Morgunblaðið - 19.10.1997, Síða 4
4
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997
2n«rgpmWii$>i&
VIKAN 12/10-18/10
►HÆSTIRÉTTUR dæmdi
að Hanes-hjónin skyldu ekki
framseld til Bandaríkjanna,
en þar áttu þau yfir höfði
sér fangelsisvist fyrir að
nema á brott barnabam
Connie Jean Hanes og færa
til íslands. Hæstiréttur
sagði íslensk stjórnvöld ekki
hafa gætt að meðalhófsregl-
unni. Þau hefðu átt að
kanna hvort leysa mætti
málið með vægari ráðum en
þvinguðu framsali.
►SAMANLAGT var afsalað
aflaheimildum sem jafn-
gilda tæpum tvö þúsund
þorskígildistonnum vegna
úthlutunar varanlegra afla-
heimilda til einstakra skipa
á úthafskarfa á Reykjanes-
hrygg og rækju á Flæm-
ingjagrunni fyrr á þessu
ári. Þessum aflaheimildum
var dreift á öll önnur skip
í íslenska fiskveiðiflotanum
sem eru á aflamarki, í sam-
ræmi við þá aflahlutdeild
sem þau áttu fyrir i upphafi
nýs fískveiðiárs í haust.
►SAMKVÆMT nýrri könn-
un Hagstofunnar á atvinnu-
leysi hefur heldur dregið
úr langtimaatvinnuleysi hér
á landi á undanförnum 12
mánuðum. Langtímaat-
vinnuleysi kvenna hefur þó
aukist og er núna rúmlega
tvöfalt meira en langtímaat-
vinnuleysi karla.
►REGINN, eignarhaldsfé-
lag Landsbankans, tók til-
boði Kaldafells ehf. í Njarð-
vik KE og Aðalvík KE en
það var upp á rúmar 1.100
milljónir kr. Kaldafell, sem
er skráð í Njarðvik, er í eigu
Útgerðarfélags Akur-
eyringa en skipunum fylgdi
1.514 tonna kvóti.
Stækkun álvers
tekin í notkun
STÆKKUN álversins í Straumsvík var
formlega tekin í notkun á föstudag.
Framkvæmdum lauk þremur mánuðum
á undan áætlun og byggingarkostnaður
var um 1,7 milljörðum lægri en upphaf-
leg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Þetta er u.þ.b. 15% minni kostnaður
en reiknað var með.
Samkeppnishæfni álversins eykst
verulega við þessa stækkun. Fram-
leiðslukostnaður á hvert tonn af áli er
nú um 120 dollurum lægri hjá ÍSAL
en meðaltalsframleiðslukostnaður ál-
vera annars staðar í heiminum.
Álverið í Straumsvík er eftir stækkun
þriðja stærsta álver á Norðurlöndunum.
ÍS keypti Gelmer og
SH höfðar mál
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfiystihúsanna
hefur stefnt eigendum franska fyrir-
tækisins Gelmer { Bologne fyrir samn-
ingsrof, en skömmu áður en undirrita
átti samning um kaup SH á Gelmer
síðastliðinn þriðjudag tilkynnti lögmað-
ur aðaleiganda Gelmers að hann myndi
ekki undirrita samninginn þar sem hann
væri hættur við að selja SH fyrirtækið.
Staðfest var að Islenskar sjávarafurðir
hefðu gengið frá kaupum á Gelmer.
Gelmer leggur stund á ýmsa starf-
semi tengda ferskfiskinnflutningi, fisk-
sölu og fullvinnslu fiskrétta.
Uppboð aflaheimilda
hugsanlegt
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráð-
herra telur koma til greina að bjóða
upp heimildir til veiða úr norsk-íslenska
sfldarstofninum. Hann vísar til þess að
enn sem komið er liggi takmörkuð veiði-
reynsla úr stofninum fyrir og við slíkar
aðstæður sé ekki óeðlilegt að menn
velti því fyrir sér að upphafleg úthlutun
geti byggst á einhverskonar útboði.
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra, sagði að hann teldi gjaldtöku af
veiðum úr norsk-íslenska sfldarstofnin-
um koma til greina.
Ný sljórn í Noregi
KJELL Magne Bondevik úr Kristilega
þjóðarflokknum tók við embætti forsæt-
isráðherra á föstudag. Hann fer fyrir
minnihlutastjóm
þriggja mið-
flokka, en hana
skipa tíu karlar
og níu konur. Þar
af eru níu úr
Kristilega þjóð-
arflokknum, sex
úr Miðflokknum
og fjórir úr Venstre, flokki frjálslyndra.
Kristilegi þjóðarflokkurinn hefur ekki
átt forsætisráðherra frá því að Lars
Korvald var í forsæti fyrir ríkisstjóm
sem sat 1972-1973. Fæstir nýju ráð-
herranna hafa reynslu af stjórnarsetu.
Nýr sjávarútvegsráðherra Noregs, Pet-
er Angelsen, segist útiloka að íslending-
um verði úthlutað kvóta í Smugunni
og segir norsk stjórnvöld munu reyna
með öllum ráðum að minnka Smuguna
í samvinnu við Rússa.
