Morgunblaðið - 19.10.1997, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR - MFL. KARLA
HLÍÐARENDA
KL. 20.00 í KVÖLD
VALUR-BREIÐABUK
Valsmenn mætum í rauóu
Vefnaðarvara á nýjum stað
Líttu á okkar nýinnfluttu og frábæru efni
á mjög góðu verði.
Sauma- og viðgerðarjojónusta.
Opið í dag frá kl. 13-17.
textil line
Laugavegur 101, sími 552 1260.
-<o>.
Viltu læra að mála þig?
Við bjóðum upp á kvöldstund í Brá,
þar sem áhersla verður lögð á
► Umhirðu húðarinnar
► Dag- og kvöld make-up
Þ- Helstu nýjungar verða kynntar
Snyrtifræðingar og ráðgjafar verða á staðnum.
Námskeiðið byrjar kl. 20 og stendur til kl. 23. Verð 2.000 kr.
Pantanir eru teknar í síma 551 2170.
Auk þess bjóðum við upp áýmis sértilboð þessi kvöld.
Tilvalið fyrir saumaklúbbinn, kvenfélagið, vini og kunningja.
—<o>-
Snyrtivöruverslumn
Brá
Laugavegi 66, sími 551 2170
Prófkjör
sjálfstæðismanna
í Reykjavík
Munið utankjörstaðakosninguna
Kosið er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá kl. 9-17
og lýkur utankjörstaðakosningunni fimmtudag-
inn 23. október næstkomandi kl. 17.00.
Upplýsingamiðstöðin í Kringlunni er opin frá kl.
16 til 19 til fimmtudags 23. október.
Atkvæðisrétt eiga:
Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík
og á Kjalarnesi sem þar eru búsettir og náð hafa
16 ára aldri prófkjörsdagana. Einnig þeir sem
skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn prófkjörsdagana en
þeir þurfa að hafa náð 18 ára aldri við borgar-
stjórnarkosningarnar 23. maí 1998.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
ÍÞRÓTTIR
Kevin Keegan um brotthvarf sitt frá Newcastle
■
Reuters
KEVIN Keegan ásamt Terry McDermott aðstoðarmanni sínum meðan þeir störfuðu saman hjá
Newcastle Unlted. McDermott er þar enn en Keegan hætti skyndilega á síðasta keppnlstímabili.
Sé eftir að hafa
ekki látið stuðn-
ingsmennina vita
SJALFSÆVISAGA Kevins
Keegans, knattspyrnumanns
og fyrrum knattspyrnustjóra
hjá Newcastle i'Englandi, kom
út í vikunni. Þar segist Keegan
ekki sjá eftir að hafa hætt hjá
Newcastle á síðasta keppnis-
tímabili, heldur sjái hann eftir
þvf hvernig hann hætti - án
þess að láta stuðningsmenn
félagsins vita. „Ég er ekki bitur
yfir því að hafa hætt, en ég
vildi gjarnan hafa gert það á
annan hátt en ég gerði,“ segir
hann meðal annars, en Keegan
er nú aftur kominn til starfa á
knattspyrnusviðinu. Tók við
stjórninni hjá Lundúnafélaginu
Fulham á dögunum.
egar ég horfi til baka held ég
að best hefði farið á því að
ég hefði hætt þegar ég hætti sem
leikmaður hjá Newcastle á níunda
áratugnum. Þá var það tilkynnt 14.
febrúar, á afmælisdegi mínum, að
ég ætiaði að hætta í lok tímabils-
ins. Þannig var staðið að málum í
þá daga. Við héldum engu leyndu
fyrir stuðningsmönnum félagsins.
Þannig gerði ég það þegar ég var
framkvæmdastjóri og við seldum
Andy Cole - ég skýrði út fyrir
stuðningsmönnunum hvers vegna
við seldum hann. Ég vildi óska að
ég hefði gert eins þegar ég hætti,“
segir Keegan.
En hann gerði það ekki þannig.
