Morgunblaðið - 13.01.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 27
Reuters
ROBIN Cook og Gaynor Regan.
Cook hyggur
á skilnað
London. Reuters.
ROBIN Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, greindi frá því á sunnu-
dag að hann hyggðist skilja við
konu sína, Margaret, og giftast rit-
ara sínum, Gaynor Regan.
Fjölmiðlar hafa verið margorðir
um ástir Cooks. Tony Blair, for-
sætisráðherra, lýsti fullum stuðn-
ingi við Cook og neitaði því að
skilnaður hans myndi gera hann
óhæfan til að gegna starfi sínu.
Um helgina voru fréttir af
einkalífi Cooks á forsíðum breskra
blaða. Margaret er sérfræðingur
við sjúkrahús í Edinborg og hefur
áður greint frá því að Cook hafi
haldið framhjá sér áður en þau
skildu að borði og sæng í fyrra
vegna sambands hans við Regan.
The Mail greindi frá því á
sunnudag að vinir Cooks spái því
að innan skamms muni hann verða
í fylgd Regan við opinberar at-
hafnir, en Margaret hefur sagt frá
því að hún hafi aldrei fengið að
fylgja honum við slíkar athafnir.
Margaret sagði að Cook hefði
aldrei látið hana hafa lykil að íbúð-
inni sem hann bjó í í London á
meðan þingið sat, né heldur hefði
hann boðið henni með á flokksþing
Verkamannaflokksins. Bresk blöð
greindu frá því um helgina að Reg-
an hefði haldið tO í íbúð Cooks í
London.
Blöðin News of the World og
Sunday Mirror sögðu á sunnudag
frá konu sem var sögð hafa verið í
nánu sambandi við Cook á níunda
áratugnum, en hvorugt blaðanna
gaf í skyn að um ástarsamband
hefði verið að ræða.
Ringulreið í
máli Kaczynskis
New York, Sacramento. Reuters.
SAKSÓKNARI í Sacramento í
Kaliforníu hefur hafnað annam til-
lögu að dómssátt frá Theodre
Kaczynski, sem talinn er vera svo-
nefndur Unabomber, um að hann
játi sig sekan til þess að komast hjá
líflátsdómi fyrir að hafa orðið þrem
að bana og slasað 29 með böggla-
sprengjum. The New York Times
greindi frá þessu í gær.
Réttarhöld í máli Kaczynskis
hófust í síðustu viku en mikil
ringulreið varð er Kaczynski fór
fram á að opinberir verjendur sínir
yrðu látnir víkja og hann fengi að
sjá sjálfur um málsvörnina. Þá tel-
ur lögregla að hann hafi reynt að
fyrirfara sér í fangaklefanum sem
hann gistir með því að hengja sig
með nærbuxum sínum.
The New York Times hafði í gær
eftir heimildarmönnum í dóms-
málaráðuneytinu að Kaczynski
hefði boðist til að játa sig sekan
gegn því að verða dæmdur í lífstíð-
arfangelsi. Hann hefði þó sett
ákveðin skilyrði fyrir játningunni.
Hann hefði krafist þess að mega
áfrýja nokkrum úrskurðum sem
kveðnir hefðu verið upp áður en
réttarhöldin hófust og einnig gerði
hann ákveðnar kröfur um verustað
sinn á meðan hann sæti inni.
í síðasta mánuði hafnaði sak-
sóknari tilboði Kaczynskis um að
hann játaði sig sekan gegn því að
sleppa við dauðadóm. Honum er
gefið að sök að hafa sent fjölda
bögglasprengja á 17 ára tímabili og
orðið þrem að bana og slasað 29.
Einhverri umfangsmestu leit sem
gerð hefur verið í Bandaríkjunum
lauk er bróðir Kaczynskis sagði til
hans 1995. Kaczynski kveðst sak-
laus.
Samkvæmt fregnum The New
York Times eru saksóknari og opin-
berir verjendur Kaczynskis að
reyna að komast að samkomulagi
um að binda endi á réttarhöldin.
Tímaritið Newsweek greindi frá því
í gær að Janet Reno, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hafi fallið frá
skilyrðislausum kröfum um að
Kaczynski verði dæmdur til dauða,
því ringulreiðin við réttarhöldin
kunni að leiða til fjölda áfrýjunar-
mála.
Newsweek greinir frá því að nú í
vikunni muni sérstök nefnd í dóms-
málaráðuneytinu koma saman til
þess að ákvarða hvort reyna eigi að
fá Kaczynski dæmdan til dauða.
