Morgunblaðið - 26.04.1997, Side 41

Morgunblaðið - 26.04.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 41 + Ingibjörg Stef- ánsdóttir fædd- ist í Mjóadal í Laxárdal, Austur- Húnavatnssýslu, 8. maí 1907. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Eir í Reykjavík 11. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Stefán Sigurðsson, bóndi þar, síðar hrepp- stjóri, Gili, Svart- árdal, fæddur 7.4. 1879, dáinn 30.8. 1971, og Elisabet Guðmundsdóttir, fædd 8.3. 1884, dáin 7.7. 1969. Þau áttu auk Ingibjargar eina dóttur, Sigurbjörgu, f. 1915, d. 1937. Hinn 12.6. 1932 giftist Ingi- björg Þorsteini Jónssyni, org- anista, söngstjóra og söng- kennara, síðar sýsluskrifara á Blönduósi. Hans foreldrar voru Jón Jónsson og Ósk Gísla- dóttir, Eyvindarstöðum í Blöndudal. Börn Ingibjargar og Þorsteins eru tvö. 1) Þor- steinn Hængur, tannlæknir, f. 3.2. 1938, giftur Hönnu Láru Köhler og eiga þau fjögur Amma mín var afskaplega blíð og góð kona, og alltaf gott að vera nálægt henni, því það var svo mik- il ró yfir henni. Hún var afskaplega hjálpsöm, alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd og gera það fyrir mann sem hún gat. Amma var mikil handavinnu- kona og hafði gaman af öllu föndri, henni féll aldrei verk úr hendi og var hún alltaf með eitthvað á prjón- unum, svo heklaði hún mikið af fallegum dúkum sem hún með ánægju gaf okkur hinum. En á stundum sem þessum leitar hugurinn til baka og sterkustu minningar mínar af ömmu eru á Blönduósi þegar ég sem krakki var hjá henni hluta úr sumri. Ég man eftir litla húsinu hennar, fallega garðinum, blómunum, fuglasöng og katlinum hennar sem flautaði þegar vatnið sauð, og vakti mig á morgnana. Amma sagði mér sögur af álfum sem bjuggu í steinum og tröllum sem lögðu fólk í álög. Hún sagði mér frá umskiptingum og öðrum kynjaverum. Og fyrir sjö ára gamla stelpu með sterkt ímyndunarafl var þetta til að gera lífið miklu merki- legra, og ef ég sá þokkalega stóran stein talaði ég óspart við hann og reyndi að tæla út álfana sem ég trúði að ættu þar heima. Amma las mikið af sögum fyrir mig þar sem sagði frá göldróttu fólki og ef galdraþulan kom fram í sögunni lagði ég hana á minnið og reyndi svo að nota á bróður minn með litlum árangri. En þá er komið að því að ég þakki ömmu minni fyrir samfylgd- ina í þessu lífi, það er alltaf sárt að kveðja þá sem manni þykir börn, þau eru Car- ola Ida, f. 1961, Þorsteinn Páll, f. 1964, Dagný og Linda, f. 1966. 2) Elísabet, meina- tæknir, gift Klaus Holm, arkitekt, og eiga þau tvo syni, Stefán, f. 1975, og Jóhannes, f. 1978. Ingibjörg stund- aði nám við Kvennaskólann á Blönduósi 1926- 1927, Laugaskóla í Þingeyjarsýslu 1929-1931 og lauk ljósmæðra- prófi frá Ljósmæðraskóla ís- lands 30.9. 1935. Hún var ljós- móðir í Austur-Húnavatns- sýslu frá 1935-1968, starfaði á heilsuhæli NLFÍ í Hvera- gerði 1969-1976 og vann síðan í fimm ár hjá Aklæðum og gluggatjöldum í Reykjavík. Frá árinu 1992 dvaldist hún á Laugaskjóli og síðar á hjúkrunarheimilinu Eir, þar sem hún lést 11. apríl sl. Útför Ingibjargar fer fram frá Blönduóskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. vænt um, en þessa síðustu daga sem hún lifði hugsaði ég oft þegar ég sat yfir henni að dauðinn væri ekki alitaf verstur og fyrir ömmu var hann lausn. