Morgunblaðið - 26.04.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 39
MINNINGAR
+ Jóhanna Björg
Signrðardóttir
fæddist í Rauðseyj-
um á Breiðafirði 10.
nóvember 1931.
Hún lést á Land-
spítalanum 18. apríl
síðastliðinn. For-
eidrar hennar voru
Sigurður Svein-
björnsson, bóndi í
Rauðseyjum og
Efri-Langey, síðast
verkamaður í
Stykkishólmi, f.
20.12. 1894 í Bjar-
neyjum á Breiða-
firði, d. 29.11.1975,
og Þorbjörg Lilja Jóhannsdótt-
ir, f. 21.10. 1903 á Dönustöðum
í Laxárdal í Dalasýslu, d. 25.8.
1987. Björg átti fjórar systur,
þær eru Guðfinna Steinunn
Bjarney, f. 10.4. 1929, Svein-
björg Ölöf, f. 7.11. 1930, Krist-
jana Guðrún, f. 22.6. 1933, og
Elín Sóley, f. 9.12. 1935.
Hinn 28.10. 1961 gekk Björg
að eiga Loft Eiríksson, bónda
í Steinsholti í Gnúpverjahreppi,
f. 16.9. 1921 í Steinsholti. For-
eldrar hans voru Eiríkur Lofts-
son, bóndi í Steinsholti, f. 1.5.
1884 í Steinsholti, d. 23.11.
1968, og Sigþrúður Sveinsdótt-
ir, f. 10.5. 1885 í Syðra-Lang-
holti í Hrunamannahreppi, d.
25.7. 1977. Björg átti sex börn,
Gunnar Örn Marteinsson, f. 2.4.
Elsku mamma.
Sú stund kemur aldrei aftur,
sem einu sinni var.
Því okkur var skapað að skilja.
Við skiljum. Og ekkert meir.
Það líf kemur aldrei aftur,
sem einu sinni deyr.
(H.K.J.)
Mig óraði aldrei fyrir að þú
kveddir svo fljótt, það var svo margt
sem við áttum ógert saman. Þótt
þú sért farin þá veit ég að við eig-
um eftir að hittast aftur í annarri
tilvist. Þangað til bið ég góðan guð
að geyma þig og kveð þig með ein-
um af uppáhalds ljóðlínum þínum.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
(E.B.)
1958. Faðir hans
var Sigurður Mar-
teinn Eyjólfsson, f.
17.6. 1925, á Húsat-
óftum á Skeiðum,
d. 7.8. 1975. Börn
Bjargar og Lofts
eru Eiríkur, f. 8.6.
1962, i sambúð með
Stefaníu Birnu
Jónsdóttur, f. 3.2.
1963, þau eiga tvo
syni. Sigurður, f.
14.11. 1963, giftur
Sigríði Björk Gylfa-
dóttur, f. 4.12.1967,
þau eiga fjögur
börn. Daði Viðar, f.
15.6. 1965, giftur Bente Han-
sen, f. 30.10. 1967, þau eiga
þijú börn. Lilja, f. 19.3. 1967,
í sambúð með Guðna Árnasyni,
f. 3.1. 1967. Sigþrúður, f. 14.2.
1969.
Björg var menntuð Ijósmóðir
og starfaði við það um skeið
þar til hún fluttist að Steins-
holti, þar sem hún stundaði
búskap ásamt eftirlifandi eigin-
manni sínum. Síðustu 12 ár ævi
sinnar starfaði hún við ýmis
umönnunar- og hjúkrunarstörf.
Björg var auk þess virkur þátt-
takandi í félagsmálum bæði i
heimasveit sinni og víðar.
Útför Bjargar verður gerð
frá Skálholtskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Jarðsett verður að Stóra-Núpi.
Minningin um þig er okkur styrk-
ur í sorginni.
Þín
Sigþrúður (Sissú).
Elsku tengdamóðir, Jóhanna
Björg.
Vorfuglarnir eru komnir, úti
ómar fuglasöngur og við sjáum á
bak löngum vetri. En þá knýr sorg-
in dyra. Kallið kom frekar snöggt.
Nú ert þú farin. Harðri baráttu við
illvígan sjúkdóm er lokið, þú barðist
hetjulega við sjúkdóminn. Það var
svo mikill kraftur í þér og lífsgleði
að við gleymdum því oft hvað þú
varst að beijast við. Þú varst ávallt
traust manneskja, alltaf hægt að
tala við þig um allt.
Ég á eftir að sakna þín, en ég
er mikið þakklát að hafa fengið að
kynnast þér. Barnabörnin eru lán-
söm að hafa búið í sama húsi og
þú og Loftur öll sín ár. Það er svo
dýrmætt þegar þijár kynslóðir búa
saman.
