Morgunblaðið - 19.10.1997, Side 14
14 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ARGENTÍNSKAR mæður og ömmur á Plaza de Mayo-torginu í Buenos Aires krefjast þess að réttlæt-
inu verði fullnægt og veittar verði upplýsingar um afdrif allra þeirra sem hurfu í „skítuga stríðinu".
Forseti Asociación Abuelas de Plaza de Mayo
„Munum aldrei gleyma
og aldrei fyrirgefa“
„ VIÐ munum aldrei gleyma þess-
um voðaverkum og aldrei fyrir-
gefa þeim sem þau frömdu," seg-
ir Estela Carlotto, forseti einna
samtaka ættmenna þeirra sem
„hurfu“ á tímum herforingja-
stjórnarinnar í Argentínu í síma-
viðtali við Morgunblaðið frá
Buenos Aires. Hún fer hörðum
orðum um þögn argentinskra
stjórnvalda og segir þjóðina alla
andvíga því að herforingjarnir
sem ábyrgð báru á morðunum og
myrkraverkunum skuli hafa verið
náðaðir.
Estela Carlotto er forseti einna
þekktustu samtaka þeirra sem
berjast fyrir því að sljórnvöld í
Argentínu geri upp við fortíðina,
birti upplýsingar um afrif þeirra
sem „hurfu“ í „skítuga stríðinu“
á árunum 1976 til 1983 og dragi
þá seku til ábyrgðar. Samtökin
nefnast á spænsku „Asociación
Abuelas de Plaza de Mayo“ en
félagar í þeim eru eldri konur sem
áttu barnabörn er ýmist voru
myrt eða „hurfu“ á dögum ein-
ræðissljórnarinnar. Mæður
fórnarlambanna hafa einnig
myndað samtök sem einnig eru
kennd við Plaza de Mayo-torgið
í Buenos Aires þar sem konurnar
hafa safnast saman mörg undan-
farin ár til að krefjast þess að
réttlætinu verði fullnægt. Bera
þær jafnan myndir af börnum sín-
um og barnabörnum. Haft hefur
verið á orði að samviska þjóðar-
innar birtist í þessum kvennasam-
tökum, sem eru í hópi þeirra
þekktari í þessum heimshluta.
500 börnum rænt?
Estela Carlotto segir að upplýs-
ingar þær sem Adolfo Scilingo
hefur veitt á Spáni kom aðstand-
endum fórnarlamba einræðis-
stjórnarinnar ekki á óvart. Sam-
tökin hafi sent rannsóknardómar-
anum í Madrid upplýsingar m.a.
um börn þau sem „hurfu“ á þess-
um árum í Argentínu. Hún vekur
sérstaka athygli á að Scilingo
hafi engar nýjar upplýsingar get-
að veitt um afdrif barnanna.
Talið hefur verið að um 300
börn hafi verið tekin frá mæðrum
sínum eftir að þær höfðu verið
myrtar og þau afhent fjölskyldum
sem stjórnvöld höfðu velþóknun
á. „Við höfum skráð 230 slík til-
felli. En það er líklegt að börnin
hafi verið miklu fleiri, hugsanlega
um 500. í þessu efni er allt
hugsanlegt. Við teljum einnig að
í einhveijum tilfellum hafi ný-
fædd börn verið seld og þá jafn-
vel úr landi.“
Aðspurð um þá ákvörðun nú-
verandi forseta Argentínu og
forvera hans, Raul Alfonsín, að
náða þá sem dregnir höfðu verið
til ábyrgðar fyrir myrkraverkin
segir Estela Carlotto að þetta
hafi stjórnvöld gert þvert á vilja
fólksins í landinu. Carlos Menem,
núverandi forseti, hafi viljað
friðmælast við herinn og rang-
lega talið að með þessu yrði stuðl-
að að einhvers konar „þjóðar-
sátt“ í landinu. „ Allir þessir
menn, hver einn og einasti, eru
nú frjálsir. Við munum aldrei
sætta okkur við að morðingjar
og illvirkjar hafi verið náðaðir.
Við munum aldrei gleyma og
aldrei fyrirgefa. Og við munum
halda baráttu okkar áfram á
meðan þetta óréttlæti er látið
viðgangast."
Scilingo verði refsað
Estela Carlotto segir aðstand-
endur þeirra sem „hurfu“ líta svo
á að Adolfo Scilingo sé morðingi
og að hann beri að dæma fyrir
illvirkin sem hann framdi. Hún
bendir á að Scilingo hafi sjálfur
lýst því hvernig hann kastaði
meintum og yfirlýstum vinstri-
sinnum lifandi út úr flugvélum
að næturlagi og samvinna hans
í máiinu á Spáni fái aldrei breytt
þeirri staðreynd.
FJÖLBRAUTASKÓLINN
VIÐ ÁRMÚLA
Námskeið fyrir heilbrigðisstéttir
Námskeiðin eru 20 kennslustundir og eru kennd á fiórum kvöldum.
