Morgunblaðið - 02.08.1997, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Bjami Tryggvason út í geiminn 7. ágúat
Forsetahjónunum boðið
til geimskotsins
MUNDU nú að bursta tennurnar og fara með bænirnar þínar, en passaðu þig á litlu grænu
körlunum, Bjarni minn...
ANNA Sigþórsdóttir skolar af nýveiddum laxi í Haffjarðará fyrir fá-
um dögum, einum af fimm sem hún og eiginmaður hennar, Einar Sig-
fússon, drógu á einu síðdegi.
Elliðaárnar hressast aðeins
í gærmorgun voru komnir 297 lax-
ar á land úr Elliðaánum og er það
miklu minna en á sama tíma í fyrra.
Ef miðað er við 30.júlí voru komnir
294 laxar, en á sama degi í fyrra
voru komnir 625 laxar á land. Miðað
við sama dag voru nú 917 laxar fam-
ir um teljarann, en í fyma 1.673 laxar
og fannst mönnum það ekki mikið.
Á móti verður að segja að það hef-
ur verið þokkaleg aukning í göngum
og spuming hvort árnar ná góðum
endaspretti. Prátt fyrir ákjósanleg
skilyrði hefur veiðin síðustu daga
ekki verið til að hrópa húrra fyrir,
aðeins þrír á fimmtudag og aðrir þrír
á miðvikudag.
Fyrir hádegi hinn 26. júlí var
borgarstjóradagur í ánum. Þá veiddi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sinn
fyrsta flugulax, 5 punda hrygnu, á
Hrauninu á tommulanga svarta
Frances túbu. Sex laxar komu á land
og var Erna Finnsdóttir, ekkja Geirs
Hallgrímssonar, afladrottning með
tvo flugulaxa, báða af Hrauninu.
Sogið þokkalegt
Um 100 laxar eru komnir úr Sog-
inu sem er þokkaleg staða þegar góð-
ur tími í ánni er eftir, ágúst og sept>
ember. Ásgarður var bestur í viku-
lokin með 36 laxa, Aiviðra var með 33
laxa, Bíldsfell með 15 laxa og Syðri-
Brú með 3 laxa. Á þriðja hundrað
bleikjur hafa einnig veiðst á um-
ræddum svæðum og annað eins á sil-
ungasvæðinu í Ásgarði. Þá hafa verið
að koma skot af og til í Þrastarlundi.
Smálaxinn
óvenjustór
og feitur
PRÝÐISGÓÐAR veiðitölur berast
víða að þessa daganna, aðallega af
Vesturlandinu. Straumfjarðará og
Álftá hafa t.d. gefið um 100 laxa hvor
á sem er góð frammistaða miðað við
það sem gengur í þeim verstöðvum.
Aftur á móti vantar mikinn lax í El-
liðaárnar þó svo að aðeins hafi lifnað
yfir göngum að undanfórnu.
Enn að ganga í Álftá
„Við fengum 13 laxa og slatta af
sjóbirtingi á tveimur dögum. Þá voru
komnir um 100 laxar úr Álftá,“ sagði
Dagur Garðarsson, einn leigutaka
árinnar, í gærdag. Hann sagði mik-
inn lax í Hólknum og Lambafossi og
eitthvert líf væri í nánast öllum
veiðistöðum. „Svo er lax enn að
ganga, flestir okkar fiska voru lúsug-
ir og þetta eru ótrúlega stórir og
feitir smálaxar, flestir 6-8 pund,“
bætti Dagur við. Kraftur er einnig
að færast í sjóbirtingsgöngur og eru
60 fiskar komnir í veiðibók, flestir
um 2 pund, en þeir stærstu 4 pund.
Góð tala í Straumfjarðará
110 fiskar eru komnir í veiðibók
Straumfjarðarár og eru 100 þeirra
laxar að sögn Vals Amarsonar veiði-
eftirlitsmanns við ána. 10 bleikjur
fylla töluna. „Menn eru mjög
ánægðir með þessa veiði og að und-
anfórnu hafa verið að veiðast að
jafnaði 7-8 laxar á dag. Þetta er
þriggja stanga á, en sum hollin taka
það óskaplega rólega og stundum er
bai-a einn úti í á að veiða í einu.
Stærstu laxarnir eru 13 pund, en yf-
irleitt eru þetta rígvænir smálaxar,
mest 6-7 punda. Slangur hefur
einnig veiðst af 9-10 punda löxum,“
bætti Valur við.
Islenskir forverðir halda námskeið
Mikil þörf á
forvörslu
Kristín Huld Sigurðardóttir
FÉLAG norrænna
forvarða - fslands-
deild er fagfélag
sérfræðinga sem stunda
rannsóknir og annast við-
gerðir og viðhald á hvers
konar menningarminjum.
Félagið var stofnað 1983
og eru fullgildir félagar
nú sextán. Formaður fé-
lagsins er Kristín Huld
Sigurðardóttir. Hún var
spurð hvert væri helsta
markmið félagsins.
- Markmið félagsins er
að stuðla að auknum
tengslum íslenskra for-
varða innbyrðis og við
aðra sérfræðinga á þessu
sviði erlendis.
Hvað er forvarsla?
- Orðið forvarsla er
mörgum illskiljanlegt.
Það er nýyrði, myndað
fyrir um það bil 25 árum
og var ætlað að ná yfir varð-
veislu allra menningarminja,
innan húss sem utan. Þetta er
mjög víðtæk merking. Starfsviði
forvarða má skipta í þrjá megin-
þætti: 1. Fyrirbyggjandi for-
vörslu (safnfræði). 2. Rannsóknir
á ástandi muna. 3. Viðgerðir eða
forvörslu.
