Morgunblaðið - 13.01.1998, Síða 1
112 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
9. TBL. 86. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
_ > A
Stjórnvöld í Bretlandi og Irlandi reyna að blása lífí í viðræður Norður-Ira
Alsír
Samkomulag
/ •
um njgar
friðartillögur
Belfast. Reuters.
RIKISSTJORNIR Bretlands og Ir-
Reuters
GERRY Adams, leidtogi Sinn Fein, stjórnmálaflokks írska lýðveldis-
hersins (IRA), ræðir við fréttamenn við Stormont-kastala í Belfast, þar
sem friðarviðræður norður-írsku flokkanna hófust að nýju í gær.
lands náðu í gær samkomulagi um
nýjar tillögur, sem vonast er til að
stuðli að friði á Norður-írlandi og
blási lífi í friðarviðræður flokka mót-
mælenda og kaþólikka í Belfast.
Heimildarmenn í Belfast sögðu að
í tillögunum væri gert ráð fyrir að
Norður-írland fengi eigið þing og
komið yrði á fót ráði sem yrði undir
það og þing Irlands sett. Ennfremur
er gert ráð fyrir því að stofnað verði
varanlegt ráð, skipað fulltrúum
breskra og írskra stjómvalda.
írskur embættismaður lýsti tillög-
unum sem lauslegum drögum að
hugsanlegu friðarsamkomulagi sem
höfð yrðu til hliðsjónar í viðræðunum
í Belfast. Breskur embættismaður
sagði að í tillögunum kæmu fram
ýmsar hugmyndir um hvernig hægt
væri að leysa deiluna um framtíð N-
írlands en það væri hlutverk flokk-
anna, sem taka þátt í viðræðunum,
að semja um þær í smáatriðum.
Fallast á tillögurnar
Heimildarmenn í stærstu flokkum
mótmælenda og kaþólikka, Sam-
bandsflokki Ulster (UUP) og Jafnað-
ar- og verkamannaflokknum, sögðu
þá geta fallist á tillögumar sem um-
ræðugrundvöll í viðræðunum.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, var staddur í Japan og
breskir embættismenn sögðu að
hann hefði rætt tillögurnar átta sinn-
um í síma við Bertie Ahern, forsætis-
ráðherra Irlands, síðasta sólarhring-
inn áður en samkomulagið náðist.
Flokkum mótmælenda, sem vilja
að Norður-Irland verði áfram hluti
af Bretlandi, og kaþólikka, sem vilja
að héraðið sameinist Irlandi, hafði
ekki tekist að ná samkomulagi um
umræðugrundvöll áður en mánaðar-
hlé var gert á friðarviðræðunum í
desember. Viðræðurnar hafa staðið
frá því í júní 1996 en þær hófust ekki
fyrir alvöru fyrr yn Sinn Fein,
stjórnmálaflokkur Irska lýðveldis-
hersins (IRA), fékk aðild að þeim í
september eftir að IRA lýsti yfir
vopnahléi.
■ Bretar og Irar semja/26
Ekkert
lát á blóð-
baðinu
Algeirsborg. Reuters.
EITT hundrað og þrír óbreyttir
borgarar voru myrtir í Alsír í fyrri-
nótt og 70 særðust, margir lífs-
hættulega. Hafa þá meira en 1.100
manns fallið í árásum hryðjuverka-
manna síðan föstumánuður
múslima hófst 30. desember sl.
Talsmaður hersins sagði, að
morðin hefðu átt sér stað í bænum
Sidi Hamed fyrir sunnan Algeirs-
borg og hafist með því, að sprengja
sprakk á kaffihúsi. Létu þar nokkr-
ir lífið en alls féllu 103 í árásinni og
70 særðust. Er tvísýnt um líf 10
þeirra. Börðust hermenn og sjálf-
boðaliðar við hryðjuverkamennina
og voru nokkrir þeiira felldir að
sögn.
Einn af leiðtogum FIS, Islömsku
frelsisfylkingarinnar, sem er bönn-
uð í Alsír, sagði í gær, að stöðva
mætti blóðbaðið í landinu ef Vest-
urlönd gætu fengið stjómvöld til að
setjast að samningaborði með
strangtrúarmönnum.
Reuters
Kafaldssnjór í Jerúsalem
ÓVENJULEGT fannfergi er í
Miðausturlöndum og í Jerúsalem
var í gær 20 sm jafnfallinn snjór.
Er vitað um tvö dauðsföll af
völdum veðursins, sem margir
láta sér þó vel líka. Yfirleitt ger-
ir eitthvert fjúk í Jerúsalem á
hverjum vetri en mest snjóaði
þar 1950 þegar mjöllin var 70 sm
djúp.
