Morgunblaðið - 02.08.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 33
AÐSEIMDAR GREINAR
Einvígið á
akbrautinni
ÞÁ HEFUR litið dagsins ljós nýtt
punktakerfi fyrir brot í umferðinni
sem leiða á til sviptingar ökuleyfis
eftir ákveðna uppsafnaða punkta og
skal þetta kerfi taka gildi 15. septem-
ber nk. Það hlýtur að vera mikið
framfaraspor að fá loksins slíkt kerfi,
sem beðið hefur verið eftir í ára-
tugi. - Hins vegar vekur nokkra
undrun sú uppsetning sem Umferð-
arráð hefur lagt fram í kynningu á
kerfinu og mætti ætla að einhverjir
viðvaningar hafi haft áhrif á af-
greiðslu málsins, en reyndir aðilar
hindraðir í að komast að því.
Það má velta rækilega fyrir sér
vægi brotanna, t.d. að einn punktur
er gefinn fyrir of stutt bil á milli
ökutækja, sem er þó orsök flestra
slysa og mests eignatjóns í umferð-
inni á íslandi, langt umfram það sem
gerist í nágrannalöndum okkar. Aft-
ur á móti er mér ekki Ijóst hvernig
veiða má punktinn, hvort hann er
hrifsaður eftir að óhappið hefur orð-
Lögreglan í Reykjavík,
segir Gylfi Guðjóns-
son, var ekki kölluð til
umsagnar um punkta-
kerfið.
ið eða hvort lögreglan verður svo
efld að hún nái brotamanninum út
úr röðinni í hálkunni.
Hins vegar er lagt að jöfnu ef
skráningarmerki vantar eða þau eru
ógreinileg. Ég efa að þetta hafi nokk-
urn tíma valdið slysi og ágætt eftir-
lit er með þessum brotaflokki hjá
skoðunarstöðvum. Margt annað á
hugsanlega eftir að vekja mönnum
efa um gildi þessa kerfis, þegar
brotaþolar sem missa ökuleyfið átta
sig á röngu vægi brotaþáttanna. Eitt
atriði er sérstakt undrunarefni, en
hvergi er minnst á stefnuljós í þessu
nýja kerfi. Það eitt gefur hugmynd
um að ekki hafi öll leiðarljós verið í
hávegum höfð við samningu kerfis-
ins. Rétt gefin stefnuljós eru gífur-
lega ríkur þáttur í að skapa öryggi
í umferðinni og gera öllum vegfar-
endum ljóst hvað er _að gerast í ná-
grenni við þá. Hér á íslandi er notk-
un þessa mikilvæga öryggistækis í
stöðnuðu lágmarki og veldur oft og
tíðum óhöppum og slysum vegna
notkunarleysis eða misnotkunar.
Samkvæmt upplýsingum sem ég
hef, þá mun lögreglan í Reykjavík
hafa sent gögn fyrir allnokkrum
árum varðandi hið væntanlega
punktakerfi og ítrekað fyrri athuga-
semdir fyrir um fimm árum. Lögregl-
an í Reykjavík, sem ber hitann og
þungann af umferðaróhöppum á Is-
landi, var ekki kölluð til umsagnar
um þetta nýja punktakerfi, sem nú
hefur litið dagsins ljós - og hvers
vegna?
Mér dettur í hug þegar skoðað er
atriði í kerfinu um ólöglegan fra-
múrakstur á vegamótum skv. 22. gr.
umferðarlaga, að fyrir nokkrum
árum kom ágætur skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu því á framfæri
við landsmenn, að þeir ökumenn, sem
færu fram úr öðru ökutæki á gatna-
mótum og lentu í árekstri, hefðu
umferðarrétt gagnvart þeim sem
beygði til vinstri. Þetta hafði skrif-
stofustjórinn úr einhveiju EES safni,
en í raun gat þetta aldrei átt sér
stað, en olli sárindum og tjóni. Nú
er talið að hann sé upphafsmaður
að ákvæði í reglugerð um að íslend-
ingar sem búsettir hafa verið lengri
eða skemmri tíma erlendis megi ekki
taka hér ökupróf nema eftir sex
mánaða dvöl. Þetta er þvílík skerðing
á ríkisborgararétti að jafna mætti
við að ekki væri ieyfilegt að skíra,
gifta eða grafa fólk hér nema það
hefði dvalið hér í sex mánuði. Þing-
menn mættu fylgjast betur með
þessu máli.
