Morgunblaðið - 26.04.1997, Síða 28

Morgunblaðið - 26.04.1997, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 TYRKLAIMD MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Morgu nblaðið/Golli FATNAÐUR til sölu og ösin var um tíma slík að starfsmenn brugðu á það ráð að verðmerkja flikurnar undir berum himni. Mannþröng á birgðasölu tískuverslana MIKIL örtröð hefur verið undan- farið á birgðasölu Sautján, 4You, Deres, Smash og fleiri tískuversl- ana sem nú stendur sem hæst að Hverfisgötu 105 í Reykjavik. Salan hófst um síðustu helgi og þá voru mannþrengslin slík að starfsmenn brugðu á það ráð að verðmerkja flíkurnar undir ber- um himni og sem betur fer viðr- aði vel til slíkra verka. Að sögn Sigurðar Bollasonar verslunarmanns hafa á stundum- umlOO manns beðið færis á að komast á útöluna og þvi hafi verið gripið til þess ráðs að hleypa væntanlegum kaupendum inn i skömmtum. A boðstólum er fatnaður fyrir alla aldurshópa og nýjar vörur berast daglega. „Miðað er við um 80% afslátt frá venjulegu búðar- verði en hægt er að kaupa bux- ur, peysur og jakka á um 200 krónur.“ Þetta er í fyrsta sinn sem birðga sala á vegum þessara verslana er haldin en sökum góðra undirtekta hefur hún verið framlengd um viku, til 3. maí. Opið er alla daga nema sunnu- dagafrákl. 13-18. Lesendur spyija Hvað skýrir hátt verðlag á erlendum tímaritum? ÞORSTEINN Ingason hringdi og vildi gjaman fá skýringar á háu verði á erlendum tímaritum. Hann segist oft verða vitni að því að blöð- in séu seld á jafnvel þreföldu verði á við það sem þau kosta úti. „Sem dæmi nefnir hann að tíma- ritið Macformat kosti 4,99 pund eða 573 krónur í Bretlandi en hér á landi kostar það 1.250 krónur. Þá kostar Arkane 2,95 pund í Bretlandi eða 342 krónur en 802 krón- ur í bókabúð hér- lendis. Hann segir hins vegar að hann hafi gerst áskrif- andi að Macformat og borgi nú ekkert í líkingu við 1.25Ö krónur fyrir hvert blað. Fyrir það fyrsta segist hann hafa tekið sérstakt áskrifendatilboð og borgar 104 pund eða 12.023 krónur fyrir 24 blöð. Það þýðir að hvert blað kostar hann 501 krónu. Innifalin era póstburðargjöld til Islands. Þorsteinn segist hvorki þurfa að borga toll né virðisaukaskatt af blaðinu sem berst til hans reglulega í pósti. „Kaupi fólk erlend tímarit reglulega margborgar sig að gerast áskrif- andi.“ Golftímaritið Inside the Tour kostar í Bretlandi 2,95 pund eða 342 krónur en í bókabúðinni Ey- mundsson, Kringlunni, kostar það 975 krónur. Tímarit um alnetið er á 342 krón- ur eða 2,95 pund í Bretlandi en kostar hér 802 krónur. Svar: Guðmundur Sigmundsson, framkvæmdastjóri hjá Blaðadreif- ingu, sem flytur inn megnið af þeim erlendu blöðum og tímaritum sem hér era fáanleg, segir skýringu á háu verði vera fólgna í óhagstæðum flutnings- og dreifikostnaði, auk þess sem skilaréttur sé á því sem ekki selst. „Við seljum sjaldnast nema um 60% þess sem við kaupum frá erlendum útgefendum, en borg- um samt sem áður flutningskostnað af öllu saman. Auk þess er það í okkar verkahring að koma þeim blöðum sem ekki seljast í eyðingu og í sumum tilfellum skila þeim'til útgefenda." Að sögn Guðmundar eru bresk og bandarísk blöð ódýrari í verslun- um hérlendis en annars staðar á Norðurlöndum. „Flutningskostnað- ur er samt sem áður mun hagstæðari þar meðal annars þar sem magnið er meira. Til dæmis í Danmörku kostar Macformat tímarit- ið 129 danskar krónur sem eru um 1.420 íslenskar krónur sem er um 13,6% hærra en tímaritið kostar hér á landi.“ Guðmundur út- skýrði verðmynd- unina með því að deila niður þeim 1.250 krónum sem Macformat tímarit- ið kostar. „Virðis- aukaskatturinn er 12,28% eða 154 krónur og hiutur verslunarinnar er 26,3% eða 329 krónur. Þá er alltaf gert ráð fyrir um 3,5% rýrnun á blöðunum en Blaðdreifíng tekur 12,3% eða 154 kr. fyrir að flytja blaðið inn, dreifa því og endursenda ef með þarf. Flutningskostnaðurinn er 119 kr. eða 9,5% og útgefandinn fær 450 krónur eða 36% af útsölu- verðinu." Samkvæmt íslenskum lögum á að borga virðisaukaskatt af blöðum og bókum þótt þau séu keypt í áskrift en að sögn Guðmundar er því sjaldnast fylgt eftir af stjórn- völdum. Hann segir jafnframt að alltaf sé ódýrara að vera í áskrift þar sem m.a. rýrnunin og dreifi- kostnaðurinn er enginn. Blaðdreifing flytur til landsins um 