Morgunblaðið - 02.08.1997, Page 50

Morgunblaðið - 02.08.1997, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1997_____________________ MINNINGAR ARNÞÓRINGI SIG URÐSSON + Arnþór Ingi Sigurðsson fæddist í Reylqavík 17. mars 1978. Hann lést af slys- förum á Reyðar- firði aðfaranótt 26. júlí. Foreldrar hans eru Erna Arnþórs- dóttir, f. 15. mars 1954, og Sigurður Eiríkur Aðalsteins- son, f. 19. mai 1953. r Bróðir Arnþórs Inga er Sigurður Örn, f. 8. júlí 1982. Útför Arnþórs Inga fer fram frá Reyðarfjarð- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðist getur lánið frá morgni til kvelds. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. Elsku Addi, alltaf varst þú kátur og hress þegar þú komst til afa og ömmu og hvenær sem við hittum þig. Nú ert þú horfinn frá okkur en við eigum minningarnar eftir góðar og ljúfar, og þær geymum við í hjörtum okkar. Við biðjum Guð að gæta þín. Aldrei mætzt í síðsta sinni sannir Jesú vinir fá. Hrellda sál, það haf í minni harmakveðju stundum á. Þótt vér sjáumst oftar eigi . undir sól, er skín oss hér, á þeim mikla dýrðardegi Drottins aftur finnumst vér. Elsku Ema, Siggi og Siggi Öm, megi góður Guð styrkja ykkur og styðja, og okkur öll í þessari sorg. Afi og amma, Heiðarvegi 13. Það er erfitt að tjá þær minning- ar sem streyma í gegnum hugann á svona stundum. Við sem höfum þekkt þig frá því þú fæddist; sökn- uður okkar er sár. Eftir situr í hjarta okkar minningin um góðan og ljúf- an dreng. Elsku Addi, Guð geymi þig. ■ Nú, pð, ég von’að gefi, af gæsku sinni frið, að sársaukann hann sefi, af sálu allri bið. Og þó að sárt sé saknað, og sól sé bakvið ský, þá vonir geti vaknað, og vermt okkur á ný. Þá ljósið oss mun leiða, með ljúfum minningum, og götur okkar greiða, með góðum hugsunum. (I.T.) Elsku Siggi, Erna, Siggi Örn og aðrir ástvinir, megi Guð styrkja ■okkur öll i þessari miklu sorg. Föðursystkini og fjölskyldur þeirra. Mikið eru örlögin einkennileg og miskunnarlaus, hugsaði ég þegar mér barst sú frétt að hann Addi frændi minn hefði látist af slysför- um aðfaranótt 26. júlí. í fyrstu neitar maður að trúa þessu, örvænt- ingin og vonbrigðin hellast yfir mann. En maður fær víst engu breytt, maður verður að horfast í augu við þessa hræðilegu stað- reypd. Ég man þegar ég talaði við Adda nú í síðustu viku. Eins og oft áður þá barst tal okkar að knattspýrnu. Hann spurði hvenær ég kæmi aust- ur til að spila fóbolta við sig og Sigga bróður sinn. Því oft höfðum við spilað og þá aðallega hjá afa á * Heiðarvegi 1. Addi var mikill áhugamaður um knatt- spymu enda var hann mjög efnilegur knatt- spymumaður. Inni á vellinum var hann leik- inn og útsjónarsamur og þau vom ekki fá mörkin sem hann skor- aði með glæsibrag fyrir Val. Þó svo Addi væri hættur að æfa knatt- spyrnu fylgdist hann vel með. Það vom ekki ófáar stundirnar sem hann fór á völlinn og þá aðallega til að horfa á Sigga bróður sinn sem hann hvatti og studdi ávallt, enda ríkti mikill kærleikur á milli þeirra bræðra. Það er svo margt sem mig lang- aði að segja um þennan kæra frænda minn, sem kvaddi þennan heim svo skyndilega og langt um aldur fram. Elsku systir, mágur, Siggi, afi og amma á Heiðarvegi 1 svo og aðrir ættingjar og vinir. Megi góður Guð styrkja ykkur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri treptárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Agnar Arnþórsson. Laugardaginn síðasta barst mér til eyma sú hörmulega frétt að fyrr- um nemandi minn, Arnþór Ingi Sig- urðsson, aðeins 19 ára gamall, væri dáinn. Ólýsanleg tilfinning greip mig og ég fylltist reiði yfir óréttlæti þessa heims. Ungmenni í blóma lífsins hrifið burt úr okkar litla samfélagi og við skilin eftir með sorgina. Þessi glaðlyndi og kraftmikli strákur, sem lauk skólanum hjá mér með prýðisárangri fyrir þremur árum, horfinn burt og minningin ein eftir. Arnþór, eða Addi eins og hann var kallaður, átti góðar gáf- ur, var duglegur til vinnu og mikill íþróttamaður, hæfíleikastrákur sem átti svo margt ógert. Hann reyndist mér ljúfur og samviskusamur nem- andi en átti eins og aðrir strákar sín strákapör og gat verið snöggur upp á lagið, en það risti aldrei djúpt og það var ætíð stutt í brosið. Hann hafði