Morgunblaðið - 30.09.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDBÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 13
U mfer ðar öry ggis
átak í Borgarnesi
Boi'garnesi - í sumar hafa slysa-
varnakonur í Borgarnesi staðið fyrir
umferðaröryggisdögum í Borgarnesi
og nágrenni í samvinnu við lögregl-
una og umferðaröryggisnefnd.
Stilltu konurnar sér m.a. upp með
sérstök varúðarskilti á stöðum norð-
an Borgarness, þar sem orðið hafa
alvarleg umferðarslys á liðnum
árum. Sýndu vegfarendur þessu
framtaki mikla athygli, að sögn
slysavarnakvenna, og hægðu flestir
ferðina og sumir spenntu á sig bíl-
beltin um leið og þeir óku fram hjá.
Þá var sett upp hraðamælingar-
skilti, svokallaður hraðaviti, á nokkr-
um stöðum í Borgarnesi. Á skiltinu
gátu ökumenn séð á hvaða hraða
þeir óku. Fram kom að full þörf var
á að minna ökumenn á leyfðan há-
markshraða á götum bæjarins, sér-
staklega í nánd við gangbrautir.
Hraðavitinn var fenginn að iáni hjá
Umferðarráði og hefur hann verið
settur upp víða um land.
Til að gefa þessari sýnilegu öku-
hraðamælingu aukið vægi var lög-
reglan öðru hvoru skammt undan
með sínar radarmælingar og voru
nokkrir ökumenn sektaðir sem óku
of hratt og tóku ekki mið af hraðavit-
anum.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi hafa álíka margir verið teknir
fyrir of hraðan akstur í umdæminu
og á sama tíma í fyrra eða rúmlega
500 ökumenn. En þó að fjöldinn sé
svipaður er töluvert hraðar ekið nú
í sumar, að mati lögreglumanna.
Fyrir nokkrum dögum var ökumaður
mældur á 143 km hraða og annar
á 152 km hraða, en sá sem hraðast
ók í sumar mældist á 165 km hraða.
Viðkomandi ökumenn voru að sjálf-
sögðu sviptir ökuleyfi í kjölfar mæl-
ingar.
Morgunblaðið/Theodór
HELGA Björk Bjarnadóttir
slysavarnakona við hraða-
gæslu á Borgarbraut í Borg-
arnesi.
SLYSAVARNAKONURNAR
Áslaug Þorvaldsdóttir og Jór-
unn Jónsdóttir við viðvörun-
arskilti ofan Borgarness.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
FRÁ útskrift húsasmíðasveina á Suðurlandi sem fram fór á dögunum. Frá vinstri: Örlygur Karlsson,
aðstoðarskólameistari F.Su., Árni Erlingsson, kennari við F.Su., Einar Magnússon, nýsveinn, Sigmund-
ur Ámundason, prófmeistari, Líney Kristinsdóttir, f.h. Bents Larsen, Hilmar Björnsson, formaður
meistarafélagsins, Magnús Þorbergsson, prófdómari, og Ármann Ægir Magnússon, formaður Sunniðnar.
Útskrift
húsasmíðasveina
Selfossi - Þrír sveinar í húsa-
smíði útskrifuðust frá Fjöl-
brautaskóla Suðurlands nú í
haust. Sveinarnir heita Einar
Magnússon, Bent Larsen
Fróðason og Ingvar Guðni
Brynjólfsson. Þeir eru allir frá
Selfossi. Það var Sigmundur
Ámundason, prófameistari,
sem afhenti sveinsbréfin. Það
kom fram í máli Ármanns
Ægis Magnússonar, formanns
Sunniðnar, sem er félag bygg-
ingarmanna á Suðurlandi, að
iðngreinar eigi undir högg að
sækja í dag. Armann talaði um
mikilvægi endurmenntunar og
hann kom einnig inn á félags-
mál byggingarmanna og mikil-
vægi þess að vera skráður í
stéttarfélag.
Örlygur Karlsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suð-
urlands, árnaði sveinunum og
fjölskyldum þeirra heilla og
talaði um mikilvæg tengsl
skóla og atvinnulífs.
4
w
Hvað táknar
þetta gulldebetkort?
Gull debetkort Landsbankatis táktiar
traust. Með þátttöku ( Vörðunni njóta
traustir viðskiptavinir betri fyrirgreiðslu
°g þjónustu með gulldebetkorti.
Hvað segir
þetta gulldebetkort
um þig?
Þú ert virkur viðskiptavinur og gerir
kröfu um að viðskipti þín séu metin
að verðleikum. Þú ert traustsins verður.
Hvað segir
jþetta gulldebetkort
um ba-nkatvn þinn?
Landsbankinn er í viðskiptum hjá þér.
Þín viðskipti eru metin að verðleikum og
bankinn ábyrgist þig.
Gulldebetkort
Traustið er hjá þér
ábyrgðiti er hjá okkur!
L
Landsbanki íslands
Einstaklingsviðskipti