Morgunblaðið - 20.06.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 20.06.1997, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Sólstöðu- ganga og Jóns- messuvaka FERÐAFÉLAGIÐ Hörgur efnir nú næstu daga til tveggja ár- legra viðburða. Um er að ræða Sólstöðugöngu og Jónsmessu- vöku. Sólstöðugangan verður á Staðarhnjúk í Möðruvallafjalli laugardaginn 21. júní. Lagt verður af stað frá Möðruvöllum 3 kl. 19.00 ogeru allir velkomn- ir. Jónsmessuvakan verður í Baugaseli í Barkárdal mánu- daginn 23. júní. Upp í Baugasel fara menn gangandi, ríðandi eða á jeppum. Hittast menn við Bug í Hörgárdal kl. 21.00 og þar verður sameinast í jeppa. I Baugaseli verður svo dvalið fram yfir miðnætti við spjall og leiki. Allir eru velkomnir í ferð- ina og eru þátttakendur beðnir að taka með sér nesti og góðan klæðnað. Þá fer Þorvaldsdalsskokkið fram laugardaginn 5. júlí en það er ætlað göngumönnum, skokkurum og hlaupurum. Norðanpiltar í Deiglunni N ORÐ ANPILTAR efna til fjáröflunartónleika í Deiglunni á Akureyri í kvöld kl. 22.00 vegna fyrirhugaðrar Færeyja- ferðar þeirra. Að þessu sinni verða á efnis- skrá piltanna ný lög og gömul í nýjum búningi. Meðal laga sem flutt verða ná nefna: Pjallasýn, í dögun og hið sívin- sæla lag Skáldskapur og rósir. Ný lög bera nöfn eins og Vænfríður, eftir Kristján Pét- ur, Ónytjungur Guðbrands og Hríseyjarfeijan í flutningi Jóns. Kvenfélagasam- band Islands Landsþing LANDSÞING Kvenfélagssam- band íslands, hið 31. í röð- inni, verður sett á Akureyri í dag og stendur fram á sunnu- dag. Kvenfélagasambandið eru stærstu heildarsamtök kvenna á íslandi með liðlega 20.000 konur innan sinna vé- banda. Landsþing samtakanna er haldið þriðja hvert ár og að þessu sinni er yfirskrift þings- ins; „Menntun forsenda framf- ara.“ Um 150 konur víðs veg- ar af landinu sitja þingið á Akureyri. Sumarleikhúsið Frumsýnir tvo einþátt- unga SUMARLEIKHÚSIÐ á Akur- eyri frumsýnir í kvöld tvo ein- þáttunga, eftir þá Valgarð Stefánsson og Öm Inga Gísla- son, sem jafnframt er leik- stjóri, á Renniverkstæðinu við Strandgötu. Einþáttungamir verða sýndar saman og heita „Sum- arið sem aldrei kom,“ eftir Valgarð og „Sumarferð með Sóloni," eftir Örn Inga. Sum- arleikhúsið er skipað áhuga- leikurum víðs vegar af landinu og koma þeir m.a. frá Hafnar- firði, Hólmavík, Raufarhöfn, Neskaupstað, Blönduósi, Ak- ureyri og úr Eyjafirði. Stjórnarformaður KEA um hugmyndir um samvinnu og sameiningu afurðastöðva Skynsamlegast að sameina KE A og KÞ UMRÆÐA um sameiningu eða samvinnu afurðastöðva í mjólkur- iðnaði hefur venð nokkuð hávær síðustu misseri. Á ársfundi Mjólkur- samlags Kaupfélags Eyfirðinga í vikunni kom málið til umræðu, enda flestir sammála um nauðsyn þess að leita leiða til hagræðingar í greininni. Töluvert hefur verið rætt um möguleika á samvinnu og jafnvel sameiningu Mjólkursamlaga KEA á Akureyri og KÞ á Húsavík. Aðal- fundur KÞ ályktaði um að skoðuð yrði náin samvinna KÞ og KEA á sviði afurðavinnslu en ekkert form- legt erindi þar um hefur enn borist KEA. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður KEA, sagði í sam- tali við Morgunblaðið það sýna skoðun að skynsamlegasta leiðin væri að stíga skrefið til fulls og sameina Kaupfélag Eyfirðinga og V erðlaunatillaga um heildarskipulag Naustahverfis Kaupfélag Þingeyinga. „Ég veit hins vegar ekki hvort menn hafa kjark til að taka svo stórt skref í dag. Búnaðarsamböndin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu hafa einnig skor- að á afurðastöðvarnar að vinna meira saman, með hugsanlega sam- einingu í huga. Við svöruðum bún- aðarsamböndunum og lýstum yfir vilja til viðræðna um þá hugmynd," sagði Jóhannes Geir. Full þörffyrir afurðastöðvarnar Þórarinn E. Sveinsson, mjólkur- samlagsstjóri Mjólkursamlags KEA segir nauðsynlegt að menn hætti að tala um málið á þeim nótum