Morgunblaðið - 19.10.1997, Page 6
6 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
h
Vandlifað er
vantreystri
stjórn
Sérfræðingar skiptast í tvennt þegar spurt
er hvort rússneskur efnahagur sé á uppleið
eða standi höllum fæti. Jón Olafsson segir
margar ástæður fyrir því að erfítt sé að
meta raunverulega stöðu mála.
ER ALLT á rífandi uppleið
í Rússlandi um þessar
mundir, eða hallar enn
undan fæti? Er einungis
tímaspurning hvenær harðstjórinn
vondi tekur völdin (hver svo sem
það nú verður) eða er sú hætta lið-
in hjá? Tröllríður spilling enn öllu
viðskiptalífí eða er það að komast
í eitthvað sem mætti kalla eðlilegt
horf?
Það er svo einkennilegt að menn
virðast skiptast alveg í tvo hópa um
hvað sé rétt í þessum efnum. Fjöl-
margir efnahagssérfræðingar hafa
á síðustu misserum verið að spá
Rússum efnahagsbata alveg sama
þó að slíkir spádómar virðist í hróp-
legu ósamræmi við það sem blasir
við í landinu. Sárafá dæmi eru um
að tekist hafi að koma atvinnulífí
nokkurs staðar á réttan kjöl. Þjóðar-
framleiðsla Rússa hefur minnkað
um helming á síðustu tíu árum og
þó að samdrátturinn virðist hægari
nú en hann hefur verið er ekki enn-
þá hægt að halda því fram að vöxt-
ur sé kominn í atvinnulífið.
Ein rökin fyrir því að uppsveifla
í atvinnulífínu sé á næsta leiti eru
þau að erlendar íjárfestingar hafa
stóraukist á þessu ári frá því sem
var í fyrra. En það er umdeilt hvort
þessi aukning getur haldið áfram
með sama hætti. Það er ekki nóg
að hlutabréf séu seld og fjármagn
skipti um hendur. Fyrirtæki verða
líka að skila hagnaði og iðnaðar-
framleiðsla að aukast. Aðeins lítill
hluti þess fjár sem komið hefur inn
á verðbréfamarkaðinn skilar sér í
atvinnulífið enn sem komið er. Enn-
þá eru það aðeins tiltölulega fá fyr-
irtæki sem hafa boðið hlutabréf á
almennum markaði. Og jafnvel þó
að þeim íjölgaði merkir það ekkert
fyrst í stað. Gífurlegs fjármagns
er þörf til að reisa atvinnulífið úr
rústum og það er ekkert sem segir
til að hlutabréfamarkaður hljóti að
skila fjármagni til slíkra hluta. Stór
hluti þess fjár sem útlendingar hafa
lagt í rússneska verðbréfamarkað-
inn er baktryggður með ýmsum
hætti og leið fjárfesta til baka því
enn greið. Það er fullfljótt að fagna
sigri, enn getur allt gerst.
Pólitísk tvískipting enn við lýði
Það er fleira sem bendir til að
bjartsýni um framtíð efnahagsmála
í Rússlandi sé fyrst og fremst ósk-
hyggja. Eitt er að sífellt dregur í
sundur með ríkum og fátækum á
öllum sviðum. Örfáar borgir og
héruð draga til sín fé og fáeinir
AEG
Uppþvottavélar
Enuþærtil
hlióðlátari?
áverðilrá:
69.900,-
• 43 db (re 1 pw)
• Turbo þurrkun
• HurSar bremsa
• Sjólfvirk vatns-
skömmtun
• Vatnsöryggiskerfi
Uppþvottavél á mynd 8180
TOö: 124.714,-
Þýskt vörumerki
þýskt hugvít
þýsk framleiðsla
ara
|
8
Umboðsmenn: Vesturland: Mólnlngarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir,
Hellissandi. Quöni Hallgrírnsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Ðúöardal. Vestfiröir: Geirsoyrarbúöin.Patreksfiröi.
Rafverk.Bolungarvik. Straumur.isafiröi.Norflurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöórkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA.Dalvfk.
KEA, Siglufirði. KEA, Ólafsfiröi. Kf. Þingeyinga, Húsavík.Urö, Raufarhöfn.Lónið, Þórshöfn.
Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi.Verslunin Vík, Neskaupstaö.
Kf. Fóskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn. Suflurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás,
Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk.
