Morgunblaðið - 02.08.1997, Side 48

Morgunblaðið - 02.08.1997, Side 48
4$ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ SMAAUGLYSINGAR G) Dagsferðir um verslunar- mannahelgina: Sunnudaginn 3. ágúst Selvogs- gatan/Grindarskarðsleið, 1. áfangi. Forn leið á milli Hafn- arfjarðar og Selvogs. Brottför frá BSl kl. 10.30. Farið er í Selvog og gengið að Grindarskörðum. Verð kr. 1.600/1.800. Mánudaginn 4. ágúst Selvogs- gatan/Grindarskarðsleið, 2. áfangi. Gengið frá Grindar- skörðum til Hafnarfjarðar. Brott- för kl. 10.30. Verð kr. 1.300/1.500. Helgarferðir næstu helgi: 8. —10. ágúst Fjölskylduferð í Bása. Boðið er upp á skipulagð- ar gönguferðir við allra hæfi ásamt dagskrá fyrir börnin. Varðeldar, grillveisla fyrir börn- in, sannkölluð fjölskyldustemm- ing. Skráning stendur yfir á skrif- stofu Útivistar. 9, —10. ágúst Fimmvörðuháls. Farið frá Reykjavík á laugar- dagsmorgni. Gist í Fimmvörðu- skála og gengið í Bása á sunnu- degi. Á nokkuð að sleppa því að fara Fimmvörðuhálsinn i sumar? Skráningar standa yfir í eftirtald- ar ferðir á Fimmvörðuháls: 13.— 14. ágúst, 16, —17. ágúst, 23.— 24. ágúst, 30.—31. ágúst. Skráningar standa yfir í ferðir: 22.-24. ágúst Laugavegurinn, hraðferð. Brottför frá Reykjavík á föstudagsmorgni. Gengið í Hvanngil og gist í skála. Á laug- ardegi er gengið í Bása. 22.-24. ágúst Hvanngil— Strútslaug—Básar. Á föstu- degi er ekið í Hvanngil. Daginn eftir er gengið í Strútslaug og á sunnudegi í Landmannalaugar. 22.-24. ágúst Vestmannaeyj- ar, pysjuferð. Skoðunar- og gönguferðir um Heimey. Gist á farfuglaheimili. 29.—31. ágúst Veiðivötn. Á föstudagskvöld er ekið í Veiðiv- ötn. Farið verður að Tröllinu við Tungná, gengið að Hreysinu og Veiðivatnasvæðið skoðað. Á heimleið er virkjanasvæðið við Sigöldu skoðað. Spennandi sumarleyfisferðir 12.—16. ágúst Laugavegurinn trússferð. Farangur fluttur á milli gististaða. Gengið frá Land- mannalaugum í Bása. Undirbún- ings- og kynningarfundur þriðju- daginn 5. ágúst kl. 20.00 á Hall- veigastig 1. 16.—21. ágúst Snæfell — Lóns- öræfi. Ferðin hefst á Egilsstöð- um. Ekið að Snæfelli þaðan sem gengið er að Geldingafelli, i Eg- ilssel og niður að lllakambi um Tröllkróka. Gist í skálum. 19,—23.. ágúst Landmannal- augar — Strútslaug — Básar. Gengið úr Laugum í Hattver og yfir Torfajökul í Strútslaug. Frá Strútslaug er farið að Bláfjalla- kvísl um Emstrur og gist í Botn- um. Á fjórða degi er gengin Rjúpnafellsleið í Bása. 26.—30 ágúst Laugarvegurinn. Gengið frá Landmannalaugum í Bása. Gist í skálum. Ferðir í Bása allar helgar í ágúst. Dagskrá helgarinnar Á Þingvöllum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá um helgina, þar sem saman fer fræðsla, skemmtun og holl útivera. Þjóð- garðurinn á Þingvöllum er griða- staður, þar sem fólk á öllum aldri á að geta dvalið og notið um- hverfisins í ró og næði. Því skal ríkja næturró á tjaldstæðum eftir miðnætti og drukkið fólk, er spill- ir friði, getur vænst þess að verða vikið af svæðinu. Föstudagur 1. ágúst kl. 21.30 Kvöldrölt. Stutt ganga frá Þingvallakirkju, með gjánni Silfru niður að bakka Þingvallavatns. Laugardagur 2. ágúst kl. 11.00 Barnastund við Skötugjá. Safnast verður saman við kirkj- una og gengið út að Skötugjá, þar sem sagðar verða sögur og farið í leiki.Tekur 1 — IV2 klst. Kl. 11.00 Ármannsfell. Lagt verður upp frá Skógarhól- um og gengið á Ármannsfell. Á leiðinni verður hugað að náttúru- fari, jarðfræði og þjóðsögum. Nauðsynlegt er að vera vel skóaður og gott að hafa með sér nesti, sérstaklega eitthvað að drekka. Gangan tekur 4—5 klst. ATH! Einungis verður farið ef veður og skyggni er gott. Kl. 13.00 Hrauntún. Gengið með gjám og um fornar götur að Hrauntúni. Fjallað verð- ur um náttúru og sögu svæðis- ins. Nauðsynlegt er að vera vel skóaður og má gjarnan hafa með sér nesti. Gangan hefst