Morgunblaðið - 30.09.1997, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
NOKKRAR af fyrirsætum umboðsskrifstofunnar Eastwest models sem Olivier er útsendari fyrir.
vinsælar í Asíu en það er mikil-
vægt að þær séu ekki of ljóshærð-
ar því skrifstofumar í Asíu eru
ekki hrifnar af lituðu hári eða
rauðhærðum fyrirsætum.
Annars er háraliturinn ekki
aðalmálið heldur hvaða litur
hentar tilteknu andliti," sagði
Olivier og rifjaði upp að marg-
ar frægustu fyrirsætur heims
eins og Cindy Crawford, Chri-
sty Turlington og Helena
Christiansen væru allar dökk-
hærðar.
Að sögn Oliviers þarf útsend-
ari að vera sér þess meðvitandi að
hann geti gert mistök þegar hann
leitar uppi fyrirsætur. Ekki sé
alltaf hægt að sjá fyrir hvaða fyrir-
sætur ná árangri og alltaf nái ein-
hverjar á toppinn sem útsendari
hafnaði. „Mér er borgað fyrir að
leita að fyrirsætum og afla eins
mikilla upplýsinga um þær og
mögulegt er. Stundum háir það
mér að ég finn einhvern sem er
mjög hrár og ómótaður og það tek-
ur tíma fyrir mig að sannfæra um-
boðsskrifstofumar um að þetta sé
efni í fyrirsætu þegar myndirnar
sýna manneskjuna ekki í sínu
besta ljósi.“
íslenskar fyrir-
sætur þybbnar
Það er einmitt hlutverk Oliviers
hér á íslandi að hitta ungt fólk
sem þykii’ koma til greina sem fyr-
irsætur, taka viðtöl og afla allra
nauðsynlegra upplýsinga um það.
Mikið liggur við að hægt sé að
svara öllum spurningum umboðs-
skrifstofanna og tekur Olivier jafn-
vel mál fyrirsætnanna sem hann
hittir því hver sentímetri getur
Hollur matur
og hreyf-
ing mikilvæg
Útsendari módelskrifstofa í París, Japan og
Þýskalandi er staddur á Islandi og leitar að upp-
rennandi fyrirsætum. Rakel Þorbergsdóttir hitti
hinn franska Olivier Daube og skyggndist inn í
heim fyrirsætnanna.
EG VAR sjálfur fyrirsæta og
hef ferðast mikið og þekki
því allar aðstæður vel. Sú
reynsla hefur nýst mér við að leita
að fyrirsætum og fínna út fyrir
hvaða markað þær henta best.“
Olivier er kominn til íslands fyrir
tilstilli Kolbrúnar Aðalsteinsdóttur
hjá skóla Johns Casablancas til að
hitta íslenskar stelpur og stráka
sem þykja efni í fyrirsætur. Um-
boðsskrifstofumar sem hann
starfar fyrir em Madison í París,
Forza í Japan og Eastwest models
í Þýskalandi. Þetta er önnur heim-
sókn Oliviers til landsins og í fyrra
skiptið fann hann íslenska stúlku
sem starfaði fyi-ir milligöngu hans
um tíma í París.
„Ég veit aldrei að hverju ég leita
fyrr en ég sé það. Ef maður hefur
ekki þann háttinn á þá er bara ver-
ið að herma eftir því sem er til og
engar líkur á að eitthvað nýtt finn-
ist,“ sagði Olivier sem segir ís-
lenskar fyrirsætur ekki henta fyrir
einn markað
frekar en
ann-
°LlVlERDauhl
'C hitti fífi
an. „Það skiptir að sjálfsögðu öllu
máli hvemig fólkið lítur út. Hversu
hár er viðkomandi, hvaða háralit
hefur hann, er húðin góð og hefur
viðkomandi einhverja reynslu af
fyrirsætustörfum? Fyrir þýska
markaðinn þurfum við vanar fyrir-
sætur sem eiga góða myndamöppu
því bókanirnar byggjast á þeim.
