Morgunblaðið - 02.08.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 43
HYDROTECH-GRUPPEN AS
Hydrotech-Gruppen AS er einn stærsti framleiöandi í sjóeldi á laxi
og urriöa í Noregi meö ca. 13.000 tonn í framleiðslu árlega.
Fyrirtækiö rekur fiskeldistöðvar, sláturhús og framleiöir laxaafurðir
og er með ca. 200 manns í vinnu.
Hydrotech-Gruppen AS óskar eftir að ráða
aðstoðarverkstjóra
og fiskvinnslufólk
í laxaflökunarsal fyrirtækisins.
Krafist er reynslu úrfrystihúsi við framleiðslu
á bolfiskafurðum eða laxi.
Laun: "Frá ca 750-870 ÍSK/tímann eftir starfs-
reynslu. Laun aðstoðarverkstjórans skv. sam-
komulagi.
Húsnæði: Hydrotech-Gruppen AS getur að-
stoðað við að finna húsnæði. Góðar og ódýrar
íbúðir/hús eru til leigu í 10—30 mín fjarlægð
frá verksmiðjunni. Verksmiðjan er staðsett rétt
við miðbæinn í Kristiansund.
Um er að ræða fasta ráðingu.
Starf gæti hafist frá 15/9 til 1/11/97.
Umsóknarfrestur ertil 1. september 1997.
Upplýsingar veita Laila Thomassen eða Siw
Tove Rpsberg í síma (47) 71 56 62 00.
Lyfjakynnir
Delta hf. óskar eftir að ráða lyfjakynni til starfa.
Viðkomandi skal hafa lyfjafræðimenntun eða
aðra menntun á heilbrigðissviði. Reynsla af
markaðsmálum og lyfjakynningum er æskileg.
Markaðsstjóri Delta hf. veitir frekari upp-
lýsingar.
Umsóknarfresturertil 11. ágúst 1997 og skal
umsóknum skilað til Delta hf., þar sem eyðu-
blöð fást. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Reyklaus vinnustaður.
Delta hf.,
Reykjavíkurvegi 78,
pósthólf 420,
222 Hafnarfirði,
sími 555 3044
Kennarar — kennarar
Reykhólaskóli í Austur-Barðastrandarsýslu
bráðvantar kennara vegna barnsburðarleyfis
frá 1. september 1997 til 11. febrúar 1998.
Kennslugreinar: Enska og danska í 6.—10. bekk
og raungreinar í 8.—10. bekk.
Umsóknarfresturertil 15. ágúst. Reykhólaskóli
er vel búinn, einsetinn skóli í fögru umhverfi
með aðeins 52 nemendur.
Vinnuaðstaða kennara er mjög góð. Ódýrt og
gott húsnæði í boði.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Skarphéðinn
Ólafsson, í símum 434 7807 og 852 0140, fax
434 7891.
Hjúkrunarfræðingar
Er ekki einhver orðinn leiður
á vaktavinnunni?
Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina á Kirkjubæjarklaustri er laus til umsóknar
frá 1. sept. nk. til 30. maí '98. Laun skv. samn-
ingum opinberra starfsmanna. Heilsugæslu-
stöðin er H1 stöð þar sem vinna læknir, ritari
og hálf staða hjúkrunarfræðings auk hjúkrun-
arforstjóra.
Sérfræðingsíbúð í stöðinni ertil reiðu fyrir
starfið, á vægu gjaldi. Starfið er unnið á dag-
vinnutíma, á virkum dögum, nema í neyðartil-
fellum.
Kirkjubæjarklaustur er 150 manna þorp í 270 km fjarlægð frá Reykja-
vík. Samgöngur eru góðar, mannlíf með ágætum, öll almenn þjónusta
og umhverfi heillandi.
Nánari upplýsingar gefa Matthildur Pálsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 487 4623 og Hanna
Hjartardóttir, formaður stjórnar, í síma
487 4635, sem jafnframt tekur við skriflegum
umsóknum.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst nk.
Grunnskóli
Eskifjarðar
Við Grunnskóla Eskifjarðar vantar kennara
næsta skólaár. Meðal kennslugreina eru
danska og líffræði auk almennrar bekkjar-
kennslu. I boði er niðurgreitt húsnæði og flutn-
ingsstyrkur ásamt góðri vinnuaðstöðu.
Nánari upplýsingar veita Hilmar, skólastóri,
í síma 476 1472 eða 476 1182 og Guðjón,
aðstoðarskólastjóri, í síma 476 1250.
Umsóknarfrestur ertil 15. ágúst nk.
Eskifjarðarkaupstaður er kröftugt og umsvifamikið sjávarpláss með
liðlega 100 íbúum og allri nauðsynlegri þjónustu við þá.
Skíðasvæðið í Oddskarði er rétt við bæjardyrnar og einnig höfum
við frábæran golfvöll inn af bænum.
Við skólann starfa 15 kennarar og 185 nemendur.
Bæjarstjórnin okkar hefur metnað til að standa sem best að rekstri
skólans og búa hann vel til að sinna sínu hlutverki. Við slíkar aðstæður
er gott að starfa.
Flugvirki
Landhelgisgæsla íslands auglýsir hér með til
umsóknar lausa stöðu flugvirkja. Um er að
ræða fullt starf. Staðan tilheyrirflugdeild stofn-
unarinnar og heyrir stjórnunarlega beint undir
yfirflugvirkja. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Launakjör ákvarðast af kjarasamningi fjármála-
ráðherra f.h. Ríkissjóðs og Flugvirkjafélags
íslands.