Við hjónin höfum farið tvisvar út
á land um helgar nú í sumar, fyrri
ferðin var á Snæfellsnes. Úr þeirri
ferð kom ég miður mín til baka vegna
umferðarbrota samferðamanna
minna og hefi ég aldrei séð annað
eins. Fóik bókstaflega kepptist um
að aka framúr á óbrotnum línum
hvar sem var. Á einum stað hafði
verið skipt um malbik svo engar yfir-
borðsmerkingar voru fyrir hendi. Á
blindhæð fór framúr okkur maður
með konu sína og börn. - Seinni
ferðin var vestur í Isaijarðardjúp
föstudaginn 25. júlí sl.
og hófst í Mosfellsbæ
ki. 13:30. Strax á.Kjal-
arnesi hófst ýmiskonar
framúrakstur I trássi
við lög og merkingar.
Þegar í Kjósina kom
birtist vöruflutningabíll
með tengivagn. Rétt er
við mættum honum
birtist hvítur fólksbíll í
framúrakstri á miklum
hraða. Þarna hélt ég að
líftóran í okkur hjónum
flygi út í eilífðina. Við
settum okkar bíl út í
kantinn sem hægt var
og flutningabílstjórinn
gerði það sama. Þarna
mætti maður í fyrsta skipti á ævinni
tveimur bílum saman á veginum og
þetta slapp. Ég tel það vera flutn-
Gylfi Guðjónsson
ingabílstjóranum að
þakka svo og góðum
útreikningi okkar meg-
in. Hann þandi flautuna
til að vara við og sendi
ég honum hér með
þakkir fyrir lífgjöfina.
Áfram var ekið og
umferðarsóðarnir héldu
áfram framúrakstri á
bönnuðum línum hvar
sem var. Mikið bar á
svörtum tveggja dyra
bíl, líklega Porche, með
tveimur mönnum, en
þeir óku að margra
mati eins og þeir hefðu
sjálfsmorð í hyggju.
Svipað ástand ríkti á
suðurleið á sunnudegi og í Hvalfirði
fengum við aftur bifreið óvænt á
móti okkur í æðisgengnum fram-
úrakstri, en þó var ekki lífshætta í
líkingu við fyrra skiptið. Þessi út-
koma mun vera afraksturinn af því
að vegalögreglan var lögð niður,
enda getur maður nú ekið nánast
um allt land án þess að sjá lögreglu-
bíl nema í þéttbýli. Lögreglan í
Reykjavík mun hafa gert athuganir
á því að rétt hlutfall er á milli fækk-
unar á vegalögreglubílum og ijöigun-
ar óhappa á þjóðvegunum. - Ég
þykist vita að ekki taki allir vel slík-
um aðfinnsium sem hér koma fram.
Þó verður að vænta þess að nýskipað-
ur ríkislögreglustjóri taki þessum
ábendingum vel og vinni að þessum
málum af heilindum með lögreglu-
mönnum og lögreglustjórum um allt
land.
Höfundur er ökukennari og
formaður skipulags- og
umferðarnefndar.
þetta tilboð er ekki
alveg milljón!
VERÐ FRA 99 5 ÞUS.
Einfalt daemi ________ ______
Accent GS 3ja dyra: 1-079.000 kr.
ACC . tsn nno kr
Pinn bíll upp i
Mismunur:
Meðalgr. Pr- .
mánuð m.v. 5 ar
650.000 kr.
429.000 kr.
9.350 kr.
58 í sérstakri „elite"útgáfu sem núna
býðst á ótrúlegu verði næstu daga. „Elite" útgáfan er með aukahlutum að
verómæti yfir 100.000 kr.; álfelgum, vindskeið og þokuljósum.
Sölumenn okkar eru i samningastuði, þú kemur með gamla bílinn, semur
um lauflétta miLligjöf og ekur heim á nýjum Hyundai Accent 1998.
Kynntu þér upplýsingarnar hér að neðan og valið ætti að verða auóvelt.
Hyundai Accent LSi 1998 VW Golf CL 1997 Toyota Corolla 1998 Opel Astra GL 1997 Nissan Almera LX 1997
Rúmtak vélar sm2 1341 1398 1332 1389 1392
Hestöfl 84 60 86 60 87
Lenqd sm 4103 4020 4100 4051 4120
Breidd sm 1620 1696 1690 1691 1690
Þynqd kq 980 960 1115 980 1035
Vökva- veltistýri J 3 3 J
útvarp / kass.tæki J 3/N J J/N 0
VERÐ: 995.000 1.194.000 1.299.000 1.299.000 1.248.000
HYUnDRI
- til framtíðar
B&L, Suðurlandsbraut 14 & Ármúla 13, Sími: 568 1200, Beinn sími: 553 1236, Fax: 568 8675, Email: bl@bl.is, Internet: www.bl.is