Gætir þú skýrt nánar þessa þrjá
þætti?
- Fyrirbyggjandi forvarsla
lýtui' að húsnæði því sem safn-
gripur er í, bæði sýningarhús-
næði og geymslum. Þær felast
meðal annars í því að hita- og
rakaprósentu í lofti, svo og ljós-
magni, sé þannig hagað að sem
minnst hætta sé á að gripir skað-
ist. Þessir umhverfisþættir hafa
mikil áhrif á ástand gripa, t.d.
getur of mikil lýsing valdið upp-
litun muna, rangt og breytilegt
rakastig getur valdið sprungu-
myndunum í munum úr lífræn-
um efnum, auk þess sem máln-
ing getur flagnað af gripum.
Annað atriði er rannsókn á safn-
gripum. Það felur í sér ýmiss
konar efna- og smásjárrann-
sóknir. Slík rannsókn getur verið
þáttur í að ákveða hvaða með-
höndlun gripurinn fær. Viðgerð
eða forvarsla gripa getur falist
bæði í alls konar hreinsun og
styrkingu gripa og einnig í end-
urgerð muna.
Er mikið verksvið fyrir íslenska
forverði?
- Já, það er sannarlega mikil
þörf fyrir forverði hér á landi.
Hins vegar er fjármagn tak-
markað til þessa málaflokks.
Benda má til dæmis á að í Þjóð-
arbókhlöðu er mikil þörf fyrii'
forvörð, þar stendur ónotað nýtt
og fullkomið forvörsluverkstæði
en ekki er fyrir hendi fjárveiting
íyrir launum starfsmanns þar.
Er forvarsla gömul starfsgrein?
- Fyrstu heimildir um for-
vörslu eru viðgerðir á pappír á
fimmtu öld f.K. í Kína. En sem
vísindagrein byrjaði forvarsla að
þróast á 19. öldinni.
Þá var þetta í raun
starf tveggja stétta,
annars vegar vísinda-
manna, svo sem efna-
og eðlisfræðinga, sem
þróuðu forvörsluaðferðir, og hins
vegar handverksmanna og lista-
manna sem unnu að viðgerðun-
um. Forverðir lærðu áður hand-
verkið inni á söfnum eða hjá
starfandi forvörðum, en núna er
þetta yfirleitt menntun á há-
skólastigi þar sem steypt er
saman þekkingu visindamanns-
ins og handverksmannsins. Við
forverðir erum mjög sérhæfð
stétt þannig að t.d. textflforvörð-
►Kristín Huld Sigurðardóttir er
fædd í Reykjavík árið 1953. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1973
og tók BA-próf í sagnfræði og
bókmenntasögu árið 1977.
BAhons.-próf í fomleifafræði
tók Kristín frá Lundúnarháskóla
1979, próf í forvörslu fomgripa
tók hún 1 listaháskólanum 1
Kaupmannahöfn árið 1984 og
Cand.mag.-próf í sagnfræði frá
Háskóla Islands árið 1990. Nú er
Kristín að ljúka doktorsprófi í
efnisfræði jáms við Lundúnahá-
skóla. Hún er formaður Félags
norrænna forvarða - Islands-
deildar, hefur stundað fornleifa-
rannsóknir og vann lengi við
Þjóðminjasafn íslands.
ur getur ekki tekið að sér að
gera við ljósmyndir, hann hefur
ekki þekkingu til þess, og hins
vegar getur ljósmyndaforvörður
ekki gert við málmgripi eða leir-
ker, svo dæmi séu tekin.
Hvenær kom fyrsti forvörðurinn
til starfa á íslandi?
- Vigdís Bjömsdóttir var
íyrsti íslenski forvörðurinn, hún
hóf störf á Þjóðskjalasafninu ár-
ið 1963, hún var og er pappírs-
forvörður, Þjóðskjalasafn réð
síðan fleiri pappírsforverði til
starfa. Næsta safn sem réð for-
vörð til starfa var Þjóðminja-
safnið, þangað kom textflfor-
vörður í hlutastarf árið 1973,
forngripaforvörður kom þar til
starfa tíu árum seinna, einnig
hefur forvörður verið að störfum
á Listasafni Islands í tæp tíu ár.
Af þessu má sjá að forvarsla er
ekld gömul starfsgrein á íslandi
og heldur ekki fjölmenn enn sem
komið er. Starfa forverðir yfír-
leitt á söfnum?
- Bæði og - það eru forverðir
á flestum söfnum erlendis og á
ríkissöfnunum hér í Reykjavík,
en það starfa engir forverðir á
t.d. byggðasöfnum úti á landi.
Er þörf fyrir forverði á byggða-
söfnum?
- Já, það er mikil
þörf fyrir að gripir á
byggðasöfnum séu
forvarðir, sem merkir
að þörf er á að grip-
imir fái rétta meðhöndlun svo
þeir skaðist ekki t.d. vegna áhrif
ljóss og raka. Starfsfólki
byggðasafna er þessi vandi vel
ljós og það hefur oft óskað eftir
að fá leiðsögn í forvörslu. Þess
vegna ætlar Félag norrænna
forvarða - íslandsdeild að halda
námskeið fyrir safnamenn, þar á
meðal byggðasafnamenn, í fyrir-
byggjandi forvörslu núna í lok
október.
Forverðir
eru mjög sér-
hæfð stétt