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Guð geymi þig, amma mín. Carola. Það verður enginn héraðsbrest- ur, þótt gömul og sjúk ljósmóðir hverfi yfir í eilífðina, en það bresta margir strengir er bundu hana vin- áttuböndum við sængurkonur þær, er hún hjúkraði og bömin, sem hún hjálpaði í heiminn og hugsaði um fyrstu daga lífs þeirra. Ingibjörg Stefánsdóttir ljósmóðir eða Ingi- björg ljósa eins og við kölluðum hana oft er látin tæplega níræð. Með henni er gengin góð og merk kona. Ingibjörg er komin af traustum og góðum húnvetnskum og skag- firskum ættum. Móðir hennar, El- ísabet, var systir Sigurðar Guð- mundssonar, skólameistara. Ingi- björg aflaði sér góðrar menntunar á þeirra tíma mælikvarða. Var einn vetur á kvennaskólanum á Blöndu- ósi og tvo vetur á Laugaskóla í Þingeyjarsýslu. Síðar fór hún í ljós- mæðraskólann og útskrifaðist sem ljósmóðir haustið 1935. Þá voru mörg og smá ljós- mæðraumdæmi í landinu og var hún ráðin ljósmóðir í Bólstaðar- hlíðarumdæmi um leið og hún kom heim 1. október 1935. Þar kynnt- ist hún misjöfnum kjörum og að- stæðum sængurkvenna því allar fæddu þær börn sín heima. En það voru umbrotatímar í þjóðfélaginu. Samgöngur bötnuðu og þá gat sama ljósmóðirin sinnt stærra svæði og svo fór, að hún þjónaði öllu innhéraðinu og tók þannig á móti flestum Austur-Húnvetning- um er litu dagsins ljós fram á árið 1968 er hún flutti suður. Þegar nýr og fullkominn spítali leysti gamla sjúkraskýlið af hólmi í janúar 1955 vann Ingibjörg að því öllum árum, að allar konur kæmu á spítalann og ættu þar börn sín. Hún þekkti vel aðstæð- urnar og líka hvar hættan gat leynst. Og það tók mjög stuttan tíma að fá konur til þess að breyta til og nýta sér þessa þjónustu. Ingibjörg var gift Þorsteini Jóns- syni frá Eyvindarstöðum í Blöndu- dal. Þau bjuggu fyrstu árin hjá foreldrum hennar að Gili í Svart- árdal, en brugðu búi og fluttu í stríðslokin til Blönduóss. Þorsteinn gerðist þá sýsluskrifari hjá sýslu- manni Húnvetninga. Hann var sér- staklega söngnæmur og söngmað- ur mikill, gleðimaður og kappsam- ur. Hjónaband þeirra var einstak- lega ástúðlegt og var oft sagt að þau væru ávallt eins og nýtrúlofað par. Þorsteinn var mér og bömum mínum sérstaklega ljúfur og góður og á eg mjög góðar minningar um þennan mæta mann. Blessuð sé minning hans. Eg kynntist Ingibjörgu stuttu eftir að eg kom hingað og hún varð vinkona mín, vinur sem ávallt reyndist sannur vinur, ef eitthvað amaði að, sem alla hendir af og til á lífsleiðinni, en ekki bara íhlaupa- vinkona, sem tiltæk var þegar allt lék í lyndi. Virðing mín á Ingi- björgu óx eftir því sem eg þekkti hana betur og þá um leið vinátta okkar, sem hélst þar til sjúkdómur hennar hindraði það, að við hitt- umst. Hún var traustur og góður vinur og holl mér hennar ráð. Einu sinni var ákveðið að við hjónin færum í stutt sumarfrí, en til þess að það gæti orðið þurfti að fá góða konu til þess að hugsa um yngsta barn- ið tæpra fimm mánaða gamalt. Eg leitaði til Ingibjargar ljósu, sem strax var boðin og búin að annast um drenginn í um vikutíma. Þegar heim kom hafði eg orð á, að þetta væri nú meiri fyrirhöfnin mín vegna. Þá sögðu bæði hjónin, að það hefði ekki verið, drengurinn verið