Morgunblaðið - 19.10.1997, Blaðsíða 1
238. TBL. 85. ÁRG.
STOFNAÐ 1913
112 SÍÐUR B/C/D/E
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þóttist vera
lömuð í tólf ár
BRESKA lögreglan hefur komist að því
að 33 ára fyrrverandi ballettdansmær
blekkti umheiminn í tólf ár með því að
þykjast vera lömuð upp að mitti. Konan
hafði sannfært lækna og félagsráðgjafa
í Oldham um að hún hefði lamast árið
1985 þegar hún átti að fara í dansferð
til Grikklands.
Hundruð manna létu fé af hendi
rakna til að styðja konuna og hún helg-
aði líf sitt fjársöfnunum og ýmiss konar
góðgerðastarfsemi í þágu lamaðra.
Yfírvöld í heimabæ hennar dáðust svo
að dugnaði hennar að þau völdu hana
konu ársins f Oldham árið 1993. Hún
var hógværðin uppmáluð þegar hún tók
við viðurkenningunni og sagði: „I raun-
inni er ekki svo slæmt að vera í hjóla-
stól.“
Svikin komust upp þegar konan
kærði ítrekuð innbrot og skemmdar-
verk í íbúð sinni. Lögreglan kom fyrir
myndavél við húsið til að upplýsa málið
og á myndum sem teknar voru sást að
hún gat gengið án hjálpartækja. Fé-
lagsmálastofnun Oldham hefur hafið
rannsókn á því hvers vegna konunni
var veitt aðstoð að andvirði hundruð
þúsunda króna án þess að gengið væri
úr skugga um að hún væri í raun lömuð.
Kúbverjar minn-
ast Guevaras
ERNESTO „Che“ Guevara, byltingar-
heljan goðsagnakennda, var borinn til
hinztu hvílu í Santa Clara á miðri
Kúbu á föstudag, 30 árum eftir andlát
sitt. Þúsundir Kúbverja voru viðstadd-
ir athöfnina og veifuðu fánum alþýðu-
lýðveldisins sem Guevara átti sinn þátt
í að stofna. Við þetta tækifæri hvatti
Fidel Castro Kúbuleiðtogi til þess að
minning þessa fyrrverandi samherja
síns mætti áfram setja mark sitt á þá
hreyfingu sem þeir mótuðu báðir fyrir
40 árum. 21 fallbyssuskoti var hleypt
af til heiðurs Guevara fyrir utan nýtt
grafhýsi hans, og barnakór söng í
minningu um „Che“ og sex aðra sem
dóu með honum í misheppnaðri tilraun
til að koma af stað bændauppreisn í
Bólivíu haustið 1967.
Morgunblaðið/Ómar
Hauststemmning við Oxará
Rússneskir kommúnistar funda um aðgerðir
Vonast eftir hring-
borðsviðræðum
Moskvu. Reuters.
FLOKKSFORYSTA rússneskra kommúnista,
sem ráða mestu í neðri deild rússneska þings-
ins, Dúmunni, sat í gær á rökstólum um það til
hvaða bragðs hún vilji grípa næst í togstreit-
unni við Boris Jeltsin forseta og ríkisstjórn
hans um leiðir til umbóta í efnahagsmálum. Á
morgun fara fram viðræður um dagskrá
hringborðsviðræðna stjórnar og stjórnarand-
stöðu, sem hugsanlega verða hafnar í vikunni.
Fulltrúar á fundi flokksforystunnar hafa um
tvo kosti að velja. Annað hvort að veita ríkis-
stjórninni fulla andstöðu eða hætta við að
krefjast atkvæðagreiðslu í Dúmunni um van-
trauststillögu á hendur stjórninni. Fundurinn
fór fram fyrir luktum dyrum, en skiptar skoð-
anir eru um það í röðum kommúnista hve
langt skuli gengið í aðgerðum gegn stjórninni.
Hermt er að Zjúganov sé hikandi við að ganga
mjög langt þar sem það gæfl Jeltsín tilefni til
að leysa þingið upp.
Jeltsín, talsmenn ríkisstjórnai- hans og
Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, gáfu
allir í skyn á föstudag að málamiðlun væri í
sjónmáli, tveimur dögum eftir að forsetinn
hafði gripið inn í heita umræðu um efnahags-
stefnu stjórnarinnar á þinginu með ákalli um
að málamiðlunar skyldi leitað og kommúnistar
féllust á að fresta um viku atkvæðagreiðslu
um vantraust.
Vongóðir um málamiðlun
Jeltsín hefur þegar fallizt á að halda á
morgun, mánudag, málamiðlunarviðræður
með þátttöku Viktors Tsjernomyrdíns forsæt-
isráðherra, Gennadís Zeleznjovs, forseta
Dúmunnar, og Jegors Stroyevs, forseta efri
deildar þingsins. Reiknað er með því að á
þessum fundi muni fjórmenningarnir koma
sér saman um dagskrá víðtækari hring-
borðsviðræðna stjórnar og stjórnarandstöðu.
„Eg er sannfærður um að hringborðsviðræður
verða haldnar og að í þeim verður fundin leið
út úr þessari snúnu stöðu,“ tjáði Zjúganov
fréttamönnum.
Reuters
Ekki viðskiptastríð
INGOLSTADT, flutningaskip í eigu Japana,
liggur hér við bryggju í Newark í Bandaríkj-
unum. Japönum og Bandaríkjamönnum
tókst í fyrrakvöld að leysa harða deilu, sem
stefndi í að leiða til þess að japönskum skip-
um yrði bannað að leggjast að bryggju í
bandarískum höfnum með alvarlegum afleið-
ingum fyrir viðskipti. títgerðarinenn fragt-
skipa í Bandaríkjunum hafa lengi kvartað
undan gífurháum hafnargjöldum í Japan.
LEYNDARDÓMAR
Vatnajökuls
Skerpum athygflina
og ábyrgðina
Höfum aðlagast
breyttum tímum