Reuters
ÓVISST efnahagsástand í Rússlandi gerir að verkum að verkafólk þorir ekki að gera kröfur um
öryggi á vinnustað. Sariye Nadírsjína, er starfar í verksmiðju í Úralsfjöllum, hvílir asbestsrúllur
á höfði sinu áður en þeim er komið fyrir á úreltum snældum. Hún segist vita að asbest geti vald-
ið krabbameini en að hún sé fegin því að hafa vinnu.
auðkýfíngar ráða yfír stærstum
hluta einkageirans. Þetta ástand
dregur ekki úr þeirri pólitísku tví-
skiptingu sem hefur einkennt Rúss-
land eftir að dögum Sovétríkjanna
lauk. Það sem er verra er að stjórn-
in er undir hæl sterkustu auðmann-
anna. Jeltsín gat í fyrra þakkað
kosningasigur sinn meðal annars
stuðningi þessara máttarstólpa. Nú
hafa nokkrir þeirra einkum, Borís
Berezovskíj og Vladimir Gusinin
sem eiga banka, sjónvarpsstöðvar
og fleira nánast lýst yfir stríði á
hendur ríkisstjórninni eftir að
keppinautur þeirra Vladimir Potan-
in hreppti risasímafyrirtækið Svjaz-
invest þegar ríkið seldi það á upp-
boði fyrir skömmu.
Þó að það sé ekki nýtt í sögunni
að fjársterkir aðilar geti gripið til
ýmissa ráða til að ná sér niður á
stjórnvöldum er athyglisvert hvaða
meðulum þykir sjálfsagt að beita í
Rússlandi. Þeir sem mest ber á í
ríkisstjórn Rússlands um þessar
mundir eru Anatolíj Tsjúbajs og
Boris Nemtsov. Það þykir ekki í
frásögur færandi þó að þessir ráð-
herrar veki andúð ýmissa afla á
SNYRTISTOFAN
GUERLAl N
REYKjAVÍ K
Óðinsgata 1 • 101 Reykjavík
Sími 562 3220 • Fax 552 2320
- kjarni málsins!
þinginu, einkum kommúnista, en
nú hafa þeir bakað sér óvild þeirra
stórforstjóra sem misstu Svjazin-
vest út úr höndunum á sér. Og það
kann að reynast þeim erfiðara við-
fangs. Það merkir til dæmis að tvær
af þremur stærstu sjónvarpsstöðv-
unum í Rússlandi kosta kapps um
að sverta mannorð þeirra, þeir eru
bomir ýmsum sökum, misalvarleg-
um og skyndilega hefur ríkissak-
sóknari áhuga á margvíslegum
framkvæmdum þeirra.
Allt valdakerfið í Rússlandi er
enn miklu sveigjanlegra og þar með
ófyrirsegjanlegra heldur en tíðkast
í nokkru vestrænu ríki. Hvorki al-
menningur í landinu né þeir sem
vilja láta til sín taka í viðskiptum
eða atvinnulífí hefur nokkra trygg-
ingu fyrir því hveijar leikreglumar
eru eða að eftir þeim sé farið. Þess
vegna ríkir í raun og vera upplausn-
arástand í þjóðfélaginu ennþá. Þótt
á stöku stað, einkum í Moskvu, séu
umsvif mikil og þar sé hægt að
mæla áhrifín í auknum almennum
lífsgæðum þá er ekkert samræmi á
milli þess og ástandsins í landinu í
heild. Ennþá býr meirihluti þjóðar-
innar við hrakleg lífskjör og sér
ekki þá uppsveifiu sem alltaf er
verið að lofa.
Eitt af meginvandamálunum er
einfaldlega hve erfíðlega ríkinu
gengur að afla fjár til að standa
straum af lágmarksútgjöldum.
Stjómvöldum hefur enn ekki tekist
að koma neinu lagi á skattheimtu.
Lítill hluti þeirra skatta sem ríkinu
bar að fá lögum samkvæmt af at-
vinnurekstri var innheimtur á síð-
asta ári og sárafáir greiddu tekju-
skatt. Fyrstu þijá fjórðunga þessa
árs tókst ekki að innheimta nema
um helming þess sem ríkið hafði
sett sér að ná inn. Þessu valda
klaufaleg lög og reglugerðir sem
erfítt reynist að framfylgja og það
almenna viðhorf í landinu að skatt-
heimta sé ekkert annað en kúgun.