Umsóknum ber að skila til Landhelgisgæslu
íslands, Seljavegi 32, Reykjavík, á þartil gerð-
um umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir
21. ágúst nk.
Nánari upplýsingar um starfið veita Oddur
Garðarsson, yfirflugvirki, og Þorkell Guð-
mundsson, tæknistjóri, í síma 511 2222.
Þeir, sem kunna að eiga eldri umsóknir um
stöðu flugvirkja hjá stofnuninni, þurfa að end-
urnýja umsóknir sínar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin
Lögregluskóli ríkisins
Fulltrúi
Laus ertil umsóknar staða fulltrúa í 50% starf
við Lögregluskóla ríkisins. Helstu verkefni eru
símavarsla, skjalavarsla, ritvinnsla og almenn
skrifstofustörf. Einnig að hafa umsjón með
kaffistofum starfsmanna og nemenda, svo sem
gerð pantana og þegar við á framreiðslu léttra
rétta auk þess að annast frágang og annað til-
fallandi. Stefnt er að því í framtíðinni að auka
við starfið og sameina það ræstistarfi. Áhersla
er lögð á góða framkomu og lipurð í mannleg-
um samskiptum. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins. Áætlað er að ráða í starfið
frá og með 1. september nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendisttil Lögregluskóla ríkisins,
Krókhálsi 5a, 110 Reykjavík, fyrir 15. ágúst nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skóla-
stjóri.
Hveragerðisbær
Frá Grunnskólanum í Hveragerði
Raungreinakennarar
Við Grunnskólann í Hveragerði er laus staða
raungreinakennara.
Nánari uplýsingar gefur Guðjón Sigurðsson,
skólastjóri í síma 483-4950 og Pálína Snorra-
dóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 483-4635.
Skólastjóri.
Trésmiðir
Vegna aukinna verkefna viljum við ráða nokkra
trésmiði nú þegar.
Upplýsingará skrifstofunni, Funahöfða 19,
og í síma 557 3700
Ármannsfell m. 53^
Hrafnista Reykjavík .
Hjúkrunarfræðingar. Lausar stöður á hjúkr-
unarvakt vistheimilisins. Heilar stöður eða
hlutastörf. Lífleg vinna og góður starfsandi.
Hjúkrunarritari óskast um óákveðinn tíma
vegna forfalla. Góð tölvukunnátta og gott við-
mót nauðsynlegt.
Stöður sjúkraliða og starfsmann við
aðhlynningu eru lausar. Um er að ræða heilar
stöður og hlutastörf.
Upplýsingar veita ída Atladóttir, hjúkrunarfor-
stjóri, í síma 553 5262 og Hrafnhildur Sigur-
jónsdóttir, deildarstjóri hjúkrunarvaktar, í síma S.
568 9540.
Hrafnista, hjúkrunar- og vistheimili fyrir aldraöa í Reykjavík, tók til
starfa 1957. Þar búa 317 vistmenn. Á vistheimilinu eru 204 en á 5
hjúkrunardeildum eru 113.
íslensk erfðagreining.
Tölvunarfræðingar
íslensk erfðagreining óskar eftir að ráða til
starfa tölvunarfræðinga. Um er að ræða spenn-
andi störf sem felast í þróun á gagnagrunn-
skerfum, viðmótsforritun og annarri forritun
til úrvinnslu erfðafræðigagna.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólapróf í tölv-
unarfræðum eða aðra sambærilega menntun.
Reynsla af forritun í C++, Java eða gagna-
grunnum (SQL) æskileg.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf um-
sækjenda skulu send til íslenskrar erfðagrein-
ingar, Lynghálsi 1,110 Reykjavík.
(Nánari upplýsingar veitirstarfsmannastjóri ~
ísíma 570 1900). v
Hugfang hf.
Framkvæmdastjóri
Hugfang hf. er vaxandi fyrirtæki á sviði há-
tækni. Aðal framleiðsluvara fyrirtækisins er
skólatölvan Ritþjálfi, sem komin er í notkun
í marga grunnskóla landsins. Framundan er
krefjandi starf við uppbyggingu fyrirtækisins
og markaðssetningu erlendis. Að baki fyrirtæk-
isins stendur traustur hópur einstaklinga og
fjárfesta.
Leitað er að traustum og dugmiklum einstakl-
ingi til að leiða starfsemi fyrirtækisins. Hann
þarf að hafa frumkvæði og metnað til að ná
árangri. Góð tungumálakunnátta (enska og
Norðurlandamál) er nauðsyn. Æskilegt er að
viðkomandi hafi reynslu af stjórnunarstörfum
og erlendum viðskiptum.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil:
Hugfang hf. Skúlatúni 6,105 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 11. ágúst.
Gagnfræðaskólinn á Sauðárkróki
Kennarar — kennarar
Við Gagnfræðaskólann á Sauðárkróki vantar
nk. skólaár sérkennara og almennan kennara.
Umsóknarfrestur ertil 15. ágúst.
Upplýsingargefa Björn Sigurbjörnsson, skóla-
stjóri, sími 453 6622 og Óskar Björnsson, að-
stoðarskólastjóri, sími 453 5745.
Kennara vantar
Kennara vantar við Villingaholtsskóla fram
að áramótum vegna forfalla. Villingaholtsskóli
er fámennur skóli, 17 km frá Selfossi.
Umsóknarfrestur ertil 10. ágúst.
Upplýsingar veita skólastjóri, Jónína M. Jóns-
dóttir, sími 486 3325 og formaður skólanefnd-
ar, Einar Helgi Haraldsson, sími 486 5590.