Morgunblaðið - 02.08.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.08.1997, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Engar skýringar á niaga- kveisunni ENN er verið að leita orsaka magakveisunnar sem heijaði á erlenda ferðamenn í síðustu viku. Að sögn Ólafs Hergils Oddssonar, héraðslæknis á Norðurlandi eystra, hafa ekki komið fram nein ný tilfelli síð- ustu daga. Ekki hafa ræktast bakteríur, sem tengjast matareitrunum, úr þeim sýnum sem send hafa verið í ræktun. Þá er verið að vinna úr þeim faraldsfræðilegu gögnum sem safnast hafa um hvar ferðamennirnir keyptu matvæli. Ólafur sagðist vona að einhveijar niðurstöður lægju fyrir eftir helgi. Morgunblaðið/Árni Sæberg STARFSMAÐUR Kópavogsbæjar við sorptunnurnar, sem byijað verður að afhenda í næstu viku. Einstaka verslanir opnar á mánudag FLESTIR stórmarkaðir hafa lokað á mánudag, frídegi verslunarmanna, en einstaka verslanir þeirra verða þó opnar. Aliar bensínstöðvar á Reykjavíkursvæðinu verða lokaðar á mánudag, en opnar í dag og á sunnu- dag eins og venjulega. Morgunblaðið kannaði afgreiðslu- tíma helstu stórmarkaða og bensín- stöðva um verslunarmannahelgina og er afgreiðslutími þeirra sem hér segir: Allar 10-11 verslanirnar eru opn- ar um verslunarmannahelgina frá kl. 10 til 23. Hjá skrifstofu Hagkaups fengust þær upplýsingar að í dag verði allar verslanir þeirra opnar frá kl. 10 til 18, nema sérvöruverslun Hagkaups í Kringlunni. Flestar ef ekki allar verslanir í Kringlunni verða lokaðar í dag og alla helgina. Á sunnudag verður opið í Hagkaup í Skeifunni og Hagkaup á Akureyri frá kl. 12 til 18 en á mánudag verða allar verslanir Hagkaups lokaðar. Allar Nóatúnsverslanirnar verða opnar í dag frá kl. 10 til 18, nema Nóatún í Rofabæ, hún verður opin til kl. 21. Á sunnudag verða allar Nóatúnsverslanirnar lokaðar, það sama á við um mánudaginn nema hvað verslun Nóatúns í Rofabæ verð- ur opin frá kl. 11 til 21. Allar Bónusbúðirnar verða opnar í dag frá kl. 10 til 16, nema Bónus í Holtagörðum sem verður opin frá kl. 10 til 17. Bónusbúðimar verða allar lokaðar á sunnudag og mánudag. Kaupfélag Ámesinga á Selfossi verður opið í dag frá kl. 10 til 21 og á sunnudag frá kl. 12 til 21. Lokað verður á mánudag. KÁ í Vestmanna- eyjum verður lokað alla helgina. KEA á Akureyri hefur opið eins og venjulega í verslunum sínum í dag. KEA á Byggðaveginum verður opin á sunnudegi frá kl. 10 til 22, en allar búðir KEA á Akureyri verða lokaðar á mánudag, samkvæmt upp- lýsingum frá skrifstofu KEA. Hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Eg- ilsstöðum fengust þær upplýsingar að kjörbúðin verði opin í dag frá kl. 10 til 16, en lokuð á sunnudag og mánudag. Hins vegar verða hraðbúð og söluskáli Kaupfélagsins opnar í dag, á morgun og á mánudag frá kl. 8 til 23.30. Bensínstöðvar lokaðar mánudag í Reykjavík Hjá skrifstofum Esso, Olís og Skeljungs fengust þær upplýsingar að opið verði á öilum bensínstöðvum á laugardag og sunnudag eins og venjulega, en lokað á Reykjavíkur- svæðinu á mánudag. Sjálfsalar verða þó allir opnir. Kópavogs- búar fá sorptunnur í stað poka í REIÐHÖLLINNI í Kópavogi er verið að setja saman um fimm þúsund sorptunnur, sem Gámkó hf. mun byrja að dreifa til íbúa í næstu viku. Tunnurn- ar koma í stað plastpokanna sem notaðir hafa verið hingað til. Ein tunna verður afhent fyr- ir hvert sérbýli íbúum að kostnaðarlausu en óski einhver eftir fleiri tunnum er tekið við pöntunum hjá tæknideild Kópavogs. Þegar tunnurnar hafa verið afhentar munu starfsmenn bæjarins flytja eldri grindur og sorpskápa á endurvinnslustað Sorpu, án endurgjalds. Skal grindunum komið út fyrir lóðarmörk. Stjórnamefnd Ríkisspítala stingur uppá fjáröflunarleið Hækkun vmdlingaverðs myndi skila 900 milljónum AUKINN hlutur ríkisins í verði hvers vindlingapakka gæti aukið tekjur ríkissjóðs og segir í bréfi stjómamefndar Ríkisspítala til heil- brigðisráðherra að 50 króna viðbót- arálagning á hvem pakka af vindl- ingum, sem þýðir 18% verðhækkun, myndi skila yfir 900 milljónum króna miðað sömu sölu og í fyrra. Stjórnarnefndin stingur uppá því í bréfí til ráðherra að hann beiti sér fyrir því að álögur á tóbak verði auknar um einn milljarð króna sem rynni til sjúkrahúsanna til greiðslu sjúkrakostnaðar. í bréfinu er vakin athygli á þeim heilbrigðisvanda sem beinar og óbeinar reykingar valda sem séu áhættuþættir í ótal sjúkdómum og valdi heilbrigðis- kerfinu gífurlegum kostnaði. Nefndir á vegum Alþjóða heilbrigð- ismálastofnunarinnar og Evrópu- ráðsins hafa stungið upp á að auka álögur á tóbak til að draga úr reyk- ingum. Hafa kannanir sýnt að í kjölfar hækkunar á tóbaksverði dragi úr sölu til unglinga. Hvetur stjómamefndin ráðherra til að taka þessa hugmynd til ítarlegrar athug- unar. Af 276 kr. verði hvers pakka af Hlutfall opinberra gjalda af verði vindlingapakka í nokkrum löndum 1995 Danmörk (.