Morgunblaðið - 19.10.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997 51
>
)
)
I
>
i
í
I
I
I
I
4
I
4
4
4
i
J
ÍDAG
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
°afn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, sent á net-
fangið ritstj@mbl.is
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
HOGNIHREKKVISI
/, Sporhundajufo/par."
Nýmynd, Keflavík.
BRÚÐKAUP. Gefm voru
saman 19. október 1996 í
Keflavíkurkirkju af sr. Sigf-
úsi B. Ingvasyni Elínborg
Sigurðardóttir og Krist-
ján Björgvinsson. Heimili
þeirra er að Háteigi 21,
Keflavík.
bruðkaup. Gefin voru
saman 6. september í Há-
teigskirkju af sr. Valgeiri
Astráðssyni Valbjörg
Þórðardóttir og Guðjón
D. Haraldsson. Heimili
þeirra er á Freyjugötu 25,
Reykjavík.
Nýmynd, Keflavík.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 12. október í Kefla-
víkurkirkju af sr. Ólafi Oddi
Jónssyni Fanney Petra
Ómarsdóttir og Garðar
Guðmundsson. Heimili
þeirra er að Sunnubraut 50,
Keflavík.
Nýmynd, Keflavlk.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. maí í Keflavíkur-
kirkju af sr. Sigfúsi B.
Ingvasyni Þórey Hilmars-
dóttir og Jóhannes Jó-
hannesson. Heimili þeirra
er að Hátúni 23, Keflavík.
Nýmynd, Keflavík.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 5. apríl í Keflavíkur-
kirkju af sr. Sigfúsi B.
Ingvasyni Róberta Bára
Maloney og Viðar Ólafs-
son. Heimili þeirra er í
Smáratúni 38, Keflavík.
Ljósmyndarinn - Lára Long.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. júlí í Dómkirkj-
unni Ásgerður Ásgeirs-
dóttir og Jan Erik Fred-
riksen. Heimili þeirra er í
Noregi.
ORÐABÓKIN
Þágna og leigna
MJÓLKURSAMSALAN
(MS) hefur um nokkurt
skeið birt mjög þarfar
ábendingar um málfar á
mjólkurfernum sínum.
Mun það að einhveiju
leyti gert í samvinnu við
Islenzka málnefnd. Hvet
ég menn eindregið til
þess að kynna sér það,
sem þar stendur, og að
sjálfsögðu tileinka sér
það í ræðu og riti. Því
miður held ég margt af
því, sem þar er sagt, fari
fyrir ofan garð og neðan
hjá of mörgum. Sama
má víst segja um þessa
pistla í Mbl. Ýmislegt,
sem birtist á fernunum,
hefur einnig orðið um-
ræðuefni í þessum pistl-
um, en góð vísa er vissu-
lega aldrei of oft kveðin.
Þess vegna vil ég hér
leggjast á árar með MS
og þeim, sem þar koma
að. Ofangreinda fyrir-
sögn má lesa á einni fem-
unni og svo þessi dæmi:
Hann fór á milli mynd-
bandaleigna. Hún leitaði
undanþágna. Svo segir
orðrétt: „Orðið mynd-
bandaleiga beygist eins
og hjáleiga, endar í eign-
arfalli fleirtölu á -na.
Sum orð taka á sig
skemmtilegar myndir við
fallbeygingu, ekki síst í
eignarfalli fleirtölu.
Þannig verður kráka til
dæmis krákna, klessa
verður klessna, bóla
verður bólna, hrúga
verður hrúgna og varða
er varðna í eignarfalli
fleirtölu.“ Hér má svo
bæta við: byssna, ekkna,
kirkna, krafna,
sprengna, stúlkna, sem
allt eru algeng orð í mál-
inu. Til mun vera sjóður,
sem heitir Ekknasjóður
íslands.
J.A.J.
Árnað heilla
STJ ÖRNUSPÁ
cftir Franccs Urakc
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert ævintýragjarn og
breytingar eru þér að
skapi. Haltu þínu striki
ogþér mun farnast vel.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl) a-fc
Nú er rétti tíminn til þess
að halda fast um pyngjuna
og forðast öll óþarfa út-
gjöld. Mundu að ekki er flas
til fagnaðar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Farðu varlega í viðskiptum
og reyndu að tiyggja þig
gegn óvæntum áföllum.
