Morgunblaðið - 13.01.1998, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Viðræður um lausn deilunnar á Norður-frlandi hefjast að nýju
Bretar og Irar semja
um nvja friðaráætlun
Bresk og írsk stjórnvöld náðu í
gær samkomulagi um nýjar til-
lögur sem þau vona að bindi
enda á þráteflið í friðarviðræð-
unum á Norður-írlandi sem
hófust að nýju í gær.
RÍKISSTJÓRNIR Bretlands og írlands lögðu í
gær fram nýjar tillögur um hvemig reynt yrði að
leysa deilu mótmælenda og kaþólikka um framtíð
Norður-írlands. Gert er ráð fyrir að samið verði
um þær í friðarviðræðunum, sem hófust að nýju í
Belfast í gær eftir mánaðar hlé.
í tillögunum er gert ráð fyrir því Norður-ír-
land fái eigið þing og stofnað verði „ráðherraráð"
skipað fulltrúum Irlands og Norður-írlands.
Þá er lagt til að breytingar verði gerðar á
þeirri grein stjórnarskrár írlands þar sem gert
er tilkall til Norður-írlands og að breskum lögum
um stjórn héraðsins verði einnig breytt.
Að sögn The Daily Telegraph hafa ennfremur
verið til umræðu hugmyndir um að stofna „eyja-
ráð“, skipað fulltrúum ríkisstjóma Bretlands og
írlands og þinganna í Skotlandi og Wales. Ekki
var Ijóst hvers konar völd ráðið ætti að fá, en
breska stjómin vildi að það yrði aðeins til ráð-
gjafar um málefni Norður-írlands.
í viðræðunum um tillögurnar lagði breska
stjómin áherslu á að þjóðernissinnar og sam-
bandssinnar á Norður-írlandi deildu með sér
völdunum. írska stjómin lagði hins vegar áherslu
á að Bretar og írar stjórnuðu Norður-írlandi í
Reuters
DAVID Andrews, utaiirikisráðherra írlands,
og Mo Mowlam, írlandsmálaráðherra í
ríkisstjorn Bretlands, á fréttamannafundi að
loknum samningafundi í gær.
sameiningu, en flokkar mótmælenda hafa verið
andvígir slíkum hugmyndum.
Hóta hermdarverkum að nýju
Blair var staddur í Japan um helgina en ræddi
málið í síma við embættismenn í Dublin og
London og leiðtoga norður-írskra flokka þegar
færi gafst. Allir sem taka þátt í friðarumleitunun-
um era sammála um að þær þurfi að bera skjótan
árangur, annars sé hætta á því að friðarviðræð-
umar í Belfast, sem hófust í júní 1966, fari út um
þúfur. Blair kvaðst þó vera fullviss um að sam-
komulag næðist um framtíð Norður-írlands ekki
síðar en í maí.
The Daily Telegraph hefur heimildir fyrir því
að bönnuð hreyfing sambandssinna, Frelsisher
Ulster (UFF), hafi hótað að hefja hermdarverk á
ný náist ekki samkomulag í meginatriðum um
framtíð Norður-írlands fyiir miðjan febrúar.
Gary McMichael, leiðtoga Lýðræðisflokks Ulst-
er, stjórnmálaflokks UFF, hefði verið skýrt frá
því að hreyfingin myndi ekki bíða lengur en í sex
vikur eftir því að samkomulag næðist.
Ekkert lát á morðunum
Friðammleitanirnar vom taldar í mikilli hættu
vegna morðtilræða hreyfinga róttækra sam-
bandssinna að undanförnu. Sjálfboðaliðssveit
sambandssinna, LVF, myrti dyravörð á
skemmtistað í Belfast á sunnudag og sagði að
markmiðið hefði verið að hefna morðs á leiðtoga
hreyfingarinnar, Billy Wright, sem var myrtur í
Maze-fangelsinu í lok desember. Þetta er þriðja
morðið sem hreyfingin fremur til að hefna leið-
togans.
Dyravörðurinn, Terry Enright, var kvæntur
frænku Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein, og
skemmtistaðurinn er í eigu systur Davids Er-
vine, leiðtoga Framsækna sambandsflokkksins,
stjómmálaflokks annarrar hreyfingar róttækra
sambandssinna, UVF.
Mowlam ræðir við fanga
Norður-írska lögreglan telur að Vamarsam-
band Ulster (UDA) hafi tekið þátt í tilræðinu. Mo
Mowlam, sem fer með málefni Norður-írlands í
bresku stjóminni, ræddi við fanga úr UDA í
Maze-fangelsinu á föstudag. Viðræðurnar urðu
til þess að Lýðræðisflokkur Ulster, stjórnmála-
flokkur UDA, féllst á að taka þátt í friðarviðræð-
unum í Belfast í gær eftir að hafa hótað að snið-
ganga þær.
Blair fór lofsamlegum orðum um þessar samn-
ingaumleitanir Mowlam. „Hún hefur náð mjög
miklum árangri síðustu daga og ég tel að menn
hljóti að fagna hugrekki hennar og vilja til að
taka áhættu í þágu friðar,“ sagði hann.