Fulltrúi saksóknara í Sacramento,
Leesa Brown, bar til baka þessar
fregnir. Hún sagði að þótt saksókn-
ari væri ætíð reiðubúinn til að at-
huga tillögur verjenda um dóms-
sátt væri það „einfóldun" að segja
að atburðir síðustu viku hefðu leitt
til þess að allt kapp væri nú lagt á
að komast að samkomulagi.
í gær hófu geðlæknar á vegum
saksóknara að leggja próf fyrir
Kaczynski er eiga að skera úr um
hvort hann sé heill að geðsmunum,
eða hvort hann geti ekki talist sak-
hæfur vegna geðveiki. Kaczynski
hefur hingað til neitað því að gang-
ast undir geðrannsókn. Verjendur
hans hafa viljað byggja málsvömina
á því að hann sé „andlega vanheill"
en sjálfur hefur Kaczynski ekki vilj-
að að það verði gert og þess vegna
farið fram á að verjendur hans víki
sæti og hann sjái sjálfur um vömina.
50 uppreisnarmenn falla
Bujumbura. Reuters.
AÐ MINNSTA kosti 50 uppreisn-
armenn biðu bana í átökum við
stjórnarher Búrúndís nálægt höf-
uðborg landsins, Bujumbura, á
sunnudag.
Sjónarvottar sögðu að hermenn
hefðu beitt þyrlum og flugvélum til
að skjóta flugskeytum á uppreisn-
armenn úr röðum Hútúa, sem em í
meirihluta í Búrúndí.
Talsmaður hersins sagði að
fimmtíu uppreisnarmenn hefðu
verið drepnir og aðeins einn stjóm-
arhermaður. Arásin hefði verið
gerð eftir að íbúar þorps nálægt
Bujumbura skýrðu hernum frá því
að uppreisnarmenn hefðu safnast
saman á fjalli nálægt höfuðborg-
inni.
Uppreisnarmenn Hútúa hófu
sókn gegn stjórnarhernum með
árás sem kostaði að minnsta kosti
284 lífið norðan við Bujumbura
fyrr í mánuðinum. Hútúar berjast
gegn Tútsum í þrem löndum,
Búrúndí, Rúanda og Lýðveldinu
Kongó, sem hét áður Zaire, og
fréttaskýrendur segja að æ algeng-
ara sé að uppreisnarmennirnir í
löndunum þremur starfí saman og
geri árásir yfir landamærin.
Rúmlega 150.000 manns hafa
beðið bana í Búrúndí frá því í októ-
ber 1993. Pierre Buyoya, leiðtogi
hersins, hefur stjórnað landinu frá
valdaráni hersins í júlí 1996.
Staffræn gagnafform í margmidlun
Farið er í gegnum þau gagnaform sem notuð eru í
margmiðlun, bæði hljóð og mynd. Kostir þeirra og gallar
skoðaðir auk þess hvað þarf að hafa í huga þegar ákveðið
er hvaða gagnaform á að nota.
Tvívíddargrafík
Nemendur læra notkun tvívíðra teikniforrita, bæði bitmap
og vektorforrita. Þessi forrit eru gjarnan notuð við
margmiðlun, umbrot og vefsíðugerð, en eru einnig
nauðsynleg stoðforrit við þrívíddargrafíkvinnslu.
Hér verða notuð forritin Photoshop, Corel Draw,
lllustrator og FreeHand.
Þrlvíddargrafík
Þrívíddargrafík verðuræ meira áberandi í margmiðlun
Nemendur kynnast þrívíðri framsetningu hluta í tölvu,
hvernig á að teikna hluti í þrívídd, setja á þá áferð og
hreyfingar. Notast verður við 3D Studio MAX forritið.
Framsetning margmidlunar
Eftir að búið er að útbúa efni í margmiðlunarverk þá þarf
að ganga frá því þannig að notandinn geti skoðað það á
einfaldan hátt. Kennt verður hvernig á að nota forrit eins
og Authorware og Directortil þess að ganga frá
margmiðlunarefni. Einnig verður skoðað hvernig ganga á
frá efni til dreifingar á Internetinu, t.d. Shockwave.
Lokaverkefni
Námskeiðinu lýkur með því að nemendur nota það sem
þeir hafa lært til þess að búa til margmiðlunarverk,
Skráning
/ og nánari
upplýsingar í síma
568 5010.
Skráii ykkur tímanlega.
t.d. CD-ROM disk.
160 kennslustundir
Kennt er tvö kvöld í viku
frá kl. 18:00-21:30
RAFIÐNAÐARSKOLINIM
Skeifan 11 b ■ Sími 568 5010