Morgunblaðið - 20.06.1997, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.06.1997, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsókn forseta- hjónanna í Dalasýslu FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir heimsækja Dala- sýslu í dag og á morgun. Fæðingarstaður Leifs heppa Ei- ríkssonar, Eiríksstaðir í Haukadal, verða heimsóttir fyrri daginn. Verður þar fjallað um hvemig fæðingarstaður þessa merka land- könnuðar geti öðlast aðdráttarafl fyrir gesti víða úr veröldinni en árið 2000 verða 1000 ár liðin frá landafundi Leifs í Vesturálfu, seg- ir í fréttatilkynningu. Formaður Eiríksstaðanefndar, Friðjón Þórð- arson, mun kynna starf nefndar- innar og hugmyndir. Á föstudag verða heimsótt ýmis atvinnufyrirtæki og kynntar nýj- ungar í ostagerð, mjólkurafurðum, kjötvinnslu og í framleiðslu á heilsuvörum. Dvalarheimili aldraðra og Stjórnsýsluhúsið í Búðardal eru einnig á dagskrá fyrri daginn og um kvöldið verður hátíðarsam- koma í félagsheimilinu Dalabúð. Laugardaginn 21. júní verða merkir sögustaðir í sýslunni heim- sóttir og einnig byggðasafnið að Laugum. Farið verður að Staðar- felli, meðferðarheimili SÁÁ. Þar verður starfsemi SÁÁ kynnt sér- staklega og rætt við starfsmenn og heimilisfólk. Opið hús fyrir al- menning verður í félagsheimilinu Tjarnarlundi í Saurbæ. Þar munu einnig ýmis fyrirtæki kynna starf- semi sína. Helgistund í kirkjunni á Skarði, heimsókn í Ólafsdal, skoðun hafnarframkvæmda og fram- kvæmda við Gilsfjarðarbrú, heim- sókn til grásleppukarla í Skarðsstöð eru einnig á dagskrá laugardagsins. ISLENSK GARÐYRKJA Neytendaþjónusta Sjóvá-Almennra Gefur út hand- bók um vá- tryggingar TÆPLEGA 60 þús- und viðskiptavinir tryggingafélagsins Sjóvá-Almennra eru þessa dagana að fá inn um bréf- alúguna handbók um vá- tryggingar fyrir einstakl- inga og heimili. Handbókin er þáttur í starfi Neytenda- þjónustu félagsins, sem sett var á laggimar fyrir tveimur árum. Bruno Hjaltested er forstöðumað- ur Neytendaþjónustunnar. - Hvað er Neytenda- þjónusta Sjóvá-Almennra? „Neytendaþjónustunni er ætlað að virka sem hlut- iaus aðili og leysa ágrein- ing um tjónsbætur og sinna öðrum samskiptum félags- ins og viðskiptavina þess. Hún á að tryggja að mál viðskiptavina sem telja sig órétti beitta fái greiða og eðlilega meðferð. Tekið er við kvörtunum og ábendingum af öllu tagi og kannað hvort afgreiðsla viðkom- andi erinda hjá Sjóvá-Almennum standist faglegt mat eða almenn- ar kröfur um gæði og þjónustu. Kvartanir geta verið af öllu tagi, allt frá óánægju með framkomu starfsfólks til mótmæla vegna uppgjörs tjóns. Neytendaþjón- ustan fjallar þó ekki um mat á sakarskiptingu vegna ökutækja- tjóns og grípur ekki inn í mál fyrr en niðurstaða félagsins ligg- ur fyrir.“ - Hver er reynslan af starf- seminni? „Reynslan af starfi Neytenda- þjónustunnar sýnir glögglega að brýn þörf var fyrir starfsemi af þessu tagi. Hliðstæð þjónusta vátryggingafélaga er þekkt er- lendis, en hér eru Sjóvá-Almenn- ar brautryðjandi á þessu sviði. Meira er um að fólk leiti eftir upplýsingum af ýmsu tagi en búist var við og þannig er oft hægt að leiðrétta margs konar misskilning. Minna er hins vegar um að fólk hafi samband vegna óánægju með tilteknar ákvarðanir félagsins eða uppgjör tjóns. Tölur erlendis frá benda til að breytt niðurstaða fáist í 15-20% ágreiningsmála eftir að neytendaþjónusta vátrygginga- félags tekur þau til athugunar. Það má meðal annars rekja til þess að við endurskoðun koma oft fram ný atriði sem geta breytt niðurstöðum, alveg eins og í dómskerfinu.“ - Leysast öll mál sem koma á borð Neytendaþjónustunnar? „Því miður er það _________ ekki svo einfalt, en langflest mál leysast þó. Ef Neytendaþjón- usta Sjóvá-Almennra __________ telur viðbrögð félags- ins óaðfinnanleg eða ef við- skiptavini þykja tillögur okkar um úrbætur ófullnægjandi bend- um við viðskiptavininum á hvaða leiðir séu færar fyrir hann til að leita réttar síns og aðstoðum hann jafnvel við málskot, sé þess óskað.“ - Hvaða upplýsingar er að finna í handbókinni um vátrygg- ingar? „Utgáfa handbókarinnar er þáttur í starfi Neytendaþjónustu Bruno Hjaltested ► Bruno Hjaltested er fædd- ur í Reykjavík árið 1933 og lauk stúdentsprófi frá Versl- unarskóla íslands árið 1954. Hann starfaði í 30 ár hjá Sam- vinnutryggingum og gegndi þar stöðu aðstoðarfram- kvæmdasljóra frá 1974 til 1987. Hann hóf störf hjá Sjóvá-Almennum árið 1988 og er nú forstöðumaður Neyt- endaþjónustu félagsins. Bruno er ekkill og á einn son. Kappsmál að viðskiptavinir þekki rétt sinn félagsins og er hún okkur vitan- lega sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Hún gefur fólki tækifæri til að fá heildarsýn yfir vátryggingar sínar og leysir því úr brýnni þörf. í henni er til dæmis einfalt krossapróf sem fólk getur fyllt út og öðlast þann- ig vitneskju annars vegar um hvaða vátryggingar bjóðast og hins vegar hvort einhversstaðar séu veikir hlekkir í þeirri vá- tryggingavernd sem það hefur keypt sér. Jafnframt er vísað á hvar nánari upplýsingar sé að fínna um álitaefni. Af öðru efni má nefna helstu upplýsingar um vátryggingar fjölskyldunnar, ráðleggingar um forvarnir og ítarlegt yfirlit um meðferð ágreiningsmála, svo eitthvað sé nefnt.“ - Hvert er markmiðið með útgáfu handbókarinnar? „Það er fyrst og fremst kapps- mál okkar hjá Sjóvá-Almennum, eins og reyndar allra íslensku vátryggingafélaganna, að fólk sé meðvitað um hvernig það er vátryggt og þekki réttindi sín og skyldur eins vel og auðið er. Að baki liggur mikil vinna, því það er ekki einfalt að ná utan um jafn víðfeðmt mál á um það bil 30 blaðsíð- um. Lögð var áhersla á að skrifa ekki á „vátrygginga- máli“, heldur setja efnið fram á skýran og aðgengilegan hátt fyrir alla. Handbókin verður send nú í vikunni til allra við- skiptavina Sjóvá-Almennra sem eru með vátryggingar í einka- geiranum og fer því inn á stóran hluta heimila í landinu. Nýir við- skiptavinir munu fá handbókina afhenta, en hún getur einnig gagnast fleirum en þeim sem skipta við Sjóvá-Almennar.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.