Morgunblaðið - 26.04.1997, Blaðsíða 1
93. TBL. 85. ÁRG.
Frakkland og Kúba
Samið um
viðskipti
París. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Frakklandi undir-
rituðu í gær viðskiptasamning við
Kúbustjórn og vöruðu jafnframt
Bandaríkjastjórn við afskiptum af
frönskum fyrirtækjum, sem hefðu
viðskipti við eyjarskeggja.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
gangrýndi samninga Frakklands
og Kúbu með óbeinum hætti á
fimmtudag og kvaðst um leið vona,
að Frakkar héldu áfram að beijast
fyrir auknum mannréttindum í ríki
Castros. Franck Borotra, iðnaðar-
ráðherra Frakklands, sagði hins
vegar í gær, að stjórn sín og Evr-
ópusambandsríkin væru andvíg
Helms-Burton-lögunum banda-
rísku en samkvæmt þeim er unnt
að refsa fyrirtækjum, erlendum
sem bandarískum, sem hafa við-
skipti við Kúbustjórn.
Vilja tengjast alþjóðlegu
efnahagslífi
Evrópusambandsríkin höfðu vís-
að þessari deilu til Heimsviðskipta-
stofnunarinnar en á mánudag féllu
þau frá því. Þá hafði Bandaríkja-
stjórn lofað að milda Helms-Burt-
on-iögin.
Ibrahim Ferradez Garcia, sem
fer með erlenda fjárfestingu og
efnahagssamstarf í Kúbustjórn,
sagði, að stjórn sín legði nú mikla
áherslu á að tengjast aftur hinu
alþjóðlega efnahagslífi og því væri
samningurinn við Frakkland mjög
mikilvægur.
Biðjast
afsökunar
á Guernica
ROMAN Herzog, forseti
Þýskalands, mun í dag biðjast
formlega afsökunar á árásinni
á bæinn Guernica í spænsku
borgarastyijöldinni, í tilefni
þess að nákvæmlega sextíu
ár eru liðin frá henni.
Guernica er í Baskalandi
og Kondor-flugsveit Þjóð-
veija, sem barðist við hlið
spænskra falangista, varpaði
sprengjum á bæinn 26. apríl
1937. Var það ein fyrsta
sprengjuárásin sem gerð var
úr lofti.
Fullyrt er í þýska blaðinu
Frankfurter Rundschau að
Herzog muni viðurkenna að
Þjóðveijar hafi borið mikla
ábyrgð á árásinni. Um 5.000
manns bjuggu í bænum fyrir
árásina, sem jafnaði hann því
sem næst við jörðu, og gerði
Pablo Picasso ódauðlegan
minnisvarða um þá sem létu
lífið í málverkinu „Guernica".
Er hálf öld var liðin frá
árásinni lofaði þýska stjórnin
að gera allt sem í hennar
valdi stæði til að veita eftirlif-
endum í Guernica lið. Það lof-
orð hefur ekki verið haldið og
hafa Þjóðveijar verið harðlega
gagnrýndir fyrir það.
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Winnipeg Free Press
Flóð valda usla í Manitoba
VÖXTUR í Rauðá hefur valdið
miklum flóðum i N-Dakota í
Bandaríkjunum og Manitoba-fylki
í Kanada. Búist er við að flóðin
nái hámarki í Winnipeg í næstu
viku. Á myndinni flýja bóndinn
Jerry Pearse og frú heimili sitt
skammt frá bænum Dominion.
■ Alit að 2.000 ferkílómetrar/22
Deilt á Kabila
vegna týndra
flóttamanna
New York, Kisangani. Reuter.
HART var deilt á uppreisnarmenn í
Zaire vegna allt að 100 þúsund
flóttamanna frá Rúanda, sem horfið
hafa úr flóttamannabúðum í austur-
hluta landsins. Haft var eftir Kofi
Annan, framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna (SÞ), að „hægfara
útrýming" á flóttamönnum frá Rú-
anda ætti sér stað í Zaire.
Hafin var leit úr lofti að um 85
þúsund flóttamönnum, sem horfið
hafa úr tvennum búðum suður af
Kisangani. Um 55 þúsund hafa yfir-
gefið Kasese-búðirnar og 30 þúsund
Biaro-búðirnar.
„Áttatíu þúsund manns hafa verið
dæmd til hægfara og villimannlegs
dauða,“ sagði Christiane Berthiaume,
talsmaður Matvælahjálpar SÞ.
Kenndi hún liðsmönnum uppreisnar-
foringjans Laurents Kabila um að
hindra matvælaflutninga til búðanna.
„Uppreisnarmenn vilja flóttamennina
feiga. Hafi þeir flúið inn í skóginn
verður það þeirra bani. Við getum
ekkert að gert,“ sagði Berthiaume.