Prodi heldur velli
ROMANO Prodi, forsætisráðherra ítal-
íu, náði á þriðjudag samkomulagi við
kommúnista á ítalska þinginu um
stuðning við stjóm sína. Með því var
endi bundinn á stjómarkreppu, sem
hófst fyrir stðustu helgi með því að
kommúnistar neituðu að veita íjárlaga-
frumvarpi minnihlutastjómar Prodis
brautargengi á þinginu. Að beiðni Prod-
is fór fram atkvæðagreiðsla í neðri deild
þingsins um traustsyfirlýsingu við
stjómina á fimmtudag, og var hún sam-
þykkt með atkvæðum Olífubandalags
miðju- og vinstriflokka, sem standa að
stjóminni, og „kommúnískrar endur-
reisnar", flokks kommúnista. Sam-
komulag við þá í deilunni um fjárlög
næsta árs náði Prodi með því að fallast
á kröfu kommúnista um að vinnuvikan
yrði stytt í 35 stundir, en þar með kall-
aði hann yfír sig deilu við samtök laun-
þega og vinnuveitenda.
Bondevik
►NEÐRI deild rússneska
þingsins, Dúman, frestaði á
miðvikudag um viku at-
kvæðagreiðslu um vantraust
á ríkisstjórn landsins eftir
að Boris Jeltsín Rússlands-
forseti hafði farið þess á leit
við þingið að málamiðlunar
yrði leitað. Kommúnistar,
leiðandi afl stjóraarandstöð-
unnar, báru upp vantrausts-
tillöguna.
►BILL Clinton Bandaríkja-
forseti heimsótti þijú ríki í
Suður-Ameríku í vikunni,
Venezúela, Brasilíu og Arg-
entínu. Var tilgangur farar-
innar að tryggja stöðu
Bandaríkjamanna á þeim
nýju mörkuðum sem opnazt
hafa í þessum heimshluta.
►GEIMFARINU Cassini,
sem er ætlað að hjálpa til
við könnun Satúmusar, var
skotið á loft áleiðis út i geim-
inn frá Canaveralhöfða í
Bandaríkjunum á miðviku-
dagsmorgun. Aætlað er að
Cassini komist á braut um
Satúrnus í júli 2004 eftir 3,5
mifljarða km ferðalag.
►KRISTILEGIR demó-
kratar (CDU), flokkur Hel-
muts Kohls Þýzkalands-
kanzlara, héldu í vikunni
árlegt flokksþing sitt. Þar
greindi Kohl frá því að hann
óskaði sér að Wolfgang
Schauble, þingflokksfor-
maður CDU og náinn sam-
starfsmaður sinn, tæki við
kanzlaraembættinu. Síðar
tók Kohl fram, að hann
hygðist sitja út kjörtímabilið
1998-2002, sigraði flokkur
hans í þingkosningum næsta
haust.
MORGUNBLAÐÍÐ
FRÉTTIR
Aukíð samstarf
fjögurra framhalds-
skóla á Austurlandi
FJÓRIR framhaldsskólar á
Austurlandi eru að undirbúa aukið
samstarf sín á milli og er hug-
myndin að ráða fagstjóra fyrir
ákveðnar brautir og skipuleggja
ákveðna námsáfanga saman eftir
því hver nemendafjöldi er hverju
sinni á hveijum stað. Skólarnir
íjórir eru Menntaskólinn á Egils-
stöðum, Hússtjórnarskólinn á
Hallormsstað, Verkmenntaskóli
Austurlands í Neskaupstað og
Framhaldsskóli Austur-Skafta-
fellssýslu á Höfn.
Kristrún ísaksdóttir frá
menntamálaráðuneytinu og Helga
Hreinsdóttir, fulltrúi skólanna á
Austurlandi, hafa unnið að undir-
búningi málsins og segir Helga
að skólarnir hafi lengi átt með sér
samstarf sem nú sé hugmyndin
að efla. Stefnt er að undirritun
þriggja ára samstarfssamnings
skólanna á næstunni og verður
verkefnisstjórn skipuð skólameist-
urunum fjórum og formanni sem
tilnefndur verður af menntamála-
ráðherra. Fengin hefur verið
tveggja milljóna króna fjárveiting
á næsta ári sem notuð verður
m.a. til að launa verkefnis- og
fagstjóra og er gert ráð fyrir að
samstarfið hefjist formlega með
nýju ári.