ljúfur og góður og alltaf bros- að út að eyrum, þegar þau litu til hans. Rúmum fjörutíu árum seinna get eg rifjað þetta upp og sendi í hljóðri bæn þökk fyrir þetta og margt vel gert fyrir fjölskyldu mína. Áin hnígur í haf, svo hverfum vér allir í eilífðar skaut. Eftir sigraða þraut, þegar brotin er braut, þeim sem beijast til sigurs á komandi degi. (Sr. Gunnar Ámason.) Eg og fjölskylda mín sendum niðjum og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur. Þórhildur ísberg. INGIBJORG STEFÁNSDÓTTIR BIRKIR HUGINSSON + Birkir Huginsson fæddist í Vestmannaeyjum 12. mai's 1964. Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 7. apríl síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum 19. apríl. Birkir er farinn, margra ára bar- áttu við erfiðan sjúkdóm er lokið. Hjá okkur, sem erum enn hérna megin landamæranna, ríkir söknuð- ur en jafnframt þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum og njóta samvista við hann þann tíma er hann dvaldi hér. Við sendum litlu dóttur hans, Elísu, foreldrum, systkinum og fjölskyldu sem studdu hann með ást og kærleika í hans erfiðu veikindum, innilegustu sam- úðarkveðjur. Góður guð blessi ykk- ur. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning góðs drengs Kristín Ósk, Friðbjörn og fjölskylda. + Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir, amma, langamma, langalangamma og langalanga- langamma, SÓLBORG SIGURÐARDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, miðvikudaginn 23. apríl. Sigurður Hallgrímsson, Svandfs Salómonsdóttir, Pétur Hallgrímsson, Gunnar Hallgrímsson, Una Hallgrímsdóttir, Þórir Sigurjónsson, Hrönn Jóhannesdóttir, Baldur Sigurbjörnsson, Steinunn Magúsdóttir, Haukur Jónsson, Jón Geir E. Sigurðsson, Una Árnadóttir og barnabörn. + Elskulegi maðurinn minn, faðir, sonur, bróðir og tengdasonur, BJARNI ÞÓR ÞÓRHALLSSON, Laugavegi 40, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. maí kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Barnaspítala Hringsins. Sigurbjörg Benediktsdóttir, Þórhallur Borgþórsson, Diljá Þórhallsdóttir, Borgþór Rafn Þórhallsson, Benedikt Steindórsson, og aðstandendur. Þórhallur Breki Bjarnason, Gróa R. Bjarnadóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Þórey Eyjólfsdóttir + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og vinur, HÁKON HAFLIÐASON, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 23. apríl. Birta Hákonardóttir, Trausti Valsson, Magnús Ó. Hákonarson, Jórunn E. Þórðardóttir, Gíslína Hákonardóttir, Ólafur Þór Erlendsson, Guðfinna Hákonardóttir, Sigurður H. Ólafsson, barnabörn, Ásta Kristný Guðlaugsdóttir. *- + Okkar hjartkæra KATRÍN s. arnar, Kópavogsbraut 1a, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlfð föstu- daginn 25. apríl. Stefán Þórhallsson, Katrín Stefánsdóttir, Þóra Stefánsdóttir, Stefán Snorri Stefánsson, Unnur og Olga Stefánsdætur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÞÓRÐUR M. KRISTENSEN, Bogahlíð 22, sem lést 19. apríl, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju, mánudaginn 28. apríl kl. 13.30. Kristín Eiríksdóttir, Kristján Þórðarson, Ásdfs Þórðardóttir, Ellert Karlsson, Anna Marfa Þórðardóttir, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.