Morgunblaðið

Ulloq
  • Qaammatit siuliiApril 1997Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    2829301234
    567891011

Morgunblaðið - 26.04.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.04.1997, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Brunkild 6 nbach ° Morris . ö AÆTLAÐ FLÓÐA- SVÆÐI Winkler JEmerson_ BANDA^ÍKIN Winnipeg Free Press UMFERÐ um 66 þjóðvegi í Manitoba-fylki í Kanada hefur stöðvast, eftir að flóðvatn Rauðár færðist norður yfir landamærin. Hér sjást bílar, sem urðu strandaglópar á þjóðvegi 75 þegar hann fór á kaf í gær. Mestu vatnavextir í Manitoba í 145 ár Allt að 2.000 ferkíló- metrar fara á flot Winnipeg í Manitoba og Grand Forks í N-Dakóta. Reuter. FLOÐIÐ í Rauðá, sem á upptök sín í Minnesota og rennur í norður um Suður- og Norður-Dakóta í gegn um Manitoba-fylki í Kanada í Winnipeg- vatn, hefur nú lagt mestallan Rauð- árdal í Manitoba undir vatn. Flóðið er nú að mestu gengið yfír í Grand Forks í Norður-Dakóta, þaðan sem langflestir íbúanna 50.000 þurftu að flýja undan flóðinu um síðustu helgi. Land er mjög flatt í kring um Rauðá og færist flóðvatnið því hægt eftir farvegi árinnar, en breiðist yfír mjög stórt landsvæði. Óvenjumikil snjóalög og snöggar leysingar hafa valdið hinum miklu vatnavöxtum. Þar sem frost er enn í jörðu sígur flóð- vatnið ekki niður í jarðveginn heldur flæðir líkt og stöðuvatn. Um 800 ferkílómetrar voru farnir undir vatn í suðurhluta Manitoba, og að sögn sérfræðinga má búast við að allt að 2.000 ferkm lands lendi undir flóðinu þegar það nær hámarki, en spáð er að það gerist við landamæri Norður- Dakóta og Manitoba á mánudag, en 5. maí við suðurodda Winnipegborg- ar, en þar búa 630.000 manns. A landssvæðinu milli Winnipeg og landamæranna hefur tæplega 20.000 íbúum þorpa og sveitabýla verið gert að yfirgefa heimili sín og 66 þjóðvegum hefur verið lokað. I gær rigndi á flóðahættusvæðinu, og jók hún enn á áhyggjur íbúanna. Hundruð hermanna hafa verið kall- aðir út til að aðstoða við að hlaða varnargarða úr sandpokum í kring um mannvirki á flóðahættusvæðinu sem og að aðstoða fólk við að kom- ast_ þaðan. Árið 1950 varð gífurlegt tjón í Winnipeg af völdum stærsta flóðs, sem orðið hafði í Rauðá á þessari öld. 100.000 manns þurftu þá að yfirgefa borgina. Eftir þetta voru byggðir miklir flóðvarnargarðar meðfram ánni, sem eru 47,3 km langir og 9 metra háir. Við byggingu garðanna á sjöunda áratugnum var rutt til áiíka miklum jarðvegi og við byggingu Panama-skurðarins. Bygging garðanna kostaði um 3,2 milljarða króna að núvirði, en þeir hafa margsinnis sannað gildi sitt síðan, einkum í flóðunum 1979 og 1996, sem voru af svipaðri stærð- argráðu og skaðræðisflóðið 1950. Varnargarðurinn framlengdur Fóðið, sem nú stefnir í átt að borginni, er svo breitt að óttast er að stór hluti flóðvatnsins fari fram- hjá flóðvarnargörðunum, þar sem þeir byrja fyrir sunnan borgina. Þess vegna hefur verið brugðið á það ráð að ryðja upp framlenginum á varnar- garðinn mikla, sem líkt og trekt á að beina flóðvatninu inn í varnar- garðarennuna. Framlengingin er 24 km löng og tæplega tveggja metra há. Hún verður að vera fullgerð á morgun, sunnudag, og leggja menn nótt við dag til að ná því takmarki. Að sögn Larrys Whitney, yfirverk- fræðings borgarinnar, verður með þessum aðgerðum unnt að koma í veg fyrir tjón. „99% borgarinnar þarf ekkert að óttast," sagði Whitn- ey í Wirmipeg Free Press. Vatnshæðin í Rauðá jókst á fimmtudag um hálfan metra, og hefur þegar slegið fyrri mælingar- met á þessari öld á svæðinu við bandarísk-kanadísku landamærin. Þegar flóðið nær hámarki má búast við að rennslið í ánni verði meira en 3.900 rúmmetrar á sekúndu við Winnipeg 5. maí, miðað við að ekki rigni meira. Leita þarf aftur til árs- ins 1852 til að finna hærri rennslis- tölur, en þá náði það í hámarki flóðs um 4.670 rúmmetrum á sekúndu. Árið 1826 varð mesta flóð í ánni, sem sögur fara af, en þá náði rennsi- ið um 6.370 rúmmetrum á sekúndu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Publication Type:
Collection:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Language:
Volumes:
111
Issues:
55740
Registered Articles:
3
Published:
1913-present
Available till:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Locations:
Editor:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-present)
Haraldur Johannessen (2009-present)
Publisher:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-present)
Keyword:
Description:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Sponsor:
Supplements:

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: 93. tölublað (26.04.1997)
https://timarit.is/issue/129451

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

93. tölublað (26.04.1997)

Iliuutsit: