Morgunblaðið - 30.09.1997, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5091100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Selfoss og nágrannasveitarfélög
Akvörðun um
sameiningu
tekin fljótlega
ÞAÐ ræðst á næstu tveimur vikum
hvort lögð verður fram tillaga um
sameiningu Selfoss, Eyrarbakka,
Stokkseyrar og Sandvíkurhrepps og
greidd atkvæði um hana í haust.
Fjögurra manna starfshópur hefur
undirbúið slika tillögu og verður vinna
hans lögð fyrir nefnd sveitarstjómar-
manna í byrjun næsta mánaðar.
Bæjarstjórinn á Selfossi, sveitar-
•^tjórinn á Eyrarbakka og oddvitar
Stokkseyrarhrepps og Sandvíkur-
hrepps hafa undanfarnar vikur unnið
að söfnun upplýsinga og mótun til-
lagna um sameiningu þessara fjög-
urra sveitarfélaga.
Magnús Karel Hannesson, oddviti
Stokkseyrarhrepps, sagði að vinna
nefndarinnar væri að komast á loka-
stig. Hún hefði einbeitt sér að því að
gera samanburð á sveitarfélögunum,
hvað varðar fjárhagslega stöðu,
þjónustu og annað. A næstu dögum
yrði nefnd sveitarstjómarmanna
boðuð til fundar en hún tæki afstöðu
til þess hvort tillaga um sameiningu
yrði lögð fyrir íbúa sveitarfélaganna.
5.300 manna sveitarfélag
Magnús Karel sagði erfitt að meta
það á þessu stigi hvort líkur væru á
að tillaga um sameiningu yrði borin
undir atkvæði. Hann sagðist sjálfur
styðja að það yrði gert. Það væri
ávinningur af því fyrir íbúa á þessu
svæði að menn sameinuðu krafta
sína. í sveitarfélögunum fjóram
búa í dag um 5.300 manns.
Loðin kynjaskepna
finnst í Flateyjardal
KYNJASKEPNU rak á land á
Flateyjardal við Skjálfanda fyrir
nokkrum vikum. Skepnan er um
sjö metrar á Iengd og vantar á
hana hausinn. Tryggvi Stefáns-
son bóndi á Hallgilsstöðum í
Hálshreppi, sem hefur séð rek-
ann, segir hann helst líkjast hval
en á skrokknum er gulhvít, ullar-
kennd ló.
Tryggvi var í göngum þegar
hann sá kynjaskepnuna. Hann er
oft á ferð þarna en hefur aldrei
séð hval rekinn þar. Fyrir tveim-
ur vikum sá hann þúst við
ströndina og sá í sjónauka að
fugl var þar í æti. Hélt hann það
vera dauðan sel.
„Það vantar á skepnuna haus-
inn og hún virðist vera hálfloðin.
Meirihlutinn af skrokknum sést
og líka sporður. Þetta Iíkist mest
hval en þeir eru víst ekki loðnir.
Það hefur enginn dýrafræðingur
skoðað þetta en ég hringdi í
Hjört Tryggvason í Húsavík sem
er fróður um náttúrufræði,“
sagði Tryggvi.
Sæskrímsli ekki
óþekkt við Skjálfanda
Tryggvi segir ómögulegt að
segja til um hvernig hausinn hafi
farið af skepnunni. Vargur hefur
rifið í sundur hræið. „Hitt er
annað mál að hvaltennur eru
verðmætar. Ég veit ekki hvort
þetta er eitthvað líkt tannhval en
mér dettur það helst í hug að
hausinn hafi verið tekinn af
skepnunni svo hægt væri að
hirða tennurnar," segir Tryggvi.
Hjörtur Tryggvason, kirkju-
garðsvörður á Húsavík, kveðst
telja að þetta sé hvalur. Vandinn
sé aðeins sá að loðnir hvalir hafi
ekki þekkst til þessa. Hann segir
að skepnan gæti verið 8-9 metrar
ef hausinn væri á henni.
„Ég talaði við Gísla Vilhjálms-
son í Hafrannsóknarstofnun sem
hefur unnið að hvalarannsókn-
um. Hann sagði mér að enginn
hvalur ætti að vera loðinn. Ég
sagði honum að þarna væri þá
líklega komið skrímsli eða hvala-
tegund sem hefur ekki fundist
áður,“ sagði Hjörtur.
Hjörtur segir að sæskrímsli séu
ekki óþekkt við Skjálfandann.
Um þau mætti lesa í bókum sýslu-
mannsins fyrir um 50 árum þar
sem segir frá lögreglurannsókn á
sæskrímslum við Laxamýri. „En
þau voru á fjórum fótum og
gengu á land,“ sagði Hjörtur.
