Morgunblaðið - 13.01.1998, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Sameining í vöruflutningum á Austurlandi
Svavar og Kolbrún sam-
einast Landflutningum
Morgunblaðið/Ásdís
AFGREIÐSLA Vöruflutninga Svavars og Kolbrúnar í Reykjavík er
flutt í höfuðstöðvar Landflutninga-Samskipa í Skútuvogi.
SAMSTARFSSAMNINGUR hefur
verið undirritaður milli Vöruflutn-
inga Svavars og Kolbrúnar á Egils-
stöðum, Flutningamiðstöðvar Aust-
urlands og Landflutninga-Samskipa.
Samningurinn felur í sér samstarf á
sviði vöruflutninga og vöruafgreiðslu
og samkvæmt honum munu Vöru-
flutningar Svavars og Kolbrúnar
flytja vöruafgreiðslu sína í Reykja-
vík frá Vöruflutningamiðstöðinni í
Borgartúni til Landflutninga-Sam-
dODOE PN? J3C| e(L|
jIoam e jaj
Mun tölvukerfið vinna rétt
með ártalið 2UQQ?~^%
Aldamótaþjónusta Skýrr leysir
vandann.
Nú er tími til kominn að fara yfir tölvukerfi fyrirtækisins
og ganga úr skugga um aó á öllum svæóum, sem
innihalda dagsetningu, sé ártal táknaó meö fjórum
stöfum en ekki tveimur.
Aldamótaþjónusta Skýrr býóur fyrirtækjum faglega
aöstoó og gerir úttekt á stöóu tölvukerfa svo koma
megi í veg fyrir vandamál vegna ártalsins 2000.
Vertu tilbúinn árið 2000.
Leitaðu til Skýrr og fáðu allar nánari upplýsingar hjá
Helga Jóhannessyni, sölustjóra, í síma 569-5134.
Einnig má senda fyrirspurnir meó tölvupósti - netfangió er
helgijo@skyrr.is
Skvrr,
ÖRUGG
MlÐLUN
Upplýsinga
skipa í Skútuvogi. Þá sameina fyrir-
tækin vöruafgreiðslur sínar á Egils-
stöðum og sameinast um flutninga á
milli Austurlands og Reykjavíkur,
milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar og
á milli Egilsstaða og Borgarfjarðar
eystri.
Það samstarf sem hefur tekist
milli fyrirtækjanna er í samræmi við
þá þróun sem orðið hefur á flutn-
ingamarkaðnum hérlendis á undan-
förnum árum. Samskip og Eimskip
hafa verið að breytast úr skipafélög-
um í alhliða flutningafyi-irtæki og
hafa í því skyni efnt til samstarfs við
eða keypt hluti í landflutningafyrir-
tækjum í öllum fjórðungum.
Vöruflutningai' Svavars og Kol-
brúnar er gamalgróið fjölskyldufyr-
irtæki, sem hefur annast vöruflutn-
inga á Austurlandi og á milli Aust-
fjarða og Reykjavíkur. A undanförn-
um árum hefur það verið eini aðilinn,
sem annast vörudreifingu um allt
Austurland að frátöldum samstarfs-
fyrii'tækjum skipafélaganna.
Hagræðing og
bætt þjónusta
Baldur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Samskipa, segir
að markmið samstarfsins sé að auka
og bæta þjónustu við viðskiptavini
fyrirtækjanna, hagræða í rekstri og
styrkja heildarkerfi flutningaþjón-
ustunnar. „Við erum ánægðir með
samstarfíð og þá hagræðingu sem
það mun hafa í fór með sér. Fyrir-
tækin hafa bæði veitt svipaða flutn-
ingaþjónustu með akstri milli
Reykjavíkur og Austurlands og
dreifíngu um Austfírði. Svavar og
Kolbrún hafa verið með 3-5 bíla í
rekstri og við verið með annað eins í
þjónustu við svæðið. Við teljum því
unnt með slíku samstarfi að nýta
tækin betur og veita um leið betri
þjónustu," segir Baldur.
Flugflutningar krefja stjórnvöld um
endurgreiðslu á eldsneytisgjaldi
Telja sig hafa
ofgreitt níu
milljónir króna
FLUGFLUTNINGAR ehf., um-
boðsaðili Cargolux flugfélagsins á Is-
landi, hafa farið þess á leit við sam-
gönguráðuneytið að þeim verði end-
urgreitt eldsneytisgjald sem félagið
telur stjórnvöld hafa innheimt á
röngum forsendum. Um er að ræða
níu milljónir króna, ásamt vöxtum,
sem innheimtar voru á rúmlega
þriggja ára tímabili, frá hausti 1994
til ársloka 1997.
