Morgunblaðið - 20.06.1997, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
<ÉaeXSí*x», Æl
Vinningaskrá 7. útdráttur 19. júní 1997. Bifreiðavinningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
38998
Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaidur)
10381 32809 36018 60385
Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfald ur)
2262 17470 22830 50029 55878 74490
13548 18304 37027 53043 65181 76532
Kr. 10.0 Húsbúnaðarvinningur 00 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
528 8810 19727 28077 35561 49377 58699 74136
724 9604 19943 29178 36887 49646 59244 74766
849 9963 20562 30199 37910 50572 59958 74981
1079 10332 21141 30415 39026 52095 63240 75014
1468 11111 22963 30722 39176 53560 63955 75063
2748 11828 23510 31282 40380 54765 64872 75104
2804 11879 23788 32447 42697 54820 66465 75862
2833 12982 23964 33160 42937 56788 67057 77307
3757 13619 25243 33635 43408 56891 67314 77633
4554 13737 25958 33786 44386 57223 70685
6553 13836 25976 34048 45436 57614 71323
6725 15449 26279 35100 46468 57880 71945
7110 17833 27922 35485 47375 58407 72839
Kr. 5.0 Húsbúnaðarvinningur 10 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
122 12181 21142 29807 41298 52446 64958 73400
194 12262 21332 30004 41553 52643 65142 74249
565 12535 21493 30345 42618 53036 65694 74488
765 12756 21552 30440 42766 53237 65817 74812
918 13054 22233 30893 43376 53780 66010 75158
963 13480 22245 31455 43670 53830 66175 75167
1324 13646 22390 31457 43835 53923 66820 75275
1367 13754 22558 31778 43884 53958 67462 75387
1864 14070 23054 31988 44683 54944 67737 75631
1920 14218 23525 32183 44853 55179 67858 76212
2236 14454 23752 32387 45052 55453 67896 76350
3211 14625 23812 32398 45235 55742 67965 76700
3574 14638 23847 32662 45972 56103 68501 76746
3856 14911 23881 32950 46470 56185 68621 76865
4824 15192 24603 33154 46848 56790 68828 76875
4827 15201 24680 33447 46851 56836 68882 76948
4829 15701 24942 33672 47545 56838 69180 76967
6565 16214 25305 34629 47597 57080 69183 77054
6992 16226 25809 34760 48110 59012? 69663 77097
7836 16458 25890 35547 48627 58316 70137 77669
7888 17157 26617 36177 48799 59396 70235 78586
7938 17310 26646 37073 49116 59600 70620 78620
8353 17459 27077 37531 49367 60021 70719 78643
8420 17466 27632 38309 49719 60301 70974 78719
8806 17951 27887 38474 49946 60421 71063 78783
9940 17965 28184 38715 49999 60719 71321 79642
10387 18270 28225 38743 50496 61268 71735
10904 18980 28364 39075 50998 61420 71876
10916 19368 28522 39630 51348 62435 72319
11147 19818 28701 39835 51413 62652 72780
11371 19824 29580 40799 51734 63625 72985
11514 20659 29610 41211 51774 63654 73321
Næsti útdráttur fer fram 26. júní 1997 Heimasíða á Intemeti: Http://www.itn.is/das/
- kjarni málsins!
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Fríhafnarpoki
tekinn í
misgripum
18. maí
ÞANN 18. maí fórum til
til útlanda. í flugstöðinni
settumst við við hliðina á
fjölskyldu sem var að fara
til Venezúela. Af misgán-
ingi tókum við fríhafnar-
poka sem þessi fjölskylda
átti. Það sem ég veit um
þessa fjölskyldu er að þetta
voru hjón með 15 ára dótt-
ur og 19 ára son. Við vilj-
um endilega ná sambandi
við þetta fólk svo hægt sé
að skila því sem þau eiga.
Uppl. hjá Katrínu í síma
555-4435 eða 896-3503.
Klám í
sjónvarpsvísi
ÉG ER í hópi þeirra sem
versla ekki við þá sem selja
klám. Ég fæ sjónvarpsvís-
inn sendan heim til mín
eins og aðrir landsmenn. í
sjónvarpsvísinum eru aug-
lýsingar um símastefnu-
mót o.s.frv. og myndir af
beru kvenfólki_ og kalla ég
þetta klám. Ég er mjög
reið yfir því að fá svona
sent heim til mín. Hvers
vegna er fólk ekki spurt
að því hvort það vilji fá
svona póst heim til sín?