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík
/ »
Þrír gefa
ekki kost á
sér áfram
ÞRÍR borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafa ákveðið að gefa ekki
kost á sér í prófkjöri flokksins sem
fram fer í október vegna borgar-
stjómarkosninga næsta vor. Era
það þau Guðrún Zoéga, Gunnar Jó-
hann Birgisson og Hilmar Guð-
laugsson.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
kveðst styðja Árna Sigfússon í 1.
'vraReti listans og óskar sjálfur eftir
stuðningi í 2. sæti sem hann skipar
nú.
Sextán manns, þar af sex konur,
tilkynntu framboð sitt í gær og era
níu þeirra ný nöfn.
■ Sextán manns/4
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Hvirfílbylur olli tjóni á bátum og þyrlaði upp þakplötum á Akureyri
Smábátar
‘tókust á loft
HREIÐAR Ein'ksson skoðar verksummerki í smábátahöfninni við
Skipatanga á Akureyri. Þessi plastbátur hafnaði á toppnum og
skemmdist nokkuð.
„ÉG HEF aldrei séð svona áður,
en hef þó orðið vitni af mörgum
veðrabrigðum," sagði Snæþór
Vemharðsson vélstjóranemi við
Verkmennaskólann á Akureyri, en
hann var ásamt skólabræðrum sín-
um um borð í Sólbak EA við
Fiskihöfnina á Akureyri þegar
þeir urðu vitni að því að hvirfilbyl-
. jjr gekk yfir frá Tryggvabraut og
áustur yfir Eyjafjörð síðdegis í
gær.
Á leið sinni austur yíír olli hvirf-
ilbylurinn nokkrum skemmdum á
þaki íþróttaskemmunnar, lausa-
munir á skrifstofu aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra fóru af stað og tvær rúð-
ur í bíl Siglingastofnunar Islands
Örotnuðu. Þá tókust 6 smábátar
sem stóðu upp á bakka við Skipa-
tanga á loft og skemmdust mismik-
ið. Einn hafnaði í sjónum, annar á
hvolfi, tveir fóru á hliðina og aðrir
tveir færðust úr stað. Plötur á þaki
verbúða þeyttust af og lentu úti í
sjó.
Ingi Bjömsson framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar var úti í
glugga og sá þegar ósköpin gengu
yfír og bátarnir tókust á loft. „Það
var hreint ótrúlegt að sjá þetta,
strókurinn hélt svo áfram austur
yfír fjörðinn og sjórinn hreinlega
lyftist upp undan honum,“ sagði
Ingi.
Vélstjóranemamir stóðu aftan
við brúna á Sólbak og um tíma
fannst þeim bylurinn stefna á sig,
en Snæþór sagði að engin hræðsla
hefði gripið um sig í hópnum.
„Þetta var ekki stór hvirfilbylur, en
greinilega aflmikill. Það var skrýt-
ið að horfa á þetta. Bátarnir lyftust
upp og plötumar af húsunum rifn-
uðu af og fylgdu bylnum og lentu
út í sjó. Þetta var eiginlega bara
eins og maður sér í bíó eða sjón-
varpinu," sagði Snæþór.
Lægðin sem gekk yfir landið á
sunnudag og í gær er sú dýpsta
sem hingað hefur komið í septem-
ber síðan árið 1900, samkvæmt
upplýsingum Veðurstofunnar. Hún
olli mikilli röskun á samgöngum í
lofti, láði og á legi og víða um land
varð tjón á eignum.
■ Dýpsta lægðin/6
Fyrsti
snjórinn
FYRSTI snjórinn féll á fsafirði í
gær yngstu kynslóðinni til mikillar
gleði. Davíð og Erla Sighvatsbörn
drifu sig út og bjuggu til snjókarl
með aðstoð mömmu sinnar.
Drukknaði
við Benidorm
39 ÁRA Reykvíkingur, Jónas
Björnsson, drakknaði við strönd
Benidorm á Spáni á sunnudag.
Jónas, sem var tónlistarkenn-
ari og starfaði um árabil í hljóm-
sveitum, var á Spáni til að leika
þai’ með íslenskri hljómsveit.
Hann var að synda við strönd-
ina þegar hann lenti í útsogi og
barst frá landi. Þegai' björgun-
armenn náðu til hans hófu þeir
þegar lífgunartibaunir, sem
bára ekki árangur.
Jónas lætur efth' sig eigin-
konu og fjögur börn.
Björk beint
í fjórða sæti
SKIFA Bjarkar Guðmundsdóttur,
Homogenic, fór beint í 4. sæti
breska breiðskífulistans sem kynnt-
ur var á sunnudag. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins seldist
platan í 45-50.000 eintökum fyrstu
vikuna.
Að sögn umboðsaðila hér seldust
um 4.000 eintök í liðinni viku. Síð-
asta plata Bjarkar, Post, seldist í
um 2.800 eintökum á sama tíma.