Morgunblaðið - 19.10.1997, Page 18
18 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Yaxandi áhugi á
Brennu-Njálssögu
Samsæri í
hverju homi
VAXANDI áhugi á íslendingasög-
unum, ekki síst Brennu-Njálssögu,
virðist vera í þjóðfélaginu um þess-
ar mundir. Sér þess merki á sýn-
ingum, námskeiðum, ferðum um
söguslóðir, í bókaútgáfu og nú
stendur meira að segja fyrir dyrum
frumsýning á nýju leikriti, þar sem
efniviðurinn er að miklu leyti sótt-
ur í Njálu.
Jón Böðvarsson íslenskufræð-
ingur hefur í áratug haft umsjón
með námskeiðum um íslendinga-
sögurnar á vegum Tómstundaskól-
ans og Endurmenntunarstofnunar
Háskóla íslands. Beinir hann sjón-
um sínum nú í þriðja sinn að
Brennu-Njálssögu. Á fyrsta nám-
skeiðinu, 1987, voru þátttakendur
ellefu, 162 á öðru námskeiðinu sem
haldið var haustið 1992 - nú eru
þeir 490.
„Ég verð að segja alveg eins og
er að ég geri mér ekki grein fýrir
því hvers vegna áhuginn hefur
aukist svona mikið,“ segir Jón en
bendir á vaxandi áhuga á ferðum
um söguslóðir íslendingasagnanna
sem hugsanlega skýringu. „Það
hefur færst mjög í vöxt á síðustu
árum að hópar af ýmsu tagi hafa
pantað ferðir um söguslóðir og ég
get mér þess til að þessar ferðir
hafi ýtt undir áhugann á sögunum
sjálfum."
Yngra fólk
á námskeiðinu
Að_ auki segir Jón að svo virðist
sem íslendingasögurnar hafi verið
teknar fastari tökum í framhalds-
skólum landsins undanfarin ár og
það starf sé hugsanlega farið að
skila sér. Þá bætir hann við að sér
sé kunnugt um að áhugi íslensku-
nema við Háskóla íslands á þessum
þætti í arfleifð okkar sé óvenju
mikill nú um stundir. „í gegnum
árin hafa námskeiðin hjá mér að
mestu verið sótt af eldra fólki,
sextugu og eldra. Nú er hins vegar
í hópnum fjöldinn allur af yngra
fólki, allt niður í átján ára.“
Að sögn Jóns kemur þetta fólk
úr öllum áttum og öllum þrepum
þjóðfélagsstigans. Konur hafi
lengst af verið íjölmennari en karl-
amir séu á hinn bóginn að sækja
í sig veðrið.
Námskeið Jóns hafa jafnan stað-
ið í eitt misseri, á haustin, en nú
hyggst hann bjóða upp á fram-
haldsnámskeið á vormisseri, þar
sem Njála er lengst íslendinga-
sagna. Námskeiðin eru aðskilin en
Jón kveðst fastlega gera ráð fyrir
að þorri hópsins fylgi honum í
gegnum veturinn.
En Brennu-Njálssaga er víðar í
brennidepli en á námskeiðum, því
frá því í vor hefur staðið yfir á
Sögusetrinu á Hvolsvelli sögusýn-
ing tengd Njálu. Hefur hún verið
vel sótt, að sögn Guðjóns Árnason-
ar, framkvæmdastjóra setursins,
en sýningin verður flutt í nýtt
húsnæði eftir næsta mánuð. Verð-
ur hún opnuð að nýju í febrúar
1998 en, að sögn Guðjóns, er stefnt
að því að hún verði opin allt árið
um kring.
Guðjón segir ennfremur að
ásókn í ferðir um söguslóðir Njálu
í næsta nágrenni Hvolsvallar, sem
NJÁLL á Bergþórs-
hvoli. Mynd úr Njálu-
handriti frá 1698.
Sögusetrið skipuleggur, sé stöðugt
að aukast og skólar nýti sér þenn-
an möguleika í auknum mæli. Þá
er unnið að því um þessar mundir
að merkja helstu sögustaði Njálu
í Rangárvallasýslu.
Við þetta bætist að Vaka-Helga-
fell gefur út viðhafnarútgáfu Hall-
dórs Laxness á Brennu-Njálssögu
fyrir jólin, nákvæma endurgerð
útgáfu Helgafells frá 1945. Þá
verður nýtt leikrit, Gallerí Njála
eftir Hlín Agnarsdóttur, frumsýnt
í Borgarleikhúsinu 6. nóvember
næstkomandi. Um er að ræða nú-
tímaleikrit en efniviður sýningar-
innar er að mestu sóttur í Brennu-
Njálssögu.
KVIKMYNDIR
Bíðborgin/
Kringlubíó/
Sambíóin.Álfabakka
„CONSPIRACY THEORY"
★ ★ */2
Leikstjóri: Richard Donner. Handrit:
Brian Helgeland. Kvikmyndataka:
John Schwartzman. Aðalhlutverk:
Mel Gibson, Julia Roberts, Patrick
Stewart, og Cylk Cozart. 130 mín.
Bandarísk. Wamer Bros./ Donn-
er/Schuler-Donner Productions/ Sil-
ver Pictures. 1997.
