Morgunblaðið - 19.10.1997, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Islenskar sjávarafurðir staðfesta kaup meirihluta í franska fyrirtækinu Gelmer
Arsveltan sjö milljarðar
króna og starfsmenn 360
Newport News. Morgunblaðið.
ÍSLENSKAR sjávarafurðir hf. hafa staðfest
fregnir um kaup á meirihluta í franska fyrirtæk-
inu Gelmer SA. Fyrirtækið rekur umfangs-
mikla starfsemi á sviði fiskvinnslu og sölu sjáv-
arafurða. Það starfrækir nýja og vel útbúna
fiskréttaverksmiðju í nágrenni Boulogne sur
Mer. Gelmer rekur einnig ferskfiskdeild og
endurpökkun á sjávarafurðum og stundar al-
menn kaup og sölu sjávarafurða. Arsvelta fyrir-
tækisins er um sjö milljarðar króna og starfs-
menn um 360.
„Markmiðið með kaupum ÍS á franska fyrir-
tækinu er að styrkja okkur á mörkuðum Evr-
ópusambandsins fyrir ferskar og fullunnar sjáv-
arafurðir," segir Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs ÍS. „Auk
áherslu á franska markaðinn munum við efla
útflutning Gelmer til annarra landa innan Evr-
ópusambandsins. Þannig styrkjum við markaðs-
starfsemi fyrirtækisins, en ÍS rekur sölufyrir-
tæki í fjórum Evrópusambandslöndum, Frakk-
landi, Bretlandi, Þýskalandi og Spáni,“ segir
Höskuldur.
Hann vill ekki gefa upp hvað mikið ÍS greiddi
fyrir meirihlutann í franska fyrirtækinu, en
segir þær tölur, sem nefndar hafi verið í íslensk-
um fjölmiðlum, um 1.000 milljónir króna, alger-
lega úr lausu lofti gripnar. Verðið sé mun lægra.
Benedikt Sveinsson, forstjóri ÍS, segir að
kaupin á franska fyrirtækinu gefi ÍS aukinn
aðgang að mörkuðum Evrópusambandsins,
meðal annars fyrir ferskar sjávarafurðir og
betri viðskiptasambönd, sem nýtast muni ÍS
og íslenskum fiskframleiðendum vel í framtíð-
inni. „Þessi kaup breyta ÍS í öflugt alhliða fyrir-
tæki bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, þessum
heimsálfum þar sem mikið er selt af sjávaraf-
urðum," sagði hann.
Ekkert að segja um viðbrögð SH
Benedikt Sveinsson segist ekkert hafa um
viðbrögð forustumanna SH vegna kaupa fyrir-
tækisins að segja: „Við höfum verið erlendis
og ekki fylgst með því, sem þeir hafa sagt.
Það sem skiptir máli er að við teljum okkur
hafa verið að vinna til heilla fyrir íslenskar
sjávarafurðir, framleiðendur innan okkar vé-
banda og hluthafa."
Morgunblaðið/Ásdís
Ægir siglir inn í Kópavogshöfn
VARÐSKIPIÐ Ægir sigldi í gær inn í Kársnes-
höfn í Kópavogi af því tilefni að þar hafa ný
hafnarmannvirki verið tekin í notkun. Hingað til
hafa aðailega smábátar lagst að bryggju á Kárs-
nesi, en nú hefur verið reistur 90 metra langur
viðlegukantur í höfninni og geta því skip, sem
rista allt að átta metrum, lagst þar.
Varðskipið sigldi inn í hafskipahöfnina í gær-
morgun til þess að nýta stórstraumsflóð, en síð-
degis voru nýju hafnarmannvirkin tekin formlega
í notkun og gat almenningur skoðað varðskipið.
Um helgina standa yfir Kópavogsdagar, sem
haldnir eru til að kynna starfsemi bæjarins með
ýmsum uppákomum.
Ný stjórn Noregs dregur úr yfirlýsingum
Bondevik vill ekki
fiskistríð við grannríki
Guðmundur
Hallvarðsson um
Sj ómannaskólann
Engin
rök fyrir
flutningi
„MÉR þykir vænt um að mennta-
málaráðherra skuli sýna mínum
gamla skóla og menntun sjómanna
áhuga, en mér þykir hins vegar mið-
ur ef sá áhugi beinist að því að flytja
Sjómannaskólann til að leysa hús-
næðisvanda Kennara- og uppeldis-
háskóla. Ég sé engin rök fyrir því
að flytja Sjómannaskólann úr glæsi-
legu húsnæði sínu í aðþrengt, leiðin-
legt landkrabbahverfi," sagði Guð-
mundur Hallvarðsson alþingismaður
í samtali við Morgunblaðið.
Guðmundur er ekki sammála
flokksbróður sínum, menntamála-
ráðherra, um hugsanlegan flutning
Sjómannaskólans í húsnæði við
Höfðabakka og finnst nær að end-
urnýja núverandi húsnæði.
