Morgunblaðið - 26.04.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.04.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 LIFEYRIR LAWPSMAIMIMA MORGUNBlAÐIÐ Sammála um að samtrygging liggi til grundvallar Talsmenn þingflokka, lífeyrissjóða og tryggingafélaga Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um skyldutrygfflngu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyríssjóða. Með frumvarpinu er gerð sú mefflnbreyting að öllum launþegum er gert skylt að greiða í sameignarlífeyris- sjóði. Samkvæmt gildandi lögum eiga allir launþegar að greiða í lífeyrissjóði, en hins vegar er ekkert kveðið á um hvemig þeir eiga að vera, sameignarsjóðir eða séreigna- sjóðir, eða hvaða lágmarksréttindi þeir eigi að veita. Hluti launþega greiðir nú í sér- eignasjóði og réttindi sem sameignarsjóðir ____________veita eru nokkuð mismunandi. _______Morgunblaðið leitaði álits talsmanna þingflokka, sameignarsjóða, séreignasjóða og tryggingafélaga á frumvarpinu. Talsmenn þingflokka eru sarnmála um að samtryggingarkerfi al- mennra lífeyrissjóða eigi fullan rétt á sér áfram, en eru ekki á eitt sáttir um nánari útfærslu líf- eyrismála. Ýmislegt til bóta ér finnst skyn- samlegt að sam- þykkja frumvarp- ið eins og það liggur nú fyrir, enda er í því að finna ýmsar bætur frá núverandi kerfi. Það er vissulega ýmsa galla að finna á frumvarpinu, en ég tel samt framför að samþykkja það,“ sagði Svavar Gestsson, formaður þingflokks alþýðubandalagsmanna. Svavar sagði bersýnilegt að frumvarpið væri samið eftir löggjöf um verðbréfasjóði, til dæmis ákvæði um kvaðir um lausafé, fjárfesting- arstefnu sjóða og innra eftirlit þeirra. „Ríkið á ekki þessa sjóði, svo það á ekki að skipa fyrir um smæstu atriði í rekstri þeirra. Mér finnst gengið óþarflega langt að þessu leyti, en í heildina litið þá finnst mér sjálfsagt að afgreiða frumvarpið í meginatriðum.“ Svavar sagði að stjórnarandstað- an hefði tekið frumvarpið í fóstur og innan þingflokks alþýðubanda- lagsfólks væri ágæt samstaða um það. Það byggði á félagslegum sjón- armiðum og væri gott í grundvallar- atriðum. „Alvarlegustu ágreinings- efnin hafa komið frá stjórnarflokk- unum.“ Aðspurður um fyrirhugaða til- lögu um breytt fyrirkomulag á kosningu til stjórnar lífeyrissjóð- anna sagði Svavar að hann gerði nú lítið með það. „Ég held að það gerist ekki margt í þeim efnum, því ef frumvarpið á að verða að lögum fyrir vorið þá gefst ekki tími til slíks. Ég tel að það sé almennt ástæða til að auka lýðræði í þjóðfé- laginu og fagna að stjórnarflokk- arnir skuli hafa komið auga á það, en varðandi stjórnir lífeyrissjóðanna þá þarf að fara gaumgæfilega yfir málið. Ráðherrar eiga ekki lífeyris- sjóðina. Sjóðsfélagar verða að fá að hafa eitthvað um breytingar af þessu tagi að segja. Aðalatriðið er að ná saman rammalöggjöf, en svo má breyta einstökum atriðum síðar. Það má ekki láta málið í heild hrapa fyrir björg." Svavar sagði að samtryggingar- kerfið myndi hrynja ef innborgun í sjóðina yrði miðuð við krónutölu. „Þá er ekki bara verið að eyði- leggja sparnaðinn sem á eftir að greiða, heldur jafnframt sparnað þeirra sem hafa greitt í sjóðina í áratugi.