Morgunblaðið - 30.09.1997, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Breytingar á útreikningum kynbótamats
Hæstu hrossin
lækka í einkunn
NÝTT kynbótamat hefur litið
dagsins ljós hjá Bændasamtökum
íslands að loknum kynbótadómum
ársins. Breytingar hafa verið gerð-
ar á útreikningum matsins og
sagði Kristinn Hugason hrossa-
ræktarráðunautur að mat á arf-
gengi eiginleikanna hafi verið end-
urskoðað og telur hann þetta án
nokkkurs efa traustasta mat á
arfgenginu sem gert hafi verið til
þessa. Arfgengi flestra eiginleika
væri hærra en í fyrri útreikningum
og sagði Kristinn það vera beina
afleiðingu af þremur atriðum. í
fyrsta lagi vegna aukinnar teygni
einkunna, öðru lagi vegna aukinn-
ar samhæfingar við dómsstörf og
að síðustu nefndi hann bættar sýn-
ingar knapa.
Allt þetta sagði Kristinn að
væri lagt til grundvallar í nýju
útreikingunum og hefði þau áhrif
að kynbótamatið tæki nú meira
mið af sjálfum einstaklingnum og
frammistöðu hans en minna af
afrekum ættingja. Þá sagði Krist-
inn að tekið hefði verið á tölfræði-
legum annmörkum fýrri útreikn-
inga sem hefðu legið annars vegar
í mjög háum einkunnum fýrir ein-
stök atriði og svo aftur mjög lágum
einkunnum. Hefði þetta verið út
fyrir skekkjumörk í fýrri útreikn-
ingum. Þessar breytingar sem
gerðar hafa verið valda því að efstu
hrossin lækka heldur í aðaleinkunn
en lægstu hrossin hækka.
Mörk til heiðursverðlauna
líklega lækkuð
Taldi Kristinn víst að mörgum
brygði í brún þegar þeir sæju ein-
kunnir hæstu hrossanna en hann
benti á að viðmiðunarmörk til af-
kvæmaverðlauna yrðu líklega
lækkuð til samræmis við nýja út-
reikninga þannig að ekki verði
breyting á þeim fjölda sem nær
verðlaunastigum fyrir afkvæmi.
Líklega yrðu mörk stóðhesta til
heiðursverðlauna 120 stig í stað
125 áður. Kristinn kvaðst sann-
færður um að hér væri á ferðinni
vandaðasta kynbótamat sem sett
hefði varið fram til þessa.
Nokkrar breytingar hafa orðið
á röð efstu hrossa en í heildina séð
er ekki um miklar breytingar á röð
að ræða. Efstur stóðhesta með
fleiri en 50 afkvæmi er sem fyrr
Orri frá Þúfu með 135 stig fyrir
62 dæmd afkvæmi, Þokki frá Garði
kemur næstur með 126/80 d. afkv.
3. Stígandi frá Sauðárkróki er með
123/59, 4. Stígur frá Kjartansstöð-
um 122/90, 5. Angi frá Laugar-
vatni, 121/71, 6. Hrafn frá Holts-
múla 121/406, 7. Kolfinnur frá
Kjarnholtum 121/61, 8. Gassi frá
Vorsabæ, 120/69, 9. Kjarval frá
Sauðárkróki, 120/130 og 10.
Snældu Blesi frá Árgerði, 119/55.
Kraflar til alls
líklegur
í flokki stóðhesta með 15 til 49
dæmd afkvæmi hefur Kraflar frá
Miðsitju tekið afgerandi forystu,
er með 133 stig fyrir 17 afkvæmi.
Virðist hann hesta líklegastur til
að veita Orra einhveija keppni á
næstu árum. Annar er Toppur frá
Eyjólfsstöðum 127/21, 3. Baldur
frá Bakka 127/27, 4. Safír frá
Viðvík 126/18, 5. Sólon frá Hóli
122/19, 6. Atli frá Skörðugili
121/16, 7. Hjörtur frá Tjörn
120/22, 8. Piltur frá Sperðli
119/19, 9. Hektor frá Akureyri
119/19 og Amor frá Keldudal
118/26.
Af yngri hestunum sem eru með
15 eða færri afkvæmi stendur efst-
ur Hljómur frá Brún með 135 stig
fyrir 7 afkvæmi, 2. Trostan frá
Kjartansstöðum 134/8, 3. Númi
frá Þóroddsstöðum 134/0, 4. Ham-
ur frá Þóroddsstöðum 132/0, 5.
Höldur frá Brún 132/9, 6. Kol-
skeggur frá Kjarnholtum 131/3,
T. Stefnir frá Ketilsstöðum 130/0,
Nökkvi frá Vestra Geldingaholti
129/1 og Straumur frá Vogum
129/0.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
FJOLDI góðra hrossa undan Kraflari frá Miðsitju voru sýnd í
sumar og hafa tryggt honum fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og
mjög góða stöðu í kynbótamatinu.
í flokki hryssa hriktir orðið í stoð-
um Hólaveldisins en hryssur þaðan
hafa einokað efstu sætin undanfar-
in ár. Rauðhetta frá Kirkjubæ er
nú komin í efsta sæti með 136 stig,
2. Þrenna frá Hólum 136, 3. Þrá
frá Hólum 133, 4. Lokkadís frá
Feti 133, 5. Þóra frá Hólum 133,
6. Gylling frá Hafnarfirði 132, 7.
Orða frá Víðivöllum fremri 131, 8.
Þota frá Akurgerði 131, 9. Þröm
frá Hólum 131 og Hrafndís frá
Reykjavík tíunda með 130. Tölvan
raðar sjáif samkvæmt aukastöðum
þar sem hross eru jöfn.
Valdimar Kristinsson
H é r e r tá
a ð ti ú er
í viðskiptu