Guðmundur rifjaði upp að á sjó-
mannadaginn 1944, þegar lagður
var hornsteinn hins nýja Sjómanna-
skóla, hefði Sveinn Bjömsson ríkis-
stjóri sagt að sjómenn fremur öðrum
hefðu aflað þess fjár sem gerði rík-
inu kleift að reisa þessa myndarlegu
byggingu. „Faðir menntamálaráð-
herra, Bjarni Benediktsson, sagði
við sama tækifæri að skólanum hefði
verið fenginn sá byggingarreitur
þaðan sem víðsýnast væri, sá staður
sem hæst bæri og úr fjarlægð helst
setti svip á bæinn.“
♦ ♦ ♦----
*
Urskurðað-
irí lOdaga
varðhald
FJÓRIR menn voru á föstudags-
kvöldið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til 27. október vegna gruns um
aðild þeirra að ránum í Reykjavík
síðustu vikur.
Héraðsdómur Reykjavíkur varð
við kröfu lögreglunnar um 10 daga
gæsluvarðhald yfir fjórum mönnum
vegna ráns í verslun við Sundlauga-
veg á miðvikudagskvöld en fímm
menn höfðu verið handteknir. Grun-
ur lögreglunnar er að mennimir
fjórir búi yfir vitneskju um önnur
rán sem framin hafa verið síðustu
vikur eða tengist þeim með ein-
hveijum hætti.
KJELL Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, lýsti yfir því í
samtali, sem birtist í norska dag-
blaðinu Aftenposten í gær að hann
vildi ekki efna til ágreinings við
nágranna Noregs vegna efnahags-
lögsögu. Dró Bondevik úr yfirlýs-
ingum Peters Angelsens sjávarút-
vegsráðherra í samtalinu.
I stjórnarsáttmála norsku
stjórnarinnar, sem tók við völdum
á föstudag, segir að hún muni
beita sér fyrir því að færa land-
helgi Noregs út í 250 mílur.
„Það er ekki tilviljun að við
leggjum áherslu á að þetta eigi að
gerast innan ramma alþjóðlegra
samninga,“ sagði Bondevik. „Við
óskum ekki eftir einhliða útfærslu
og við óskum heldur ekki eftir
ágreiningi við grannríki."
Angelsen hefur tjáð sig með allt
öðrum hætti um þetta mál. í sam-
tali við Aftenposten, sem birtist á
föstudag, er haft eftir nýja sjáv-
arútvegsráðherranum að stækkun
norsku landhelginnar úr 200
sjómílum í 250 sjómílur sé leið til
að stöðva veiðar íslendinga í
Smugunni.
Blaðið rekur viðbrögð á íslandi
við þessum yfirlýsingum Angel-
sens og stjórnarsáttmála norsku
stjórnarinnar og vitnar meðal ann-
ars í þau orð Halldórs Ásgrímsson-
ar utanríkisráðherra að allt tal um
að færa út norsku landhelgina í
250 mílur sé „þýðingarlaust og
marklaust“.
Slitið úr samhengi
Halldór ræddi á föstudag við
Knut Vollebæk, utanríkisráðherra
Noregs, í síma. Sagði Vollebæk
að ummæli Angelsens hefðu verið
slitin úr samhengi og staðfesti að
ágreiningsmál þjóðanna yrði að
leysa með viðræðum.
Skerpum athyglina'
og ábyrgðina
►Eimskip er að hrinda í fram-
kvæmd ein umfangsmestu skipu-
lagsbreytingum í sögu félagsins.
/10
Hryllingssögur úr
„skítuga stríðinu“
►Fyrrum sjóliðsforingi í flota
Argentínu hefur greint frá glæpa-
verkum þeim sem herforingja-
stjórnin í landinu lét fremja. /12
Slæmt - en
gæti verið verra
►Kristjana Valdimarsdóttir er
örkumla á hægri hendi eftir að-
gerð sem allt bendir til að hafi
mistekist. /26
Höfum aðlagast
breyttum tímum
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Árna Gests-
son og Börk Árnason í Glóbus. /30
B
► 1-24
í búri á hjólum
►Afríka með öllum sínum furðum
hefur löngum heillað Vestur-
landabúa. Nú sækir ný kynslóð
ævintýrafólks inn í Afríku.
/1,12-13
Áttu langa sam-
leið í haf inu
►Gravelines á norðurströnd
Frakklands ræktar sínar rætur,
sem m.a. liggja til íslands. /4
Nautabani aldarinnar
► Antonio Ordóftez vakti snemma
miklaaðdáun. /10
FERDALÖG
► 1-4
París
►Austurhluti Parísarer alþýðleg-
ur og íbúarnir frá ýmsum heims-
hornum. /2
Gistiheimili á
gömlum merg
►Gamla Hótel Húsavík hefur
fengið sitt upprunalega hlutverk.
/4
BÍLAR_____________
► 1-4
FÍB aðstoð og sér-
kjör á farsímum
► Nýrri þjónustu við bíleigendur
hefur verið hleypt af stokkunum.
/3
Reynsluakstur
►Rösk dísilvél nú fáanleg í Fiat
Marea Weekend /4
I ATVINNA/
“ RAÐ/SMÁ
1-16
Greiðendum hátekju-
skatts fjölgar
►Hækkunin í krónutölu um 28%,
og hefðbundinn tekjuskattur
hækkar um nær 15%. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjömuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34,36 Fólk í fréttum 54
Minningar 38 Útv./sjónv. 52,62
Myndasögur 48 Dagbók/veður 63
Bréftil blaðsins 48 Mannlífsstr. 16b
Hugvekja 50 Dægurtónl. 22b
INNLENDAR FI ÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6