Kennslustaður: Fjölbrautaskólinn við Armúla.
Námskeiðstími: Námskeiðin byrja á miðvikudögum og enda á þriðjudögum.
Kennslutími: Klukkan 17.00 til 20.50.
Verð á námskeiðum: Hvert námskeið kostar kr. 8.000.
12. nóvember til 18. nóvember:
Heilbrigðisfræði fjölskyldna, 20 stundir.
Kennari Svava Þorkelsdóttir, hjúkrunarfræðingur — Stofa A13.
19. nóvember til 25. nóvember:
Siðfræði á tækniöld, 20 stundir.
Kennari Halldóra Bergmann, sálfræðikennari — Stofa A13.
Innritað verður á námskeiðin mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
milli klukkan 10.00 og 14.00 í síma 581 4022.
Staðfesta verður skráningu með greiðslu námskeiðsgjalds við pöntun.
Skólameistari.
Námskeið í nóvember 1997
Halldóra Bergmann
sálfræðikennari
Hryllingssögur úr „skítuga stríðinu“
Varpað lifandi
í haf ið að
næturlagi
hvort hér væri um að ræða siðferð-
islega óveijanlegan verknað. Ætt-
menni marga „hinna horfnu“ í Arg-
entínu hafa látið í ljós þá skoðun
að Scilingo beri að meðhöndla sem
morðingja og engu breyti þótt hann
hafi nú iðrast og ákveðið að hjálpa
Spánveijum við rannsókn málsins.
Verri en glæpaverk nasista
í sjónvarpsviðtali greindi sjóliðs-
foringinn fyrrverandi frá því að í
sumum tilfellum hefði fólkið verið
með meðvitund og mikil öskur
hefðu kveðið við er því varð ljóst
hvers konar dauðdagi beið þess.
Kvaðst hann ekki fá --------------
gleymt því er hann virti
fólkið fyrir sér „þar sem
það lá sofandi og því
ekkert því til fyrirstöðu
að kasta því frá borði.
Ég tel að allt hafí þetta fólk verið
saklaust. Þessi aðferð var viður-
styggilegri en nokkur sú sem þýsk-
ir nasistar beittu,“ sagði hann. Scil-
ingo kvað Eduardo Massera flota-
foringja, þann sem forseti Argent-
ínu náðaði fyrir sjö árum, hafa
skipulagt flugferðir þessar.
Scilingo hefur einnig Iýst því
hvemig námsmenn sem grunaðir
vom um vinstri hyggju vora leitað-
ir uppi í Universidad del Sur-háskól-
anum í Buenos Aires. Margir vom
handteknir og sumir þeirra „hurfu"
síðar. Ennfremur gerði hann grein
fyrir þeim skelfilegu aðstæðum sem
pólitískir fangar vom geymdir við
í tíð herforingjastjómarinnar.
Margir þjáðust af vannæringu og
sættu pyntingum. Scilingo starfaði
við ESMA-skólann svonefnda sem
heyrði undir flota Argentínu og var
helsta pyntingamiðstöð herfor-
ingjastjómarinnar. Gerði hann
grein fyrir því að póltískir andstæð-
ingar hefðu meðal annars verið
pyntaður með rafstraumi sem
hleypt var úr sérstökum tækjum
er nefndust „picanas". Árið 1976
hefðu óvenjumargir fangar látið líf-
ið er þeir sættu pyntingum þar eð
hermenn hefðu stjórnað tækjabún-
aðinum en síðar hefðu „sérfræðing-
ar“ úr sveitum lögreglunnar tekið
við þessu starfi og þá hefði dánar-
tíðnin lækkað. Brast Scilingo í
nokkmm sinnum í grát er hann
rifjaði þetta upp.
Mæður myrtar eftir barnsburð
Sérstaklega viðurstyggilegar
þykja þær fullyrðingar hans að
ófrískar konur sem handteknar
höfðu verið vegna stjómmálaskoð-
ana sinna hafi verið látnar fæða
böm sín og þær síðan myrtar. Böm-
in hefðu hins vegar verið
afhent völdum fjölskyld-
um hermanna til þess að
„þau hlytu kristilegt upp-
eldi“ eins og haft hefði
verið á orði. Nafngreindi
Scilingo þá sem stjómað hefðu
þessum „úthlutunum“ en líklegt
þykir að í einhveijum tilfellum hafí
bömin verið seld hjónum sem þráðu
að eignast afkvæmi. Talið hefur
verið að hér sé um 300 böm að
ræða.