Getur einhver réttlætt það
að þetta sé gert? Svo vil
ég hvetja fólk til að hafna
svona sendingum. Mér
fínnst þetta bölvaður dóna-
skapur að fólk skuli leyfa
sér að senda manni þetta.
Húsmóðir.
Sammála
Víkverja
ÉG ER sammála því sem
birtist í Víkveija 17. júní
um símasölu. Þessi sölu-
mennska er fyrir neðan
allar hellur og verður að
gera eitthvað í þessu. Þetta
er mikið ónæði á eldra fólki
og fólk hefur oft ekki bein
í nefínu til að neita þessu.
Þetta gengur alltof langt.
Kona.
Enska sem
fyrsta tungumál
MIG langar til að mótmæla
grein sem birtist í „Bréfi
til blaðsins" í Morg-
unblaðinu 17. júní. Þar er
íjallað um það að danskan
eigi að vera fyrsta tungu-
mál en ekki enskan. Það
er út í hött að danska verði
fyrsta tungumálið. Islend-
ingar tala einna verst
ensku af öllum _ norður-
landaþjóðunum. Á hinum
Norðurlöndunum er ensk-
an fyrsta tungumál og eru
norðurlandabúar mun bet-
ur talandi á ensku en ís-
lendingar. íslensk börn
þurfa að líða fyrir það í
framtíðinni ef enskan er
ekki höfð sem fyrsta
tungumál því enskan er
meira alþjóðlegt tungumál.
Það virðist sem hér riki
einhvers konar nýlendu-
dýrkun á öllu sem danskt
er.
Lesandi.
Eyðilegging
sköpunarverks
VELVAKANDI fékk eftir-
farandi sent vegna greinar
um Pál Reynisson sem
birtist í Morgunbiaðinu
þann 8. júní sl.:
„Sá sem viljandi eyði-
leggur sköpunarverk ann-
ars manns er sagður hald-
inn skemmdarfýsn. Sá sem
viljandi eyðileggur sköp-
unarverk guðs er kallaður
sportveiðimaður." (Joseph
Wood Krutch).
E.B.
Tapað/fundið
Bleikt rúmteppi
í óskilum
MJÖG vönduð bleik, stór
rúmábreiða, 170x230 sm,
fauk að heiman frá sér og
missti flugið hjá Hvassa-
leiti 18. Eigandi rúmtepp-
isins hringi í síma
553-0849.
Armbandið .
hennar ömmu
ARMBAND tapaðist á
þjóðhátíðardaginn, trúlega
á leiðinni niður Skólavörð-
ustíg, Bankastræti að
Lækjargötu um klukkan
20.30. Armbandið er
brennt, íslensk smíði og úr
setti sem lengi hefur verið
í eigu íjölskyldunnar og
eigandanum því dýrmætt.
Skilvís finnandi er vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 553-1677.
Hjól fannst
KVENHJÓL fannst í
Vogahverfí. Uppl. í síma
553-5901.
Jarðvegsþjappa
tapaðist
Jarðvegsþjappa, Wacker,
(hoppari) tapaðist á tippn-
um við Klettagarða. Fund-
arlaun. Þeir sem hafa orðið
varir við þjöppuna vinsam-
lega hafíð samband við
Arnór í síma 892-8689.
Dýrahald
Kettlinga
vantar heimili
TVÆR læður og einn
högni leita sér að góðu
heimili. Þeir eru orðnir 8
vikna og kassavanir. Uppl.
í síma 551-8086.
SKÁK
llmsjón Margclr
l’ctursson
STAÐAN kom upp á Sige-
man mótinu í Malmö í Sví-
þjóð. Svíinn Ralf Ákesson
(2.515) var með hvítt, en
Jan Timman (2.630), Hol-
landi, hafði svart og átti
leik. Timman hafði þegar
teflt mjög djarft og fórnað
skiptamun með eftirfarandi
framhald í huga:
28. - Rxe5!? 29. fxe5 -
Bxe5 30. Hc2? (Þegar Tim-
man lagði útí flækjumar
hefur honum líklega yfírsést
sterkur leikur: 30. Hd2! Og
það er hvítur sem stendur
betur eftir bæði Bxc3 31.
Hh8+! - Bxh8 32. Hxd8+
- Kg7 33. Hd7+ og 30. -
Hc8 31. Re2! - Hxc4 32.
