Morgunblaðið - 13.01.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.01.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ n d i n g KitchenAid U.S.A. leitar eftir gömlum KitchenAid hrærivélum til að nota til útstillinga í Evrópu. Ef þú átt eina siíka bjóðum við þér að taka hana upp í nýja KítchenAid K90 i guium lit iýrir kr. 5.000 Ástand og útlit skiptir ekki máli. Nýttu þér þetta einstaka tækifæri strax! KltchenAld K90, gul.......... kr. 33.400 Gömul KUchenAld ............. kr. 5.000 Þú grelðlr kr. 28.400 Eða staðgreltt............... kr. 26.730 ///”' Einar Farestveit&Cohf Morgunblaðið/Silli GRUNDAGARÐUR á Húsavík er mikið til uppbyggður af kaup- leiguíbúðum. Félagsleg'ar íbúðir vandamál Húsavík - Kaupskylda sveitarfé- laga á félagslegum íbúðum er víða orðið nokkuð vandamál og að sögn bæjarstjórans á Húsavík, Einars Njálssonar, gerir áætlunin ráð fyr- ir óbreyttum rekstri félaglegra íbúða og að ekki verði keyptar eða byggðar nýjar íbúðir í kerfínu. „Vert er að hafa í huga að eftir- spurn eftir íbúðum í félagslega kerfínu hefur minnkað. Víða er þetta orðið vandamál en sveitarfé- lögum ber skylda til að leysa til sín íbúðir sem ekki seljast. í upphafi árs 1998 verða 9-10 íbúðir skráð- ar í eigu Húsavíkurkaupstaðar. Þær eru flestar í leigu,“ sagði Ein- ar ennfremur þegar fjárhagsáætl- un yfírstandandi árs var lögð fram. A smærri stöðum, meðal annars í lögsagnarumdæmi Þingeyjar- sýslu, Raufarhöfn og Þórshöfn, er farið að bera nokkuð á þessu vandamáli. Morgunblaðið/Sig. Fannar. ÞAU kunna lagið á því leikskólabömin á Hellu. Nýtt íþróttahús rís á Hellu Selfossi - Það voru leikskólabörnin á Hellu sem tóku fyrstu skóflustunguna að nýju íþróttahúsi sem kemur til með að þjónusta íbúa á Hellu og nágrenni. Iþróttahúsið er 1215m2 að stærð og er byggt upp úr límtré og Yleiningum frá Límtré hf. í mörg ár hafa íbúar Hellu beðið eftir því að fá íþróttahús en fyrir er mjög góð aðstaða til sundiðkunar. Það var á seinasta ári sem hrepps- nefndin tók þá ákvörðun að ráðast í byggingu hússins. Byggingaverk- takinn Rangá hefur tekið að sér að annast framkvæmdir en um alútboð er að ræða. Framkvæmdum verður lokið á miðju ári 1999 og verður íþróttahúsið tekið í notkun um haustið Húsdýraúrgangur til landgræðslu Vogum - Um 500 tonnum af úr- gangi frá loðdýrabúinu að Auðn- um á Vatnsleysuströnd hefur ver- ið ekið í hauga á Vogastapa þar sem hann verður notaður til land- græðslu. Hafsteinn Hilmarsson hjá verk- takafyrirtækinu Hafsteinn og Gunnar segir að búið sé að aka um 500 tonnum af loðdýraúrgangi og um eitt þúsund tonnum af mold á Vogastapa þar sem efnin verði hörpuð og grasfræi blandað í þau og síðan dreift til uppgræðsluör- fokalands. Það eru samtökin Gróður í land- námi Ingólfs sem standa fyrir þessu framtaki. Átta ára drengur valinn Sunnlendingur ársins 1998 Borgartúni 28 7? 562 2901 og 562 2900 Selfossi - Lesendur Dagskrárinnar og hlustendur Utvarps Suðurlands völdu Sverri Gestsson, 8 ára gaml- an Selfyssing, Sunnlending ársins 1997. Sverrir Gestsson hefur á sein- asta ári gengið í gegnum mjög erf- ið veikindi. Snemma á árinu greindist hann með illkynja æxli í heila. Hann þurfti að gangast und- ir erfiða aðgerð ásamt geislameð- ferð. Sverrir hefur þótt sýna ótrú- legan viljastyrk í veikindum sínum og hefur framganga hans og yfir- vegun m.a. orðið til þess að hjálpa honum yfir erfiðasta hjallann. Fjölskylda Sverris hefur staðið eins og klettur á bakvið piltinn í veikindúm hans. Foreldrar Sverris eru þau Rannveig Árnadóttir og Gestur Traustason. Sverrir á eina systur, Díönu Gestsdóttur, sem gengur undir nafninu systir ársins. Er á batavegi í dag er Sverrir á batavegi, að- Vilja- sterkur í veikind- um sínum gerðin heppnaðist vel og er hann nánast komin á fullt skrið á ný. Þeir sem þekkja til segja viíja- styrkinn og yfirvegun drengsins hafa hjálpað honum mikið. Gestur, faðir Sverris, segir að húmorinn hafi líka mikið að segja. „Við fjöl- skyldan höfum reynt að hafa um- hverfið eins létt og hægt er siðan veikindin komu í ljós. Það hjálpar börnum sem eiga við veikindi að stríða að líta á björtu hliðarnar til þess að finna vonina og það hefur Sverrir svo sannarlega gert.“ Sverrir hefur stundað nám síðan í haust, þó svo að hann hafi ekki alltaf mætt sem skyldi vegna veik- inda sinna en með aðstoð móður sinnar hefur hann lagt hart að sér við heimalærdóminn og fyrir síð- astliðin jól tók hann mjög góð próf. Mikil hvatning Sverrir er mjög ánægður með tilnefninguna. Rannveig segir þetta hjálpa honum mikið. „Til- nefningin er öðruvísi hvatning sem virkar vel á hann.“ Þau Rannveig og Gestur vilja færa öllum þeim sem sýndu honum þennan heiður bestu þakkir. Einnig vilja þau þakka Styrktarfélagi krabba- meinssjúkra barna fyrir aðstoð og hjálp en Styrktarfélagið hefur unnið mikið og gott starf fyrir þau börn sem hafa þurft að beijast við krabbamein. Morgunblaðið/Sig. Fannar. ÖRN Grétarsson, ritstjóri Dagskrárinnar, afhendir Sverri skjal til staðfestingar á valinu sem lesendur blaðsins stóðu að. FJÖLSKYLDA Sverris. F.v. Gestur Traustason, Dí- ana Gestsdóttir, Rannveig Árnadóttir og Sunnlend- ingur ársins, Sverrir Gestsson. HAUGAR loðdýraúrgangs á Vogastapa. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson l . I í I I t i [ I s l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.