óstöðvandi áhuga á fótbolta og var mikill boltamaður, eldsnögg- ur og teknískur. En því miður fékk Addi ekki notið sinna guðsgjafa lengur en raun ber vitni. Grimm örlög gripu í taumana og gerðu að engu framtíðardrauma. Já, það er erfitt að sætta sig við að hann Addi sé horfinn úr þessum heimi á fund æðri máttarvalda, en ég er þakklátur fyrir að hafa feng- ið að kynnast þessum góða dreng og bið guð að geyma hann undir sínum vemdarvæng. Ég bið góðan guð að blessa og styrkja alla sem nú eiga um sárt að binda, foreldr- ana Sigurð og Ernu og Sigurð Öm bróður hans, afana og ömmurnar, skyldmennin öll og alla hans góðu vini. Þóroddur Helgason skólastjóri Bekkjarfélagi okkar og vinur, Addi, er dáinn svo alltof snemma. Með nokkrum fátæklegum orðum viljum við kveðja góðan dreng. Þegar við fréttum lát Adda varð það okkur öllum mjög mikið áfall og við erum varla farin að trúa þessu ennþá. Nú, þegar við emm hætt að sjá honum bregða fyrir gemm við okkur grein fyrir því hve mikilvægur hann var í okkar dag- lega lífi. Öll munum við eftir honum sem glaðlegum strák sem var alltaf á fleygiferð við hvað sem hann fékkst. Fótbolti var hans aðal- áhugamál og hafði hann mikla hæfileika á því sviði. Addi var alltaf mikill Liverpool-aðdáandi og fór tvisvar út til Englands til að fýlgj- ast með liðinu sínu. Hann hafði líka mikinn áhuga á tónlist og urðum við sérstaklega vör við það í skóla- ferðalaginu okkar þar sem Led Zeppelin og Deep Purple hljómuðu um alla rútuna. Addi átti auðvelt með að læra, var hörkuduglegur i vinnu og alltaf tilbúinn til að gera vinum sínum greiða. Söknuður okkar er mikill og sárt að hafa þennan góða vin ekki leng- ur meðal okkar. Við biðjum góðan Guð að vemda Adda og blessa og styrkja foreldra hans, Sigurð og Ernu, Sigga bróður hans sem og aðra ættingja og vini. Af eilífðarljósi bjarmann ber sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Bekkjarfélagar úr Grunn- skóla Reyðarfjarðar. Enn hefur verið reitt til höggs. Enn einn ungur maður verið kallað- ur burt úr faðmi ástvina og félaga. Alla setur hljóða og í huga okkar gerist spurningin áleitin: Hvers vegna? Æskan á að erfa landið og því er erfitt að sætta sig við að kallað hafí verið eftir unglingi sem enn var að leita sinnar leiðar en átti um svo margar að velja. Þegar við fréttum af láti Adda tóku að hrannast upp i hugann myndir tengdar skólagöngu hans. Myndir frá því hann kom fyrst í 6 ára bekk, lítill, brosandi og ákveð- inn í að standa sig og síðan enn fleiri myndir sem spanna skóla- göngu hans við Grunnskóla Reyðar- fjarðar. Strax skipaði hann ákveðinn sess meðal bekkjarfélaganna sem allir virtu og öllum fannst sjálfsagður. í leikjum og íþróttum var hann jafn- an í forystu og einnig veittist honum nám auðvelt. Hann var samvisku- samur og natinn og skýr er af hon- um myndin þar sem hann situr við borðið sitt einbeittur, með saman- bitnar tennur við að leysa verkefni sín. Slíkar myndir er að fínna í huga sérhvers kennara og á stundum sem þessum eru það dýrmætustu minn- ingarnar. Að fá sem kennari að fylgjast með barni vaxa úr grasi og verða að unglingi og síðar full- orðnum einstaklingi eru ákveðin forréttindi. Því erfiðara er þess vegna að þurfa líka að horfa á að lífinu ljúki svo snemma. Að ungum hæfíleikaríkum og réttsýnum dreng skuli ekki lengur auðnast að taka þátt í leik og starfí félaganna. Vera hrifsaður úr faðmi ástríkrar íjöl- skyldu, þar sem hann skipaði svo stóran sess hjá foreldrum, bróður og öfum sínum og ömmum. Á þessari sorgarstund biðjum við Guð að styrkja Sigga, Ernu, Sigurð Örn og aðra ættingja og vini. Myndirnar af góðum dreng geymum við í huga okkar og biðjum honum góðrar heimkomu í faðm Guðs. Halldóra og Hilmar. Rauðir lokkar, freknur á nefi og fallegt bros. Þetta er myndin sem ég mun geyma í minningunni um hann Adda litla sem við gjarnan kölluðum hann. Það settist sorg að hjarta þegar mér bárust þær fregn- ir að hann væri dáinn. Aðeins 19 ára gamall kvaddi hann þetta jarð- líf og þær sækja á hugann ein af annarri minningarnar frá liðnum árum þegar hann lék sér kátur og hress við stelpurnar mínar. Ég bið Guð að styrkja ættingja og vini. Elsku Erna, Siggi og Siggi, engin orð geta tjáð samúð mína en