Morgunblaðið - 26.04.1997, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 26.04.1997, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 49 Læknafélag Reykjavíkur mótmælir orðum formanns tryggingaráðs MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá samn- inganefnd LR: „Bolli Héðinsson, formaður tryggingaráðs, heldur því fram í Morgunblaðinu 20. apríl sl. að það hafi verið að ósk iæknasamtakanna að aðgengi sérfræðinga hefði verið takmarkað inn á samning Læknafé- lags Reykjavíkur (LR) og Trygg- ingastofnunar ríkisins (TR) um sér- fræðilæknishjálp. Ekkert er fjær sannleikanum og mótmælir samn- inganefnd LR harðlega þessum ummælum sem hreinum rangfærsl- um. I öllum samningaviðræðum á milli aðila hefur það verið samn- inganefnd TR sem hefur beitt sér fyrir takmörkuðu aðgengi sérfræð- inga en ekki læknasamtökin. For- maður Læknafélags íslands kom sérstaklega á samningafund til að leggja áherslu á andstöðu lækna- samtakanna við aðgengishindranir. Eftir margra missera samningaþóf var að nokkru látið undan kröfu TR en þó með þeim fyrirvara sem kom fram í bókun formanns LR með samningnum að allir sérfræð- ingar með hefðbundna sérfræði- þjónustu gætu unnið eftir samn- ingnum. Reynsla lækna af fram- kvæmd samningsins hefur verið slæm. Þá sagði LR upp samningum frá 1. apríl sl. Niðurstöðu Sam- keppnisstofnunar um að óheimilt sé að takmarka aðgengi sérfræð- inga í læknisfræði hefur LR áður opinberiega fagnað. Ólíklegt verður að teljast að for- maður tryggingaráðs fari með vís- vitandi rangfærslur. Líklegra er að honum sé ekki kunnugt um stefnu og störf samninganefndar TR. í málflutningi fyrir Samkeppnisstofn- un kemur berlega fram það álit TR að nauðsynlegt sé að takmarka þann fjölda sérfræðinga sem sinna eigi sérfræðiþjónustunni. Eftir að úr- skurður áfrýjunamefndar Sam- keppnisstofnunar lá fyrir sagði Kristján Guðjónsson, deildarstjóri TR í Ríkisútvarpinu, að aðgangstak- markanir með núverandi hætti séu ólögmætar en gefið væri undir fótinn að stofnunin geti „haft aðgangstak- markanir svo framarlega sem þær séu öðruvísi“. Af þessum ummælum er ljóst hvað sem formaður Trygg- ingaráðs hefur um málið að segja að læknasamtökin munu áfram þurfa að betjast gegn því að læknum sem veita hefðbundna sérfræðiþjón- ustu sé meinað að starfa." Dægurlag’akeppni Kvenfélags Sauðár- króks í Sæluviku Fimmtán norrænir blaðamenn fylgjast með Sauðárkróki. Morgunblaðið. UNDIRBÚNINGUR Sæluviku Skagfirðinga er nú að komast á lokastig en hún hefst formlega sunnudaginn 27. apríl næstkom- andi, með opnun málverkasýningar í Safnhúsi Skagfirðinga, þar sem Sigurlaugur Elíasson og Ágúst Brynjar Eiðsson sýna verk sín. Þá verða einnig kynnt úrslit í vísna- keppni Safnhússins. Leikfélag Sauðárkróks sýnir gamanleikinn Grænu lyftuna i Sæluviku, en hápunktur vikunnar eru úrslit í dægurlagakeppni kven- félagsins sem verða í Iþróttahús- inu, föstudagskvöldið 2. maí. Ljóst er að Sæluvika Skagfirð- inga hefur unnið sér fastan sess í menningarlífi landsins, og sést það best á því að til Sauðárkróks koma fimmtán norrænir blaðamenn, sem hérlendis eru staddir á vegum Norðurlandaráðs til þess að fjalla um menningarmál á íslandi. Þeir fylgjast með lokakvöldi dægurlaga- keppninnar á Sauðárkróki, kóra- móti í Miðgarði í Varmahlíð og Heimiskvöld á Sauðárkróki KARLAKÓRINN Heimir efnir til Heimiskvölds í íþróttahúsinu á Sauðárkróki næstkomandi miðviku- dagskvöld, 30. apríi kl. 21. Karlakórinn Heimir verður þar