Síðasta tilraun skattayfírvalda til að
fá fólk til að telja fram fólst í því
að nauða í frægu fólki og þekktum
ríkisbubbum að sýna almúganum
gott fordæmi með því að telja fram
tekjur sínar. Vart þarf að taka fram
að sárafáir létu tilleiðast. Rík-
isstjórnin hefur gripið til þess að
nota einkavæðingu stórra fyrirtækja
til að afla nauðsynlegs eyðslufjár.
Gert er ráð fyrir að sala fyrirtækja
skili sem svarar fjórum milljörðum
Bandaríkjadala á þessu ári. En þetta
er auðvitað algjört neyðarúrræði auk
þess sem einkavæðingunni fylgja
engin skilyrði. Engin trygging er
fyrir því að rekstur fyrirtækja verði
almenningi til meiri hagsbóta eftir
að þau hafa verið einkavædd heldur
en var fyrir. Þetta gildir auðvitað
einkum um þjónustufyrirtæki.
Það er í raun ekkert skrítið við
óánægju þingsins með frammistöðu
stjórnarinnar eins og sakir standa
og því ekki við öðru að búast en
einhvers konar aðgerðum á borð
við vantrauststillöguna sem átti að
koma til umræðu í þessari viku.
Umræðum um hana var frestað í
fáeina daga eftir að Jeltsín sendi
þinginu elskulegt bréf og lagði til
að fjárlög næsta árs yrðu rædd
betur. Þingið hafði áður hafnað
fjárlagatillögu ríkisstjómarinnar.
Hins vegar er vandséð að þingið
geti fengið nokkru áorkað með því
að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina
því að stjórnarskráin gefur forset-
anum alltaf síðasta orðið. Þingið
getur í mesta lagi knúið Jeltsín til
að boða til nýrra kosninga en eng-
um dettur í hug að það mundi leysa
nokkurn vanda.
Soros bjartsýnn
Heillaspár margra um að nú fari
Rússar loksins að rétta úr kútnum
og það sé bara tímaspursmál hve-
nær fjármagn fari að skila sér inn
í atvinnulífið og valda lífskjarabylt-
ingu í öllu Rússlandi eru merkilegar
fyrir það að þær virðast ekki byggja
á öðru en óljósri tilfinningu um að
úr því að frjáls markaður og kapítal-
ismi hefur náð fótfestu í Rússlandi,
þá hljóti hitt að fylgja í kjölfarið:
Bætt lífskjör, opinbert réttlæti, skil-
virkara stjómkerfi og svo framveg-
is. Slíkar hugmyndir ráðast af trú
á kenningum um löggengi nútíma-
menningar. Auðkýfingurinn Georg
Soros, sem hefur látið mikið fé
renna til menntastofnana í Austur-
Evrópu og beitt sér mjög til að
stuðla að siðvæðingu kapítalismans
í fyrrum kommúnistaríkjum, er einn
þeirra sem nýlega hafa látið í ljós
efasemdir um að þjóðfélagsþróun
af þessu tagi komi af sjálfu sér.
Engu að síður sagðist hann afar
bjartsýnn á framtíð mála í Rúss-
landi, þegar hann var í Moskvu
fyrir nokkrum dögum og hitti þar
annan bjartsýnan vestrænan auð-
mann, Bill Gates, forstjóra Micro-
soft. En kannski Soros sé svona
bjartsýnn vegna þess að Svjazinvest
var keypt fyrir peninga frá honum.
Hver veit nema hann ætli að fylgja
efasemdum sínum eftir með því að
hafa bein afskipti af því hvernig
hlutunum er stjórnað í Rússlandi.
Síðastliðin fímm ár hafa komm-
únistar og þjóðemissinnar í Rúss-
landi spáð „heitu hausti“ árlega.
Þeir eiga alltaf von á því að nú rísi
þjóðin upp og segi hingað og ekki
lengra við óheillaþróuninni í landinu.
Þeir spáðu heitu hausti aftur núna,
en sem fyrr virðist hitinn ekki ætla
að nægja til að kynda undir öðmm
en þeim sjálfum. Samt er vitlaust
að vera of viss. Það er of útbreidd
tilfínning meðal Rússa að núverandi
ástand sé i einhveijum skilningi
tímabundið án þess að menn skynji
glögglega hvernig það muni enda.
I
i
I
l
i
I
i
I
I
t
»
i
I
»
u
§
A