Sjóliðsforinginn hélt því einnig
fram í yfírheyrslunum að katólska
kirkjan í Argentínu hefði tengst
voðaverkum þessum. Þannig hefðu
þeir sem þátt tóku í „dauða-flug-
ferðunum“ verið fullvissaðir um að
þeir þyrftu ekki að fyllast sektar-
kennd vegna verknaða sinna þar
sem morðin hefðu verið „kristnum
mönnum þóknanleg.“
Líkin brennd
Lengi hefur verið vitað að lík
stjómarandstæðinga, sem teknir
vom af lífi, voru í sumum tilfellum
Ríkisstjórnin
hefur kosið
þögnina
Ji
W
Baráttumann
í borgarstjórn!
brennd. Scilingo greindi einnig frá
vitneskju sinni hvað þetta varðar
en þau lík sem þá meðferð hlutu
vom flokkuð undir samheitið „hinir
grilluðu“ („los asados"). Herforingi
sá sem annaðist eyðingu líkamsleif-
anna var kallaður „Nornin" („La
Bruja“) en hann gat Scilingo á hinn
bóginn ekki nafngreint. Kvaðst sjó-
liðsforinginn fyrrverandi telja að
stórfelld iíkbrennsla hefði ekki farið
fram á þessum áram. Einungis lík-
um þeirra sem myrtir vom í sér-
stökum aðgerðum eða létu lífíð eft-
ir að hafa sætt pyntingum hefði
verið eytt með þessum hætti. Vitn-
ið kvaðst ekki sjálft hafa
komið nærri líkbrennsl-
unni en Scilingo sagðist
hafa gert sér ljóst að hún
færi fram þar sem hann
hefði sjö eða átta sinnum
verið beðinn að útvega gamla hjól-
barða, eldsneyti og flutningabíl.
Þögn stjórnvalda
Viðbrögðin í Argentínu við þess-
um yfirlýsingum herforingjans
fyrrverandi hafa verið blendin.
Ymsir hafa reynt að gera fram-
burð hans tortryggilegan og sagt
„iðmn“ hans ótrúverðuga og til
þess eins fallna að bæta stöðu
hans. Fyrrum félagar hans í hern-
um hafa sagt hann vera fyrirlitleg-
an „málaiiða" og „geðveikan".
Margir mannréttindafrömuðir í
Argentínu halda því fram að Scil-
ingo sé glæpamaður sem verð-
skuldi refsingu. Ríkisstjórn Arg-
entínu virðist á hinn bóginn hafa
kosið þögnina þótt Carlos Menem
forseti hafi að vísu efast um lög-
mæti réttarhaldanna á Spáni og
haldið því fram að Scilingo hafi
ásamt öðrum glæpamönnum þegar
verið leiddur fyrir rétt í heimalandi
sínu. Sjálfur hefur Scilingo sagt
að Menem forseti vilji ekki að hið
sanna í málinu verði gert opinbert.
20 ára bið loks á enda
Fjölmargir hafa hins vegar
fagnað þessu frumkvæði Spán-
veija. Þannig sagði í leiðara dag-
blaðsins Buenos Aires Herald á
dögunum að sögulegt mætti teljast
að fyrrum háttsettur hermaður
hefði nú í fyrsta skipti fengist til
að veita upplýsingar um grimmd-
arverkin sem framin voru í „skít-
uga stríðinu". Eftir þessu hefðu
Argentínumenn beðið í 20 ár.
„Réttarhöldin á Spáni leiða í ljós
á hversu veikum grunni ríkjandi
viðhorf hér í landi byggir, þ.e. að
vissulega hafi skelfílegir atburðir
gerst hér fyrir rúmum 20 árum
--------- en þeir megi ekki verða
til þess að vinna gegn
landi og þjóð í framtíð-
inni. Fyrst Spánveijum
er svo umhugað um að
giæpir sem hér voru
framdir fyrir tveimur áratugum
verði upplýstir.ættu stjórnvöld í
Argentínu að gera sér ljóst að þjóð-
ir sem æskja þess að fá notið sið-
menntaðrar framtíðar geta aldrei
litið svo á að of langt sé um liðið
til þess að rannsakaðir verði glæp-
ir gegn mannkyninu."
Óttast um fjölskyldu sína
Samtök ættmenna þeirra sem
„hurfu“ í tíð herforingjastjómar-
innar í Chile hafa fagnað því að
Scilingo skuli hafa komið fram
með þessum hætti og lýst þeirri
von sinni að fyrrum háttsettir
menn innan chileanska hersins fari
að dæmi hans og skýri frá vit-
neskju sinni um óðdæðisverkin sem
unnin voru í glímunni við vinstri
öflin í landinu.
Adolfo Scilingo, sem enn er í
vörslu spænskra yfirvalda, segist
einkum hafa áhyggjur af öryggi
fjölskyldu sinnar í Argentínu en
hann er maður kvæntur og faðir
fjögurra bama. Garzón rann-
sóknardómari hefur sérstaklega
farið þess á leit við yfirvöld í Arg-
entínu að fjölskyldunni verði
tryggð nauðsynleg vernd.
I
I
)