í gær komu svo 13 fióttamenn
úr Kasese-búðunum til bæjarins Kik-
ongo skammt frá Kisangani og sögð-
ust hafa verið á göngu í þijá daga
eftir að skotárás var gerð á búðirn-
ar. „Það greip um sig mikil skelfing,
fólkið flýði í allar áttir þegar skot-
hríðin hófst. Við vitum ekki hveijir
voru að verki," sagði einn flótta-
mannanna. Aðrar heimildir hermdu,
að hundruð manna hefðu fallið í
valinn.
Örlög flóttamannanna eru á góðri
leið með að snúast upp í pólitíska
og áróðurslega martröð fyrir Kabila.
Hann aftók að sveitir hans, sem eru
aðallega skipaðar tútsum, hefðu
gengið milli bols og höfuðs á flótta-
mönnunum, hútúum frá Rúanda,
sem að stórum hluta eru fyrrverandi
liðsmenn stjórnarhers Rúanda.
Talsmaður samtakanna Læknar
án landamæra sakaði liðsmenn Kab-
ila um að misnota nærveru hjálpar-
samtaka í Zaire til þess að elta uppi
flóttamenn í austurhluta landsins.
Rússar fresta
fullg’ildingxi
Moskvu. Reuter.
TALSMAÐUR stjórnar Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta lét i ljós mik-
il vonbrigði í gær með að rússneska
þingið skildi streitast gegn alþjóð-
legum þrýstingi um að fullgilda al-
þjóðlegan samning um efnavopna-
bann.
Öldungadeild Bandaríkjaþings
staðfesti sáttmálann í fyrradag en í
stað þess að fara að dæmi þess sam-
þykkti neðri deild rússneska þings-
ins, dúman, ályktun um að stefnt
skyldi að því að staðfesta samning-
inn með haustinu.
Vladímír Ljúkín, formaður utan-
ríkisnefndar dúmunnar, sagði Rússa
eiga einhveijar mestu efnavopna-
birgðir heimsins. Þær eru taldar
nema 40 þúsund tonnum og segja
rússneskir þingmenn óhjákvæmilegt
að Vesturlönd kosti eyðingu þeirra.
■ Stefnt að staðfestingu/2
■ Mikilvægur pólitískur/21
Uppsveiflan dugar vart Major
London. Reuter.
HAGVÖXTUR í Bretlandi á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs jafn-
gildir 3% aukningu á ári, sam-
kvæmt hagtölum, sem birtar voru
í gær. Þessar góðu fréttir eru tald-
ar koma of seint til þess að nýtast
íhaldsflokki Johns Majors forsæt-
isráðherra nægilega til að halda
völdum eftir þingkosningarnar í
næstu viku.
„Varanlegur vöxtur er orðinn
fastur í sessi, sveiflugangur heyrir
sögunni til,“ sagði Major og ítrek-
aði að aðrar Evrópuþjóðir litu öf-
undaraugum til Bretlands hvað
efnahagsuppgang áhrærði.
Hagfræðingar sögðu reyndar,
að hagtölurnar sýndu að hugsan-
lega þyrfti að grípa í taumana og
hafa hemil á hagvextinum til að
ekki hlytist af verðbólga.
Mikil harka hljóp í kosningabar-
áttuna í gær. Major sakaði Tony
Blair, leiðtoga Verkamannaflokks-
ins, um „ósvífinn hræðsluáróður"
með því að halda því fram, að
Ihaldsflokkurinn hygðist afnema
opinberan ellilífeyri héldi hann
völdum eftir kosningar og einka-
væða eftirlaunakerfið. Sagðist
Major myndu samstundis ijúfa
þing og segja af sér tæki stjórnin
fram fyrir hendur sér og sam-
þykkti slíkt.
Tvær skoðanakannanir, sem
birtar voru í gær, sýna, að forskot
Verkamannaflokksins á íhalds-
flokkinn er 16-18%.
Gífurlegt umferðaröngþveiti
skapaðist í miðhluta Englands í
gær er tvær sprengjur, sem eign-
aðar voru Irska lýðveldishernum
(IRA), sprungu meðfram M6-
hraðbrautinni. IRA hefur haft
uppi áform um að valda sem
mestri röskun fram að kosningum.
í gær voru starfsmönnum kjör-
stjórna afhentar leiðbeiningar um
viðbrögð við sprengjuhótunum á
kjörstað.
Reuter
UMFERÐ var stöðvuð um M6-hraðbrautina í Mið-Englandi í gær
vegna sprengjutilræða. Mynduðust tuga kílómetra langar
biðraðir. Franskir menntaskólanemar styttu sér stundir með
því að halda ferðinni áfram gangandi.