Irakar stöðva
vopnaeftirlit
Bagdad. Reuters.
ÍRAKSSTJÓRN tilkynnti í gær,
að starfsemi vopnaeftirlitsnefndar
Sameinuðu þjóðanna I landinu yrði
stöðvuð í dag vegna þess, að yfir-
maður hennar væri Bandaríkja-
maður, sem hún sakar um njósnir.
Bandaríkjastjóm mótmælti til-
kynningunni harðlega og sagði
Iraksstjóm ekki geta ákveðið
hverjir væru í eftirlitsnefndinni.
Iraska fréttastofan INA sagði,
að starfsemi eftirlitsnefndarinnar
undir forystu Scotts Ritter yrði
stöðvuð í dag en Irakar hafa oft
sakað Ritter, sem var foringi í
Bandaríkjaher í Persaflóastríðinu,
um njósnir. Sagði INA, að nefnd-
inni yrði ekki leyft að starfa fyrr en
skipan hennar hefði verið breytt en
nú em í henni níu Bandaríkja-
mennj fimm Bretar, einn Rússi og
einn Astrali.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær, að reyndu írakar
að hindra nefndina í störfum sín-
um, yrði öryggisráð SÞ að koma
vitinu fyrir þá enda væri það ekki
Saddams Husseins íraksforseta að
velja nefndarmennina.
Kemur ekki á óvart
Irakar ráku bandarísku nefndar-
mennina úr landi í nóvember sl. en
afturkölluðu síðan brottreksturinn
eftir mikið þref og samningaum-
leitanir. Ken Bacon, talsmaður
bandaríska hermálaráðuneytisins,
sagði í gær, að Bandaríkjastjórn
væri reiðubúin að styðja öryggis-
ráðið í því að neyða Iraksstjórn til
að hlíta vopnahlésskilmálunum,
sem samið var um eftir Persaflóa-
stríð.
Fréttaskýrendur segja, að til-
kynning íraka hafi ekki komið á
óvart og við henni hafi verið búist.
Eystrasaltsríkin og NATO
Bandaríkin hlynnt
LEIÐTOGAR Bandaríkjanna og
Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eist-
lands, Lettlands og Litháens,
munu á föstudag undirrita í Was-
hington sérstákan samstarfssátt-
mála þar sem kveðið verður á um
stuðning Bandaríkjastjórnar við
tilraunir ríkjanna til að fá aðild að
Atlantshafsbandalaginu, NATO.
Sagði bandaríska stórblaðið The
New York Times frá þessu í gær.
I samstarfsskránni er Eystra-
saltsríkjunum ekki lofað aðild,
sem Bandaríkjastjóm getur ekki
upp á sitt eindæmi, en hún heitir
hins vegar stuðningi við tilraunir
þeirra til að tengjast NATO. Þykir
yfirlýsingin skýrt dæmi um, að
Bandaríkjastjórn horfi lengra en
til aðildar Póllands, Tékklands og
Ungverjalands. Ekki er samt bú-
ist við, að Eystrasaltsríkin fái
NATO-aðild fyrr en eftir einhvern
árafjölda.
Suðaustur-Asía
Krepp-
an tekur
nyjan
kipp
Hong Kong, Djakarta. Reuters.
F JARMÁL AKRE PPAN í
Asíu tók nýjan kipp í gær
þegar gengi verðbréfa í Hong
Kong tók djúpa dýfu og gengi
tælenzka gjaldmiðilsins náði
nýju lágmarki.
Ný teikn um að efnahagur
Suður-Kóreu sé kominn yfir
versta hjallann urðu þó til að
draga úr áhyggjum áhrifa-
mestu seðlabankastjóranna,
sem funduðu í Sviss um að-
stoð við Asíuríkin og áhrif
asísku kreppunnar á efna-
hagslíf heimsins.
Mikill órói var í kauphallar-
viðskiptum á svæðinu og
gengi verðbréfa í Hong Kong,
Tókýó og Sydney féll tölu-
vert.
Japanska jenið lækkaði
gagnvart dollaranum og
gengi tælenzka bahtsins náði
nýju metlágmarki.
I Indónesíu, sem sviðsljósið
hefur beinzt að undanfarna
daga vegna kauphallarhruns
og ólgu, var hins vegar tíð-
indalítið á fjármálamörkuðum
í gær, sem rakið er til þess að
vonir eru bundnar við að við-
ræður fulltrúa Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins og fleiri máls-
metandi aðila við stjórnvöld
skili árangri.
■ Suharto heitir/26