með fjölbreytta söngskrá, söng- stjóri er Stefán R. Gíslason, undir- leikarar eru Tómas Higgersson og Jón St. Gíslason. Einsöng og tví- söng með kórnum syngja Einar Halldórsson og Álftagerðisbræð- urnir Gísli, Óskar, Pétur og Sigfús. Gestasöngvari kvöldsins verður Sigrún Hjálmtýsdóttir. Álftagerðis- bræður munu taka lagið við undir- leik Stefáns R. Gíslasonar. Harmon- ikkuleikarar munu einnig þenja nikkurnar. Eiginkonur Heimisfé- laga sjá um kaffiveitingar. Þetta er síðasta Heimiskvöldið á þessu starfsári, en síðasta vetrar- dag var slíkt kvöld haldið á Hofsósi fyrir troðfullu húsi. uppfærslu Leikfélags Sauðárkróks á Pétri Gaut. Eins og áður hefur verið kynnt bárust 94 lög í dægurlagakeppnina á þessu ári, en tíu lög voru valin til úrslita, og er nú lokið upptöku á þeim, og verða þau til sölu á hljómdiski eftir úrslitakvöldið. Flytjendur laganna eru: Amar Freyr Gunnarsson, Esther T. Cas- ey, Ásdís Guðmundsdóttir, Eyjólfur Kritsjánsson, Guðrún Gunnarsdótt- ir, Helga Möller, Gísli Magnússon, Óskar Pétursson, íris Guðmunds- dóttir, Kristján Gíslason og Sverrir Stormsker. Guðmundur Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri keppninnar, sagði að nokkuð hefði verið um fyrir- spurnir varðandi aðgöngumiða og borðapantanir á úrslitakvöldið og því hefði verið ákveðið að forsala aðgöngumiða og borðapantanir færu fram í félagsheimilinu Bif- röst föstudaginn 25. apríl. svo og alla daga í Sæluviku kl. 17.30- 18.30. Afhentu trúnaðarbréf GUNNAR Gunnarsson, sendiherra, afhenti fimmtudaginn 17. apríl Petru Lucinschi, forseta Moldóvu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Moldóvu með aðsetur í Moskvu. Þá afhenti Ólafur Egilsson, sendiherra, 24. apríl Jóhannesi Páli II. páfa trúnaðarbréf sitt sem sendi- herra íslands í Páfaríkinu með að- setur í Reykjavík. Dansleikur fyrir fatlaða FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Ársel við Rofabæ heldur stórball fyrir fatlaða laugardaginn 26. apríl kl. 20-23. Allir 13 ára og eldri eru velkomn- ir á ballið. Hljómsveitin Sóldögg leikur fyrir dansi. Miðaverð er 300 krónur. FRÉTTIR Framkvæmda- áætlun ríkis- stjórnarinnar kynnt FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að halda fundi viðsvegar um landið til þess að ræða fram- kvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum. Markmið fund- anna er að kynna gerð áætlunarinn- ar og safna hugmyndum og ábend- ingum varðandi verkefni hennar. Núgildandi þingsályktun um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafn- rétti kynjanna var samþykkt á Al- þingi 7. maí 1993 og gildir hún til ársloka 1997. Unnið er að gerð nýrrar framkvæmdaáætlunar til fjögurra ára sem taka mun gildi um næstu áramót. Næstu fundir í fundaröðinni verða á Flughótelinu, Keflavík, nk. mánudag 28. apríl og á Hótel Borg- arnesi, þriðjudaginn 29. apríl. Fundirnir hefjast kl. 20.30 og eru öllum opnir. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra og Eiín R. Líndal, formaður Jafnréttisráðs, flytja ávörp og farið verður yfir form og gerð fram- kvæmdaáætlana í jafnréttismálum. Ásþór Ragnarsson sálfræðingur mun flytja erindi á fundinum í Borg- arnesi, en í Reykjanesbæ mun Hall- fríður Benediktsdóttir félagsráð- gjafi opna umræðuna fyrir hönd heimamanna. Flatbaka og skák fyrir 14-20 ára TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur svo- kallað flatbökukvöld í fimmta sinn í dag klukkan 18, fyrir unglinga á aldrinum 14-22 ára. „Ekki hefur áður verið