Morgunblaðið - 02.08.1997, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 02.08.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ VIKU m LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997 27 KYNLÍF, áfengi og eiturlyf eru þættir sem fólk hefur tengt yið rokktónlist og rokktónlist- ai-menn um áratugaskeið, nánast frá upphafi. Otal margir tónlistarmenn hafa gei-t lítið til að kveða niður slíka drauga og raunar frekar mulið undir þá með lauslæti, brambolti á hótelher- bergjum, siðleysi á sviði og annað hvort tíðum fíkniefnameðferðum eða andláti langt fyrir aldur fram. „Rokk er tónlist djöfulsins," hafa ýmsir trúar- ofstækismenn haft að einkunnarorð- um. Fyrir skömmu spiluðu nokkrar af vinsælustu hljómsveitum yngri kyn- slóðarinnar hérlendis á tónleikum í Njálsbúð fyrir fullu húsi, og þar á með- al Soma, liðlega árs gömul sveit úr Reykjavík. Nafnið Soma er sótt í fram- tíðarsýn Aldous Huxley, Veröld ný og góð, en þar er soma algleymislyf sem framleitt er og dreift með blessun stjórnvalda, eins konar framtíðarsam- sull af E-töflunni og prozac, pilla sem veitir „óendanlegan unað“, og eykur eins og í bókinni segir, „vellíðan og þægilegar ofskynjanir... Allir kostir kristindóms og alkóhóls, en engir ókostir þeirra... Eitt gramm á dag kemur skapinu í lag... Ast er eins góð ogsoma o.s.frv." (Sem mótvægi við þetta „hamingju- lyf“ rekur komandi Alheimsríkið þá stefnu að senda vandræðagemlinga^ í útlegð tii versta hugsanlega staðar; ís- lands. Þegar ein aðalpersóna bókarinn- ar íyllist skyndiiega of stórum skammti af sjálfstrausti, er þess sérstaklega get> ið að „hann treysti sér til að standast allar píslir, jafnvel það að vera sendur til íslands.") Auk þess að sækja nafnið til vímuefnis framtíðar, getur að líta á nýútkominni frumsmíð hljómsveitarinnar, geislaplötunni Föl, ljósmyndir af hljómsveitarmeðlimum sem benda til að þeir eigi lágmark tíu ár að baki með sprautunálar í æðum. Þær hugmyndir sem þetta vekur sam- anlagt, reynast þó ekki stálstyrktar þegar grannt er skoðað: Meðalaldur sexmenninganna í Soma er 25 ár og í eigin persónu virðist æskuljóminn mun skærari en á áður- nefndum ljósmyndum; þeir sýnast raunar líklegri til að hafa áhuga á möguleikum al- netsins en að fylla sig eitri. Frekari athugun rennur stoðum undir þá skoðun og þá vaknar sú spurning, hvort rokkið hafi misst allt svínarí- ið sem gerði það alræmt? „Ég held að það sé ekki meira dóp í tónlistarheimin- um en annars staðar og það er áreiðanlegt að dópsalar til að borga bamapíunni," segir hann og fær að launum hlátrasköll félaga sinna, sem virðast draga þessa stað- hæfíngu í efa. „Enginn vandar sig í stöðugri vímu,“ bætir þó bassaleikarinn Kristinn (Kiddi) við og hljómborðsleikarinn Þorlákur (Þorri) tekur undir það sjón- armið. „Við lítum ekki út eins og englar á plötuumslaginu en það er hel- ber tilviljun sem verður að þakka Ijós- myndaranum; við settumst ekki niður með auglýsingastofu og ákváðum að líta út fyrir að vera dimmir og dóplegir," segir hann. Strákarn- ir eru allir í fullu starfí með hijómsveitinni en segja hana frek- ar vera annað starf en áhugamál, tíma- freka og dýra aukavinnu. Þess utan er nóg að gera og Ijóst að flestar fyrri vonir um að bendla þessa rokkara við svaðið eru haldlitlai-. Þeir koma að vísu hver úr sinni áttinni, en segja fjöl- breytnina styrkja Soma: „Stelpurnar sýna tímanum sem við verjum í hljómsveitina og öllu því sem henni fylgir ótrúlegan skilning, þótt hann sé stundum með þeim formerkj- um að þær vildu frekar að við eyddum þessum stundum með þeim. En þær binda okkur ekki við rúmstokkinn,“ segir Mummi. Snorri segir einkalífið hljóta á stundum að sitja á hakanum þegar menn sinna í raun tveimur störfum, en séu þeir tilneyddir að velja hljóti fjölskyldan auðvitað að vera í fyrir- rúmi. „Við höfum misst bassaleikara vegna þess ^ að fjölskyldan setti hon- | um stólinn fyrir dyrnar, “ og þó okkur þætti það leitt sýndum við því samt 1 skilning," segir Halli. :§ „Stelpurnar eru líka | gríðarlega duglegar að sækja tónleika hjá okkur ÞAÐ er aldrei að vita nema áhugaverðir fuglar vei-ði á vegi inanns hvort sem er á ströndinni eða uppi í sveit. Þvf er fyrirtakshugmynd að taka sjónauka með í ferðalagið. Þessum handhæga sjdnauka er hægt að smeygja í beltið þannig að hann er ekki byrði í gönguferðum. Sjónaukinn