Brotlending Boeing
737-þotu SilkAir
Stélið
talið hafa
brotnað af
á flugi
Singapore. Reuters.
LIKLEGT þykir að hæðarstýri
Boeing 737-300 þotu SilkAir, dótt-
urfyrirtækis Singapore Airlines,
sem fórst í Indónesíu viku fyrir jól,
hafi brotnað af á flugi, að sögn
blaðsins Strait Times í Singapore.
Sex hlutar úr stéli þotunnar fund-
ust á landssvæði 6,8 km frá þeim
stað sem þotan brotlenti á, að því er
blaðið hafði eftir sérfræðingum sem
rannsaka orsakir flugslyssins. Þeir
segja fundinn ýta undir þá tilgátu
að bilun eða gallar í stélhluta flug-
vélarinnar hafi leitt til þess að hún
fórst og með henni 104 manns.
„Það er augljóst að hlutar stélsins
hafa brotnað af á flugi, fundurinn
gefur það til kynna,“ sagði einn sér-
fræðinganna. Þotan var í farflugi í
góðviðri í rúmlega 30 þúsund feta
hæð á leið frá frá Jakarta til Singa-
pore. Flugmennirnir gáfu ekki til
kynna að bilun væri um borð og
ekki sendu þeir heldur frá sér neyð-
arkall.
Rannsókn hefur leitt í ljós, að 26
hnoð vantaði í byrðing hæðarstýra
þotunnar og ennfremur bendir flest
til þess að bolta hafi vantað í löm í
hæðarstýrið.
Þota SilkAir var innan við árs-
gömul og leiddi brotlending hennar
til þess að bandaríska loftferðaeftir-
litið íyrirskipaði í síðustu viku
bráðaskoðun á 211 nýlegum þotum
sömu gerðar.
Reuters
Uppþot vegna morða í Lahore
TIL uppþota hefur komið i
borginni Lahore í Pakistan
síðustu tvo daga vegna morðs á
24 shíta-múslimum. Braut
lögregla á bak aftur mótmæli
þúsunda shíta sem stóðu fyrir
skemmdarverkum í borginni í
gær vegna morðanna. Herská
samtök sunni-múslima lýstu
ábyrgð á morðunum á hendur sér.
Netanyahu hélt velli
Jenisalem. Reuters.
RIKISSTJORN Benjamins Net-
anyahus hélt velli er greidd voru at-
kvæði um vantraust á hana á ísra-
elsþingi í gær.
Þetta var í fyrsta sinn sem stjóm
Netanyahus stóð frammi fyrir slíkri
prófraun á þinginu, Knesset, eftir
að klofningur varð í stjómarliðinu
fyrir rúmri viku með afsögn utan-
ríkisráðherrans, Davids Levy, sem
skildi stjómina eftir hangandi á blá-
þræði. Atkvæðagreiðslunni lyktaði
þannig, að 54 þingmenn greiddu at-
kvæði með vantrauststillögunni og
jafn margir á móti.
Netanyahu hefur lagt mikið upp
úr því að hægristjórn hans haldi vel
á efnahagsstjóm landsins, en efna-
hagsstefna hennar hefur skiljanlega
fallið nokkuð í skuggann af deilun-
um um friðarviðræðumar við Pal-
estínumenn.
Með sannfæringartilraunum sín-
um varð Netanyahu hins vegar ekki
ýkja ágengt og Levy fór. En þingið
samþykkti aðhaldssöm fjárlög sem
miða að 2,4% hámarkshalla á ríkis-
sjóði sem hlutfall af þjóðarfram-
leiðslu, og þrátt fyrir veikari stöðu
stjómarinnar hyggst hann, sam-
kvæmt frásögn Financial Times,
reyna að fresta nýjum kosningum
eins lengi og mögulegt er í trausti
þess að hin ákveðna aðhaldsstefna
muni skila sér í lægri vöxtum og
verðbólgu. Fyrir þennan árangur
muni kjósendur verðlauna Likud-
flokkinn.
Neyðarviðræður IMF við ráðamenn í SA-Asíu
Suharto Indónesíufor-
seti lofar umbótaátaki
Singapore, Djakarta, Seoul. Reuters.
FULLTRÚAR Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins (IMF) og bandarískra
stjómvalda em þessa dagana á ferð
milli höfuðborga Suðaustur-Asíu-
ríkja í þeim tilgangi að styrkja tiltrú
kauphallarhéðna á efnahagsástand-
inu þar um slóðir. í gær áttu fulltrú-
arnir samtöl við ráðamenn í
Indónesíu um það hvemig þeir geti
framfylgt neyðarráðstöfunum og
stuðlað að stöðugleika á fjármála-
mörkuðum.