Samnýting með fjarkennslu
„Við stefnum að því að auka
samræmingu, t.d. í stærðfræði-
og tungumálakennslu, varðandi
gæði og kröfur og ráðuneytið sér
í samstarfinu bæði ákveðinn
sparnað og gæðatryggingu. Með
samræmdu námsframboði yrðu
ekki kenndir fámennir áfangar á
sömu önn í öllum skólunum. Þeim
mætti skipta eitthvað upp og
þjóna nemendum með fjar-
kennslu," segir Helga Hreinsdótt-
ir „og draumur okkar er að fá
fjarkennslubúnað til að auðvelda
þetta.“
í drögum samstarfssamnings-
ins segir m.a. um markmið hans
að bæta eigi aðgengi nemenda að
eins fjölbreyttu námsframboði á
Austurlandi og kostur sé, draga
úr vanda sem fámenni og vanbún-
aður í einstökum skólum geti leitt
af sér, nýta aðstöðu og kennara
í þágu sem flestra og að styrkur
hvers og eins skóla fái notið sín.
Þá er hugmyndin að koma á sam-
starfi við stofnanir, félagasamtök
og fyrirtæki, m.a. í því skyni að
efla fullorðinsfræðslu og símennt-
un.
Menntamálaráðherra og skólastjóri Stýrimannaskóla
Aðild útvegs að námi
sjómanna vel hugsanleg
„ÞAÐ ER vissulega hugsanlegt að útgerðin komi að rekstri Sjómanna-
skólans. Ég hreyfði þeirri hugmynd á fundi með Kristjáni Ragnarssyni
formanni LÍÚ í vor og er ánægður með að honum skuli þykja þessi
möguleiki áhugaverður," sagði Bjöm Bjamason, menntamálaráðherra, í
samtali við Morgunblaðið í gær. Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólastjóri
Stýrimannaskólans, segir að hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að útgerð-
in taki þátt í rekstri skólans, ef myndarlega verði að slíku staðið.
Morgunblaðið/Ásdís
NÝR smábíll frá Mercedes Benz, A-bíllinn, er kynntur hjá
umboðinu um helgina.
A-bíllinn frá Merc-
edes Benz kominn
KOMINN er til landsins nýi
smábíllinn frá Mercedes Benz
verksmiðjunum þýsku, A-bíll-
inn. Er hann sýndur þjá umboð-
inu, Ræsi, nú um helgina en
framleiðsla hefst ekki fyrr en
um næstu áramót og verða
fyrstu bílarnir afhentir kaup-
endum hér á landi fyrstu vikur
næsta árs. BÍLLINN er fimm manna
Mercedes Benz A verður boð-
inn með tveimur vélum, 1.400
rúmsentimetra og 82 hestafla
vél og kostar þá 1.695.000 krón-
ur eða með 1.600 rúmsenti-
metra og 101 hestafls vél og
kostar sú gerð 100 þúsund krón-
um meira. Bíllinn er framdrif-
og meðal staðalbúnaðar má
nefna tvo líknarbelgi og
hemlalæsivörn.
inn, fimm manna og búinn
hemlalæsivörn, tveimur líknar-
belgjum, fjarstýrðum samlæs-
ingum og rafdrifnum rúðum.
Bjöm Bjarnason sagði að hann
teldi mjög skynsamlegt að kanna
hvort útvegurinn gæti komið að
rekstri Sjómannaskólans, þ.e.
Stýrimannaskólans og Vélskólans.
„Við höfum ýmsar fyrirmyndir að
slíku. Á framhaldsskólastigi er
helst til Verslunarskólans að líta,
en nú liggja einnig fyrir fullmótað-
ar hugmyndir um að Listaháskóli
starfi með þessum hætti. Ég hef
þó aðeins varpað þessu fram til
skoðunar."
Unnið vel að
innri málum
Menntamálaráðherra sagði að
ýmislegt hefði verið gert í mennt-
unarmálum sjómanna. „Námskrá-
in hefur öll verið endurskoðuð og
nú er unnið að því að meta inntak
vélstjóranámsins. Þannig hefur
verið unnið mikið í innri málum
þessara stofnana, sem hafa einnig
fengið nýjan lagaramma með al-
mennri löggjöf um framhalds-
skóla. Tillögur um staðsetningu
eru liður í framtíðarskipulagningu
skólanna. Okkar markmið hefur
verið að styrkja menntun sjó-
manna og þróa hana svo hún fylgi
nútímalegum kröfum. Þessar
ákvarðanir á síðustu misserum
sýna vilja okkar í því efni.“
Fagna hugmynd ef vel
er að staðið
Guðjón Ármann Eyjólfsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans,
segir vel hugsanlegt að útvegurinn
komi að rekstri sjómannaskóla.
„Við höfum dæmi frá Grænlandi,
þar sem skipafélagið Royal Green-
land tekur virkan þátt í menntun
sjómanna og kostar hana á móti
ríkinu. Þar er staðið mjög myndar-
lega að málum, fiskimenn fá til
dæmis tíu mánaða undirbúnings-
nám í Grænlandi og taka svo skip-
stjóranám í Danmörku. Þar með
eru fiskimenn komnir með lengri
menntun en farmenn, enda verður
vinnslubúnaður skipanna sífellt
flóknari. Ef útvegurinn tekur þátt
í menntun sjómanna af víðsýni og
myndarskap þá hlýt ég að fagna
svona hugmyndum."
-
i
I
I
I
r
i
,
I
i
i
I
i
I
i
t
L
«
I