Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 33 'r
MINNIIMGAR
RAGNHEIÐUR G.
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Ragnheiður G.
Guðmundsdótt-
ir fæddist í Hafnar-
firði 10. ágúst 1928.
Hún andaðist í
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 23. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ragnheiður
Magnúsdóttir, f. 11.
janúar 1899, d. 12.
desember 1974, og
Guðmundur Þ.
Magnússon, kaup-
maður, f. 26. okt.
1900, d. 25. apríl
1979. Systkini hennar voru
Guðbjörg, f. 25. sept. 1922, Sig-
urður f. 30. nóv. 1923, Jón M.,
f. 20. jan. 1926, látinn, Krislján,
f. 14. apríl 1927, hálfsystir sam-
feðra Unnur Breiðfjörð, f. 7.
sept. 1941. Fyrri maður Ragn-
heiðar var Matthías Þ. Guð-
mundsson með honum eign-
aðist hún tvö börn. 1) Magnús,
f. 7. júlí 1946, var kvæntur Sig-
rúnu Magnúsdóttur. Börn
þeirra eru Brynja f. 1969,
Magnús Rúnar, f. 1973, og eitt
barnabarn Arnar, f. 1989. 2)
Ragnheiður, f. 28. nóv. 1947,
maki Guðmundur Brandsson,
börn þeirra eru: Matthías, f.
CrfiscJrykkjur
M
Veitingohú/ið
GAn-mn
Síllli 555-4477
1965, d. 1992, Guð-
mundur Ragnar, f.
1967, Ragnheiður
Björg, f. 1971, Ægir
Örn, f. 1974, Örvar
Þór, f. 1977. Bama-
böm: Sara, f. 1990,
Guðmundur Ileiðar,
f. 1991, Inga Björk,
f. 1994. Seinni mað-
ur Ragnheiðar Ósk-
ar J. Sigurðsson, f.
2. febr. 1921 í Vest-
mannaeyjum. Þau
giftust 1. jan. 1952.
Börn þeirra eru: 1)
Björg Sigríður, f.
27. júlí 1954, var gift Birai Jóns-
syni. Börn þeirra em: Auður
Ragnheiður, f. 1972, Þóra
Perla, f. 1976, Óskar, f. 1978,
barnaböm Leifur, f. 1991,
Björn Axel, f. 1994, Arnór, f.
1996. 2) Guðmundur Óskar,
kvæntur Ágústu Sigurðardóttir
börn þeirra em: Iris Ósk, f.
1983, Óskar Jón, f. 1986, Aron
Heiðar, f. 1991. Fósturdóttir
Guðmundar er Guðrún Anna,
f. 1981. Ragnheiður vann við
verslunarstörf um árabil.
Útför Ragnheiðar fer fram
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í
dag og hefst athöfnin klukkan
15.
Ég ferðast og veit, hvert för mín stefnir á,
ég fer til Guðs himnesku landa,
ég fer, uns ég verð mínum frelsara hjá
og framar ei skilnaðarsorgin má
né annað neitt ástvinum granda.
Ég lifi nú þegar Drottni i dag,
ég dey, svo að erfi ég lífíð,
ég ferðast mót eilífum unaðarhag.
Hví er þá min sál ei með gleðibrag?
Ég á þegar eilífa lífíð.
(Stef. Thor.)
í dag er til moldar borin elskuleg
frænka mín, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, sem ég nefndi alltaf
„Bússý Frænka“. Frænka með stór-
um staf.
Það snart mig djúpt, að sjá þessa
myndarlegu og elskulegu konu, þar
sem ég sat við sjúkrabeð hennar,
biðja mig um hjálp, fyrirbæn, er
hún var orðin fársjúk og kvalin,
daginn áður en hún dó. Sársaukann
gat ég séð á andliti hennar en aug-
un voru full af tárum. Aldrei áður
hafði ég heyrt hana kvarta um sárs-
auka, þó að oft hafi verið ærið til-
efni til á undanfömum árum eftir
að heilsan fór að láta undan. Þessi
kona, sem var alltaf eins og klettur
f lífi mínu. Ég gat alltaf leitað til
hennar í raunum mínum, nú leitaði
hún til mín.
Ég minnist þess fyrir tuttugu og
átta árum, við veikindi og fráfall
móður minnar og okkar systkin-
anna, þá gaf hún okkur allan sinn
tíma. Hún var komin á morgnana,
áður en við vöknuðum og fór seint
á kvöldin heim til sín. Þetta sýndi
hve hjarta hennar var stórt. Þó að
hún ætti sjálf börn, eiginmann og
heimili, þá tók hún sér frí frá vinnu
og gaf sig alla í að hlúa að okkur,
systkinunum sex. Hún fann og vissi
hve missir okkar var mikill. Aftur
seinna er pabbi, bróðir hennar, dó,
reyndist hún haldreipið mitt. Éftir
þetta tengdumst við, ég og Bússý
Frænka trúnaðarböndum. Oft var
það er ég hugsaði til hennar, þá
hringdi síminn, þá var Bússý
frænka í símanum. Henni fannst
að hún þyrfti alltaf að fýlgjast með
okkur þannig að mjög sterk tengsl
mynduðust með okkur.
Hjarta hennar var stórt, hún var
gestrisin og góð heim að sækja.