Láttu fara vel um þig í dag.
Tvíburar
(21.maí-20.júní) 4»
Farðu vel með þær upplýs-
ingar sem þér eru gefnar í
trúnaði. Svaraðu bréfum
sem til þín eru send. Sýndu
öðrum tillitssemi.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlí)
Með fyrirhyggju ættir þú
að geta nýtt þér viðkvæmar
upplýsingar í starfi þínu.
Hvíldu þig og gefðu þér
tíma fyrir fjölskylduna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú veist hvað þú vilt og
þess vegna er kominn tími
til að þú takir frumkvæðið
í þínar hendur og látir hjól-
in snúast.______________
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <!l$
Aðgát skal höfð í nærveru
sálar. Kvöldinu er vel varið
með góðum vinum. Gættu
hófs í mat og drykk.
Vog
(23. sept. - 22. október) 5
Þú þarft að íhuga þær leið-
ir sem þér eru færar og
drífa svo í hlutunum. Sinntu
fjölskyldunni í kvöld.
Sþorddreki
(23. okt. - 21. nóvember) Hij0
Þótt þú hafir gaman af að
heyra sjálfan þig tala, þá
gættu þess að leyfa öðrum
að leggja til málanna líka.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Gættu þess að láta tóm-
stundamálin ekki taka svo
mikinn tíma frá þér að það
bitni á starfmu. Símtal
kemur þér úr jafnvægi.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Sú fyrirhyggja sem þú hef-
ur sýnt að undanfömu fer
nú að skila sér og þú mátt
vel við árangurinn una.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Gættu þess að óvæntir at-
burðir slái þig ekki alveg
út af laginu. Sýndu stað-
festu. Hafðu jákvæð sam-
skipti við fólk.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars) i
Erfiðleikar sem koma upp
í starfi munu reyna á alla
þína hæfileika, en mál
munu leysast.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spír aí þessu tagf
bygg/ast ekki á traustum
grunni visindalegra staðreynda.
Samkvæmisfatnaður
í glæsilegu úrvali
Opið til kl. 19 alla næstu viku
t>í&kuhú&
Hverfisgötu 52, sfmi 562 5110
FlUimiK HAiVSHX
GUDMIJNDSSON
í eitt af efstu sætunum
Kosningaskrifstofa
Laugavegi 13,3. hæð
s: 551 3499 fax: 551 3479
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins 24. - 25. okt.
2|a, 3Ja, 4ra og 5 herbergja íbúðlr tll sðlu.
Sérstaklega til athugunar:
Stór barnaherbergi, rúmgott baðherbergi,
svefndeildin útaf fyrir sig, stórt eldhús og stofa.
Einstaklega góðar svalir mót suðri.
Upplýsingar gefur:Byggingaraðili: Örn ísebarn, sími 896 1606
40 ára reynsla vió húsbyggingar
Jónu Gróu í 3. sætið!
Kosningaskrifitofan er opin kL 15-22 alla virka daga,
en kl. 14-18 um helgar. Siminn er 588 5230 (3 It'nur).
Allir sjálfstæðismenn eru
velkomnir á
kosningaskrifstofu
Jónu Gróu Sigurðardóttur
borgarfulltrúa á
Suðurlandsbraut 22.
Stuðningsmenn
'
II
Stúdentar tra
Menntaskólanum við Hamrahlíð!
Út er komið veglegt afmælisrit í tilefni af 30 ára afmæli
Menntaskólans við Hamrahlíð. í ritinu er m.a. að fínna
kennara- og stúdentatal allra áranna, sögu skólans í
samantekt fyrstu rektoranna, Guðmundar Arnlaugssonar og
Örnólfe Thorlacius, ásamt greinum eftir Stefán Briem og
Heimi Pálsson. Einnig er rakin saga kórastarfeins í
skólanum. Ritstjóri er Heimir Pálsson.
Nú stendur yfir símasala til stúdenta frá skólanum. Núverandi
nemendur bera hitann og þungann af sölunni. Allir stúdentar
skólans geta haft gagn og gaman af ritinu og vonast er eftir
að þið takið sölufólkinu vel.
Innbundið kostar afmælisritið 3.500 kr. en óbundið 2.500 kr.
Ritið fæst einnig á skrifstofú skólans, bóksölu MH og í
bókabúðum Máls og menningar.