RUGLAÐUR leigubílstjóri í New
York hrellir farþega sína með ýmsum
samsæriskenningum á milli þess sem
hann fylgist með draumadís sinni úr
fjarlægð. Þessi útgangspunktur
„Conspiracy Theory“ minnir um
margt á „Taxi Driver“ en í þessari
nýjustu kvikmynd Richard Donner
er ofsóknarbrjálæðið og skelfmgin
jöfnuð út með góðum skammti af
skopi svo útkoman er frekar fyndin
spennumynd.
Mel Gibson er Jerry Fletcher,
leigubílstjóri sem sér samsæri í
hveiju horni. Julia Roberts er lög-
fræðingurinn Alice Sutton sem Jerry
er heillaður af. Hann heimsækir hana
reglulega tii að segja henni frá síð-
asta samsærinu, og einhverra hluta
vegna gefur hún sér tíma til að hlusta
á ruglið í honum. Eins og Gibson
leikur Jerry er ljóst frá upphafí að
þótt hann þjáist af ranghugmyndum
og sé áttavilltur og órólegur er hann
óvitlaus. Handrit Brian Helgeland
leyfir Gibson að gera Jerry hálffynd-
inn en ekki óhugnanlegan rugludall.
Framan af rúllar „Conspiracy The-
ory“ nokkuð vel. Það kemur fljótt á
daginn að Jerry er ekki allur þar sem
hann er séður og eitthvað virðist
vera til í hugmyndum hans um þá
þegar starfsmenn bæði viðurkenndr-
ar og óviðurkenndrar ieyniþjónustu-
starfsemi fara að sýna honum áhuga
og virðast jafnvel vilja hann feigan.
Hinn ískyggilegi dr. Jonas (Patrick
Stewart) mætir á svæðið og með
honum fylgir svart samsærisský.
Myndin fer síðan yfir á svið „The
Manchurian Candidate" þegar gefið
er í skyn að ill öfl séu að beita heila-
þvotti til þess að gera menn að full-
komnum launmorðingjum.
Stewart er feikiskemmtilegur sem
hinn kuldalega illi geðlæknir, hann
beinlínis geislar af mannvonsku. Gib-
son tekst einnig ágætlega að túlka
hinn truflaða og á stundum aumkun-
arverða Jerry, sem reynist vera ótrú-
lega úrræðagóður þegar kemur að
því að snúa á mennina sem eru á
hælunum á honum. Roberts sýnir líka
góða takta sem lögfræðingurinn
Alice sem veit ekki hverjum hún á
að trúa en er fljót að gripa tækifær-
ið þegar hún sér möguleika á því að
hefna dauða föður síns.
Þrátt fyrir góða frammistöðu leik-
ara í helstu hlutverkum og þokkalega
spennu framan af missir „Conspiracy
Theory“ flugið þegar málin fara að
skýrast. Það er eins og Donner og
Helgeland kunni ekki að stoppa.
Lopinn er teygður og flæktur of
mikið og of lengi þannig að myndin
missir smám saman dampinn og að
lokum er klínt á hálflummó endi.
Anna Sveinbjarnardóttir
VAROA
„Hafðu samband við bankann þinn og ki/nntu
þér víðtæka þjónustu Vörðunnar. “
„Þegar ég er ísambandi við bankann minn er það til að fá þjónusru en
ekki til að biðja um einhverja ft/rírgreiðslu. Égstarfa sjálfsrætr sem arkitekt
og tekjur og útgjöldgera r.d. verið misjöfn frá mánuði til mánaðar. Þess
vegna læt ég bankann minn um að dreifa útgjöldunum á allt árið. Þetta
er þjónusta sem hentar mér mjög vel - þess vegna er ég í Vörðunni. “
Landsbankmn trei/stir fólki eins og Þorsteini
og veitir því sveigjanlega f jármálaþjónustu í
Vörðunni. Þorsteinn er einn af þeim sem þurfa
t.d. ekki á láni að halda í dag, en vilja gjarnan
eiga rétt á því á morgun. I Vörðunni býðst honum
það öryggi og þau þægindi sem í því felast að
hafa öll sín fjármál á einum stað.
•
•
í Vörðunni er margt í boði, meðal annars:
• Yfirdráttarheimild, allt að 300.000 kr.
án ábyrgðarmanna.
• Vörðulán, allt að 700.000 kr. án ábi/rgðarmanna.
• Gulldebetkortið, aðildarkort Vörðunnar sem veitir
aðgang að ýmsum fríðindum.
• Gullkreditkort, Visa og Vildarkort Flugleiða.
• Ferðaklúbbur fjölskyldunnar.
• Bílalán, hagstæð lán til bílakaupa.
• Stighækkandi vextir á Einkareikningi.
• Punktasöfnun, í hvert skipti sem þú notar
gullkortin færð þú 2 punkta, hvar sem þú verslar.
•
•
Með því að beina viðskiptum sínum á einn stað á
fjölskyldan auðvelt með að safna yfir 15.000 punktum
hjá bankanum á ári í Vildarklúbbi Flugleiða. Vörðufétagar
geta einnig safnað punktum með viðskiptum hjá
Landsbréfum, með því að kaupa F+ fjölskyldutryggingu
VÍS, og nú þegar hjá yfir 160 verslunar- og
þjónustufyrirtækjum sem tengjast Vildarklúbbi Flugleiða.
Síðan má breyta punktum í peninga eða nota þá sem
greiðslu vegna ferðalaga.