Fyrir Asíumarkaðinn þurfum við
yngri, sætari, og minni fyrirsætur
því hæðin skiptir miklu máli. I Asíu
er æskilegt að fyrirsætan sé á bil-
inu 168 til 175 sentímetrar á hæð
en í París þurfa þær að vera hærri
eða á bilinu 176 til 178 sentímetrar.
Auðvitað era alltaf undantekningar
en þetta er algengasta viðmiðun-
in,“ sagði Olivier og benti á að
komist fyrirsætan á forsíðu þekkt
tískublaðs skipti hæðin litlu eftir
það.
„Ljóshærðar alls
staðar vinsælar"
Ljóst hár er eitt helsta einkenni
norrænna þjóða og þar sem ljós-
hærð fegurðardís var að hitta Oli-
vier um leið og blaðamaður varð
ekki umflúið að spyrja útsendar-
ann hvaða markaður væiá ákjósan-
legastur fyrir ljóshært fólk. „Ljós-
hærðar fyrirsætur era alls staðar
vinsælar. Þær era þó sérstaklega
Leysir
Díönu af
►BRESKA fyrirsætan Na-
omi Campell mun taka sæti
Díönu prinsessu af Wales á
góðgerðarhádegisverði l
kjölfar dauða prinsessunu-
ar. Hádegisverðarboðinu
er ætlað að safna
peningum handa
veikuin börnum í
Karíbahafínu en
fregnir herma að
Díana hafi fallist á
að vera viðstödd
eftir að hún varð að
fresta því að hitta
veiku börnin sjálf.
„Díana var svo mis-
kunnsöm og góð og ég
veit að hún hefði viljaö
að þessi viðburður ætti
velgengni að fagna," er
haft eftir Naomi
Campell. Að sögn fyrir-
sætunnar veitti Díana
prinsessa henni rnikla
hugguii við jarðarför
tískukóngsins Versace í
júlí síðastliðnum. „Hún var
alltaf að spyija hvemig mér
liði sem var lýsandi fyrir það
livað hún var hugulsöm og
ósérhlífin," sagði fyrirsætan
um hina dáðu prinsessu.
DYLAN tók ofan fyrir páfanum.
ROKKSTJARNAN Dylan syngur fyrir páfann.
Fegurðar leitað á íslandi
Bob Dylan söng fyrir páfann
200 þúsund manns komu saman til
að hlýða á Bob Dylan syngja fyrir
páfann síðastliðið laugardagskvöld
og var það hápunktur vikulangs trú-
arþings í Bologna. Uppákoman var
m.a. haldin til þess að Jóhannesi
Páli II páfa, sem er 77 ára, gæfist
tækifæri til að komast í snertingu
við ungt fólk og þá tónlist sem það
hlýðir á.
Þegar páfinn ávarpaði samkom-
una vitnaði hann í lag Dylans
„Blowing in the Wind“. Augnabliki
síðar hóf Dylan tónleikana með lag-
inu „Knocking on Heaven’s Door“
og vakti hann mikla lukku hjá
áheyrendum. Eftir að hafa flutt eitt
lag í viðbót, „Hard Rain“, tók Dylan
skyndilega ofan hvíta kúrekahatt-
inn og gekk að hásæti páfans. Páf-
inn steig á fætur til að taka á móti
honum og tókust þeir í hendur. Að
því loknu þakkaði páfinn fyrir sig og
dró sig í hlé eftir langan vinnudag,
sem einkenndist af ferðalögum og
opinberum uppákomum.
Lagið „Trying to Get to Heaven"
er einmitt á nýrri plötu Dylans sem
kemur út í dag og virðist Dylan hafa
mjakast þangað með tónleikunum
um helgina. Dómur um plötu Dyl-
ans birtist í Morgunblaðinu á
sunnudaginn var.
%
í
í
i
i
i
(
(
(
I
I
I
I