Morgunblaðið - 13.01.1998, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli
opnað um síðustu helgi
Fjölmenni í fjall-
inu þrátt fyrir
þoku og snjókomu
ALLT að 500 manns renndu sér
á skíðum í Hlíðaríjalli á sunnu-
dag, en þá var skíðasvæðið opn-
að í fyrsta sinn á þessum vetri.
Veðrið var reyndar ekki upp á
það besta, þoka og snjókoma.
„Fólk lætur það ekki á sig fá
þegar tækifærið kemur,“ sagði
Ivar Sigmundsson forstöðumað-
ur Skíðastaða og var ánægður
með viðtökurnar þennan fyrsta
skíðadag vetrarins. Hann sagði
greinilegt að góður árangur
Kristins Björnssonar skíða-
manns hefði áhrif, „hann virkar
mjög hvetjandi, það er alls stað-
ar verið að ræða um hann og
það virkar hvetjandi.“
Mikið hefur snjóað í Hlíðar-
Qalli um helgina og í gær,
mánudag, en bylur var í fjall-
inu, hvasst og skafrenningur
þannig að ekki var hægt að
hafa opið. „Við stefnum að því
að hafa allar lyftur opnar um
næstu helgi og þá munum við
einnig taka í notkun nýjan snjó-
troðara. Þó við séum hæverskir
menn og lítillátir hér í Hlíðar-
íjalli, þá get ég ekki annað sagt
en við séum kampakátir með
byrjunina," sagði ívar.
UNGA daman horfði vel og lengi á gínu við einn sýningarbásinn og
fannst hún ansi skrýtin.
Morgunblaðid/Kristján
SUMUM þykir nauðsynlegt að skoða ökutækin bæði hátt og Iágt eins
og sést á myndinni.
Vetrarsport í íþróttahöllinni
Aldrei fleiri
sýningargestir
YFIR 2.000 manns komu á sýning-
una Vetrarsport’98 í íþróttahöllinni
á Akureyri um helgina. Félag
vélsleðamanna í Eyjafirði hefur stað-
ið fyrir veglegri útilífssýningu á
þessum árstíma um árabil en sýning-
argestir hafa aldrei verið jafnmargir
ognú.
Kjartan Snorrason, formaður sýn-
ingamefndar, sagði sýninguna hafa
tekist mjög vel og sýnendur hafa ver-
ið mjög ánægðir. Veðrið var hagstætt
og sagði Kjartan að mikið af utanbæj-
arfólki hefði einnig komið í Höllina.
Öll vélsleðaumboð landsins voru
með á sýningunni og flest jeppaum-
boðin. Auk ökutækjanna var til sýnis
allt það nýjasta í fatnaði, fjarskipta-
búnaði, siglingatækjum, öryggisbún-
aði og fleira. Þá komu aðilar í ferða-
þjónustu nú að sýningunni.
Kjartan sagði að færri sýnendur
hefðu komist að en vildu og þyrftu
menn nú að fara að skoða hvernig
mætti nýta plássið betur og jafnvel
að hámarka þyrfti sýningarsvæði
hvers og eins. Hann sagði að ef sýn-
ingin héldi áfram að stækka ár frá
ári, yrði þörf fyrir stærra sýningar-
svæði og ef ráðist yrði í byggingu
fótboltahallar í bænum skyldu menn
hafa það í huga.
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
Hita- og vatnsveita Akureyrar
Nýjar varmadælur leysa
þær eldri af hólmi
Morgunblaðið/Kristján
GOMLU varmadælurnar hífðar á vörubílspall, en þær hafa verið í
notkun í tæp 14 ár og staðið undir um 3% af heitavatnsöflun veitunnar
að meðaltali.
VARMADÆLUR sem verið hafa í
notkun hjá Hitaveitu Akureyrar í
tæp 14 ár, frá 30. apríl 1984 hafa
verið teknar út úr húsnæði veit-
unnar við Þórunnarstræti en nýjar
dælur munu leysa þær af hólmi og
er verið að setja þær upp.
