Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikil röskun á samgöngum og skemmdir á eignum í óveðrinu
Morgunblaðið/RAX
TVEIR bflar stórskemmdust og a.m.k. fjórir aðrir urðu fyrir nokkrum skemmdum þegar vinnupallur við flugturninn á Reykjavíkurflugvelli fauk og
hrundi niður í gærmorgun. Slys urðu ekki á mönnum.
Dýpsta september-
læg'ðin frá árinu 1900
Lægðin sem gekk yfir landið á sunnudag-
inn og í gær var sú dýpsta sem sögur fara
af á landinu í septembermánuði frá árinu
1900, eða um 953 millibör, að sögn Einars
Sveinbjörnssonar, veðurfræðings. Hann
segir lægðina einna helst líkjast kröftug-
um miðsvetrarlægðum.
MIKIL röskun varð í óveðrinu á
innanlandsflugi, rafmagnsstaurar
brotnuðu í Hjaltastaðaþinghá og í
Jökulsárhlíð, hlaða sprakk á Borg-
arfirði eystra og plötumar fuku um
allt, bflar skemmdust þegar vinnu-
pallar hrundu ofan á þá við flug-
turninn á Reykjavíkurflugvelli og
kanadísk herflugvél fór út af braut-
inni á Keflavíkurflugvelli.
Einar segir að lægðin, sem var
mjög djúp og vatnsþrungin, hafi
komið upp að landinu á sunnudag
með suðaustan- og austanátt.
Lægðarmiðjan hafi svo farið norður
með fyrir vestan landið í fyrrinótt
og vindur snúist til vestanáttar,
fyrst sunnanlands. Síðan hafi vind
hert af alvöru í gærmorgun um
land allt, og víða farið í 9-10 vind-
stig og sumstaðar jafnvel 11, eink-
um til fjalla. „Þar sem þessi vestan-
átt slær sér niður hlémegin fjalla
verður vindur oft mjög byljóttur,
eins og í Skagafirði, víða á Aust-
fjörðum og í Jökulsárhlíð," segir
hann.
Skaplegt veður í dag
Lægðarmiðjan fyrir norðan land-
ið fór að grynnast síðdegis í gær og
dró þá kaldara loft inn á Vestfirði,
þar sem fór að snjóa um hádegisbil-
ið og var víða hált á vegum. Víða á
hálendinu var mikið moldrok og
sandfok. Af þeim sökum var til
dæmis ekki nema um 500 metra
skyggni á Grímsstöðum á Fjöllum
um miðjan dag í gær.
Einar gerði ráð fyrir að veðrið
myndi ganga niður í nótt og í morg-
un, og verða skaplegt víðast hvar á
landinu í dag en þó rigning allra
syðst. í kvöld myndi svo ganga í
norðanátt með kólnandi veðri.
Næstu daga er útlit fyrir nokkuð
rysjótt veður.
Mikil röskun
á innanlandsflugi
Mikil röskun varð á flugi innan-
lands í gær. Snemma í gærmorgun
flugu þó vélar frá íslandsflugi til
Akureyrar, Sauðárkróks, ísafjarð-
ar og Bfldudals en önnur vél sem
lagði af stað á Isafjörð eftir hádegið
varð að snúa við og lenda í Reykja-
vík. Undir kvöld var flogið á Sauð-
árkrók og frá Vestmannaeyjum og
til baka en öðru flugi var aflýst.
Flugfélag Islands fór eina ferð til
Akureyrar í gærmorgun og aðra á
ísafjörð um hádegið en úr því var
ekkert hægt að fljúga fyrr en undir
kvöld. Þá stóð til að fara til Vest-
mannaeyja og á Sauðárkrók og
jafnvel á Húsavík og Hornafjörð.
I gærmorgun varð ófært yfir i
Mýrdalssand vegna sandfoks en
um miðjan dag var aftur orðið fært.
Þá var ófært yfir Möðrudalsöræfi
vegna mikils sandroks og þar voru
jafnvel steinar á flugi í 9-10 vind-
stigum, að sögn Pálma Jónssonar,
vegaeftirlitsmanns hjá Vegagerð
ríkisins. Á Holtavörðuheiði var
einnig verulega hvasst um miðjan
dag í gær, eða 10-11 vindstig.