Minningin um þig verður ávallt
geymd í hjarta mínu. Ég veit að
nú ert þú á góðum stað.
Ég kveð þig með söknuði. Guð
blessi þig.
Sigríður Björk
Gylfadóttir, Steinsholti.
Elsku amma. Okkur þótti svo
mikið vænt um þig. Við söknum
þín, en við vitum að nú ert þú hjá
guði og fylgist með okkur alltaf
eins og hann. Við gleymum þér
aldrei.
Gylfi, Gígja, Sveinn og
Hrafnhildur Jóhanna.
Við ótímabært andlát Bjargar
Sigurðardóttur í Steinsholti rifjast
upp ótal ánægjulegar minningar um
samverustundir með henni, Lofti
eiginmanni hennar og börnum, og
raunar öllu fólkinu í Steinsholti sem
hafa verið vinir mínir og velgjörða-
menn um nærri hálfrar aldar skeið.
Björg og Loftur gengu í hjóna-
band árið 1961. Ég kynntist henni
þó ekki að ráði fyrr en árið 1963
að ég keypti mína fyrstu hesta og
Loftur bauð mér að vera aðstoðar-
maður sinn í hestaferð með nokkr-
um Reykvíkingum, en hann var
fylgdarmaður þeirra um langt ára-
bil. Síðar sama ár kynntist ég konu-
efni mínu og um páskana 1963 gat
ég ekki beðið lengur með að sýna
henni Gullhreppana góðu og brun-
aði með hana austur fyrir fjall.
Eftir nokkra hrakninga komum við
blaut og köld til Bjargar og Lofts
í Steinsholti þar sem ég kynnti þau
fyrir kærustunni en var víst eitt-
hvað feiminn að fara með hana í
gamla bæinn strax. Okkur hjónum
er hún sérstaklega minnisstæð frá
þessu kvöldi þar sem hún sat með
Eirík í fanginu og Sigurð í vögg-
unni sér við hlið. Þá og ætíð síðan
var okkur vel tekið af Björgu og
varð henni og konu minni fljótt vel
til vina.
Fyrstu hjúskaparár sín eignuðust
þau Björg og Loftur 5 börn, en
fyrir átti Björg son sem Loftur gekk
í föðurstað. Mæddi því mikið á henni
þessi fyrstu ár, en Loftur vann þá
mikið frá heimilinu við akstur. Én
þótt hún væri svo störfum hlaðin
kom það ekki í veg fyrir að hún
gerði okkur hjónum þann vinar-
greiða að taka eldri strákana okkar
til sín í sveit í nokkur sumur, og
síðar naut yngsti sonur okkar um-
hyggju Bjargar þegar hann fór
kaupamaður til Sigurðar sonar
þeirra og dvaldi þá fyrstu árin á
heimili þeirra Bjargar og Lofts eða
þar til Sigurður stofnaði sitt eigið
heimili. Með þessu stuðluðu þau
Björg og Loftur að því að vináttu-
bönd voru hnýtt milli barnanna
þeirra og okkar og fyrir það erum
við hjónin afar þakklát. Jón Bragi,
Óttar Már og Gísli Björn þakka
henni allt sem hún var þeim.
Fyrstu árin fannst mér Björg
fremur alvörugefin kona enda var
hún störfum hlaðin með stórt heim-
ili og hafði áreiðanlega lítinn tíma
aflögu fyrir sjálfa sig. Síðar kynnt-
ist ég glaðværð hennar og hlátur-
mildi og því hve gott var að setj-
ast með henni yfir kaffibolla að
spjalla um menn og málefni. Mér
er þó efst í huga minningin um
margar góðar samverustundir í
austurbænum í Steinsholti með
Björgu og Lofti og börnunum
þeirra og hve oft var þar glatt á
hjalla, mikið hermt eftir og hlegið
dátt.