Eldsneytisgjald á Keflavíkurflug-
velli er nú 80 aurar á hvern lítra og
er innheimt af öllu eldsneyti sem þar
er selt. Bandarísk flugfélög eru und-
anþegin gjaldinu samkvæmt milli-
ríkjasamningi. Flugleiðir flytja inn
eigið eldsneyti og geyma í tönkum á
flugvellinum og þurfa því ekki að
greiða gjaldið.
Flugflutningar kvörtuðu á síðasta
ári yfir innheimtu eldsneytisgjalds-
ins til samkeppnisráðs. Ráðið komst
að þeirri niðurstöðu í desember að
stjórnvöld röskuðu samkeppni í
áætlunarflugi til Norður-Ameríku
með því að innheimta eldsneytisgjald
af Cargolux en ekki af Flugleiðum.
Beindi það þeim eindregnu tilmæl-
um til samgönguráðhei-ra að hann
beitti sér fyrir þvi að samkeppnis-
skilyrði á markaðnum fyrir fraktflug
til Norður-Ameríku yrðu jöfnuð.
Þórarinn Kjartansson, talsmaður
Flugflutninga ehf., segir að fyrii'-
tækið hafi ekki enn tekið afstöðu til
þess hvernig niðurstöðu samkeppn-
isráðs vegna gjaldsins verði fylgt eft-
ir. Hins vegar sé skýrt að Flugflutn-
ingar vilji fá endurgreiðslu á því
gjaldi, sem greitt hafi verið vegna
áætlunarflugs félagsins til Norður-
Ameriku enda hafi það verið inn-
heimt á röngum forsendum. „Við
greiddum gjaldið vegna þess að við
áttuðum okkur einfaldlega ekki á því
fyrr en síðar að áætlunarflug til Am-
eríku væri undanþegið hluta gjalds-
ins. Við teljum að um sé að ræða níu
milljónir króna, ásamt vöxtum, sem
innheimtar voru af okkur á röngum
forsendum frá haustinu 1994 til árs-
loka 1997. Við höfum sent bréf um
þetta til samgönguráðuneytisins og
bíðum nú eftir viðbrögðum þaðan,“
segh' Þórarinn.
Olía ekki lægri í 45 mánuði
London. Reuters.
OLÍUVERÐ á heimsmarkaði hafði
ekki verið lægra í 45 mánuði í gær
og hefur verð á hráolíu lækkað um
30% á þremur mánuðum.
Verðfali hlutabréfa í Asíu leiddi til
40% lækkunar á viðmiðunai'verði á
hráolíu þegai' viðskipti hófúst í Evr-
ópu.
Febrúarbirgðir seldust við opnun
á 15,10 dollara og á 15,19 dollara
tunnan kl. 12.30, sem var 31 sents
lækkun og lægsta verð síðan í apríl
1994.
Versnandi efnahagsástand í Aust-
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn
Hlutafjárútboði lokið
H LUTAF JARUTBOÐI Eignar-
haldsfélagsins Alþýðubankans, að
nafnvirði 300 milljónir króna, sem
hófst á síðasta ári er nú formlega
lokið. Bréfin voru seld á genginu 1,8
eða fyrir 540 milljónir króna.
Forkaupsréttur rann út hinn 17.
ur-Asíu mun draga úr eftirspum eftir
ohu í heimshlutanum í ár að sögn sér-
fræðinga. Á sama tíma íhuga OPEC-
ríki að auka framleiðslu til að fylla
kvóta, sem hafa verið auknir um 10%.
Kúveit, Sameinuðu arabísku
furstadæmin og Saudi-Arabía höfðu
vonað að Asíuríki mundu kaupa
aukamagn af olíu, sem þau hyggjast
framleiða, en nú virðast þær vonir
orðnar að engu.
Dregið hefur úr eftirspurn annars
staðar vegna þess að veður hefur
verið tiltölulega gott.
nóvember sl. og höfðu hluthafar þá
keypt bréf að nafnvirði um 200 millj-
ónir. Meðan á almennri sölu stóð í
desember var reynt að höfða til ein-
staklinga sem vildu taka þátt í ný-
sköpun og tryggja sér um leið
skattaafslátt.