að leggja eigi ákveðnar afurðastöðvar niður. „Það er full þörf fyrir afurða- stöðvarnar og ég held að við getum farið að gefa aðeins í aftur. Það er ekkert víst að við náum fullvirðis- réttinum í ár og því geti menn far- ið að auka aðeins mjólkurfram- leiðsluna. Þetta er hins vegar spurn- ing um samvinnu og frekari hag- ræðingu." Þórarinn sagði skynsamlegra að menn töluðu sameiginlega um að innan fárra ára myndu framleiðend- ur á svæðinu frá Holtuvörðuheiði og austur í Þingeyjarsýslu fram- leiða um 50 milljónir lítra af mjólk. Það er um helmingur landsfram- leiðslunnar. „í dag eru allir að slást við sum- artopp og vetrarlægð í framleiðsl- unni. Með samvinnu á Norðurlandi myndu við láta aðeins eitt samlag slást við slíkt ástand og hin samlög- in fengu þá jafn mikið mjólkurmagn á hverjum degi, í samræmi við þeirra framleiðslu," sagði Þórarinn. Afkoman versnað mikið Pétur Helgason, bóndi á Hrana- stöðum í Eyjafjarðarsveit, og stjórnarmaður í Bændasamtökun- um, segir að hugmyndir um sam- vinnu og sameiningarmál hafi verið lengi til umræðu en hún sé alltaf verða háværari. „Menn verða að leita allra leiða til að hægt sé að borga framleiðendum sem hæst verð fyrir mjólkina, enda hefur af- koma þeirra versnað mikið undan- farin ár. Sameining er ekki endilega það eina sem til greina kemur í því sambandi. Ef hægt er að hagræða í vinnslunni, t.d. með því, eins og nú er rætt um, að færa hluta af ostagerðinni til Húsavíkur, er það hið besta mál.“ Nú standa yfir viðræður um nýj- an búvörusamning varðandi mjólk og hefur Pétur komið að þeirri vinnu. Hann sagði lítið af frétta af þeim málum en þó yrðu menn að átta sig á því að ekki væru miklar líkur á auknu fjármagni frá ríkinu til þessara mála. Gert ráð fyrir 6.000 manna byggð Heildarkostnað- ur við uppbygg- ingu svæðisins 30 milljarðar KANON arkitektar ehf., Reykja- vík, sigruðu í hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Naustahverfis á Akureyri sem er framtíðarbygg- ingarland bæjarins. Ráðgert er að byggingaframkvæmdir þar hefjist upp úr aldamótum og að þar rísi um 6.000 manna byggð í yfir 2.000 íbúðum, með tveimur skólahverf- um. Heildarkostnaður við upp- byggingu svæðisins er áætlaður um 30 milljarðar króna. Landkostir gefa hverfinu sérstöðu í greinargerð Kanon arkitekta með tillögunni, segir að Nausta- hverfi afmarkist af byggðinni að norðan, golfvellinum og Nausta- borgum að vestan, Kjarnaskógi að sunnan og brekkubrúninni að aust- an. Nýja hverfið verður því hlekkur á milli bæjarins og útivistarsvæð- anna í suðri. Landkostir og lega hverfisins gefa því sérstöðu og Naustahverfi verður sjálfstætt framhald núverandi byggðar. Skólar, leikvellir, kirkja og útileikhús Þau þijú atriði sem einkenna tillöguna eru eftirfarandi: Megin- leið um íbúðahverfið liggur að stór- um hluta eftir núverandi vegi, Kjamavegi óg þræðir sig í gegnum reitina. Hún er lífæð hverfisins og vaxtarbroddur. í byggðamynstri er gert ráð fyrir að norðurhlið hvers reits myndi samstæða röð rað-, par-, keðju- eða fjölbýlishúsa en að öðru leyti verði deiliskipulag innan reita fijálst og sveigjanlegt. í opnum geirum er meðal ann- ars gert ráð fyrir grunnskólum, leikskólum, hverfís- og boltavöll- um. Þar myndast annars konar bæjarrými en út með aðalgötu og er gert ráð fyrir að yfirbragð mót- ist t.d. af sléttum grasflötum, hlöðnum görðum og ýmis konar landslagsmótum við skóla- og leik- skólalóðir, leikvelli, kirkju, útileik- hús og fleira. AKUREYRI Lega Naustahverfis Golfvöllur Skipulagssvæði Naustahverfis Pollurinn Flugvöllur Útivistarsvæði/ .(bílastæði NAUSTAHVERFI Verðiaunatillagan Skipulagssvæðið Nausta borgir f lá-afa- Golfvöllur Að Hömrum útivist/ ~j tjaldsvæði íliu 11 •'] UU J Uthrtstar-J \ svæði/^r bílastæðil Kjarna-\ skóguri ^:ÞjÓhUÍ3tá rptt^íböðlf;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.