boðið upp á skipulagt skákstarf hér á landi sem miðast sérstaklega við unglinga á þessum aldri. Hér er ekki um hefðbundnar skákæfingar að ræða, heldur er lögð meiri áhersla á félagsskapinn og að skapa skemmtilegt andrúms- loft í kringum skákina. Flatbökukvöldið hefst á fyrir- lestri. Að honum loknum hefst hrað- skákmót. Fyrirkomlag þess ræðst af fjölda þátttakenda. Að nokkrum umferðum loknum verður gert hlé á mótinu og þátttakendur fá að gæða sér á flatböku frá Pizzahöll- inni og gosi. Síðan verður tekið aftur til við taflmennskuna og lokið við skákmótið. Flatbökukvöldin fara fram í nýju félagsheimili Hellis í Þönglabakka 1, Mjóddinni. Sami inngangur og hjá Bridssambandinu og Keili í Mjódd,“ segir í tilkynningu. Flatbökukvöldið stendur yfir í u.þ.b. 3 klukkustundir. Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn Hellis, en kr. 200 fyrir aðra (kr. 500 með flatbökuveislunni). Flatbaka og gos er innifalið í aðgangseyrinum. St. Georgsdag- ur í Hafnar- fjarðarkirkju VIÐ tónlistarguðsþjónustu í Hafn- arfjarðarkirkju á morgun, sunnu- dag, sem er 1. sunnudagur í sumri og hefst kl. 18, mun mezzosópran- söngkonan Jóhanna Linnet syngja vor- og sumarlög. Prestur verður séra Þórhildur Olafs en organisti Natalía Chow. Fyrr um daginn munu skátar í st. Georgsgildi, Hafn- arfirði, halda upp á st. Georgsdag- inn sem ber nú upp á þennan dag með því að sækja guðsþjónustu í kirkjunni kl. 14 og lesa ritningarorð og leiða bænir. Prestur verður séra Gunnþór Ingason. St. Georgsskátar halda svo kaffi- samsæti eftir guðsþjónustuna í safnaðarheimilinu, Strandbergi, syngja þar saman og fagna sumri. Líknar- o g kvenfélag’ Arbæjarkirkju með kökubasar GUÐSÞJÓNUSTA verður í Árbæ- jarkirkju kl. 11 árdegis á sunnudag. Eftir guðsþjónustu verður molasopi gegn vægu gjaldi. Líknar- og kvenfélag Árbæjar- kirkju munu standa fyrir kökubasar eftir guðsþjónustu, en ágóði hans mun renna í söfnunina til fjölskyldu bátsmannsins á Ægi, Elíasar Arnar Kristjánssonar, er fórst við björgun- arstörf í byrjun marsmánaðar. Tekið verður við kökum frá kl. 10-11 sunnudaginn 27. apríl. Prófastur vísiterar Lang- holtskirkju PRÓFASTUR Reykjavíkurpróf- astsdæmis, sr. Ragnar Fjalar Lár- usson, mun vísitera Langholtssöfn- uð sunnudaginn 27. apríl. Vísitasían hefst með hátíðar- messu í Langholtskirkju kl. 11. Þar mun prófastur einnig setja nývígð- an djákna, Svölu Sigríði Thomsen, í embætti. Veitingar verða eftir messuna, en síðan mun prófatsur eiga fund með sóknarnefnd og starfsfólki kirkjunnar. Barnadagar að hefjast í Suður- kringlunni BARNADAGAR hefjast í Suður- kringlu í dag, laugardaginn 26. apríl. Fyrirtæki og verslanir í Suð- urkringlunni verða með skemmtan- ir, sértilboð og uppákomur fyrir börn meðan á Barnadögum stendur til 5. maí næstkomandi. Á morgun, fyrsta Barnadaginn, koma góðir vinir barnanna í heim- sókn til Suðurkringlu. Páll Óskar syngur kl. 14 og sparimörgæsin Georg spjallar við börnin. Sjálfur íþróttaálfurinn úr Latabæ kemur kl. 13 og gerir æfingar með börnun- um. Þorgrímur Þráinsson kemur í Eymundsson og les úr verðlaunabók sinni Margt býr í þokunni kl. 14. Þorgrímur verður einnig á ferðinni í Eymundsson í Austurstræti kl. 16. Á Barnadögum í Suðurkringlu eru sértilboð á barnabókum í Ey- mundsson, afsláttur af tónlist og myndböndum fyrir börn í Virgin Megastore, bíómiðatilbið í Kringlu- bíói og afsláttur á veitingum og í barnafataverslunum. LEIÐRÉTT Jóhannes er framkvæmdastjórinn í GREIN um lífeyrissjóði