Hann hætti skyndilega í janúar,
stjórnaði liðinu einn daginn og
næsta dag tilkynnti Keegan að
hann væri hættur. Fór síðan huldu
höfði um tíma en skaut upp kollin-
um á Flórída í Bandaríkjunum.
„Félagið var að breytast og ég hafði
fundið það í þijá eða fjóra mánuði.
Þegar ég tók við þar þekkti ég allt
starfsfólkið með nafni og ávarpaði
það með skírnarnafni. Þegar ég
hætti voru þúsund starfsmenn hjá
Newcastle og allt hafði gjörbreyst
- allir virtust hafa mestan áhuga
á hvernig félagið stæði sig á hluta-
bréfamarkaðnum. Það var ekki
lengur pláss fyrir mig hjá félaginu.
Ég hætti á hárréttum tíma þó svo
mér hafi verið boðinn tveggja ára
samningur. Ég hafði komist eins
langt með liðið og ég gat.“
Keegan átti stóran þátt í að
breyta Newcastle þannig að liðið
komst í fremstu röð. Þegar hann
tók við liðinu blasti fall í hina gömlu
3. deild við en tveimur árum síðar
endaði liðið í þriðja sæti úrvalsdeild-
arinnar og félagið er enn meðal
þeirra sterkustu í Englandi, nokkuð
sem stuðningsmennirnir áttu ekki
að venjast, ekki síðan á sjötta ára-
tugnum. Nú er Keegan í svipaðri
stöðu hjá Fulham því liðið hefur
ekki leikið í efstu deild í Englandi
í þijátíu ár, en er nú í áttunda sæti
í 2. deild. Keegan telur að þó svo
Fulham geti ekki orðið eins gott lið
og Newcastle þá sé hægt að gera
félagið það gott að það verði með
miðlungsgott úrvalsdeildarlið.
„Ég vil koma Fulham í úrvals-
deildina á næstu tveimur árum og
með Ray Wilkins sem fram-
kvæmdastjóra og Alan Smith sem
yfirmann unglingamála held ég að
það sé vel hægt. Ég er ekki að tala
um að við verðum eins stórt félag
í London og Arsenal eða Totten-
ham, en þegar ég skoða West Ham
tel ég að Fulham geti vel orðið svip-
að félag - sem gæti endrum og
sinnum átt möguleika á titli. Ég
held að með 25 til 30 þúsund manna
völl, þar sem allir hafa sæti, sé
þetta vel mögulegt. Ég veit að þetta
er dálítið öðruvísi hjá Fulham, en
því meira spennandi að stefna að
þessu markmiði."
Keegan segir að í næsta sinn
muni hann standast álagið sem
fylgir því að félag verður að hlutafé-
lagi og sé rekið af viðskiptajöfrum
með það eitt að markmiði að græða
nóg. „Ég lærði mikið hjá Newcastle
og veit að ef svipaðir hlutir gerast
aftur þá ræð ég við þá,“ segir Keeg-
an um leið og hann bendir á hvað
er varasamt fyrir íþróttina og þá
sem henni stjórna.
„Við verðum að vera á varðbergi
varðandi þá stefnu sem knattspyrn-
an er að taka og varast að ofgera
fólki ekki. Fyrir hálfum mánuði
voru níu leikir sýndir í sjónvarpi á
þremur dögum og aðeins einn eða
tveir voru þess virði að horfa á þá.
Haldi þessi þróun áfram á knatt-
spyrnan á hættu að fara sömu leið
og snóker, fijálsíþróttir og pílukast.
A sumrin er hægt að fylgjast með
Merlene Ottey etja kappi við ein-
hveija stúlku frá Þýskalandi eða
einhveiju öðru landi og það skiptir
í rauninni engu máli hvort keppt er
í Lausanne, Zurich eða Þýskalandi
- allt er þetta eins,“ segir Keegan.
Orð hans voru greinilega í tíma
töluð því í síðustu viku var Fijáls-
íþróttasamband Bretlands lýst
gjaldþrota.