“ Vafi um skylduaöild allra K vciiiiaiiöumi svo á að það eig að ríkja samábyrgi í samfélaginu o; lífeyriskerfi eigi a< miðast við það Spurningin snýst hins vegar un það, hver réttur Iöggjafans sé ti að skikka þá, sem ekki eru bundni: af sérlögum, kjarasamningum eðí ráðningarsamningum, til að eig£ skylduaðild að sjóðunum. Við þurf um að fá úr því skorið hvort þa< stenst," sagði Kristín Ástgeirsdótt- ir, þingkona Kvennalista. Kristín sagði að kanna þyrft hvort rétt væri að heimila almenn- um lífeyrissjóðum að stofna sér- eignadeildir til að ávaxta iðgjölc umfram lögboðin 10% af heildar- launum og að sama skapi hvort séreignasjóðirnir gætu rekið sam- eignarsjóði. „Þetta þarf að kanna rækilega. Mér líst hins vegar afleit- lega á þá hugmynd að setja þak á iðgjaldagreiðslur. Það myndi setja kerfið í uppnám. Við verðum að hafa í huga að tryggja hag þeirra sem hafa greitt til sjóðanna hingað til. Öll röskun og fijáls samkeppni í lífeyrissjóðakerfinu kemur ekki heim og saman við eðli þess. Það má aldrei stofna sjóðunum í hættu.“ Kristín sagði að hún teldi mjög hættulegt ef lífeyrissjóðir færu í samkeppni um sjóðsfélaga. „Þeir sem hafa há laun verða þá æskileg- ir sjóðsfélagar, en þeir sem greiða lægri iðgjöld og lifa lengur, og í þeim hópi eru konur ijölmennar, yrðu óæskilegir sjóðsfélagar." Kristín sagði að sérstaklega þyrfti að kanna hvernig ætti að haga lífeyrisrétti húsmæðra. „Þær eru ekki launþegar og við þurfum að kanna sérstaklega hvernig þær geta tryggt hag sinn. Frumvarpið tekur ekki á því.“ Aðspurð hvort hún teldi líklegt að frumvarpið næði fram að ganga á yfirstandandi þingi sagði Kristín, að mikill vilji væri fyrir því á þingi. „Við erum sáttar við samábyrgðar- regluna, en það er ýmislegt óljóst, enda er málið enn í vinnslu." Sterk stod i velferóarkerfinu ingjLiLm.is.ui jailiau armanna er hlynnt ur rammalöggjö: um lífeyrismál. Vic leggjum höfuðá- herslu á samtrygg- ingarþátt lífeyrissjóðakerfis," sagð Rannveig Guðmundsdóttir, formað- ur þingflokks jafnaðarmanna. Rannveig sagði að lífeyrissjóða- kerfið með skylduaðild að sam- tryggingasjóðum væri sterk stoð : velferðarkerfinu. „Það byggist á ac allir taki jafnan þátt, beri sömu skyldur og öðlist sömu réttindi. Í því felst ekki eingöngu sparnaður til elliáranna, heldur samhjálpar- trygging, sem snýr jafnframt að örorku-, maka- og barnalífeyri. Þetta er fjölskyldutrygging, þar sem allir eru jafn gildir og við viljum standa vörð um þennan þátt vel- ferðarkerfisins.“ Rannveig sagði að jafnaðarmenn væru reiðubúnir að skoða þann möguleika, að almennir lífeyrissjóð- ir mættu stofna séreignadeildir. „Ef menn gætu hins vegar valið um að greiða eingöngu til séreignasjóða þá væru þeir að kjósa gegn þessum tryggingaþætti. Þegar inneign þeirra þryti, þá þyrftu þeir að leita til almannatrygginga og væru þannig í raun að kalla eftir aðild að kerfi, sem almennir sjóðir hefðu byggt upp. í góðu velferðarþjóðfé- lagi verða réttindi og skyldur að fara saman.