Morgunblaðið

Date
  • previous monthApril 1997next month
    MoTuWeThFrSaSu
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    2829301234
    567891011

Morgunblaðið - 26.04.1997, Page 50

Morgunblaðið - 26.04.1997, Page 50
50 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Tommi og Jenni Smáfólk o & c UJHAT P ^ YOU PO THAT F0R7/J /i pidn’t N MEANTO.. IT U)A5 A ID06 THIN6. (D ð © jr I' Af hverju gerð- Eg ætlaði ekki að irðu þetta?! gera það ... þetta var hundslegt... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 I fótspor víkinganna! Frá Óskari Eggerti Óskarssyni: ÚT VIL ek, sagði einhver einhvern tíma. Margir hafa sennilega sagt það á undan honum, enn fleiri á eftir honum - og nú er það klisja! íslendingar hafa lengi þjáðst af þeim kvilla að vilja vera að þvælast út um allan heim. Á þeim öldum sem við helst viljum kenna okkur við voru þeir lítil karlmenni sem ekki höfðu farið í víking og verið þar nokkur ár, drepið slatta og rænt hinu og þessu. Helst þurfti svo að fá einhvern til að setja saman drápu um öll afrekin, svo þau féllu ekki í gleymsku. Það var ekki á hvers manns færi að fara í víking. Til þess þurfti hrausta menn og hugaða sem tekist gátu á við framandi heim og höfðu „manndóm“ til að höggva mann og annan. Það að fara af landi brott á okkar tímum telst vart til afreka. Ferðin er létt og umhverfið öruggt ef seðl- unum er veifað á sérhönnuðum ferðamannastöðum sem tryggja að ekkert geti valdið ferðalangnum of miklu hugarangri eða heilabrotum. Þó er hægt að sigla í kjölfar vík- inganna, upplifa nýja menningu og nýjan heim, sem setur manni nýjar kröfur og gefur manni nýja sýn á lífið. Ein leið er að fara sem skipti- nemi í sjálfboðavinnu. Hægt er að fara og dveljast í öðru landi í sex mánuði eða eitt ár og vinna sem sjálfboðaliði. Til þess þarf ekki „manndóm" til að höggva mann í herðar niður. Það þarf meira. Það þarf vilja til þess að hjálpa, leggja hönd á plóg til að reyna að rækta betra manniíf. í Mið- og Suður-Ameríku er oft unnið með götubörnum eða_ að nátt- úruvernd (í þjóðgörðum). í Evrópu er oft unnið með t.d fyrrum eitur- lyfjaneytendum eða inni á elliheim- ilum og barnaheimilum. í Asíu og Afríku er m.a. unnið með fötluðum, þroskaheftum, við enskukennslu barna o.fl., o.fl. Störfm geta verið fjölbreytt og misjöfn og ekki óal- gengt að maður vinni á 2-3 stöðum yfir árið. Allt eru þetta störf sem hér hjá okkur falla undir félagslega þjónustu og ríki og sveitarfélög annast. Úti í hinum stóra heimi er því ekki alls staðar að heilsa að „hið opinbera“ annist þá sem minna mega sín. Þar þurfa því að koma til utanaðkom- andi aðilar, t.a.m. fijáls félagasam- tök, og þau taka fegin á móti sjálf- boðaliðum frá öðrum löndum. Skipti- nemar í sjálfboðavinnu þurfa að vera á aldrinum 18-30 ára og tilbúnir að laga sig að breyttum aðstæðum, upplifa nýtt þjóðskipulag - og vilj- ugir að læra af heimamönnum án þess að ætla að „bjarga heiminum". Og það er ótrúlegt hversu mikið maður lærir á einu ári; um önnur lönd og menningu þeirra, um sitt eigið heimaland - og síðast en ekki síst um sjálfan sig. ÓSKAR EGGERT ÓSKARSSON, fv. skiptinemi í sjálfboðavinnu í Honduras. Opið bréf til Sálfræð- ingafélags Islands Frá Hirti Guðmundssyni: í FORSJÁRDEILUM er bitbeinið milli foreldra barnið. Ef foreldrar geta ekki verið á eitt sáttir um for- sjá og umgengni við barnið, kemur til kasta úrskurðar dómsaðila. Oft og tíðum má sjá mjög einkennilega úrskurði varðandi umgengnisrétt og efast maður um að hagur barnsins sé hafður í huga. Mig langar að biðja stjórn félags sálfræðinga að hlutast til um að einn eða fleiri félagsmenn þeirra svari eftirfarandi spurningum á síðum blaðsins. 1. Hvað mælir gegn því að barn dvelji hjá föður sínum að næturlagi fram að tveggja ára aldri, eftir að bijóstagjöf lýkur? 2. Er æskilegt að barn hafi sem mest samneyti við föður sinn og móður eftir skilnað? 3. Er hættara við að tilfinninga- tengsl við forsjárlausa foreldrið rofni ef samverustundir eru fáar og stutt- ar? 4. Hvað getur talist eðlilegur umgengnisréttur við forsjárlausa foreldrið, út frá hagsmunum barns- ins? 5. Hversu mikilvægt er það barn- inu að það kynnist/tengist fjölskyldu forsjárlausa foreldrisins? 6. Er bijóstagjöf mælikvarði um tiifinningatengsl milli móður og barns? 7. Getur faðir ekki myndað jafn góð tilfinningatengsl við barn sitt og móðir, þótt hann geti ekki haft það á brjósti? 8. Er ekki eðlilegra að sálfræð- ingar úrskurði um umgengnisrétt foreldris við barn frekar en skrif- stofumaður sem enga menntun hef- ur í uppeldismálum? 9. Eru mannréttindi ekki brotin á barni með því að hindra samvistir þess við annað foreldrið? 10. í forsjárdeilu tekur allt mjög langan tíma, kerfið er frekar þungla- malegt og á meðan getur annað for- eldrið haldið barninu frá hinu. Er ekki æskilegt að stytta þennan tíma með hag barnsins í huga? 11. Hafið þið skýringu á því af hveiju félagsmenn ykkar skrifa ekki meira opinberlega um jafn mikilvæg málefni og forsjármál? Slík málefni geta varla verið einkamál, heilu fjöl- skyldurnar og samfélagið er undir- lagt á einn eða annan hátt, allur fróðleikur og umræða á opinberum vettvangi hlýtur að vera af hinu góða. Eg geng út frá að foreldrar séu jafn hæfir til að fara með forsjá barnsins og vonast eftir svörum með það í huga. Mér er ljóst að öðru máli gegnir þegar sannað er að ann- að foreldrið er einhverra hluta vegna óhæft eða ekki treystandi fyrir barni sínu. Með von um jákvæðar undir- tektir og skjót svör. HJÖRTUR GUÐMUNDSSON, Vitastíg 16, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.1S / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.

x

Morgunblaðið

Saqqummersitap suussusaa:
Katersaatit:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Oqaatsit:
Ukioqatigiiaat:
111
Assigiiaat ilaat:
55740
Aviisini allaaserineqarsimasut nalunaarsornikut:
3
Saqqummersinneqarpoq:
1913-Massakkut
Iserfigineqarsinnaavoq piffissaq una tikillugu:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Saqqummerfia:
Redaktør:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-Massakkut)
Haraldur Johannessen (2009-Massakkut)
Saqqummersitsisoq:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-Massakkut)
Oqaaseq paasinnissutissaq:
Allaaserineqarnera:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Sponsori:
Ilassut:

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 93. tölublað (26.04.1997)
https://timarit.is/issue/129451

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

93. tölublað (26.04.1997)

Actions: