Morgunblaðið - 02.08.1997, Page 21

Morgunblaðið - 02.08.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 21 Vantar þig vinnu fyrir fiármuni þínaZ Hlutabréfasjóður Búnadarbankans hf. er traustur og öruggur sjóður Hlutabréfasjóð Búnaðarbankans hf. vantar ábyrgt fjármagn til starfa sem fyrst. Engin reynsla er nauðsynleg. Þú hefur samband, kaupir hlutabréf í Hlutabréfasjóði Búnaðarbankans hf. og fjármagnið byrjar strax að vinna fyrir þig - með því að safna vöxtum en ekki ryki. Markviss áhættudreifing tryggir góð laun Eignastýring Hlutabréfasjóðs Búnaðarbankans hf miðar að því að traust og öryggi sé í fyrirrúmi með mark- vissri áhættudreifingu sem leiðirtil minni sveiflna í ávöxtun. Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hf átti þann l.júlí síðastliðinn hlut í 74 fyrirtækjum á Verðbréfaþingi Islands og Opna tilboðsmarkaðnum. Meðal þessara fyrirtækja voru: Þormóður Ftammi hf„ Hf. Eimskipafélag íslands, Flugleiðir hf., Haraldur Böðvarsson hf., Marel hf., SR-Mjöl hf., ÚA hf., Þróunarfélag Islands hf., Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. og Opin kerfi hf. Hlutfall hlutabréfaeignar var á sama tíma 60% og skuldabréfaeign 40%. Endurgreiðsla á tekjuskatti Með því að kaupa hlutabréf í Hlutabréfasjóði Búnaðarbankans hf. fyrir 260.000 kr verður tekjuskattsendur- greiðsla næsta árs um 64.000 kr ef um hjón eða samsköttunaraðila er að ræða Þessar prhæðir eru helm- ingi lægri þegar einstaklingur á í hlut 100% afsláttur á mun á kaup og sölugengi Gömlum og nýjum hluthöfum í Hlutabréfasjóði Búnaðarbankans hf. sem koma fjármunum sínum út á vinnu- markaðinn með kaupum á hlut í Hlutabréfasjóði Búnaðarbankans hf. býðst 100% afsláttur á mun á kaup- og sölugengi. Þetta þýðir að keypt er bréf í sjóðnum á kaupgengi, en munurinn er annars 2,5%.. Allar nánari upplýsingar um kaup og kjör veitir starfsfólk Búnaðarbankans Verðbréf og útibúa bankans. BUNAÐARBANKl N N VERÐBRÉF - byggir á trausti Austurstræti 5, 155 Reykjavík. Sími 525 6060 Bréfasími 525 6099.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.