Hh7!) 30. - Bxc3+ 31. Kf2
- Bd4+ 32. Kg3 r- Be5+
33. Kf2 f4 (Nú hefur Tim-
man töglin og
haldirnar og
Svíinn veitir
ekkert viðnám)
34. Hh7? - Hdl!
35. g3? (Síðasta
vonin var að
treysta á mislita
biskupa og
reyna 35. Hf7+
-Ke8 36. He2! - Bxe2 37.
Bxe2) 35. - Bd4+ og hvítur
gafst upp. Timman uppskar
sigur fyrir afar djarfa tafl-
mennsku, en þama var teflt
á tæpasta vaðið.
SVARTUR
á leik
Víkveiji skrifar...
SKRIFARI þriðjudagsins gerði
Laugardalinn í Reykjavík að
umræðuefni og sagði hann vera
gimstein í höfuðborginni. Ekki er
hægt annað en að taka undir þau
orð, en þó með einni undantekn-
ingu. Bílastæðin vestan við Laugar-
dalsvöllinn em ófrágengin og leiðin-
legur blettur á dalnum. í þurrkum
er rykmökkur yfir þeim, í rigning-
um breytast þau í forarvilpu og
meðan þau eru ekki malbikuð og
merkt nýtast þau ver en ella.
Með tijám og öðrum gróðri inni
á milli stæðanna gætu þau orðið
fallegur reitur og samboðinn Laug-
ardalnum. Stórhugur, snyrti-
mennska og framsýni hafa einkennt
framkvæmdir í dalnum og því er
með ólíkindum hve lengi hefur dreg-
ist að ganga frá þessum stæðum.
xxx
NEFND um stefnumótun í
ferðamálum í höfuðborginni
skilaði nýlega af sér og gefinn var
út bæklingur með niðurstöðum
nefndarinnar undir heitinu Stefnu-
mót 2002. Aftast í þessu riti er
orðasafn þar sem útskýrð eru ýmis
heiti sem mikið eru notuð í ferða-
þjónustu; orð sem eru starfsmönn-
um í atvinnugreininni sjálfsagt töm
og eðlileg, en geta vafist fyrir öðr-
um. Þetta er til fyrirmyndar því
alltof mikið er um að starfsgreinar
noti fagorð sem fáir þekkja eða
erlend orð án þess að reyna að út-
skýra þau eða þýða á íslensku.
xxx
VÍKVERJA barst nýlega í hend-
ur bókin „Ráð við þögninni“,
sem gefin var út í tilefni afmælis-
árs Sauðárkróks. Hefur hún að
geyma fundargerðir Ræðuklúbbs
Sauðárkróks, sem starfaði tímabilið
1894 til 1902. Á þessum tíma var
bæjarfélagið í mótun og var fjallað
um flest sem horfði staðnum til
framfara, allt frá vátryggingu naut-
gripa til þess hvernig menn ættu
að heilsast á götum úti.
Víkvetji, sem lengi hefur vitað
af mælsku og frásagnagleði Skag-
firðinga, hugsaði sér gott til glóðar-
innar, enda reyndist bókin vera hin
besta lesning.
„Oss undirrituðum hefur komið
til hugar, að það væri eitt orð í
hentugan tíma framborið, að stofna
hér á staðnum nýjan og endurbætt-
an Kjaptaklúbb.“ Þannig hefst um-
burðarbréf sem nokkrir bæjarbúar
sömdu og var lesið upp á fyrsta
fundi Ræðuklúbbsins 16. desember
1894. Kemur fram að ætlunin er
að efla félagsskap, vekja áhuga á
ýmsum málum, æfa menn við ræðu-
höld og stytta mönnum stundir í
vetrarkyrrðinni.
xxx
VARÐ það úr að mörg þjóðþrifa-
mál voru reifuð á fundum sem
voru hugleikin íslendingum um
aldamót. Voru allflestir t.d. fylgj-
andi innflutningsbanni á vín, þótt
Jóhannes Ólafsson, sýslumaður,
héldi alllanga ræðu um hina marg-
víslegu kosti vínnautnar, ef hóflega
væri brúkað.
Á sama fundi kom fram að Jón
Ólafur Stefánsson, verslunarmaður,
frá Steiná í Svartárdal vildi reisa
einhveijar skorður við þeim „ósið
að slæpast í búðum lengur en með-
an þeir væru að afgera sínar sak-
ir.“ Eftir uppástungu Valgards
Claessens, kaupmanns og síðar
landsféhirðis, var samþykkt að fela
búðarmönnum sjálfum að reyna
smátt og smátt með hógværum
ábendingum að venja menn af að
slæpast að óþörfu í sölubúðum
bæjarins.