Gengi gjaldmiðla hélzt stöðugt í
Djakarta, hækkaði í Suður-Kóreu en
féll lítillega annars staðar á svæðinu
af völdum ótta við vaxtahækkun og
íregna af líklegu gjaldþroti Pere-
grine-verðbréfafyrirtækisins í Hong
Kong.
Suharto, forseti Indónesíu, hét því
í gær eftir samræður við fulltrúa
IMF og símasamtöl við Ryutaro
Hashimoto, forsætisráðherra Jap-
ans, og Helmut Kohl Þýzkalands-
kanzlara, að hrinda róttækum um-
bótaáætlunum í framkvæmd. Stanl-
ey Fischer, einn af æðstu mönnum í
stjóm IMF, sagði eftir 90 mínútna
fund með Suharto að fundur þeirra
hefði verið „mjög góður“. „Ég á von
á því að innan fáeinna daga muni rík-
isstjórn Indónesíu sýna svo ekki
verði um villzt ákveðni sína í að
framfylgja áætlun [IMF] og að grípa
til ýmissa aðgerða sem stuðla að því
að byggja upp traust á indónesískum
efnahag á ný,“ sagði Fischer að
fundinum loknum. í október sl.
samdi IMF við Indónesíustjóm um
að sjóðurinn hefði milligöngu um
fjárhagsstuðning að upphæð 43
milljarða Bandaríkjadala til að
bjarga fjármálalífi landsins frá hruni
gegn því að stjómin hrinti róttækri
umbótaáætlun í
framkvæmd.
Vaxandi þrýst-
ingnr
og gagnrýni
Til Djakarta
kom einnig í gær
Lawrence Sum-
mers, aðstoðar-
fj ármálaráðherra
Bandaríkjanna, og
átti viðræður við fjármálaráðherra
Indónesíu. Áformað var að hann hitti
Suharto í dag.
Frammámenn í öldungadeild
Bandaríkjaþings hafa gagnrýnt
áætlun IMF um aðstoð við Indónesíu
og önnur Asíuríki. Alphonse
D’Amato, formaður bankamála-
nefndar deildarinnar, sagði í íyrra-
dag að áætlunin væri til þess fallin
að skerða hagsmuni Bandaríkja-
manna. Með komu Summers jókst
því enn þrýstingur umheimsins á að
stjórnvöld í Indónesíu hlíti að fullu
ákvæðum samkomulagsins við IMF
og hrindi í framkvæmd aðgerðum til
að bregðast við verstu kreppu sem
sótt hefur landið heim í marga ára-
tugi. Því til viðbótar hefur undan-
farna daga aukist um allan helming
gagnrýni innlendra aðila á stjórn Su-
hartos, sem er nú 76 ára og hefur
setið óslitið í 30 ár á valdastóli í ríki
þar sem 200 milljónir manna búa.
Suharto hefur mátt sæta harðari
gagnrýni en dæmi em um til þessa
frá þegnum sínum vegna þess hvem-
ig stjóm hans hefur tekið á krepp-
unni. Kröfur um að hann segi af sér
við lok sjötta fimm ára kjörtímabils
síns í marz næstkomandi em orðnar
mjög háværar. Þykir mörgum orðið
nóg um hvernig hann hikar við um-
bætur í því skyni að vemda við-
skiptahagsmuni fjölskyldu hans, sem
í sýóli valdsins hefur byggt upp eig-
ið efnahagsveldi.
Fólk hætt að hamstra
Kreppan í Indónesíu náði nýju há-
marki í síðustu viku, þegar stjórn
Suhartos lagði fram fjárlagalrum-
varp fyrir fjárlagaárið 1998/99. Það
var strax harðlega gagnrýnt fyrir að
gera ekki ráð fyrir nauðsynlegum
spamaði í ríkisrekstrinum, en Stan-
ley Fischer sagði Indónesíustjóm
hafa heitið því að gera vissar umbæt-
ur á frumvai-pinu.
Fyrst eftir að framvarpið var lagt
fram brugðust fjármálamarkaðir við
með falli á gengi verðbréfa og rúpí-
unnar, gjaldmiðils Indónesa. I kjöl-
far þessa brauzt út ofsahræðsla með-
al almennings við að óðaverðbólga
væri í nánd og fólk brást við með því
að hamstra mat og aðrar nauðsynj-
ar. í gær var hins vegar rólegt á
mörkuðum og í verzlunum og fregnir
bámst af því að heildsalar hefðu
komizt að samkomulagi um að frysta
núverandi markaðsverð á nauðsynja-
vömm fram yfir Eid-al-Fitr-hátíd
múslima í lok þessa mánaðar.
Jákvæð teikn í S-Kóreu
Jákvæð teikn þóttu einnig sjást í
gær í Suður-Kóreu. Fjármálaráð-
herra landsins hafði það eftir Michel
Camdessus, aðalframkvæmdastjóra
IMF, að fjármálastaða landsins hefði
verið að batna frá þvi í nóvember.
Fréttaskýrendur sögðu ennfremur
að svo virtist sem Suður-Kóreumenn
væm að ná tökum á fjármálakrepp-
unni hjá sér.