í blaðinu á fimmtudag var Sigurbjörn Sigur- björnsson titlaður framkvæmda- stjóri Söfnunarsjóðs lífeyrisrétt- inda. Hið rétta er, að Sigurbjörn er varaframkvæmdastjóri, en fram- kvæmdastjóri er sem fyrr Jóhannes B. Sveinbjörnsson. Beðist er velvirð- ingar á þessari misritun. í grein um lífeyrismál á fimmtu- dag var sagt að stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga væri öll kjörin af sjóðsfélögum á aðalfundi félag- anna. Hið rétta er að Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags íslands er að- eins eitt féiag og stjórn sjóðsins er kosin á aðalfundi lífeyrissjóðsins. Þá sagði síðar í greininni, að fram til ársins 1980 hefðu tveir stjórnar- menn verið kosnir á aðalfundi sjóðs- ins og þrír af stéttarfélagi verk- fræðinga. Hér ber aftur að leið- rétta, því hluti stjórnarmanna var skipaður af Verkfræðingafélagi ís- lands. Beðist er velvirðingar á þessu mishermi. Nafn misritaðist í FRÉTT um vortónleika eldri fé- laga Karlakórs Reykjavíkur í blað- inu á fimmtudag misritaðist nafn Hreiðars Pálmasonar. Beðist er velvirðingar á þessu. Gallerí Listakot I BLAÐINU á fimmtudag var mis- sögn í frétt frá Vinnudögum í Gall- eríi Listakoti. Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður þi-ykkir á bómull, grafíkkonurnar Gunnhildur Ólafs- dóttir og Jóhanna Sveinsdóttir vinna á dúk- og tréristu og þrykkja á papp- ír. Beðist er veivirðingar á þessu. Athugasemd um vátryggingamiðlun MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Vá- tryggingaeftirlitinu: „í frásögn af starfsemi vátrygg- ingamiðlara er ranghermt að EES samningurinn krefjist þess að við- skipti við erlend vátryggingafélög séu fyrir milligöngu vátrygginga- miðlara. Hið rétta er að vátrygg- ingafélög með aðalstöðvar á Evr- ópska efnahagssvæðinu mega starfa á íslandi eftir að hafa upp- fyllt einföld formskilyrði og eiga val um fyrirkomulag starfseminnar. Starfsemin getur t.d. verið í eigin útibúi, gegnum sjálfstæða milliliði, beint frá skrifstofu í öðru EES landi eða með einstökum heimsóknum erlendra sölumanna. Mat og upp- gjör tjóna getur verið með jafn fjöl- breyttum hætti. Eðli starfseminnar og áhugi og skipulag félagsins ræð- ur því hvaða leið er valin. Sum vátryggingafélög hafa valið sér það skipulag að semja við miðl- ara um að annast sölu á þjón- ustunni frekar en að byggja upp eigið dreifingakerfi. Auk þess geta miðlarar alltaf óskað tilboða frá eisntökum vátryggingafélögum i OPIÐ OLL KVOLD ViKUNNARTIL KL 21.00 HRINGBRAUT 1 1 9, -VIÐ JL HÚSIÐ. einstakar vátryggingar. Sjálfstæðir milliliðir s.s. vátryggingamiðlarar verða að hafa er hagkvæmt, enginn er skyldugur að skipta við vátrygg- ingamiðlara, hvorki vátryggingafé- lög né neytendur. Þegar hafa milli 90 og 100 evr- ópsk vátryggingafélög uppfýllt skil- yrði til þess að bera vátrygginga- áhættu af einhveiju tagi á Islandi. Sum þeirra eru líftryggingafélög sem bjóða þjónustu sína á almennum markaði eins og frá var greint í blað- inu. Fáein evrópsk skaðatrygginga- félög beita sér talsvert á íslenskum markaði, önnur hafa tekið að sér sérhæfðar vátryggingar án þess að vera með sérstaka kynningarstarf- semi á íslandi. Hluti þeirra félaga sem uppfyllt hafa formskilyrðin hafa þó engan sérstakan áhuga á íslensk- um vátryggingamarkaði, heldur völdu þau að uppfýlla strax formskil- yrði í öllum aðildarríkjum EES.“ Opiö aila daga vikunnar -22 LYFJA Lágmúla 5 Slmi 533 2300
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.