ég vil trúa að tíminn lækni öll sár hægt og hægt og bið þess að svo verði einnig nú. Með þakklæti fyrir góðar sam- verustundir kveð ég ljúfan dreng. Margrét Traustadóttir. Það fyrsta sem kom upp í huga mér þegar ég fékk þær sorglegu fréttir að vinur minn, Amþór Ingi, væri dáinn var af hveiju? En það var ekki aftur snúið, hvernig þú varst farinn burt og þá ennþá lengra í burtu frá mér. Þó að þú sért farinn ferðu aldrei burt úr huga mínum og ég ætla að reyna gera mitt besta til að skilja þig og það sem gerðist. Það er sárt að hugsa til þess að ég eigi aldrei eftir að sjá þig aftur en ég verð samt að sætta mig við það sem er og verður. Ég trúi því að við eigum eftir að ná saman aftur og þá þar sem okkur líður vonandi báðum vel. Ég vil bara að þú vitir, að þú átt alltaf eftir að eiga sérstakan stað í hjarta mínu og allar þær stundir sem við áttum saman verða ofarlega í huga mér, sem og góðar minningar; sem við munum alltaf eiga saman þó svo að leiðir okkar skilji um tíma. Eg vil biðja góðan Guð að vernda og styrkja alla þína ættingja og vini. Elsku Erna, Siggi og Siggi, megi góður Guð og allt sem í hans valdi er styrkja ykkur í gegnum þessa þungu raun. Ég ætla að kveðja góðan vin með hluta úr ljóði eftir Stein Steinarr: Og ég sem drykklangt drúpi höfði, yfir dauðans ró, hvort er ég heldur hann sem eftir lifír eða hinn sem dó? Blessuð sé minning þín. Þín, Stella Mjöll. Það var sárt að heyra að Addi frændi væri dáinn. Hann sem alltaf var svo góður og skemmtilegur. Við viljum minnast hans með þess- um sálmi: Ó, þá náð að eiga Jesúm einkavin í hverri þraut. Ó, þá heill að halla mega höfði sínu í Drottins skaut. Ó, það slys því hnossi að hafna, hvílikt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í Drottins skaut, Eigir þú við böl að búa, bíðir freistni, sorg og þraut, óttast ekki, bænin ber oss beina leið í Drottins skaut. Hver á betri hjálp í nauðum? Hver á slíkan vin á braut, hjartans vin, sem hjartað þekkir? Höllum oss í Drottins skaut. Ef vér berum harm í hjarta, hryggilega dauðans þraut, þá hvað helst er Herrann Jesús hjartans fró og líknar skaut. Vilji bregðast vinir þínir, verðirðu einn á kaldri braut, flýt þér þá að halla og hneigja höfuð þreytt í Drottins skaut. (Matthías Jochumsson.) Elsku Erna, Siggi eldri, Siggi yngri, amma Sigga, Addi afi og allir aðrir. Við ætlum að halda áfram að biðja Guð að styrkja ykk- ur og að hjálpa Adda frænda. Sigga, Lilja og Eiríkur Viðar. Með þessum örfáu orðum viljum við kveðja ástkæran vin okkar, Amþór Inga Sigurðsson, sem féll frá laugardaginn 26. júlí síðastlið- inn. Það er alltaf mikill missir að missa góðan vin, sérstaklega í svona litlu bæjarfélagi þar sem all- ir eru frekar samrýndir. Addi eins og hann var kallaður var virkur þátttakandi í félags- og íþróttalífi bæjarins og þá einkum í knattspyrnu þar sem hann var mjög hæfileikaríkur og einn dyggasti stuðningsmaður KVA-liðsins. Lýs- andi dæmi um það er ferðalag sem handboltaliðið fór til Akureyrar síð- astliðið ár þar sem hann var eini stuðningsmaður liðsins á móti fullu húsi af Þórsumm og mátti varla á milli sjá hvorir hefðu sig meira í frammi í hvatningarópum. Allir höfðu mikla ánægju af nær- veru hans þar sem hann hafði ein- stakt lag á að koma öllum í gott skap með framkomu sinni og litrík- um persónuleika bæði í leik og starfí. Þar sem fráfall Adda bar svo brátt að gafst okkur aldrei tími til að segja honum hvað við virtum hann að verðleikum og hversu vin- átta hans var okkur mikils virði. Elsku Sigurði, Ernu, Sigurði Erni, ættingjum og vinum vottum við okkar dýpstu samúð og megi Guð vera með ykkur í þessari miklu sorg. Steinar ísfeld, Helgi Seljan og Þorsteinn Einarsson. Afmælis- ogminn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningargreina birtist daglega í Morgunblað- inu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skai eftirfarandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama ein- stakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínu- bil og hæfílega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem íjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki i greinunum sjálf- um. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.