fæst í Glcraugnamiðatöðinni. Laugavegj 24, og- kostar 3.950 kr. myndavél í ferðalagið. Hægt er að skoða aftan á vélinni um leið og henda þannig strax dnýtum myndum. Vélin er svo tengd við tölvu og tæmd. Þar er hægt að skoða myndirnar og vinna þær. Fljötlegasta ieiðin til að leyfa öðrum að skoða inyndirnar er svo að setja þær á heimasíðuna. Þannig geta vinir og vandamenn notið mynda úr ferðalaginu um leið og því lýkur. Myndavólin er af tegundinni Olympus C-800 L og er ein sú bcsta á markaðnum í dag. Hún geymir 30 myndir með upp- lausninni 1024X768 eða 120 með upp- lausninni 512X384. Hún fæst í verslun- inni H^ómco og kostar 98.900 kr. hæglátir heima þræða ekki tónleikastaði í von um að búa til viðsldpta- vini úr hljómsveitum. í tón- listinni er meira drukkið, en samt ekki meira en hjá niörgum öðrum stéttum. Þegar Soma var að byija voru partí fyrir og eftir tón- leika algeng en eftir því sem tíminn líður tökum við tón- listina öðrum tökum og aginn er meiri. Þess vegna erum við ekki alltaf af sukka og svína,“ segir Halldór Sölvi (Halli), gít- arleikari. Hinn gítarleikarinn, Snorri, seg- ir líka gríðarlega þreytandi að drekka í hvert skipti sem tón- leikar eru haldnir og menn endist ekki lengi í faginu ofurölvi. Ofneysla áfengis komi niður á spilamennskunni og því hafi sú regla verið sett snemma að blanda þessu tvennu ekki saman. „Þótt maður djöflist á sviðinu þarf ekki að vera annað en blóð í æðunum. Við fáum okkur í mesta lagi einn eða tvo bjóra þegar við spilum, á meðan áheyrendur sloka í sig fimm könnum,“ segir Guð- mundur Annas, (Mummi) söngvari. Jónas trommuleikari bendir sömu- leiðis á þá staðreynd að fimm af sex hljómsveitarmeðlimum eru í sambúð, þar af tveir orðnir pabbar og sá þriðji uppeldisfaðir, sem sé ekki „sukkhvetj- andi“. „Þetta gerir okkur frábrugðna mörgum öðrum ungum hljómsveitum. Þegar við komum niður af sviðinu byrjum við ekki að svipast um eftir sextán ára stelpum heldur förum heim og hafa talað um hversu fegnar þær eru að fíla tón- listina, enda væri hinn kosturinn hræðilegur,“ segir Jónas. Þorri rifjar upp að kærasta hans hafi verið taugaóstyrk áður en hún mætti í fyrsta skipti á tón- leika hjá Soma, því hún óttaðist að líka illa við tón- hstina og sá fyrir sér margvísleg vandkvæði sem þvi gæti fylgt. Sá ótti reyndist ástæðulaus. „Stelpurnar skilja líka hvaða þýð- ingu hljómsveitin hefur fyrir sálrænu hliðina, því staðreyndin er sú að eftir því sem meira er að gera hjá hljóm- sveitinni er andlega þreytan minni," segir Snorri. „Lífíð snýst um að gera eitthvað, ekki sitja heima og horfa á sjónvarpið." Þeir segjast leika melódískt rokk sem sé hvorki ógnarþungt né ofurlétt og endurspegli um margt þeirra eigin eftirlætistónlist og nefna í snatri nöfn á borð við Radi- ohead, Pixies, Velvet Underground, R.E.M., David Bowie og Smashing Pumpkins. „Við viljum búa til tónlist sem er ekki einnota, tónlist sem bygg- ist ekki á hæ hó og jibbijeí og sum- arsmellum, heldur tónlist sem fólk get- ur bæði dansað við á tónleikum og hlustað á heima án þess að sjóða í sér heilann. Fólk á að njóta kynlífs, hugsa og starfa og hlusta á Soma og engar aukaverkanir, alveg eins og hjá Soma.“ BLESSUÐ sdlin elskar allt kvað Páll Ólafsson. Nýjustu rannstíknir herma hins vegar að fátt sé hættulegra en geislar sdlar og því er bráðnauðsynlegt að taka sdlarvörn með í ferðalagið. Þeir sem vilja samt sem áð- ur fá lit á húðina þurfa ekki að örvænta, brúnkukremin bjarga því. Vörurnar eru frá Clinique, sölarvörn á líkantann kostar 1.175 kr., vörn á andlitið 1.375 kr. og brúnkukrem fyrir lfkama og andlit 1.375 kr.. ÉE FER í FRUÐ NÚ ER aðalferðatími árs- ins og ekki seinna vænna að leggja land undir fót. Ferðamáti fólks er misjafn og eins hvort fólk kýs að ferðast innanlands eða utan. En farangur fylgir ferða- löngum hvert sem leiðin liggur. Fatnaður í ferðalag- ið ræðst vitaskuld af því í hvers konar för skal haldið. Það eru hins vegar ákveðnir hlutir sem eru ómissandi hvert sem haldið er og í hvers konar ferð er farið. Sigríður B. Tómasdóttir fór á stúfana og fann til nokkra hluti sem eru nauðsynlegir í ferðalagið árið 1997. i eður ei 1 einnig augun sem er vitaskuld hið besta mál. Þessi gleraugu fást í versluninni Auganu í KringlunnÍ. Gucci kr. 10.260, Brendel kr. 11.980.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.