Morgunblaðið - 02.08.1997, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997
ERLEIUT
MORGUNBLAÐIÐ
pMrUMiyRINN H
C>RPIP AP
FAÐU ÞER MIÐA FYRIR K L. 20.20
Flóðin í austurhluta Þýzkalands
Hættan ekki
Hohenwutzen. Reuter.
liðin hjá
VATN seytlaði í gær á ýmsum stöð-
um úr flóðvarnargörðum meðfram
ánni Oder á austuriandamærum
Þýzkalands. Vatnsborð árinnar hef-
ur enn ekki tekið að lækka sem
þýðir, að sögn embættismanna, að
hætta er enn mikil á því að garðarn-
ir bresti.
Um fimmtán þúsund manns hafa
á síðustu dögum verið flutt á brott
úr húsum sínum í héraðinu næst
varnargörðunum og þúsundum til
viðbótar hefur verið gert að vera
undir það búin að flýja hús sín með
örskömmum fyrirvara.
Bráðasta hættan vofir yfir bæn-
um Hohenwutzen þar sem hermenn
og sjálfboðaliðar hafa lagt nótt við
dag í meira en viku við að styrkja
varnargarðinn sem var við það að
láta undan þrýstingi og ágangi flóð-
vatnsins. „Líkurnar á að garðarnir
bresti eru meiri en að okkur takist
að halda þeim,“ sagði talsmaður
neyðarnefndar heimamanna í Bad
Freienwalde, skammt frá Hohenw-
utzen. Skammt þar frá, við
Reitwein, lengra norður með fljót-
inu, byijaði vatn að seytla í gegnum
garðinn á nokkrum nýjum stöðum
í gær. Þegar varnargarðarnir brustu
síðast, árið 1947, og settu stóran
hluta hins frjósama iandbúnaðar-
héraðs á kaf, gerðist það einmitt
við Reitwein.
Samkvæmt bráðabirgðamati op-
inberra aðila í Tékklandi, Póllandi
og Þýzkalandi á tjóninu, sem flóðin
hafa í för með sér, má gera ráð
fyrir að kostnaðurinn vegna þeirra
geti numið samtals um 325 milljörð-
um íslenzkra króna.
Richter látinn
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKI píanó-
ieikarinn Svjatoslav
Richter lést skammt
frá Moskvu í gær af
hjartaáfalli. Hann var
82 ára að aldri. Rúss-
neska fréttastofan
Interfax skýrði frá
þessu í gær.
Richter var einn af
meisturum klassísks
píanóleiks á þessari
öld. Hann fæddist í
Úkraínu 1915 og var
orðinn þekktur fyrir
leik sinn í Odessa
þegar um 1930. Síðar
Svjatoslav
Richter
flutti hann til Moskvu
og naut mikillar hylli
bæði í heimalandi sínu
og á alþjóðlegum vett-
vangi.
Richter var ekki
síst kunnur fyrir túlk-
un sína á verkum Jo-
hanns Sebastians
Bachs en auk þeirra
lék hann ýmis klass-
ísk verk evrópskra
tónskálda og verk
rússneskra samtíma-
manna, Sergejs Pro-
kofíevs og Dmítrís
Shostakovítsj.
Casanova drakk kakó
London. The Daily Telegraph.
ÍTALSKI ævintýramaðurinn og
einn þekktasti ástmaður sögunn-
ar, Casanova, gat haldið sér við
efnið með því að drekka heitt
kakó áður en hann fór í háttinn,
að því er vísindamenn segja.
Rannsakendur við Bristolhá-
skóla efnagreindu innihald súkk-
ulaðis og komust að því að auk
koffíns inniheidur það efni sem
veldur kæti. Dr. Susan Pringle,
lektor í eðlisfræði, kennir „kakó-
fræði“ á einu námskeiða sinna ef
það mætti verða til þess að auka
vinsældir vísinda. Hún hóf rann-
sóknir sínar eftir að hafa Iesið
að Casanova hafði sagt kakó vera
ástalyf. Kakó var fyrst drukkið
af hermönnum til þess að þeir
gætu haldið sér vakandi. Það hef-
ur komið sér vel fyrir Casanova.
Auk þess er í kakói fenýletýlam-
ín, sem eykur sælukennd. Það
efni finnst í líkama manns en
þegar kakós er neytt eykst magn-
ið. Verði hins vegar of mikið af
því getur það hindrað blóðstreymi
til heilans og valdið höfuðverk.
Casanova sagði frá því að hann
tæki kakó fram yfir kampavín.
Talsmaður súkkulaðiframleið-
andans Cadbury’s segir að kakóið
sem Casanova drakk hafi liklega
verið sætt með múskati og kanil
og dálitið öðru vísi á bragðið en
kakómjólkin sem nú er vinsæl.
Efnisinnihald hafi þó verið hið
sama.
„Reðurræningj-
ar“ líflátnir
Dakar. Reuter.
ÆSTUR múgur í Senegal hefur
brennt og barið nokkra meinta
seiðkarla til bana vegna gruns um
þeir geti látið getnaðarlim manna
hverfa eða minnka með því einu
að taka í hönd þeirra.
„Við höfum glatað allri heil-
brigðri skynsemi," sagði í fyrir-
sögn á forsíðu dagblaðsins Le
Matin undir mynd af meintum
„reðurræningja" sem æstur múg-
ur svipti lífi í höfuðborginni, Dak-
ar.
Annað dagblað, Le Soleil,
skýrði frá því að fimm menn frá
Níger hefðu verið líflátnir í Casa-
mance-héraði í suðurhluta lands-
ins fyrir sömu sakir.
Tugir manna, aðallega afrískra
útlendinga, hafa orðið fómarlömb
slíkrar múgæsingar í Ghana, Fíla-
beinsströndinni og Senegal síð-
ustu misseri. Lögreglan í Vestur-
Afríkuríkjunum hefur reynt að
fullvissa almenning um að ekkert
sé hæft í sögusögnum um að
flannar manna hafi gufað upp.
Oft hafi þjófar komið þessum sög-
um á kreik þar sem þeir hagnist
á ólgunni, sem þær valdi.