Fagurkeri mikill, heimili hennar bar
alla tíð vott um hve fáguð og smekk-
leg hún var í einu og öllu. Enda var
hún ákaflega handlagin. Hún vann
í Vogue í gamla daga og var því
vön að handfjatla efnin. Ekki var
komið að tómum kofunum ef vant-
aði leiðsögn við saumaskapinn.
Hún talaði alltaf tæpitungulaust
við mig. Hún var alltaf heil. Þess
vegna var svo gott að leita til henn-
ar. Það var alveg sama með hvað
ég leitaði til hennar, hvort sem ég
ætlaði að fara að kaupa efni, halda
veislu eða annað.
Hvort sem hún var í margmenni
eða við tvær sátum yfir kaffibolla,
var hún alltaf mjög orðheppin,
hrókur alls fagnaðar. Það var gott
að hlæja með henni. Hún var létt,
kát og ung í anda. Hafði frá svo
mörgu skemmtilegu að segja frá
bemsku sinni, sem yljaði mér um
hjartarætumar. Hún var sjóður
minninga um uppvaxtarár hennar,
pabba, systkina þeirra, afa og
ömmu í Hafnarfirði. Gott var að
hlusta á hana fræða mig um ætt
mína. Oft sátum við og rifjuðum
upp m.a. sumarferðir fjölskyldunn-
ar, afmæli og jólaboðin hjá afa og
ömmu á Hellisgötu 16.
Alltaf var það tilhlökkunarefni,
þegar von var á henni á hárgreiðslu-
stofuna. Það geislaði af henni. Hún
var svo hress og kát og hreif alla
með sér, bæði starfsstúlkur og við-
skiptavini. Hún kom alltaf færandi
hendi. Kom með eitthvað sem hún
vissi að gladdi stúlkurnar hennar á
stofunni, t.d. sætabrauð. Það verður
sárt til þess að hugsa að Bússý
Frænka hvorki hringir né kemur á
fund okkar hér.
Elsku frænka, ég þakka þér sam-
fylgdina og hugulsemina í minn
garð. Ég efast ekki um að við hitt-
umst aftur, heima hjá Drottni. Hún
var trúuð kona, lét sér annt um
hagi annarra í fjölskyldunni minni
er fundum okkar bar saman.
Elsku Óskar og fjölskylda, góður
Guð blessi minninguna um yndis-
lega konu og gefi ykkur styrk í
sorginni.
Helga Jónsdóttir.
t
HJÖRLEIFUR SVEINSSON
frá Skálholti,
Vestmannaeyjum,
andaðist í Hraunbúðum aðfaranótt mánu-
dagsins 29. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn hins látna.
t
RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR
frá Valadal,
Skagafirði,
verður jarðsungin frá Glaumbæjarkirkju laugar-
daginn 4. október kl. 15.00.
Jarðsett verður f Víðimýrarkirkjugarði.
Kveðjustund verður í Háteigskirkju fimmtu-
daginn 2. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á félag aðstandenda
Alzheimersjúklinga, sími 587 8388.,
Gissur Jónsson,
Valdís Gissurardóttir,
Jón Gissurarson,
Friðrik Gissurarson,
Kristján Gissurarson,
Stefán Gissurarson,
Þórarinn Marteinn Friðjónsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar,
GUÐRÚN ÁGÚSTA GEIRSDÓTTIR,
Leifsstöðum,
Austur-Landeyjum
andaðist á dvalarheimilinu Lundi, föstudaginn 26. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
börnin.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÁSTA KRISTRÚN SKÚLADÓTTIR
frá Stykkishólmi,
andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
27. september síðastliðinn.
Lovísa Kristjánsdóttir,
Kristján Mimisson,
Sunna Mímisdóttir,
Mímir Arnórsson,
Zulema Sullca-Porta,
Kári Mímisson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINGRÍMUR BENEDIKTSSON,
Langholtsvegi 167,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 3. október kl. 13.30.
Unnur Steingrímsdóttir,
Benedikt Steinar Steingrímsson,
Eggert Steingrímsson,
Herdís Steingrímsdóttir,
Steinunn Steingrímsdóttir,
Steinunn Margrét Steingrímsdóttir, Einar Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
Júlía Ásmundsdóttir,
David Gillard,
Bergsveinn Þór Gylfason,
t
Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður,
dóttur, systur, mágkonu og tengdadóttur,
DAGRÚNAR HELGU HAUKSDÓTTUR,
Hlíðarhjalla 63,
Kópavogi,
fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn
1. október kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á heima-
hlynningu krabbameinsfélagsins.
Bergþór Bjarnason,
Sigrún Steinsdóttir,
Vignir Bragi Hauksson,
Gislfna Vilhjálmsdóttir,
Andri Már Bergþórsson,
Haukur Harðarson,
Þóra Valgerður Jónsdóttir,
Bjarni Sæmundsson.
■H*
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns mfns,
föður, sonar, bróður, tengdasonar og mágs,
JÓNS FREYS SNORRASONAR,
Skógarási 2,
Reykjavík.
Huglægar þakkir þakkir sendum við öllum þeim,
er stóðu að og aðstoðuðu við björgunaraðgerðir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svava Huld Þórðardóttir.
+
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUNNÞÓRUNNAR ERLINGSDÓTTUR,
Bólstaðarhlfð 41,
Reykjavfk,
sem lést 12. september síðastliðinn.
Kristfn Rygg, Olav Rygg,
Hafdís Einarsdóttir, Jón Ármann Jakobsson,
Elfas Einarsson, Ólöf Eyjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.