“ Rannveig sagði að bent hefði verið á að sjóðsfélagar í séreigna- sjóðum gætu keypt sér tryggingar. „Þetta er ekki fullnægjandi og ekki í samræmi við hugsanahátt okkar um samhjálp í velferðarmálum. Þetta þýðir, að þeir sem hafa efni á geta keypt sér ríkulegar trygging- ar, en aðrir láta það sitja á hakan- um, ætla sér kannski að gera það síðar eða vona bara það besta. Ég vil ekki þjóðfélag sem byggir á slík- um mismun.“ Rannveig sagði að umræðan um lífeyrismál hefði ekki snúist um réttlæti, heldur samkeppni um fjár- magn. „Horft er til 300 milljarða eignar lífeyrissjóðanna og margir vilja hlutdeild í henni. Slíka pen- ingasýn hlýt ég að gagnrýna. Þá er þetta stóra og mikilvæga frum- varp seint fram komið, en stjórnar- andstaðan vill heiðarlega og góða umræðu um það. Það er mikilvægt að tryggja að réttur launþega verði ekki fyrir borð borinn, þegar þrýst er á stjórnarflokkana að breyta líf- eyrissjóðakerfinu frá hugmynda- fræði samtryggingar yfir í kerfi séreignasjóða. Ég er lika ósátt við ákvæði í frumvarpinu, þar sem seg- ir að hægt sé að festa í ráðningar- samning til hvaða lífeyrissjóðs er greitt. Þetta hljómar kannski vel, en um leið og opnað er fyrir val- frelsi á þennan hátt, þá er stutt í að lífeyrissjóðir geti valið sér félaga og hafnað öðrum." Séreignasjóöir fdi aó þrífast V ið eigum að reyna til þrautar að ná sáttum um frum- varp til laga um líf- eyrissjóði og það er ljóst að það verður að koma til móts við sjónarmið þeirra sem lagt hafa fé í séreigna- sjóði,“ sagði Geir H. Haarde, for- maður þingflokks sjálfstæðis- manna. Geir sagði að í þingflokki sjálf- stæðismanna væru fulltrúar ýmissa sjónarmiða. „Við þurfum að finna sameiginlegan snertiflöt, því bæði kerfi sameignarsjóða og séreigna- sjóða eiga rétt á sér. Þeir sem hafa greitt í séreignasjóði verða hins vegar að taka eðlilegan þátt í sam- fryggingarskyldunum. Það er svo ekki ljóst hvort sátt næst um frum- varpið á þeim stutta tíma sem eftir lifir þings, en mér finnst sjálfsagt að láta á það reyna. Frumvarpið þarf greinilega að taka einhveijum breytingum, en ég sé ekki annað en að svigrúm sé til þess, þrátt fyrir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga." Geir sagði mikilvægt að það fyr- irkomulag séreignasjóða, sem búið væri að byggja upp, fengi að þríf- ast áfram samhliða samtryggingar- kerfinu. Aðspurður hvað honum fyndist um val á stjórnum lífeyris- sjóðanna og þær fullyrðingar, að þar mætti standa lýðræðislegar að verki, sagði Geir að honum þætti nokkuð til í því. Geir bætti því við að almennir Iífeyrissjóðir væru nú orðnir mjög öflugir, enda hefði þeim verið stjórnað af ábyrgð, þrátt fyrir ýmsa gagnrýni. „Það þarf að fara varlega í öllum breytingum, svo þær valdi ekki tjóni. Hins vegar er nauðsyn- legt að koma á rammalöggjöf um lífeyrissjóði. Markmið allra er, hygg ég, það sama, þótt menn séu ekki sammála um leiðirnar, en mér finnst eðlilegt að heimila ákveðið valfrelsi fyrir þá sem hafa tök á að nýta sér það,“ sagði Geir H. Haarde. Morgunblaðið náði ekki tali af forystumönnum Framsóknarflokks- ins í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.