1.500 titla af blöðum og tímaritum og af þeim er breska tímaritið Hello vinsælast. ERLEND tímarit eru oft um þrefalt hærri hér- lendis en í heimalandi. GÖTUMYND frá Istambul. Tekist á um trú og skóla Uggur er í mörgum í Tyrklandi um vaxandi íslömsk áhrif vegna samsteypustjómar undir * forsæti Erbakans úr Islamska velferðar- flokknum. Elín Pálmadóttir heyrði hvemig skólamálin koma þar inn í, svo sem Kóran- skólamir sem dætur Sophiu Hansen hafa verið í. Sú eldri við að læra Kóraninn utan bókar á 2 ámm, að sögn föður hennar. Eftir að herinn sýndi klæmar telja þó flest- ir hættuna hverfandi á að vikið verði frá vestrænum gildum. NDAN- FARNAR vikur hafa verið póli- tísk átök í Tyrklandi og órói í Iofti. Við síð- ustu kosningar hlaut íslamski flokkurinn RF 21 % fylgi og neyddist Tansu Ciller og flokk- ur hennar DYB til að mynda með honum samsteypustjórn undir forustu Necmettins Erbakans. Sjálf er hún utanríkisráðherra. Af flokki forsætisráðherr- ans er þó talið að ekki sé nema helmingurinn heittrúaðir múslimar og töldu margir þetta því ekki svo afleitt. Erbakan hafði lofað umbót- um á stjórn landsins og talið að hann gæti haldið róttæku öflunum í skefjum. Ýmis atvik hafa þó gerst undan- farnar vikur, sem læddu að þeim grun að hann hygðist sveigja kerf- ið í átt til íslamsks ríkis. Fólk þótt- ist sjá merki þess að trúarskólar væru að eflast á kostnað fram- haldsskóla til að verða uppeldis- stöðvar fyrir bókstafstrúarmenn, áróður væri uppi um að konur hyldu höfuðið á opinberum stöðum, að stjórnin lokaði augunum fyrir vopnasölu til Irans og að heittrúuð- um væri raðað í stöður hjá ríkinu. Þessi uggur hefur orðið áberandi og kröfur komu upp um að flokkur Erbakans tæki afstöðu gegn þessu. Orðrómurinn var orðinn útbreiddur og af blaðaskrifum að dæma virð- ist mikil ólga í báðum stjórnar- flokkunum. Herinn sýnir klærnar Þetta varð til þess að 28. febr- úar var þjóðlega öryggisráðið svo- kallað, eða MGK, kallað saman á fund, þar sem því var beint til ríkis- stjórnarinnar að gangast fyrir til- teknum andbókstafstrúar-aðgerð- um í 18. liðum. í MGK eiga sæti 5 æðstu menn hersins og 5 æðstu stjórnendur, forseti og ráðherrar. Þessa sömu daga marseraði herinn um göturnar og gerði sig mjög sýnilegan. Fór ekki á milli mála að þar var verið að leggja áherslu á alvöru málsins, sem verður skilj- anlegt þegar haft er í huga að á árunum 1960-1980 velti herinn þrisvar sinnum löglegum stjórnum úr sessi. Hvað um það, báðir flokk- ar ríkisstjómarinnar samþykktu að taka tilskipanirnar til greina og koma í framkvæmd því sem í þeim fólst. Forsetinn Suleiman Demirel lýsti því yfir í blaðagrein að tyrkneska lýðveldið sé nútímaríki. Þjóðin séu múslimar, en ríkisvaldið veraldlegt. Þar sé engin ríkistrú. Hann segir að herinn hafi ekki áhyggjur af styrkleika múslima í Tyrklandi, heldur af því ef reynt sé að nota íslamstrú í pólitískum tilgangi. Lögin í landinu leyfi ekki misnotk- un trúar, en nú hafi verið farið yfir það strik. Fyrir einum áratug hafi áhyggjur af slíku verið óþekkt- ar. Haft var eftir bæði Erbakan for- sætisráðherra og utanríkisráðherr- anum Tansu Ciller að ríkisstjórnin væri ákveðin í að beijast gegn ógnun trúarlegra öfgamanna. Og var tilmælunum vísað til afgreiðslu til menntamálaráðherrans og innanríkisráðherrans. í blöðum mátti þó sjá kvartanir um að lítið bólaði á aðgerðum. En 15. apríl bárust fréttir um fyrstu merkin um að tyrkneski forsætisráðherrann Necmettin Erbakan hefði látið und- an þrýstingi hersins. Hann hefði gefið fyrirmæli um að heittrúar- embættismennirnir nýju yrðu látnir hætta aftur hjá ríkinu. Þetta sé fyrsta raunhæfa skrefið til að stöðva framgang heittrúarmú- slima. Kóranskólar undir eftirlit Einn liðurinn í fyrirmælunum frá MGK var bann við öllum áróðri í útvarpi og sjónvarpi um að konur gangi með andlitsblæjur og auglýs- ingum með fyrirskipun um klæðnað múslimakvenna. En bann við að konur í Tyrklandi gangi með and- litsblæjur er komið allt frá dögum Atatúrks um 1922 þótt því hafi ekki verið stíft framfylgt. Nú var farið fram á að banni við að konur séu huldar á almannafæri yrði framfylgt. í einni greininni er þess líka kraf- ist að takmarkaðar verði nýbygg- ingar á moskum. Um skólana var farið fram á að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.