Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 136. TBL. 85. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ný aðferð við grein- ingu alzheimers London. Reuter. JAPANSKIR vísindamenn greindu frá þvi í dag að þeir hefðu fundið aðferð til að nota heilasneiðmyndir til þess að greina alzheimers-sjúkdóm í lif- andi sjúklingum. Nú er einungis hægt að greina þennan banvæna og ólæknanlega sjúkdóm með heilakrufningu, sem venjulega er gerð þegar sjúklingur er lát- inn. Dr. Toshiaki Irie og sam- starfsfólk hans við japönsku Geislafræðistofnunina í Chiba, skammt frá Tókýó, segjast hafa fundið leið til þess að nota geislavirk efni sem geta gefið nákvæma heilasneiðmynd. í grein í læknisfræðiritinu Lancet segir Irie að stuðst hafi verið við rannsóknir sem sýnt hefðu að alzheimers-sjúklingar hefðu minnkaða virkni ensíms sem brýtur niður virkni tauga- boðefnisins asetýlkólíns. Tauga- boðefni bera merki milli fruma, og asetýlkólín er talið tengjast hugarstarfsemi á borð við nám, minni og dómgreind, sem öll skaðast af alzheimers-sjúk- dómnum. Við rannsókn Iries og sam- starfsfólks hans voru fimm alzheimers-sjúklingar sprautað- ir með geislavirku en hættu- lausu efni sem binst þessu ens- ími í heilanum. Atta heilbrigðir einstaklingar voru einnig sprautaðir með sama efni. Síðan voru teknar sneiðmyndir (PET) af heilanum til þess að komast að því hvert ensímin fóru. Talið er að þessi nýja aðferð geti ekki einungis nýst við greiningu á alzheimers-sjúk- dómi í fólki heldur geti einnig komið rannsakendum vel við að öðlast lífefnafræðilegan skilning á orsökum sjúkdómsins. Munu „ryðja nýjar brautir“ BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, veifar til viðstaddra við kom- una til Denver, Colorado, í Banda- ríkjunum, þar sem fundur leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims (G7), ásamt Borís Jeltsín, Rússlandsforseta, fer fram nú um helgina. Clinton sagði að leiðtogarnir myndu „ryðja nýjar brautir" til framtíðar, með því að vinna að bættum efnahag í heimin- um og útbreiðslu lýðræðis. Gerði Clinton grein fyrir víðfeðmri dag- skrá fundarins, frá baráttunni við alþjóðlega glæpastarfsemi til við- bragða við smitsjúkdómum. Hague kjörinn leiðtogi breska Ihaldsflokksins Yngsti leiðtogi í tæplega 200 ár London. Reuter. _ WILLIAM Hague var í gær kjörinn leiðtogi breska Ihaldsflokksins, er hann sigraði keppinaut sinn, Kenneth Clarke, með 92 atkvæðum gegn 70, í þriðju umferð leiðtogakjörsins og segja fréttaskýrendur þetta mikinn mun sem hafi komið á óvart. Hague er 36 ára og verður yngsti leiðtogi flokksins í nærri 200 ár. Hinn nýi leiðtogi var kampakátur eftir að til- kynnt var um úrslitin í leiðtogakjörinu síðdegis í gær. Sagði hann frétta- mönnum að sitt fyrsta verk yrði að sameina flokkinn, en leiðtogakjörið hefði skerpt deilur innan hans vegna Evrópumála. Hague tekur við af John Major, sem tilkynnti þá ákvörðun sína að hætta sem leiðtogi einungis nokkrum klukkustundum eftir að ljóst varð að íhaldsflokkurinn hafði beðið mikinn ósigur í þingkosningun- um 1. maí sl., og Verkamannaflokk- urinn, undir forystu Tonys Blairs unnið afgerandi sigur. „Eg lít svo á, að hlutverk mitt felist ekki eingöngu í því að leiða fiokkinn, heldur einnig í því að bera klæði á vopnin," sagði Hague. Til að undirstrika þessa ákvörðun sína sagði Hague að hann myndi bjóða Clarke ábyrgðarstöðu í skuggaráðuneyti sínu, en „skugga- ráðuneyti“ stjómarandstöðunnar fylgjast með verkum ráðuneyta stjórnarinnar. En Hague sagði að Clarke, sem er forsprakki Evrópu- sinnaðs vinstri arms flokksins og hefur lagt ríka áherslu á að útiloka ekki möguleikann á að Bretar taki þátt í myntbandalagi Evrópusam- bandsins, yrði að brjóta odd af oflæti sínu og sætta sig við þá skoðun Hagues að Bretar muni aldrei hætta notkun sterlingspundsins. Clarke sagði að hann hefði ekki áhuga á að taka sæti í skuggaráðuneyti Hagues. Þingmenn