Nú er bráðum liðin öld frá því
að til vináttu var stofnað milli fjöl-
skyldu minar og fólksins í Steins-
holti, en það var árið 1904 að föður-
afi minn og nafni réðst sem smali
og snúningastrákur að Skáldabúð-
um þar sem hann dvaldi 4 sumur
og kynntist þá Eiríki í Steinsholti,
tengdaföður Bjargar. Tæpri hálfri
öld síðar skrifaði hann þessum fom-
vini sínum og bað hann að taka
nafna sinn í sveit í nokkrar vikur
og þangað fór ég um Jónsmessuna
1951 og dvaldi þar samfleytt í sjö
sumur. Allt frá fyrstu hjúskapar-
árum okkar hjóna höfum við verið
tíðir gestir í Steinsholti og þegar
strákamir okkar fóru að vaxa úr
grasi fengu þeir að dvelja um lengri
og skemmri tíma þar eystra, fyrst
hjá systkinunum í gamla bænum
en síðar hjá Björgu og Lofti, og
átti sumardvölin og samskiptin við
Steinsholtsfólkið mikinn þátt í
þroska þeirra og menntun á upp-
vaxtarámnum. I öllu þessu áttu
Björg og Loftur sinn stóra þátt og
fyrir það stöndum við hjónin í ævar-
andi þakkarskuld við þau. Nú em
að vaxa upp í Steinsholti barnabörn
Bjargar og Lofts og er það fjórða
kynslóðin síðan til vináttu var stofn-
að á milli fjölskyldna okkar. Barna-
böm okkar hjóna hlakkar ævinlega
mikið til að fá að skreppa austur í
Steinsholt og hitta jafnaldra sína
þar og veit ég að þau nýju kynni
voru Björgu mikið gleðiefni ekki
síður en okkur.
Frá fyrstu kynnum okkar Bjarg-
ar fann ég fyrir þeirri sömu skilyrð-
islausu vináttu og hlýju sem ávallt
hefur til mín stafað frá Steinsholts-
fólkinu og fyrir það þakka ég henni
að leiðarlokum.
í dag er hugur minn og fjöl-
skyldu minnar hjá Lofti, börnum
hans, tengdabörnum og barnabörn-
um og við biðjum góðan Guð að
styrkja þau og blessa minningu
Bjargar í Steinsholti.
Andreas Bergmann.
Þegar komið er að kveðjustund
þjóta minningarnar fram í hugann
og þær á ég margar góðar um
Björgu. Allt frá því ég var lítil
stelpa og Loftur móðurbróðir
krækti sér í Björgu, og við kölluð-
um hvor aðra „Löng stutt“ og
„Stutt löng“ og ég reyndi að stæla
hláturinn hennar, finnst mér sér-
stakur þráður hafa verið milli okk-
ar sem styrkst hefur með árunum.
Margar stundir höfum við setið í
eldhúsinu hjá henni og spjallað um
heima og geima og enduðum gjarn-
an með því að labba með kaffiboll-
ann með okkur inn í stofu og létum
fara vel um okkur. Stundirnar voru
líka margar þegar við vorum að
atast í moldinni á vorin við að
planta trjám og reyna að leggja
okkar af mörkum til að auka tijá-
gróður í sveitinni okkar. Við höfð-
um báðar áhuga á trjárækt og
Björg reyndi ávallt að efla áhuga
minn og hvetja í þeim efnum.
Björg var traust kona og stóð
ætíð sem klettur, góður vinur vina
sinna og það sem henni _var trúað
fyrir fór ekki lengra. Áhugasvið
hennar var vítt og hún lagði sig
fram um að auka þekkingu sína.
Hún hafði ákveðnar skoðanir, var
kjarkmikil en þó hlý í framkomu
og umvafði mig með sínu þétta
handtaki og hlýja brosi. Hún
gleymdi ekki að láta mig vita um
atburði innan fjölskyldunnar þótt
ég hefði sest að í öðrum lands-
hluta. Björg og Loftur áttu 6 táp-
mikil börn og hafa með sóma kom-
ið þeim öllum vel til manns. Sam-
skipti og vinátta milli heimila okkar
hafa verið mikil í gegnum árin, og
fyrir það vil ég og fjölskylda mín
þakka. Kjarkur og dugnaður í veik-
indum hennar var aðdáunarverður.
Hún var ávallt bjartsýn enda stóð
hún meðan stætt var. Hugur minn
hefur dvalið hjá henni þó ég hafi
ekki getað heimsótt hana eins og
mig hefur langað.
Við í fjölskyldunni i Eystra-Geld-
ingaholti kveðjum góða vinkonu
með virðingu og þökk og biðjum
að öllum hennar ástvinum verði
sendur styrkur til að takast á við
komandi daga.
Sigrún Jónsdóttir.
JÓHANNA BJÖRG
SIG URÐARDÓTTIR
Rúmbetrí en keppinautarnir?
MAZDA 323 Sedan er stærri og með lengra farþegarými en 323 Sedan kostar frá kr. ♦Itiiil.l.lA
helstu samkeppnisbílar. Komdu, mátaðu og finndu muninn! Aðrar gerðir kosta frá kr. 1.249.ooo
Umboðsmenn: Akranes: Bílás sf. • ísafjörður: Bílatangi ehf. • Akureyri: BSA hf. • Egilsstaðir: Bílasalan Fell • Selfoss: Betri bílasalan • Vestmannaeyjar: Bifreiðaverkstæði Muggs