sjóðsstjórnar. „Þá metur menningarmálanefnd mikils viðhorf þeirra til húsverndar sem endurspeglast í verkum þeirra og er öðrum hvatning til að varðveita þann menningararf sem við eigum í góðum húsum, ekki aðeins þeim elstu heldur einnig yngri húsum sem ekki hafa enn hlotið þann sess sem þeim ber við mat á varðveislugildi bygginga.“ BALDVIN og Haukur heimsóttu Amtsbókasafnið á Akureyri á 170 ára afmæli þess og gerðu sér veitingar að góðu. Harður árekstur HARÐUR árekstur varð á mót- um Austursíðu og Bugðusíðu um kl. 19 á fimmtudag þegar jeppi og pallbíll skullu saman. Jeppinn fór tvær til þijár veltur eftir áreksturinn og þyk- ir að sögn lögreglu mildi að ökumaður sem var einn í bíln- um skyldi ekki slasast alvar- lega. Hann og ökumaður og farþegi í pallbílnum fóru á slysadeild en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Jepp- inn er gjörónýtur og pallbíllinn mikið skemmdur. Morgunblaðið/Margrét Þóra RÓSA Vilhjálmsdóttir með kaffi og kleinu sem bökuð var að hætti Mörtu Maríu Steph- ensen í tilefni dagsins, en uppskiftabók hennar; Einfalt matreiðslu vasa-quer fyrir heldri manna húss-freyjur kom út fyrir tæpum 200 árum. Amtsbókasafnið 170 ára Sýning á bókum og munum sem tengjast bókmenntum AMTSBÓKASAFNIÐ á Akureyri varð 170 ára í gær, föstudaginn 25. apríl, en safnið er langelsta stofnun bæjarins stofnuð árið 1827 af Grími amtmanni á Möðru- völlum. Amtsbókasafnið var stofn- að sama árið og Kambsránið var framið, Skírnir elsta bókmennta- tímarit á Norðurlöndum kom út í fyrsta skipti og árinu áður en Natan Ketilsson var myrtur. Á safninu stendur nú yfir sýn- ing á bókum úr eigu Amtsbóka- safnsins og munum frá Minjasafn- inu sem tengjast bókmenntum og bókmenningu. I tilefni dagsins voru bakaðar kökur eftir uppskriftum frá bernskudögum stofnunarinnar, en þar var um að ræða tvær kökuteg- undir úr bókinni „einfaldt Matreidslu Vasa-Qver fyrir heldri manna Húss-freyjur, útgefid af frú Assessorinnu Mortu Maríu Stephensen," en sú bók kom út rúmum tuttugu árum áður en Amtsbókasafnið var stofnað. Hólmkell Hreinsson amtsbóka- vörður segir að almenningi verði á næstu dögum opnaður aðgangur að alnetsþjónustu og innan skammst hefst útleiga á geisla- diskum með tónlist, en nokkuð er síðan farið var að lána út leiki og fræðsluefni á geisladiskum. Áætl- að er að rúmlega 40 þúsund gest- ir heimsæki safnið árlega og um 15 þúsund manns nýta sér lestrar- sal þess á ári hveiju. Útlán eru um 130 þúsund árlega. ALMAR og Sveinn niðursokknir í lesturinn í barnahorni Amts- bókasafnsins. Fjær sést í Huldu sem Iíka er að lesa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.