við þjónustumiðstöð og tekur 3—4 klst. Kl. 15.00 Leikið í Hvannagjá. Barnastund fyrir alla krakka í Hvannagjá, þar sem spjallað verður um náttúruna og farið í leiki. Barnastundin tekur 1 — Vh klst. og hefst við þjónustumið- stöð. Kl. 21.00 Kvöldrölt. Gengið frá Flosagjá (Peninga- gjá), út á Spöngina, að Þingvalla- bæ og endað í kirkju. Tekur um 1 klst. Sunnudagur 3. ágúst kl. 11.00 Barnastund við Þingvallakirkju. Leikið og sungið í og við kirkj- una. Tekur 1 — 1% klst. Kl. 13.00 Lautartúr í Hrauntún Ferð fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna, i Hrauntún, þar sem farið verður i leiki, rústir gamla bæjarins skoðaðar og nesti snætt í rólegheitum. Lagt verður upp frá Sleðaásréttinni fyrir ofan Bolabás, þaðan sem stutt og auðveld ganga er í Hrauntún. Ferðin tekur 3—4 klst. IVIunið nestið, skjólfötin og góða skapið! Kl. 14.00 Guðsþjónusta. Séra Heimir Steinsson annast guðsþjónustuna — organisti Ing- unn Hildur Hauksdóttir. Kl. 15.30 Gestamóttaka á Skáldareit Staðarhaldari tekur á móti gest- um þjóðgarðsins og ræðir um náttúru og sögu Þingvalla. Mót- takan hefst á Skáldareit að baki Þingvallakirkju og stendur yfir i 30—40 mínútur. Kl. 16.30 Tónleikar í Þingvallakirkju Yngveldur Ýr Jónsdóttir, messó- sópran, syngur við undirleik Bjarna Jónatanssonar. Kl. 21.00 Kvöldrölt. Gengið frá Flosagjá (Peningagjá) út á Spöngina, að Þingvallabæ og endað í kirkju. Mánudagur 4. ágúst Kl. 11.00 Leikið í Hvannagjá. Barnastund fyrir alla krakka, þar sem spjallað verður um náttúr- una og farið í leiki. Barnastund hefst við þjónustumiðstöð og tekur 1 — Vh klst. Kl. 13.00 Skógarkot. Gengið að eyðibýlinu Skógarkoti og fjallað um náttúru og búsetu í Þingvallahrauni. Gangan hefst við Flosagjá (Peningagjá) og tek- ur um 3 klst. Gjarnan má hafa með sér einhverja hressingu. Allar frekari upplýsingar veita landverðir 1' þjónustu- miðstöð þjóðgarðarins, sími 482 2660. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Vegna landsmóts hvítasunnu- manna í Kirkjulækjarkoti, Fljóts- hlíð, fellur samkoman niður sunnudagskvöld. Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Engin samkoma á morgun, sunnudag, vegna Sæludaga í Vatnaskógi. 4 MIIMIMIIMGAR MAGNUS AÐALBJARNARSON + Magnús Aðalbjarnarson fæddist á Unaósi í Hjalta- staðaþinghá í N-Múlasýslu 10. janúar 1927. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Sel- fossi 19. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Selfoss- kirkju 26. júlí. Mig langar að minnast Magnús- ar í örfáum orðum. Ég kynntist honum fyrst 2. janúar 1987 er ég mætti í fyrsta skipti í vinnu hjá Bifreiðasmiðju KA sem var og hét. Ég var frekar feimin og óframfærin enda ekki nema 17 ára gömul. En Magnús var fljótur að laga það, hann sagði við mig að ef ég gæti ekki þolað talsmát- ann og stríðnina á þessum vinnu- stað þá gæti ég allt eins farið heim. Mér brá, en svo var ég nokk- uð fljót að átta mig á stríðninni í honum. Ég vann hjá Magnúsi til okt- óberloka 1994 og líkaði vel, hann var hafsjór af fróðleik og það var auðvelt að fá hann til að segja frá einhverju ef hann hafði tíma og sögurnar sumar voru stórkostleg- ar. Svo var hann ekki spar á ráð- leggingar allt frá þvottavélakaup- um og upp í húsakaup. Ég sakn- aði þess að þurfa að flytja mig til innan fyrirtækisins og missa af öllu fjörinu í smiðjunum, en það vandist. Svo komu veikindin, það var erfitt að horfa upp á stóran og stæðilegan mann verða að engu. Ég vil bara þakka fyrir að hafa fengið að kynnast svo merkum manni sem Magnús var. Elsku Dísa, ég sendi þér og fjöl- skyldunni mínar innilegustu samúðarkveðjur. Minning Magnús- ar lifir. Sigrún Sveinsdóttir. ■■“SfeSÖ* AUSTURSTRÆTI • GLÆSIBÆ • LAUGALÆK • LAGMULA SPORHÖMRUM • LANGARIMA • ENGIHJALLA SETBERGSHVERFIOG FIRÐIHAFNARFIRÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.