Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens í ju/hoó'. Þ<J E/zr 7 aðsvína úr ! VATNSBÓueJ j £<S EfZ EkXJ SVÍNJ E6EP. F/LL,2rONNA£> l'þYNSP 03 A1£B> JVÆK. BBtTTXÆ. f T&MNUK SB/H GBTA RtF/O p/G /TÆTLUR! Grettir Ljóska Ferdinand Smáfólk Nei, kennari, en ég get Sebradýr! Ég segi Herra, svarið er tólf... Tólf sebradýr! giskað út í bláinn ... sebradýr! BREF TTL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 Þjóðlagamessa í tilefni Jónsmessu Frá Þórhalli Heimissyni: HELGIHALD í kirkjum í hinum vest- ræna heimi er á margan hátt að taka miklum breytingum og hefur verið að því á undanfömum árum. Auðvit- að er hefðin sterk víða en stöðugt háværari kröfur eru uppi um breytt helgihald og breytt messuform, kröf- ur um að hleypa lifandi tónlist sam- tímans inn í kirkjuna. Margar kirkju- deildir hafa brugðist við þessu með því að semja upp á nýtt guðsþjón- ustuna og heimfæra þætti hennar upp á þá tónlist sem fólk þekkir úr samtíma sínum og talar beint inn í aðstæður safnaðarins á hveijum tíma. Sérstaklega hefur þessi þróun verið ör í Suður-Ameríku, Afríku og Asíu. Lítið hefur farið fyrir messum er tengjast norrænni hefð í tónlist og túlkun. Fyrir nokkrum árum samdi sænska tónskáldið og prestur- inn Per Harling messu er fékk nafn- ið „messa i viston“ á sænsku eða „þjóðlagamessa" á íslensku. Þjóð- lagamessan er byggð á samnorrænni þjóðlagahefð þar sem taktur og tónar tengjast vísnasöng eins og hann ger- ist bestur. Vísan og vísnasöngurinn er eitt aðal einkennið á norrænni al- þýðusönghefð. Um öll Norðurlönd eru sungnar vísur oft við undirleik harm- onikku eða fiðlu. Vísumar segja sög- ur af venjulegu fólki og hetjum og tónlistin á sér ævafornar rætur í dölum og skógum Svíþjóðar, Noregs og Finnlands. í þjóðlagamessunni er vísan og vísnatónlistin gerð að undir- stöðu helgihaldsins í kirkjunni. Allir hinir hefðbundnu messuliðir eru á sínum stað, en þeir hafa verið endurs- amdir að hætti vísnamenningarinnar. í stað hefðbundinnar miskunnarbæn- ar, dýrðarsöngs, undirbúnings undir altarisgönguna og annarra liða, hefur Per Harling samið nýja tónlist og nýjar vísur. Auk þessa tengjast nýir sálmar messunni, sálmar sem að sjálfsögðu byggja á vísnahefðinni. Þjóðlagamessan var sungin í fyrsta sinn hérlendis í Hafnarfjarðarkirkju í febrúar síðastliðnum í þýðingu und- irritaðs. Nú verður hún á ný flutt í kirkjunni í tilefni Jónsmessunnar, sunnudaginn 22. júní kl. 20.30. Þjóð- lagahljómsveit undir stjóm Amar Arnarsonar leikur og syngur. Allir sem áhuga hafa fyrir nýsköp- un í helgihaldi kirkjunnar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt. SR. ÞÓRHALLUR HEIMISSON, prestur við Hafnarfjarðarkirkju. Opið bréf til formanns Alþýðuflokksins Frá Albert Jensen: ÞEGAR menn ætla að koma ein- hveiju í verk verður að hugsa fyrst. Það vill gleymast hjá þér Sighvatur. Þú átt til að vera mjög duglegur og verður því að gæta þess að fara ekki fram úr sjálfum þér. Mér er kunnugt að aldraðir og öryrkjar hugsa til þess með ótta ef þú yrðir aftur heilbrigðis- ráðherra og munu setja þér stólinn fyrir dymar í kosningum. Þú hugsað- ir ekki fram í tímann. Aldraðir og öryrkjar eru afl sem stjómmálamönn- um er ekki hollt að segja stríð á hendur. Enginn, Sighvatur, er svo smár að ekki sé betra að hafa hann með sér en móti. Hafðu það í huga ágæti félagi og trúðu mér, því það máttu vita að ég vil þér vel. Vil gjarn- an leiðbeina þér, þvi eins og þú veist er mjór oft mikils vísir. Núverandi kynslóð aldraðra hefur aukið stjómmálaþroska sinn og flokkstrú vikið fyrir skynsemi. Nú er að líða sú tíð að mönnum nægi tal um svikin kosningaloforð. Þeir munu skipa sér um menn og málefni. Þú talar mikið um og hvetur af óskiljanlegri bjartsýni, miðað við að- stæður, til sameiningar jafnaðar- manna. Engin vitræn rök em lögð fram. Enda ekki von, meðan A-flokk- amir og Kvennalisti em misvísandi í stærstu málunum. Hugsaðu Sig- hvatur, það hefur sýnt sig að þú getur það, ef þú leggur þig fram. Og í þessu má!i þarftu á öllu þínu að halda. Gerðu þér grein fyrir, að þjóð- hagslega vond mál verður að slá af. Það er vitað að þjóðin stendur með Alþ.fl. í að gjald komi til hennar fyr- ir auðlindanotkun. Þar þarf Alþ.band- al. að breyta. Stjórnmálamenn komu aftan að þjóðinni í E.E.S. málinu. Hún fékk ekki að kjósa um málið. Var ekki_ talin hæf til þess. E.S.B. inganga íslands er mál sem Alþýðu- flokkurinn er með á heilanum. Það er að segja, endanlegt sjálfstæðisaf- sal. Ég þekki engan sem kysi flokk með slíka stefnu. Ég hef reyndar les- ið um einstaklinga sem halda að ís- lensk áhrif skili sér betur í alþjóðleg- um hrærigraut. Þetta mál verður Alþ.fl. að nema burt. í umhverfis- og stóriðjumálum eru A.-flokkamir öndverðir. Alþ.fl. er til í að fóma landi, láði og hreinu lofti fyrir stóriðju sem útlendingar nær ráða hvar verður. Nokkuð sem íslend- ingar munu ávallt tapa á meðan út- lendingar græða. Það er okurverð á rafmagni til íslenskra heimila og fyr- irtækja, en erlendum selt undir kostn- aðarverði. Augnablikið er krötum dýrmætara en framtíðin. A þessu máli verður að taka, Sighvatur. Á þessari stundu er Alþýðuflokk- urinn ekki á þeim nótum sem hann var stofnaður til. Hann snýr baki við alþýðunni og landinu hennar. Sig- hvatur, þegar flokkamir hafa sam- ræmt stefnuna þá er kominn grund- völlur til sameiningar jafnað- armanna. Þá verða kosningadagar þægilegri þeim sem lengi hafa þvælst á miili flokka í leit sinni að réttlæti. Sighvatur, réttu flokkinn af. Þú átt að vita að þetta gengur ekki lengur. Sömu tugguna áfram og flokkurinn jarðar sig. Jafnaðarmannaflokkur verður til. En þú ert að tefja þróunina. Það er ekki til að ergja þig, að ég tel að eina stjórnmálaaflið sem kemur til dyranna eins og það er klætt, sé kvennalistafólkið. Aðeins að vekja athygli þína á því. ALBERT JENSEN, Háaleitisbraut 129, s-5537009. Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.