Staurar brotna á Austurlandi
Staurastæða í stofnlínunni frá
Lagarfossvirkjun til Vopnafjarðar,
nánar tiltekið í Jökulsárhlíð, brotn-
aði um tíuleytið í gærmorgun í
norðvestanhvassviðri. Erfitt var að
vinna að viðgerð í gær vegna veð-
urs en að sögn Sigurðar Eymunds-
sonar, umdæmisstjóra RÁRIK á
Austurlandi, var Vopnafjarðar- |
svæðinu séð fyrir rafmagni með i
díselvélum. Unnið var að því að
flytja efni á staðinn í gær og undir- I
búa viðgerð, sem ráðgert var að
hefja snemma í morgun. Sigurður
sagði vonir standa til að viðgerð
yrði lokið um hádegi í dag. Á
sunnudag féll einnig staur um koll í
Hjaltastaðaþinghá og orsakaði
stráumléýsi þár í sveit í á þriðju
klukkustund.
Á bænum Bakka í Borgarfirði ,
eystra sprakk hlaða bókstaflega í |
loft upp í gær og dreifðust járnplöt-
umar um allt þorp og jafnvel út á '
sjó. Ekkert hey var í hlöðunni. Guð-
mundur Sveinsson, bóndi á Bakka,
telur að plata hafi losnað af hlöð-
unni rokmegin og þar sem hlaðan
hafí verið þétt hinumegin hafi eitt-
hvað orðið að láta undan. „Þannig
að hún hreinlega sprakk og steypt-
ur sjö metra hár stafn lagðist út af, .
rétt eins og maður leggur aftur >
Morgunblaðið,“ sagði Guðmundur. ;
Hann tók fram að veggurinn hefði k
verið rammlega jámbentur og hefði
átt að standast jarðskjálfta en hlað-
an hefði ekki staðist allt þetta loft,
sem blés inn í hana af miklum
krafti en komst hvergi út.
Rörið elti Danann
Þá lenti danskur ferðamaður í
hremmingum á Skeiðarársandi í k
hávaðaroki um hádegi á sunnudag
þegar rör úr ræsi kom fjúkandi á »
fleygiferð á eftir honum. Að sögn j
Önnu Maríu Ragnarsdóttur, hótel-
stjóra á Hótel Skaftafelli, gaf mað-
urinn í en það dugði ekki til, rörið
náði honum, klippti afturbrettið af
bflnum og skemmdi hann mikið.
Kanadísk herþota
fauk út í móa
Keflavík. Morgunblaðíð.
FLUGMENN kanadískrar her-
þotu lentu í erfiðleikum eftir
lendingu í suðvestanrokinu í
gærmorgun. Þegar verið var að
aka vélinni inn á flughlað eftir
lendingu misstu flugmennimir
sljóm á henni með þeim afleið-
ingum að vélin hafnaði úti í móa
og sat þar föst.
Slökkviliðsmenn vom fljótir til
og lögðu bílum sínum áveðurs til
að verja hana frá því að fjúka
aftur auk þess sem þeir settu
loftpúða undir vængina. Að sögn
Haralds Stefánssonar slökkviliðs-
stjóra má telja fullvíst að með því
móti hafi tekist að vetja vélina
frá vemlegum skemmdum.
Vélin, sem er af tegundinni
CL-60, var að koma frá Kanada
og millilenti á Keflavíkurflug-
veili. f henni vom 5 manns og
sakaði engan. Mjög hvasst var af
suðvestan þegar óhappið varð.
Vélin lenti á braut 29 sem liggur
frá austri til vesturs. Henni var
siðan ekið eftir akstursbraut
flugvéla sem liggur meðfram
norður-suður flugbrautinni. Þar
misstu flugmennimir vélina út af
til hægri og þegar þeir keyrðu
hana inn á akstursbrautina aftur
flaug hún nánast út af hinum
megin.
Slökkviliðið náði vélinni upp
síðdegis með því að lyfta lienni
upp með loftpúðum og síðan var
hún dregin upp á brautina aftur.
Talið er að litlar sem engar
skemmdir hafi orðið á vélinni.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
SLÖKKVILIÐSMENN á Keflavíkurflugvelli vinna við að ná vélinni upp í gær.