íhaldsflokksins sögðu í gær að sigur Hagues mætti ekki síst rekja til þess, að bandalag, sem Clar- ke myndaði með Evrópuandstæð- ingnum John Redwood, eftir aðra umferð leiðtogakjörsins á þriðjudag, hafi komið í bakið á þeim. Haft var eftir sh' Teddy Taylor, stuðningsmanni Hagues: „Lafði Thatcher lagði sitt lóð á yogarskálina á hárréttu augnabliki." Átti hann þar við að Mai'garet Thatcher, fyrrver- andi forsætisráðherra, lýsti yfir stuðningi við Hague á þriðjudag. Reuter ■ Hugsjónamaður/21 Atvinna og hagvöxtur efst á blaði í stefnuræðu forsætisráðherra Frakka Jospin hyggur á 4% hækkun lágmarkslauna París. Morgunblaðið. ATVINNA og hagvöxtur verða efst á blaði rQdsstjórnar Lionels Jospins, sem flutti stefnuræðu sína á franska þinginu í gær og gerði hvorki hlé á máli sínu þegar hægrimenn gerðu að honum hróp né þegar þingmenn af vinstri væng fögnuðu. Fjöldi þeirra síðasttöldu baulaði af óánægju er Jospin sagði að lágmarkslaun, sem eru 6.406 frankar á mánuði, jafnvirði 77 þúsund króna, myndu hækka um 4%. Höfðu kommúnistar og græn- ingjar, sem aðild eiga að stjórninni, viljað helmingi meiri hækkun. Jospin hét þvf, að vinnuvikan yrði smám saman stytt úr 39 í 35 stundir og hlutastörfum fjölgað. Philippe Seguin, leiðtogi hægriflokkanna á þingi, sagði stefnu Jospins gamal- kunnar vinstrilummur, sem sagan sýndi ítrekað að væru misheppnað- ar. Fjármálafræðingar sögðu forsæt- isráðherrann hafa skuldbundið stjórnina til fjölda kostnaðarsamra ráðstafana. Vart hafði hann flutt ræðuna er verðhrun varð á frönsk- um hlutabréfamarkaði. Þingflokksformaður sósíalista þurfti að bíða í pontu eftir að hefja ræðu sína næst á eftir Jospin vegna hávaða í þingheimi, sem ræddi yfir- lýsingar Jospins á leið sinni úr saln- um. Margir sneru aftur til sæta sinna stuttu seinna þegar Seguin tal- aði. Hann gagnrýndi harðast aðgerð- ir Jospins í Evrópumálum síðustu daga, þótti lítið til um niðurstöður leiðtogafundar í Amsterdam og sagði líklegt að í Evrópusamruna myndi Jospin ekki njóta stuðnings komm- únista og smáflokka lengst til vinstri. Strax í næstu ræðu sagði formaður þingflokks kommúnista að ströng skilyrði myntbandalagsins væru hættuleg þeirri mannlegu stefnu sem flokkur hans aðhyllist. Jospin sagði virðingu íyrir náung- anum og reglum landsins burðarstoð lýðræðisins ásamt jafnrétti kvenna og karla sem festa ætti í stjómarskrá og jafnrétti fátækra og efnaðri til menntunar, lækninga og félagslegs og persónulegs öryggis. Sérstaklega þyifti að auka öi'yggi aldraðra og ungs fólks. Ráðherrann tók upp slag- orð forsetans og hægri flokkanna um nútímalegra Frakkland og hvatti til hugarfarsbreytingar: Frakkland væri land síns fólks og stofnanir rík- isins í þágu almennings, sem nú þurfi að taka þátt í mótun örlaganna. Ungt fólk komist innan tíðar sjálfkrafa á kjörskrá, það muni hafa betri mögu- leika á góðri menntun og síðan starfi. Kynslóðin sem kennd hefur verið við vonleysi geti átt bjarta framtíð. Reuter LIONEL Jospin heldur stefnu- ræðu sína á franska þinginu. Sátt um endurmat gjaldeyris- birgða Bonn. Reuter HANS Tietmeyer, bankastjóri þýska seðlabankans, og Theo Waigel, fjár- málaráðherra Þýskalands, sögðust á fimmtudag hafa komist að sam- komulagi um endurmat á erlendum gjaldeyri bankans. Talið er víst að forsvarsmenn bank- ans hafi samþykkt að endurmeta doll- ara í eigu bankans á 1,50-1,55 mörk sem er undir markaðsverði. Endur- matið verður framkvæmt innan þess svigrúms sem gefið er í Maastricht samkomulaginu og að öllum líkindum samkvæmt lögum og reglugerðum sem þegar eru í gildi. í yfirlýsingunni var ekki minnst á endurmat á gullbirgðum bankans. Gull- og gjaldeyrisbirgðir þýska seðlabankans eru metnar langt undir mai'kaðsverði og ríkisstjórnin vill að endurmat fari fram svo að hún geti notað umframfjármuni bankans til að mæta skilyrðum evrópska mynt- bandalagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.