78 þúsund klukku-
tíma í gangi
Á þeim tíma sem dælurnar hafa
verið í notkun hjá veitunni hafa
þær verið í gangi um 70% tímans
eða um 78 þúsund klukkustundir
hvor. Þær hafa samtals eytt um 60
milljón kílóvattstundum af raforku
og framleitt um 210 milljón
kílóvattstundir af orku í formi heits
vatns. Dælurnar stóðu á þeim tæpu
14 árum sem þeirra naut við undir
um 3% af heildar heitavatnsöflun
hitaveitunnar að meðaltali.
Varmadælurnar voru keyptar á
árunum 1983-4 en á þeim tíma var
hluti dreifikerfis veitunnar tvöfald-
aður. Þessar aðgerðir þóttu á sín-
um tíma fýsilegar til að auka nýt-
ingu á fremur takmörkuðum vatns-
forða hennar.
Við val á varmadælunum var
gengið út frá ákveðnum forsendum
m.a. um bakrásarvatn, en þær hafa
í tímans rás breyst verulega, m.a.
hefur hitastig bakrásarvatns lækk-
að umtalsvert. Svo var komið að
dælurnar þurftu mikillar viðgerðar
við og ljóst að endumýja þyrfti
millikæla þeirra auk þess sem þær
þóttu háværar í meira lagi. Því var
farið að huga að því á liðnu ári að
skipta þeim út. Forsenda þess að
rekstur varmadæla hjá veitunni sé
hagkvæmur er að raforka fáist á
umframorkuverði og að í gildi séu
sérsamningar um „roftíma" á af-
hendingu raforkunnar.
Ódýrari
orkuframleiðsla
Hita- og vatnsveita Akureyrar
hefur umhverfissjónarmið að leið-
arljósi þannig að þegar ákveðið var
að festa kaup á nýjum dælum voru
slíkir þættir teknir með í reikning-
inn auk annarra. Tvö tilboð í nýjar
varmadælur fyrir Hita- og vatns-
veitu Akureyrar bárust og þótti til-
boð frá Kværner Fiskitæki í
Reykjavík um tvær dælur frá
Gram A/S í Danmörku betra. Sam-
anlögð hitaafköst dælanna er 3740
kílóvött við 809 kílóvatta raforku-
notkun og var heildarkostnaður við
kaupin 25 milljónir króna. Gert er
ráð fyrir að orkuframleiðsla í þess-
um nýju dælum verði ódýrari en í
eldri dælunum.
Puðað í
líkamsrækt
FJÖLMARGIR landsmenn eru
farnir að huga að línunum og þá
ekki síst þeir sem bætt hafa ein-
hveijum kflóum á sig yfir hátíð-
irnar. Eftir að hafa stigið á vigt-
ina fara margir að stunda lík-
amsrækt í janúarmánuði og svo
er alltaf nokkuð stór hópur sem
æfír reglulega allt árið og hugs-
ar vel um heilsuna.
Halldóra Bjarnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfé-
lags Akureyrar og nágrennis,
hugsar vel um heilsuna og hún
var að puða Iöðursveitt á spinn-
inghjóli í vaxtarræktinni í
Iþróttahöllinni er ljósmyndari
Morgunblaðsins var þar á ferð.
Morgunblaðið/Kristján
Fjórtán
óhöpp í
umferðinni
FJÓRTÁN umferðaróhöpp hafa
orðið síðustu daga á Akureyri og
mikið eignatjón í sumum þeirra, en
lítil meiðsl á fólki.
Alls voru tuttugu og fimm öku-
menn kærðir íyrir of hraðan akstur
í bænum, einn var tekinn íyrir
meinta ölvun við akstur, þrettán
voru kærðir fyrir að hafa ekki öku-
skírteini sitt meðferðis og þá klippti
lögregla númer af átta bifreiðum,
þar sem ekki hafði verið mætt með
þær til endurskoðunar. Einn vöru-
bifreiðastjóri var kærður fyrir að
hafa ekki ökurita í bifreið sinni. Þá
fengu þrír að gista fangageymslur
lögreglunnar.