___(_____ Bl 85% Bretlandjj^M .............. - 77% FrakklandCÁ J fe 75% Belaía^Ha.^ ....... .....1....................... 75% Finnland-.........................HB 74% Ítalía f r__________ — 73% Halland^^m ................ m 72% ÍSLAWD SMímLM ..... 1 72% Þvskaland SOSBtBl .... .. «72% Argentína f iðm............. 170% Sviþjóð ... I g 69% Lúxemborg ( ... I 69% Noregur K 68% KanadaMtmM....... .. . . . ..... 164% Japant&ZZ-lzá ......... 60% Sviss msmm ...........50% Bandaríkin Ll- .-r.J 30% vindlingum renna tæplega 200 töflu, allt frá 85% í Damörku niður krónur til ríkisins. Hlutur hins opin- í 30% í Bandaríkjunum. bera í einstökum löndum er misjafn í útreikningum stjórnamefndar- eins og sjá má af meðfylgjandi innar kemur fram að 50 króna hækkun myndi valda talsverðum samdrætti í sölu vindlinga en í fyrra voru seldir rúmlega 18,4 milljónir pakka. Segir að erlend reynsla sýni að 10% verðhækkun þýði 2-8% samdrátt í sölu. Sett eru fram dæmi sem sýna að miðað við 50 króna verðhækkun og 5% samdrátt í sölu yrðu viðbótartekjur um 870 milljónir króna, við 10% samdrátt yrði tekjuaukningin 824 milljónir króna og yrði samdráttur í sölu 20% fengjust um 733 milljónir. Reykingar valda 6% dauðsfalla Meðal fylgigagna sem stjórnar- nefndin sendi ráðherra voru nokkr- ar staðreyndir um tóbaksnotkun. Þar segir m.a. að reykingar valdi um þremur milljónum dauðsfalla árlega, um 6% af öllum dauðsföll- um. Tóbak sé þekktur áhættuvald- ur í 25 sjúkdómum og bent er á að rannsóknir í Bretlandi hafi sýnt að reykingamönnum á aldrinum 30-50 ára sé fimm sinnum hættara við að fá hjartaáfall en reyklausum jafnöldrum þeirra. Þá segir að reyk- ingar á meðgöngu hafi verið tengd- ar hærri tíðni fósturláta, lægri fæðingarþyngd og seinþroska. Mánaðar hesta- ferð hefst í dag Riðnir verða 1.100 kíló- metrar í DAG hefst 30 daga hesta- ■ ferð um hálendi íslands sem farin er í tilefni af 15 ára afmæli íshesta ehf. Riðið verður um þijá stærstu há- lendisvegi landsins, Arnar- vatnsheiði, Kjöl og Sprengi- sand. Þátttakendur og starfs- menn í ferðinni eru 26-28 og koma hvaðanæva. Þeir eru allir þrautreyndir hestamenn enda ekki annað hægt þar sem riðnir verða um 1.100 km. Útlendingar sóttir á hestum út á fluvöll Þátttakendur, sem aðallega eru útlendingar, verða sóttir á hestum út á Keflavíkurflug- völl síðdegis í dag. Þaðan verður fyrsti áfangi ferðar- innar og verður riðið í Vog- ana. Þaðan verður haldið sem leið liggur um Hafnarfjörð, Mosfellssveit, Þingvelli, Uxa- hryggi, Ok-leið í Húsafell og yfir Arnarvatnsheiði í Víðidal. Þaðan er svo haldið yfir Hóp- ið á Þingeyrar, inn í Vatnsdal og yfir í Skagafjörð. Þaðan liggur leiðin yfir Kjöl niður í Gnúpveijahrepp. Síðasti áfanginn er yfir Sprengisand. Þá flýgur hópurinn norður og ríður frá Húsavík að Foss- nesti í Gnúpveijahreppi. Lítrinn hjá Orkunni kostar 73 krónur VERÐ á bensínlítranum hjá Orkunni hækkaði í gær um 1,40 kr. eins og hjá öðrum olíufélögum. Er hækkunin til komin vegna hækkunar fjár- málaráðuneytisins á vöru- gjaldi. Verð á lítra af 95 oktana bensíni hjá Orkunni er því eftir hækkun 73 kr. og lítrinn af 98 oktana bensíni kostar 77,80 kr. Er því lægst verð hjá Orkunni á 95 oktana bens- íni og munar 4,40 krónum á lítra. Nýr veit- ingastaður opnar í miðbænum ÞESS er ekki langt að bíða að enn einn veitingastaður verði opnaður í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Tómas Tómasson veitingamaður, sem rekur Hótel Borg og Kaffíbrennsluna, tekið jarð- hæð Austurstrætis 9 á leigu. Þar var um árabil verslunin Egill Jacobsen til húsa. Tómas hyggst reka þar veitingastað í svipuðum stíl og Kaffi- brennsluna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.